Skessuhorn - 09.08.2006, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
agESSiffiífMBWl
17 gr. af dópi
BORGARFJÖRÐUR: Lögregl-
an í Borgarnesi hélt úti töluverðu
eftirliti vegna flkniefna í síðustu
viku og stöðvaði töluverðan fjölda
af bílum sem áttu leið um Borgar-
nes í því sambandi. Alls komu upp
fjögur flkniefnamál í vikunni og
var lagt hald á um 10 gr. af kanna-
bisefnum og um 7 gr. af ætluðu
amfetamíni í þeim málum. Mest
af þessum efhum var á leiðinni
norður í land en hluti þeirra var
ætlaðru- til neyslu í Borgarnesi
enda áttu heimamenn hluta af
þessum málum. -so
Fær styrk
BORGARBYGGÐ: Félagsmála-
ráðherra hefur að tillögu Jöfntm-
arsjóðs sveitarfélaga samþykkt að
veita nýsameinuðu sveitarfélagi
Borgarbyggð, 130 milljona króna
styrk vegna sameiningar þeirra
fjögurra sveitarfélaga er mynda
hið nýja sveitarfélag. Framlagið er
ekki eyrnamerkt einstökum verk-
efnum heldur er um almenna út-
hluttrn til þróunar og endurskipu-
lagningar stjórnsýslu og þjónustu
hins nýja sveitarfélags að ræða.
Samkvæmt reglum kemur ffam-
lagið til greiðslu á sameiningarári
og fjögur fýrstu árin eftir samein-
ingu. -hj
Haft í hótunum
KVÍABRYGGJA: Lögreglan í
Olafsvík stóð í síðustu viku vörð
um Kvíabryggju ásamt tveimur
mönnum frá sérsveit ríkislög-
reglustóra. Fanga sem þar dvelst
barst líflátshótun í síma. Erlendur
Baldursson, deildarstjóri hjá
Fangelsismálastofnun, sagði í
fréttum NFS að maðurinn hafi
hringt og sagst ætla að koma með
skotvopn og ganga ffá tilteknum
fanga. Maðurinn hafi kynnt sig og
hafi lögreglan metið það sem svo
að alvara væri á bak við hótanim-
ar og rétt væri að kalla sérsveitina
til. Maðurinn hefur ekki gert al-
vöm úr hótunum sínum en auka-
menn vom hafðir á vakt til örygg-
is á Kvíabryggju. -mrn
Vinna við
Vaxtarsamning
SSV: Nú stendur yfir vinna við
Vaxtarsamning Vesturlands. Gert
er ráð fyrir að ganga ffá samning-
um við aðila samningsins í lok
ágústmánaðar og skrifa undir
samninginn á aðalfundi SSV sem
haldinn verður í Grundarfirði 15.
september nk. „Það er von SSV
að staðið verði myndarlega að
þessum samningi hér á Vestur-
landi og að fýrirtækin sjái sér hag
í því að taka þátt í því starfi sem
honum fýlgir,“ segir á vef samtak-
anna, ssv.is -mni
Frítt í strætó
AKRANES: Akraneskaupstaður
hefur samþykkt að fella niður far-
gjald fýrir 67 ára og eldri og ör-
yrkja í strætó á Akranesi ffá og
með 1. ágúst sl. Var þetta sam-
þykkt á fundi bæjarráðs sl.
fimmtudag og er samþykkdn í
samræmi við málefnasamning
meirihluta bæjarstjómar. -so
Kaup Marels á Scanvægt geta
falið í sér tældfæri fyrir Skagann
í fýrradag var tilkynnt um kaup
Marels hf. á danska félaginu Scan-
vægt fýrir um 815 milljónir danskra
króna. Scanvægt ffamleiðir tæki til
matvælavinnslu og hefur, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu,
sterka markaðsstöðu í vogum,
flokkuram, skurðarvélum, upplýs-
ingakerfum og heildarvinnslulín-
um. Helsti ávinningur Marel og
Scanvægt með kaupunum er um-
talsverð samlegðaráhrif í gegnum
sterkt sameiginlegt sölunet félag-
anna, lækkaður kostnaður vegna
hagræðingar, sterkari vöruþróun og
hærra þjónustustig við núverandi
vörur.
