Skessuhorn - 09.08.2006, Qupperneq 9
§2ESSIÍH©BÍ j
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
9
Ædar að virkja unga söngfiigla á Skaganum
Söngkonan og hjúkrunarfræðingurinn Hulda Gestsdóttir stofnar söngskóla á Akranesi
Hulda Gestsdóttir söngkona ættd
að vera flestum kunn í heimabæ
sínum Akranesi. Nú hefur hún snú-
ið aftur heim á Skagann ásamt börn-
um sínum tveimur efrir átta ára út-
legð. Hún er hjúkrunarfræðingur að
mennt og starfar nú sem slíkur á
sjúkrahúsinu á Akranesi. Mikill hug-
ur er í Huldu. Eins og flestum ætti
að vera kunnugt er hún mikil söng-
kona og hefur hún fengist við söng-
inn í fjöldamörg ár. Hún er einna
þekktust fyrir framlag sitt í sýning-
tmum Abba, Prímadonnur og Laug-
ardagskvöld á Gili, en þessar sýning-
ar gengu við miklar vinsældir á
skemmtistaðnum Broadway.
Reynslubolti
Þá hefur Hulda einnig sungið í
tvígang sem bakraddasöngkona í
framlagi Islands til Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva. Árið
2000 raddaði hún með Einari Ágúst
og Thelmu í laginu Tell me og nú
síðasta vor hélt hún til keppninnar
og söng með pallíettudrottningunni
Silvíu Nótt. Þessa dagana er hún að
syngja með sönghópnum Príma-
donnum en í sönghópnum eru á-
samt Huldu þær Rúna Gerður Stef-
ánsdóttir og Guðbjörg Magnúsdótt-
ir. Vill Hulda kalla þær Abba drottn-
ingamar en þær sungu allar saman í
samnefndri sýningu ásamt Birgittu
Haukdal. Þá hefur Hulda einnig
verið að syngja á böllum með André
Bachmann að undanfömu, sungið
bakraddir inn á plötur fyrir fjölda
þjóðþekktra tórdistarmanna í gegn-
um árin og sem einsöngvari og því
mikið unnið í hljóðveri.
Stofiiar söngskóla á
Skaganum
Þessa dagana vinnur Hulda hörð-
um höndum að stofnun Söngskóla
Huldu Gests. Starfsemi hans mun
hefjast á haustdögum og mun
kennsla fara ffam í Hvíta húsinu á
Akranesi. „Eg nýt mikils stuðnings
Akraneskaupstaðar, en stjórnendur
bæjarins tóku frábærlega vel í hug-
mynd mína þegar þeim var kynnt
hún. Mér hefur verið úthlutað hús-
næði fyrir skólann og það hefur svo
sannarlega verið stutt við bakið á
mér af hálfu bæjarins," sagði Hulda
um viðbrögð við hugmynd sinni. Þá
segir hún að það feli í sér mikinn
kostnað að setja skóla sem þennan á
laggirnar og að hún geri sér enga
grein fyrir því hvort hún standi með
eina eða hundrað króntir í vasanum
að námskeiðinu loknu.
„Söngskólinn verður fyrir böm og
unglinga á aldrinum þriggja til
fimmtán ára og fer kennslan ffam í
hópnámskeiðum. Börn á aldrinum
þriggja til fimm ára verða saman í
hóp,“ segir Hulda. Hún stefinir að
því að tólf til fimmtán krakkar verði
saman í yngstu hópunum. Krakkar
og unglingar ffá sex ára aldri og upp
í fimmtán ára
verða svo í fjög-
urra til fimm
manna hópum.
„Ég mun leggja á-
herslu á söng,
tjáningu, fram-
komu, útgeislun,
texta- og tónskiln-
ing, notkun
míkrófóns og
sviðsframkomu en
öll börn munu
syngja í míkrófón
nema þau allra
yngstu, þar sem
þau ráða oft ekki
við að syngja í
haim og finnst oft ógnandi að heyra
svo hátt í sér. En þau fá kannski að
hafa þá ótengda bara til að hafa þetta
skemmtilegra. Auk söngnámsins
ætla ég að leggja mikla áherslu á
sjálfsstyrkingu þar sem ég ætla að
einblína á að einstaklingurinn sjái sig
í jákvæðu ljósi og að krakkamir beini
huganum að sínum sterku hliðum
og efli þær. Þau geta allt ef þau bara
hugsa, ég get og ég ætla,“ segir
Hulda um aðaláherslur skólans og
síns starfs þar.
Forvamir og fræðsla
með söngnum
Með því að byggja upp gott sjálfs-
traust nemenda og auka trú krakk-
anna á eigin getu telur Hulda að
hæfni þeirra til að varast óæskileg á-
hrif samfélagsins aukist verulega.
Hún ætlar að láta forvarnir og
ffæðslu skipa stóran sess í starfsemi
söngskólans og þá sérstaklega gegn
vímuefhaneyslu og reykingum. Þá
ætlar hún einnig að koma inn
fræðslu um lífsstíl, persónulegt
hreinlæti, vini og vináttu, fjölskyldu
og nærgætni í nærveru sálar. Hulda
hefur þó nokkra reynslu í þessum
efnurn þar sem hún starfaði um ára-
bil sem skólahjúkrunarffæðingur og
hefur því reynslu af miðlun ffæðslu
og forvama til barna og unglinga
sem hún telur skipta sköpum.
