Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2006, Side 8

Skessuhorn - 02.08.2006, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 ■ .kSMlH... I Fjölmenni á 40 ára vígsluafmæli Grundarfj arðarlorl' Fjörutíu ára vígsluafmælis Grundarfjarðarkirkju var minnst með hátíðarmessu í kirkjunni og síðan kaffisamsæti í Samkomuhúsi Grundarfjarðar sl. sunnudag. Bisk- up Islands, Herra Karl Sigurbjöms- son predikaði, en fjórir fyrrverandi sóknarprestar Setbergsprestakalls aðstoðuðu við messuna. Auk þeirra vom viðstaddir alhr sóknarprestarn- ir á Snæfellsnesi, nokkrir þeirra guðfræðinga sem komu að bygg- ingu kirkjunnar á sínum tíma með sjálfboðaliðum frá ýmsum þjóð- löndum á vegum Lútherska al- heimssambandsins. Að messu lok- inni var haldið til kaffisamsætis í Samkomuhúsinu en þar stjómaði Runólfur Guðmundsson sóknar- nefndarformaður dagskrá þar sem rifjuð var upp í máli og myndum byggingasaga Grundarfjarðarkirkju. Smíði kirkjunnar hófst árið 1960 en fyrri áfangi kirkjubyggingarinnar var síðan vígður 31. júlí 1966. Bygg- ingameistari kirkjunnar var Guð- bjartur Jónsson og hélt hann dagbók þennan tíma og afhenti sóknamefnd hana ásamt fjölda ljósmynda til varðveislu þegar lokaáfangi kirkju- byggingarinnar var vígður 11. júlí 1982. Dagbók Guðbjarts Jónssonar og byggingasögu kirkjunnar em gerð góð skil í nýjasta riti af bókinni Fólkið, fjöllinn, fjörðurinn sem Eyr- byggjar, Hollvinasamtök Grundar- fjarðar gefa nú út í 7. skipti og kom út í tengslum við bæjarhátíð Grund- firðinga „Á góðri stund“ um liðna helgi. GK Að lokinni hátíðarmessu í Grund- arfjarðarkirkju. Aftastfrá vinstri: Sr. Gunnar Hauksson prófastur í Stykkis- hólmi, Runólfur Guðmundsson forrn. sóknamefndar, sr. Sigurður Kr. Sig- urðsson, sr. Kolbeinn Þorleifsson og sr. Magnús Magnússon. Miðró'ð: Sr. Karl V Matthíasson, sr Ragnheiður Karitas Pétursdóttir, si: Guðjón Skarphéðinsson og Bemharð Guðmundsson. Fremsta röð: Sr Helga Helena Sturlaugsdóttir, herra Karl Sigur- bj'ómsson biskup, sr. Elínborg Sturlu- dóttir sóknarprestur, sr. Jón Þorsteins- son og Sunna Njálsdóttir meðhjálpari. Tíu ára vígsluafinæli Reykholtskirkju Þess var minnst við fjölmenna Guðsþjónustu í Reykholtskirkju síðastliðinn sunnudag að tíu ár em liðin ffá vígslu nýju kirkjunnar á staðnum. Forseti Islands, herra Olafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Moussaief vom viðstödd at- höfnina en Ólafur Ragnar hefur stutt dyggilega við ffamkvæmdir í Reykholti, ásamt fjölmörgum öðr- um, m.a. með því að tala máli henn- ar í fyrstu opinberu ferð sinni til Noregs, en í kjölfarið lögðu Norð- menn veralega fjármuni til bygg- ingar kirkju og Snorrastofu og heiðruðu þannig minningu Snorra Sturlusonar. Ásamt séra Geir Waage, sóknar- presti í Reykholti komu fleiri prest- ar og þjónar kirkjunnar að athöfn- inni. Herra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti flutti stól- ræðu og blessaði hina nýju steindu glugga kirkjunnar sem formlega vom vígðir við þetta tilefni. Auk