Fyrr á þessu ári gerðu Scanvægt
og Skaginn með sér samstarfssamn-
ing sem fól í sér aðgengi fýrirtækj-
anna að sölu- og markaðskerfum
hvors annars. Því vakna óneitanlega
spurningar um stöðu þess samstarfs
við þessi tíðindi.
Grímur Garðarsson fram-
kvæmdastjóri Skagans segir ekki
liggja fýrir hvert framhald sam-
starfssamningsins verður því kaup-
in hafi borið brátt að. Hann telur
þó að í þessum viðskiptum felist á-
kveðin tækifæri fyrir Skagann.
„Skaginn og Scanvægt töldu sam-
starf fýrirtækjanna til hagsbóta fýr-
ir bæði fýrirtækin og því hef ég
enga ástæðu til að ætla að nýir eig-
endur fyrirtækisins horfi öðruvísi á
hlutina enda á Skaginn í sáralítilli
samkeppni við Marel.“
HJ
Búnaður til yfirbreiðslu á malarbílum
Loftorka Borgar-
nesi ehf. hefur nýver-
ið fest kaup á tveimur
vörubílum til efn-
iskeyrslu. Eru bílarn-
ir búnir útbúnaði
sem gerir bílstjórum
auðveldara að breiða
yfir farma bílanna.
Eins og sést á mynd-
inni er yfirbreiðslan
áföst á valsi öðrum
megin á pallinum.
Þegar efnið er komið
á bílinn er sveif aftan
við stýrishúsið snúið,
seglið rúllast yfir
pallinn og er bundið niður hinum
megin. Þetta einfaldar alla vinnu
við ásetningu yfirbreiðslunnar.
Nokkuð hefur borið á því að
undanförnu að flutningabílar hafi
keyrt um með lausan farm án yfir-
breiðslu og síðan hafi sandur eða
möl fokið af pallinum og á aðra
bíla. Þessi búnaður á nýjustu bíla
Loftorku eru því til fýrirmyndar
og er rétt að hvetja alla sem standa
í slfloim flutningum til þess að
muna eftir því að breiða yfir farm-
inn og auka þannig á öryggi í um-
ferðinni. -KÓP
IJ stofitiar sérstakt gæða,-
öryggis- og umhverfissvið
Stofnað hefur verið sjálfstætt
svið hjá Islenska járnblendifélag-
inu á Grundartanga sem ætlað er
að sinna gæða-, heilsu-, umhverf-
is- og öryggismálum. Fram-
kvæmdastjóri hins nýja sviðs verð-
ur Sigrún Pálsdóttir núverandi
gæðastjóri IJ. Starfssemi rann-
sóknarstofu og starf öryggisfull-
trúa falla m.a. undir nýja sviðið. Á
vef ÍJ segir að markmið með stofn-
un sérstaks sviðs um þessa mála-
flokka sé m.a. að tryggja óháða
gæðastjórnun innan fýrirtækisins,
gagnvart birgjum og viðskiptavin-
um. „Þetta er mjög mikilvægt í
ljósi þess að framleiðslan verður
sífellt fjölbreyttari, viðskiptavinum
fjölgar og kröfur þeirra fara vax-
andi. Heilsu-, umhverfis- og ör-
yggismál eru síðan málaflokkar
sem framkvæmdastjórn fýrirtækis-
ins vill leggja enn frekari áherslu á
til framtíðar," segir í frétt IJ. Þess
má geta að Sigrún er fýrsta konan
sem gegnir framkvæmdastjóra-
starfi hjá Islenska járnblendifélag-
inu í meira en aldarfjórðungstíð
verksmiðjunnar.
MM
Munum úr Pourqoui pas? safiiað
Asa S. Harðardóttir og Svanur Steinarsson í Englendingavík þar sem sýningin verður
opnuð 15. september í haust.
