Skessuhorn


Skessuhorn - 05.07.2006, Page 26

Skessuhorn - 05.07.2006, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 5. JULI 2006 ^UÍSSUltU^ Allir koirmir í náttföt og hættir að mála sig á öðrum degi Að Laugum í Sælingsdal í Dala- sýslu rekur Ungmennafélag Islands ungmenna- og tómstundabúðir og hefur gert síðan í byrjun árs 2005. Þar dvelja krakkar í munda bekk frá mánudegi til föstudags, heimsækja sveitabæi og kynnast heimavistarlífi. Mikil ánægja hefur verið með starf- semina og er nú svo komið að næstd vetur er svo til uppbókaður. Verkefnið er unnið í samstarfi margra aðila, m.a. við sveitarfélagið Dalabyggð. Að sögn Gunnólfs Lár- ussonar sveitarstjóra er mikil ánægja með verkefhið hjá sveitarfélaginu og telur hann það mjög vel heppnað. Anna Margrét Tómasdóttir for- stöðumaður tekur einnig í sama streng. „Þetta hefur gengið gríðar- lega vel og mikil ánægja er hjá krökkunum sem hafa verið hér. A síðasta vetri mældum við 95% ánægju hjá þeim.“ Að Laugum var rekinn heimavist- arskóli til ársins 2000 þegar honum var lokað og bömum sem hann sóttu vom eftir það ekið í skóla í Búðardal. Nú starfa sjö manns að Laugum en verða líklega átta næsta vetur, tveir í heilsársstarfi en hinir níu mánuði ársins. UMFI hefur tekið að sér rekstur Edduhótelsins á staðnum sem og sundlaugarinnar fyrir Dala- byggð. Breyting á fyrsta degi Markmið með rekstri búðanna er að vera leiðandi í rekstri ungmenna- og tómstundabúða á Islandi, að efla sjálfstraust, tillitssemi og samvinnu, að hvetja til sjálfstæðra vinnubragða, að kynna krökkunum heimavistarlíf, að fræða þau um söguslóðir, að Anna Margrét Tómasdóttir, forstööumaður Ungmenna- og tómstundabúöanna aö Laugum í Sœlingsdal. Menntaskóli Borgarfjarðar ehf Fundarboð Hluthafafundur í Menntaskóla Borgarfjarðar verður haldinn þriðjudaginn 11. júlí í félagsmiðstöðinni Óðal í Borgarnesi. Funaurinn hefst kl. 20.00 Dagskrá fundarins: 1. Kynning á byggingu skólahúss Menntaskólans 2. Ráðning skólameistara - kynning 3. Kosning stjórnar 4. Önnur mal Allir hluthafar velkomnir á fundinn kynna þeim landið og nánasta um- hverfi, að kenna þeim að verða þátt- takendur í félagsstarfi í anda UMFI, að fræða þau um mikilvægi forvama, að kynna þeim ábyrg fjármál, að vinna markvisst gegn einelti, að fræða þau um mikilvægi hollra lifn- aðarhátta og að kynna þeim jaðarí- þróttir. Anna Margrét segir að dvöl að Laugum sé mikil tilbreytdng fyrir krakkana. „Þau em oft fúl fyrsta dag- inn yfir því að geta ekki notað gsm síma eða tölvur og yfir því að hér sé ekkert sjónvarp og ekki selt nammi. Það rjátlar þó fljótlega af þeim og strax daginn efidr em alhr ánægðir á náttfötum, hættir að greiða sér og mála.“ Anna segir að engin vandræði hafi komið upp í starfsemi búðanna, starfsfólk sé enda vel samsett og ráði vel við verkefnið. Eykur víðsýni unga fólksins Ungmenna- og tómstundabúð- imar að Laugum standa öllum skól- um opnar. Raunin hefur hins vegar verið sú að mest aðsókn kemur úr skólum á Vesturlandi og úr Hafnar- firði og Kópavogi. Anna Margrét kann enga skýringu á því. „Líklega spyrst þetta bara út á meðal kennara í sveitarfélögunum. Hinsvegar er að- sókn alltaf að aukast hjá okkur og allt að verða upppantað fyrir næsta vet- ur.“ Anna Margrét segir að þetta sé kjörin leið til að nýta þá heimavistar- skóla sem standa auðir víða um land. Þannig sé hægt að hleypa lífi í gaml- ar byggingar og halda tengslum við sveitalífið. „Við höfum verið í sam- vinnu við Bændasamtökin, fömm með krakkana í heimsóknir á sveita- bæi og kynnumst hfinu þar. Þannig kynnast bömin hfinu í dreifbýlinu, sem þau annars ekki gerðu, og um leið kynnast kennarar börnimum á alveg nýjan máta.“ Verkefhin að Laugum era fjöl- breytileg. Krakkamir era mikið útd við, kynnast óhefðbundnum íþrótt- um og era þjálfuð í ræðumennsku svo fátt eitt sé tínt til. Lögð er rík áhersla á tómstundir sem lífsstíl og sem mikilvægan þátt í forvarnar- starfi. Dvölin að Laugum kostar 10 þúsund krónur fýrir hvert ungmenni en að öllum líkindum er það afar góð fjárfesting því lærdómurinn sem börnin draga af þessari dvöl og tengsfin sem myndast milh bam- anna og sveitarinnar era ómetanleg. KOP í Stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. Sjá upplýsingar um skólann á www.borgarbyggd.is undir starfsemi . Glöggar systur í samstarfi við Púls 68 kynna: Samsýninguna „Nær og fjær" 7. - 23. júlí 2006 að Bakkatúní 20, Akranesí Opið: kl 13:00-18:00 Á frskum dögum á Akranesi verður haldin samsýning, á myndlist, leiriist, Ijósmyndum, skúlptúrum og hönnun, í stofunni að Bakkatúni 20 á Akranesi. Við sem sýnum erum Ólöf Björk Oddsdóttir, Lára Stefánsdóttir, María Jónsdóttir, Jóhanna og Margrét Leópoldsdætur. Verið hjartanlega velkomin og heitt á könnunni! Sjá nánar á: www.leopold.is/gloggarsystur Upplýsingar gsm. 695 6266 V________________________________________________J Trésmiðjan Akur byggirtvö parhús við Sóltún 14-14a og 16-16a á Hvanneyri. Húsin afhendast fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð og óeinangruð að innan. Allar nánari upplýsingar og sölubækling er hægt að fá á skrifstofu Akurs. \ Smiðjuvöllum 9 • 300 Akranes • Sími: 430 6600 • Fax: 430 6601 Netfang: akur@akur.is • Veffang: www.akur.is RUMM

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.