þeirra Sigurðar og Geirs tóku þátt í athöfti og sungu messu þeir Þor- björn Hlynur Amarson prófastur á Borg, Brynjólfur Gíslason í Staf- holti, Kristinn Jens Sigurþórsson í Saurbæ og hjónin Hjalti Hugason og Ragnheiður Sverrisdóttir djákni, en þau hjón þjónuðu í Reykholti um skamma hríð næst á undan séra Prestshjónin í Reykholti; Dagný og Geir og Guðlaugur sóknamefndarformaður taka hér á móti forsetahjónunum við komuna til Reykholts. Guðlaugur Óskarsson býður hér Ólafi Ragnari Grímssyni til kirkjukaffis. Frá afmælisguðsþjónustunni sl. sunnudag. Geir Waage fyrir ríflega aldarfjórð- ungi síðan. Kirkjukór Reykholts- og Hvanneyrarkirkju söng við at- höfnina og organistar vom þeir Bjami Guðráðsson og Viðar Guð- mundsson. Guðlaugur Óskarsson skólastjóri hefur verið formaður sóknamefnd- ar Reykholtskirkju um áratugaskeið og allan þann tíma sem Reykholts- kirkja og Snorrastofa hafa verið í byggingu. Við athöfnina flutti hann ávarp og rakti m.a. tilurð byggingar kirkju og Snorrastofu, gjafir og stuðning fjölmargra aðila og lýsti hann jafnffamt hinum nýju steindu gluggum sem komið hefur verið fyrir á öllum hliðum kirkjunnar, en þeir eru hannaðir af Valgerði Bergsdóttur. Margir hafa stutt Reykholtssöfiiuð við gerð og upp- setningu glugganna og gat Guð- laugur sérstaklega framlaga frá Seðlabankanum, Sparisjóði Mýra- sýslu, frá viðskiptabönkunum, VIS og Borgarbyggð. Einnig hafa inn- lendir og erlendir einstaklingar lagt verkinu lið. Guðlaugur sagði að enn vantaði þó herslumun til að ná end- um saman við fjármögnun verksins. Guðlaugur gat þess að sl. föstu- dag, 28. júlí á réttum vígsluafmælis- degi kirkjunnar, hafi verið undirrit- aður samningur milli Reykholts- söfnuðar og þjóðminjavarðar um gagnkvæm lán á kirkjumunum ffá Steinunn Bima Ragnarsdóttir, stjómandi Reykholtshátíðar er hér að selja þeim hjónum Jóni Baldvini og Bryndísi miða á tónleikana sl. sunnudag. 16. og 17. öld sem hafa verið í vörslu Þjóðminjasafnsins en era úr Reykholti. Gegn því láni fær safhið til varðveislu um hríð gripi er til- heyrðu gömlu kirkjunni á staðnum. Undanfarin ár hefur verið unnið að endurgerð gömlu kirkjunnar í Reykholti og er því verki nú lokið og stefnt að formlegri opnun herm- ar á ný nú í ágústmánuði. Þar verð- ur opnuð sýning á vegum Þjóð- minjasafns Islands er tengist m.a. fornleifauppgreftri á staðnum. Að lokinni athöfn bauð sóknar- nefnd gestum til safnaðarkaffis í Safhaðarsal Reykholtskirkju. Að lokinni þessari athöfn hófst síðasti tónlistarviðburðurinn á Reykholtshátíð en hún var nú hald- in í 10. skipti undir stjórn Stein- unnar Birnu Ragnarsdóttur, píanó- leikara. Mikil aðsókn var að öllum dagskrárliðum hátíðarinnar og góður rómur gerður að flutningi tónlistarfólks sem kom ffá Póllandi, Prag auk íslenskra tónlistarmanna. Margir hátíðargestir héldu til í Reykholti um liðna helgi og bjuggu flestir á Fosshótel Reykholti en einnig í sumarhúsum í héraðinu og víðar. e i MM

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.