Þarm 15. september nk. verður
opnuð sýning í Tjernihúsi í Eng-
lendingavík í Borgarnesi í tilefni af
því að þá verða 70 ár síðan ffanska
rannsóknarskipið Pourqoui Pas?
fórst á Mýrum. Ása S. Harðardótt-
ir forstöðumaður Safnahúss Borg-
arfjarðar hefur haft veg og vanda af
sýningunni í náinni samvinnu við á-
hugamenn um atburðinn, s.s. Svan
Steinarsson. Vegna sýningarinnar
er verið að safna saman mtmum úr
skipinu sem leynast víða og mun
Þjóðminjasafn íslands lána gripi til
hennar. Eru allir sem gætu lumað á
einhverjum munum, stórum eða
smáum, sem eiga rætur sínar að
rekja til skipsins hvattir til að lána
þá til sýningarinnar svo hægt sé að
gefa sem heilsteyptasta mynd af
skipinu. Áhugasamir geta haft sam-
band við Ásu hjá Safnahúsinu eða
Svan í Framköllunarþjónustunni.
Skessuhom mun fjalla nánar um
sýninguna og slysið þegar nær
dregur opnun.
-KÓP
Vill lagfæra
þinghúsið
NORÐURARD.: Byggðaráð
Borgarbyggðar hefur óskað eft-
ir umsögn menningarnefndar
sveitarfélagsins á ósk Málfríðar
Kristjánsdóttur arkiteks um
lagfæringar á gamla skóla- og
þinghúsinu í Dalsmynni í
Norðurárdal í Borgarfirði. I
bréfi Málfríðar, sem er landeig-
andi Dalsmynnis, segir að hús-
ið sé orðið hrörlegt. Elsti hluti
þess, sem var steyptur, er að
mati bréfritara í sæmilegu
standi en forsköluð viðbygging
við suðurenda hússins sé að
hruni komin enda hafi sá hluti
hússins verðið opinn fýrir veðri
og vindum. Það er ósk Málfríð-
ar að viðbyggingin verði rifin,
gengið verði frá gaflinum og í
hann settur útidyrahurð. „Skól-
inn er minjar um félagslíf og
menntun í dalnum frá 1930 og
þess virði að varðveita hann þar
sem aðeins örfáar byggingar af
þessari gerð er enn til í land-
inu,“ segir orðrétt í bréfinu. Þá
lætur bréfritari í ljós þá skoðun
sína að ekki eigi að leyfa auglýs-
ingar á húsinu.
-hj
Mikil urnferð í
síðustu viku
BORGARFJÖRÐUR: Mjög
mikil umferð var í gegnum um-
dæmi lögreglunnar í Borgar-
nesi um Verslunarmannahelg-
ina og dagana þar á undan en í
það heila tekið þá gekk hún
mjög vel fýrir sig. Hafði lög-
reglan töluverðan viðbúnað og
hélt úti auknum bílakosti og
fleiri lögreglumönnum við um-
ferðareffirlit en um venjulegar
helgar. Þá komu lögreglumenn
frá Dalasýslu og Snæfellsnesi
einnig til aðstoðar á álagstím-
um við vegaeftirlitið sem og tvö
lögreglubifhjól frá lögreglunni
í Reykjavík. Alls voru teknir
rétt um 100 ökumenn í síðustu
viku fýrir of hraðan akstur í
umdæmi lögreglunnar í Borg-
arnesi. Tveir voru teknir fyrir
ölvun við akstru og einn fýrir
akstur undir áhrifum lyfja. Þá
voru tveir teknir fýrir að aka án
ökuréttinda.
-so
Einar Oddur
gefur kost á sér
NV-KJÖRD: Einar Oddur
Kristjánsson níundi þingmaður
Norðvesturskjördæmis hefur
lýst því yfir að hann ætli sér að
bjóða sig fram til áframhald-
andi setu á Alþingi. Einar
Oddur, sem er varaformaður
fjárlaganefndar, segir að aldrei
hafi annað komið til greina en
að skipa áffam sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins í kjördæminu.
Kjördæmisþing flokksins
verður 7. október og þá bíður
það verkefni manna að koma
saman lista fyrir alþingiskosn-
ingar á vori komanda. Frétta-
vefur Bæjarins besta á Isafirði
greindi ffá.
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 alla virka daga
Útgefandi: Skessuhom ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Biaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is
Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is