Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2006, Side 13

Skessuhorn - 02.08.2006, Side 13
^ktasunuiw MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 13 Samgönguráðherra á ferð um Breiðafjörð Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var á ferð um Breiðafjörð sl. miðvikudag og ræddi m.a. við heima- menn og hagsmuna- aðila um samgöngur á firðinum. Með ráð- herra voru fulltrúar frá bæjaryfirvöldum í Stykkishólmi, Sigl- ingastofnun, Rann- sóknarnefnd sjóslysa, Siglingaráði og Hafn- arráði. Við samein- ingu sveitarfélaga við Breiðafjörð var ýms- um úrbótum í hafnar- málum lofað og var ferðin ekki síst liður í því að kanna hvernig má efna þau loforð. Aukin ferðaþjón- usta á Breiðafirði, búseta í nokkrum eyjum og fjölgun skemmtibáta kallar á úrbætur í þeim efnum. Meðal þess sem ráð- herra ræddi við heimamenn var bætt hafnaraðstaða í Flatey, bæði fyrir smábáta og ekki síst vegna Baldurs. Nýi Baldur er um 60 metrar að lengd en bryggjukantur- inn í Flatey aðeins um 20 metrar. MM Jóhannes hóndi Gíslason í Skáleyjum rœðir vió Sturlu á hiyggjunni í Skáleyjum. Rábherra ræSir við heimamenn í Flatey. Frá vinstri eru Hafsteinn Guðmundsson, Sturla Böðvarsson, Btyndts Þórðardóttir og Magnús Jónsson. Opið bréftil Þorgerðar Katrínar, menntamálaráðherra K o m d u blessuð og sæl, Þorgerð- ur Katrín. Eg er einn af þeim sem hafa áhyggjur af meðferðinni á móður- málinu og sýnist málinu hraka, þrátt fyrir aukna skólagöngu þjóð- arinnar. Daglega heyrast og sjást alls kyns villur í fjölmiðlum. Ambögur hjá okkur eru af ýms- um gerðum. Hér koma nokkrar úr útvarpi, sjónvarpi og dagblöðum. Nú er oft fleirtala þar sem áður var notast við eintölu. Á morgun má búast við suðlægum áttum. Það eru þau veganesti sem sam- starfið byggir á. Mismunandi brögð eru að súkkulaðinu. Búist var við sömu verðum og afsláttum. Hættulegir framúrakstrar. Sem stendur eru hægar áttir. Oft sést eða heyrist að áhrifs- sögn er gerð áhrifslaus (þá stjórnar hún ekki falli). Þegar kirkian og peningar ber á góma. Ég tel að Ibúðalánasióður sé markaður bás. Sögnin slitin úr samhengi við frumlagið (sögnin lagar sig ekki að frumlaginu). Það varð átök um þetta mál. Fjöldi manna fylgdu honum til grafar. Gæði mjólkur- innar hefur aukist. Síðan var greitt atkvæði um verkfall. Það hefur verið fjárhagsvandræði. Villur af ýmsum gerðum. Kjöt sem er slátrað. Rúmeninn var á þrisvar sinnum lægri launum en sagt var. Honum voru mislagðar fætur. Dýr kostnaður. Þeir snúast kringum hvern annan. Það verða kennarar að gera sér grein fyrir. Neytendur og önnur fyrirtæki. Hvers konar íslenska er þetta? Var þetta sagt til að sýna hvernig íslenska á ekki að vera? Nei, þetta er aðeins örlítið brot úr safninu, þar sem reglur móðurmálsins eru þverbrotnar hver á fætur annarri. Eftir að við urðum svona „stór“, eins og við erum núna, breyttum við ýmsum orðum. Nokkur dæmi: Barnsfæðing varð barnafæðingar, fé - fjármagn, ræktun - ræktanir, tími - tímapunktur, maður - aðili, verð - verðin, stærð - stærð- argráða, atvinna - atvinnutækifæri, tjón - tjónin, upphaf - upphafsflöt- ur, landbúnaður - landbúnaðar- geiri, peningamaður - kjölfestu- fjárfestir. Það er munur að vera orðin(n) stór. Orfáar ambögur til viðbótar: Mönnum hafa fundist., Þar búa fjöldi manna., Þeir eiga þakkir skildar.. ..vegna aðstöðuskorts.. Steinar á ellefu vetra ær, sem bar litla gimbur í snjónum á Reynis- fjalli. Merkingarlaus orð eru algeng: Munurinn er sá, að.. - Munurinn er, að... Ástæðan er sú, að... - Ástæðan er, að... Sem að, ef að, þegar að. Konan sem sagði: „Ef að ég get, þegar að ég fer.