Böm em fullkomnir
söngvarar
Hulda segir að allir geti stmgið og
að það sé hægt að kenna öllum að
syngja. Hún telur að börn hafi svo
náttúrulegan söng og öndun að ekki
megi fara að hræra í þeirra hæfileik-
um með einhverri öndunarkennslu
eða slíku. „Það þýðir ekkert fyrir
mig að segja fimm ára bami að nota
þindina, grindarbotninn, maga- eða
bakvöðva, þá skemmir maður þetta
náttúralega hjá þeim. Börn era í
raun fullkomnir söngvarar og ég
ætla bara að leyfa þeim að vera það
áffam. Hjá yngstu krökkunum verð-
ur þetta svona nokkurs konar söng-
stund, ég ætla að kynna þeim mis-
mtmandi tónlist, aðeins að fara inn á
taktinn og svo syngjum við bara
saman með bros á vör. Föram svo
kannski í búninga og höfúm bara
gaman af þessu öllu saman að sjálf-
sögðu,“ segir Hulda og kveðst
hlakka til stundanna með litlu söng-
fuglunum. Effir því sem nemend-
urnir era eldri þá segist Hulda ætla
meira inn á tæknilegu hlutina í
söngnum og náminu.
Hulda Gestsdóttir.
Sleiktu ís í góða veðrinu
Guðmundsdóttir framkvæmda-
Það var glatt á hjalla í ísveislunni á miðvikudaginn.
Það var góð stemmning í garðin-
um við Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi sl. miðvikudag, enda
skein sól í heiði. Þá var haldin árleg
ísveisla en sá siður hefur haldist síð-
ustu ár að vistmenn og starfsmenn
setjast út einu sinni á ári og fá sér ís.
Að sjálfsögðu ræður veðrið því
hvenær veislan er haldin og vora
menn tvístígandi lengi vel um hvort
óhætt væri að boða alla út á mið-
vikudaginn, enda var skýjað um
morguninn. Um hádegi létti til og
þegar blaðamann Skessuhorns bar
að garði skein sól í heiði og í sinni
vistmanna. Þeir höfðu lokið við ís-
inn og nutu veðurblíðunnar við
undirleik Vignis Sigurþórssonar
húsvarðar.
Létt var yfir mannskapnum enda
gott að fá færi á því að bregða sér
aðeins út fyrir hússins dyr. Margrét
stjóri Dvalarheimilisins sagði að nú
hefði verið lag. „Það var akkúrat
rétta veðrið og ekki of heitt, en
sumir eiga erfitt með að vera í mikl-
um hita. Það hlakka allir til þessar-
ar veislu og við höfum ekki haft
mörg tækifæri til að setjast út í
góðu veðri í sumar þannig að nú
era allir glaðir,“ sagði Margrét.
-KÓP
Gunnar Eirtksson fyrrverandi bóndi á
Grjóti var reffilegur á Skutlunni sem
hann baföi nýverið fest kaup á og vakti
mikla athygli.
Lokaball í stað tónleika
Þegar eldri krakkarnir verða
skráðir til leiks ætlar Hulda að láta
þá draga miða sem inniheldur nafn
lags. Lag þetta eiga þeir svo að æfa
vel á námstímanum, ásamt öðrum
auðvitað, og verður lagið þeirra
ffamlag til lokaballs sem Hulda ætl-
ar að halda fyrir þau í lok námskeiðs-
ins. ,„Mér finnst miklu sniðugra að
leyfa þeim að syngja fyrir dansi ffek-
ar en að halda einhverja lokatón-
leika. Þá fá þau svo mikla tilfinningu
fyrir því hvemig er að syngja fyrir
fólk því til skemmtunar og ég tala nú
ekki um ef ballgestir verða duglegir
að dansa með og ýta undir stemn-
inguna," sagði Hulda um lok nám-
skeiðsins hjá krökkum á aldrinum
sex til fimmtán ára.
Frábær heimkoma
Huldu þykir yndislegt að vera
komin heim á Skagann á ný. „Fyrir
mér þá er ég komin heim og hér vil
ég vera hjá mínu fólki. Bæjarbúar og
bærinn sjálfur hafa tekið mér og
börmmum mínum opnum örmum
og svo sannarlega boðið okkur vel-
komin á Skagann." SO
10%
aukaafsláttur af
útsöluvörunum
SÍMI 431 1753 & 86] 1599
Slánurvélamarkaðurinn
Ný verslun á Uaynhöföa 8
Tilboösverð lsama 9a,a 09 Bilal'“fl Bennal
Slátturuélatraktor S: 517 2010
www.slattuuel.is
■ , v • f Æ \ . jif-v-3,. 3
. 19 Htl mkvaskiptur 'V
107 cm slatturhreífld
Verð kr. 259.000,- Verðáðurkr. 299.000,- 1 %
Frá Landnámssetrí íslands
í Borgarnesi
Okkur vantar fólk
til eftírfarandí starfa:
• matseld undir leíðsögn matreiðslumeistara og
önnur tilfallandi störf
• þrif
• framreiðslu í veitingahúsi Landnámsseturs
• afgreíðslu í míðasölu og gjafavöruverslun
Bæði er um að ræða full störf eða hlutastörf.
Vinnutímí er samkomulagsatriði en Landnámssetur
er opið alla daga frá kl. 10 - 19 og stefnt er að því
að lengja opnunartímann til kl. 21.
Nánari upplýsingar
gefa Kjartan Ragnarsson
í síma 8624787
og Sígriður Margrét
Quðmundsdóttir
í síma 8955460
BÖRGARNÉSI
; W
I DNÁM.SS KTU R
ÍSLANDS