Skessuhorn - 09.08.2006, Page 15
3SESSg?gggMBH
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
15
Valdís Þóra íslandsmeistari
í flokki 16-18 ára
lagði hún grunninn að
sigri sínum á mótinu
með þessari góðu
frammistöðu en hún
varð íslandsmeistari í
fiokki stúlkna 16-18 ára.
Valdís Þóra er í af-
rekshópi Golfsambands
íslands þar sem hún er í
æfingahópi og tekur
þátt í erlendum verkefn-
um fyrir hönd GSÍ.
MM
Valdís Þóra ásamt þjálfara sínum, Karli Ómari
Karlssyni.
Islandsmót
unglinga í höggleik
á Garðavelli
Valdís Þóra Jónsdóttir, Golf-
klúbbnum Leyni á Akranesi, sýndi
frábær tilþrif á 2. degi íslands-
móts unglinga þegar hún lék
Garðavöll á 2 höggum undir pari
af bláum teigum. Þetta var jafn-
framt besti hringur Valdísar Þóru
á hennar golfferli til þessa og
Arnór tekur við verðlaunum sem
besti leikmaður mótsins. Mynd:
vmw. sc-heerenveen. nl
Arnór
Smárason
gerir það
gottí
Hollandi
Skagamaðurinn Arnór Smárason
gerir það heldur betur gott í
Hollandi þessa dagana. Arnór,
sem verður 18 ára í næsta mán-
uði, hefur verið á mála hjá
hollenska úrvalsdeildarliðinu
Heerenveen síðustu tvö ár. Nýver-
ið tók U-19 ára lið félagsins þátt í
alþjóðlegu móti í Kauþmannahöfn
þar sem það sigraði sænska liði
Örgryte 2-0 f úrslitaleik. Arnór
skoraði annað markið í leiknum og
var markahæstur á mótinu með
fimm mörk. Hann var síðan valinn
besti leikmaður mótsins og er Ijóst
að hann á framtíðina fyrir sér í
boltanum. -KÓP
Axel Kára-
son í NM
landsliðs-
hópnum
Axel Kárason, leikmaður Skalla-
gríms í körfuknattleik, var valinn í
NM landsliðshópinn fyrir NM í
Tampere í Finnlandi sem fram fór
dagana 1.-5. ágúst, í stað Pavels
Ermolinskij. Pavel datt út úr hópn-
um á síðustu stundu vegna
meiðsla í úlnlið og völdu Sigurður
Ingimundarson og Friðrik Ingi
Rúnarsson Axel í hans stað. Eins
og áður hefur komið fram voru
Vestlendingarnir Sigurður Por-
valdsson og Hlynur Bæringsson
einnig í hópnum. SO
Hestaþing
Snæfellings
um helgina
Félagsmót hestamannafélagsins
Snæfellings verður haldið næst-
komandi laugardag á Kaldármel-
um og hefst mótið klukkan 10. Það
er opið félagsmönnum í hesta-
mannafélögunum á Vesturlandi.
Keppt verður í eftirtöldum greinum
ef næg þátttaka fæst: AogB flokki
gæðinga, ungmenna-, unglinga-
og þarnaflokkum, tölti og 100 m
fljúgandi skeiði og í unghrossa-
flokki. MM
íslandsmót unglinga í höggleik
fór fram á Garðavelli á Akranesi í
síðustu viku. Þar eignuðust Akur-
nesingar íslandsmeistara þegar
Valdís Þóra Jónsdóttir sigraði (
sínum flokki. Mótið stóð í þrjá
daga og heppnaðist það afar vel,
að sögn Brynjars Sæmundsson-
ar, framkvæmdastjóra Golf-
klúbbsins Leynis. Veðrið lék við
keppendur og mótsgesti fyrri tvo
dagana en þá var bæði stillt og
sólin skein eins og hún ætti lífið
að leysa. Þriðja og síðasta
keppnisdaginn hafði heldur bætt í
vind og fór að rigna seinni part
dags og var því sá dagur ekki
eins skemmtilegur til golfiðkunar
sem hinir fyrri. Mikil aðsókn var á
mótið en tæplega tvö hundruð
kylfingar skráðu sig til leiks og
varð mótsstjórn að grípa til þess
ráðs að takmarka fjölda kepp-
enda við forgjöf, eins og heimilt
er samkvæmt reglugerð um
íslandsmót unglinga.
Á öðrum degi mótsins var
nándarmæling á 3. braut. Næstur
holu í upphafshöggi var Elvar
Aron Hauksson GHG en hann var
123 sentimetra frá holu. Elvar
Aron hlaut GSM síma að launum
frá Símanum.
Úrslit urðu þessi:
Stelpuflokkur 13 ára og yngrí
1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, 282
högg.