“ Fyrir stundu síðan - Fyrir stundu. Eign- arfall eintölu af orðinu maður er mikið notað þar sem ætti að vera fleirtala. Fjöldi manns, í stað fjöldi manna, 90 manns í stað 90 menn. í fyrravor birtist á sjónvars- skerminum dag eftir dag orðið Samkeppnisstofnun. Hvaðan kemur s-ið í keppnis? Keppni er óbeygjanlegt orð. Eg hringdi í stofnun sem gefur sig til að leysa vanda fólks varðandi móðurmálið. Þar fékk ég þær upplýsingar að s- inu væri skotið inn í samsetning- una og þannig væru fleiri orð til dæmis ráðunautur u-inu skotið inn. Var það ekki ráðanautur í upphafi, sagði ég. Svarið var nei. I Búnaðarritinu fyrir árið 1900 stendur allsstaðar ráðanautur. Eg fór að velta fyrir mér sam- settum orðum og fékk þá niður- stöðu, að fyrri hluti samsetts orðs er eitt af þrennu. stofn. sem er þol- fall eintölu. eignarfall eintölu eða eignarfall fleirtölu. Af orðinu ráð eigum við alla möguleikana. Ráðherra (stofn- inn), ráðskona (eignarfall eintölu) og ráðamaður (eignarfall fleir- tölu). Eg hringdi aftur í fyrr- nefnda stofnun og spurði hvort fyrri hluti samsetts orðs væri ekki eitt af þessu þrennu. „Hvar stend- ur það skrifað?" spurði sá sem svaraði. Eg hafði ekki svar við spurningunni. „Það er auðheyrt að þú ert ekki málfræðingur", sagði viðmælandinn, með tilheyr- andi áherslu. Eg hélt að þessir menn væru til að leiðbeina fólki, en ekki til að hæðast að skoðunum þess. Nú er það spurningin hvað skal gera til að bæta málfarið og hvar á að byrja? Verður þjóðin ekki að setjast á „skólabekk“, jafnt ungir sem gamlir. Það verða allir nem- endur og sem flestir líka kennarar. Allir þurfa að hjálpast að. Það má ekki teljast skömm að hrasa. Skömmin liggur hjá hinum sem sleppir því að leiðrétta náungann. Eigum við að senda fjölmiðlum leiðréttingu, þegar við finnum villu? Fjölmiðillinn þarf síðan að kynna leiðréttinguna á ákveðnum stað eða tíma, sem þjóðin á aðgang að og veit af bæði stað og stund. Morgunblaðið er stundum með leiðréttingar á móðurmálinu. Þökk sé því fyrir framtakið. Leið- réttingarnar þyrftu að vera á ákveðnum stað, svo þær fari ekki framhjá þeim sem vill lesa. Þorgerður Katrín, ég vona að þú sjáir þér fært að gera eitthvað í málinu. Aðgerðarleysi finnst mér óþolandi. Eg óska þér alls góðs í þessum grimma bardaga. Gangi þér vel. Mínar bestu kveðjur, Þorsteinn Pétursson Arbergi 3 - 320 Reykbolt www.kjolur.is Sími 525 8383 Við störtum helginni fimmtudagskvöldið kl. 22:30 til 23:30 með trúbadornum írisi Björgu Guðbjartsdóttur sem sló í gegn á Leifshátíð fyrr í sumar. DJ Swingman klárar kvöldið til kl. 01:00 Dúndur stuð verður til kl. 03:00 föstudags-, laugardags-og sunnudagskvöldið. Tilboð á svalandi alla helgina: 500 kr. Minnum á, erum komin með þráðlausa nettengingu hotspot. Kvöldganga Kvöldganga UMSB um Eldborg verður farin þann 3. ágúst. Farið verður frá Snorrastöðum kl. 20.00. Leiðsögumaður er Haukur Sveinbjarnarson. Borgarfjarðarhlaup Borgarfjarðarhlaup UMSB verður haldið þann 12. ágúst. Skráning í síma 437-1411 og á umsb@umsb.is Starfskraftur óskast í efnalaug Vantar að ráða starfskraft í fullt starf í efnalaugina Múlakot í Borgarnesi. Ráðið verður í starfið sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Sigrún á staðnum. Einnig má senaa umsókmr á netfangið: kross@vesturland.is Umsóknarfrestur er til 11. ágúst nk. jrni | Efnalaugin Múlakot ehf /l/l11 I íl l/íl L Borgarbraut 55 IVUr jio Borgarnesi 1 Sími 437 1930

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.