Aganefnd KSÍ úrskurðaði í síð-
ustu viku á fundi sínum í máli
Hjartar Hjartarsonar og Guð-
mundar Viðars Mete. Nefndin tók
málið til umfjöllunar á fundi viku
fyrr en frestaði því til að gefa máls-
aðilum færi á rökstuðningi. í kjölfar
hans kvað nefndin upp úrskurð
sinn og var Hjörtur úrskurðaður í
tveggja leikja bann og Guðmund-
ur í eins leiks bann, báðir vegna
„framkomu í leik 23.7.“ eins og
segir í úrskurðinum. Hjörtur hefur
viðurkennt að hafa kallað Guð-
mund „Tyrkjaskít" og sagt honum
að „drulla sér heim“ í umræddum
leik. Það hafi hins vegar komið í
kjölfar ögrana Guðmundar sem
hafi kallað móður Hjartar hóru,
hótað honum fótbroti og fleira í
þeim dúr. Að ummælum Hjartar
föllnum hafi Guðmundur síðan
hótað honum lífláti eftir leik.
2. Guðbjörg Ylfa Jensdóttir, GS, 292
högg.
3. Anna Sóiveig Smáradóttir, GK, 308
högg.
Telpnaflokkur 14-15 ára
1. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GKG, 254
högg.
2. Berglind Björnsdóttir, GR, 261 högg.
3. Jódís Bóasdóttir, GR, 263 högg.
Stúlknaflokkur 16-18 ára
1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, 233
högg.
2. Ragna Björk Ólafsdóttir, GK, 242
högg.
3. Elísabet Oddsdóttir, GR, 245 högg.
Strákaflokkur 13 ára og yngri
1. Sigurður ingvi Rögnvaldsson, GHD,
229 högg.
2. Alex Freyr Gunnarsson, GKG, 240
högg.
3. Guðni Fannar Carrico, GR, 240
högg.
Drengjaflokkur 14-15 ára
1. Guðmundur Ágúst Kristjánsson,
GR, 236 högg.
2. Andri Már Óskarsson, GHR, 237
högg.
3. Theodór Sölvi Blöndal, GO, 239
högg.
Piltaflokkur 16-18 ára
1. Björn Guðmundsson, GA, 230 högg.
2. Kristján Þór Einarsson, GKJ, 232
högg.
3. Sigurberg Guðbrandsson, GK, 236
högg.
SO
Ljóst er af úskurði þessum að
aganefnd metur framkomu
beggja ámælisverða og rennir
það stoðum undir lýsingu Hjartar
á málinu. Aganefnd metur báða
seka en brot Hjartar alvarlegri. Af
því má ráða að nefndin meti um-
mæli tengd kynþætti alvarlegri en
þann dónaskap sem Guðmundur
er sakaður um að hafa viðhaft.
Aganefnd birtir ekki rökstuðn-
ing fyrir ákvörðun sinni og greina-
gerðir þær sem knattspyrnu-
deildir ÍA og Keflavíkur sendu inn
eru trúnaðarmál. Ekki er hægt að
áfrýja dómi aganefndar og stend-
ur hann því. Hjörtur Hjartarson
hefur því leikið sinn síðasta leik
fyrir ÍA í sumar þar sem hann er á
förum til Bandaríkjanna í nám og
fram að því eru einungis tveir leik-
ir á dagskrá.
-KÓP
Hjörtur og
Guðmundur
úrskurðaðir í bann
FJÖLBRAUTASKÓLI
VESTURLANDS Á AKRANESI
- ATVINNA -
Næturvörður á
heimavist FVA
Fjölbrautaskóli Vesturlands auglýsir starf
næturvarðar á heimavist skólans skólaárið 2006
- 2007 lausttil umsóknar.
Næturvörður sér um eftirlit á heimavistinni
aðfaranætur laugardaga og sunnudaga, frá
miðnætti til kl. 6. Til greina kemur að skipta
starfinu á milli tveggja.
Umsóknarfrestur er til 27. ágúst n.k.
Umsóknir skal senda til Fjölbrautaskóla
Vesturlands, Vogabraut 5, 300 Akranesi.
Ekki þarf að nota sérstök umsóknareyðublöð.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Hörður Ó. Helgason
skólameistari í síma 433 2500.
Fimmtudagskvöldvökur
í Landnámssetri
Söng- og sagnaskemmtun
Fímmtudagínn 10. ágúst kl. 20:15
Bjartmar Hannesson
flytur gamanvísur
Hjörleífur Stefánsson
segír sögur af verum og vættum í talí og tónum
KVÖLDVÖKU-
MATSEÐILL
á sértilboði
frá kl. 18
Ókeypis aðgangur
LANDNÁMSSETUR
ISIANDS
B0R6ARNESI