Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Page 11

Skessuhorn - 04.10.2006, Page 11
 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006 11 Nýr byggingarfulltrúi ráðinn á Akranesi Runólfur Þór Sigurðsson, tækni- fræðingur hefur verið ráðinn nýr bygginafulltrúi á Akranesi. Hann mun taka til starfa fyrir mánaðamót- in október/nóvember. Skúli Lýðs- son, fráfarandi byggingarfulltrúi, hættir störfum nú um mánaðamótin en hann hefur eins og kunnugt er verið ráðinn skipulags- og bygg- ingafulltrúi Hvalfjarðarsveitar. Því verður byggingafulltrúalaust á Akra- nesi í tæpan mánuð. Jón Pálmi Pálmason bæjarritari taldi það ekki skapa nein vandamál, tæknimenntað fólk væri að störfum hjá bænum og einnig yrði stuðst við aðkeypta þjón- ustu. Sjö umsóknir bárust um starfið en tvær voru dregnar til baka á með- an umsóknarferli stóð yfir. Auk Runólfs Þórs sóttu þeir Gísli Tryggvason, Gunnar S. Ragnarsson, Jón Þór Jónsson ogMagnús Þórðar- son um starfið. Runólfur Þór er Skagamaður í húð og hár og hefur starfað sem tæknifræðingur á Akranesi undan- Runólfur Þór Sigurðsson nýr byggingar- fulltrúi hjá Akraneskaupstað. farin tíu ár, fyrst hjá Almennu verk- fræðistofunni en síðan sjálfstætt. Aður starfaði hann í 18 ár sem smið- ur, verkstjóri og verktaki. Runólfur sagði í samtali við Skessuhom að hann hefði löggildingu í öllu sem kemur að byggingum, gæti lagt inn aðaluppdrætti, byggingarnefndar- teikningar og hefði réttindi í öllum verkfræðiteikxúngum. „Ég er m.a.s. með akrítektalöggildingu þó ég megi ekki kalla mig arkítekt.“ Runólfur segir þetta hafa verið ágætan tímapunkt til að söðla um. „Ég verð fimmtugur um áramótin og það er fínt að breyta til svona á tíu ára fresti. Ég hef komið að fjöl- mörgum verkum hér á Akranesi á mínum ferli, hef hannað um 150 íbúðir, 70-80 sumarbústaði og unn- ið við skipulagsgerð, t.a.m. inni í Flatahverfi og víðar.“ Runólfur hef- ur einnig komið að ýmsum stórhýs- um utan bæjarins, t.a.m. Hótel Ork og nú síðast stækkun á Hótel Cabin. Runólfur segir að hann geri sér grein fyrir því að hann taki við góðu búi. „Ég þekki Skúla vel og ber hon- um vel söguna. Hann er mjög vel liðinn innan bransans og þeir í Hvalfjarðarsveit eru heppnir að hafa nælt í hann.“ Skessuhorn býður Runólf vel- kominn til starfa hjá Akraneskaup- stað um leið og Skúla Lýðssyni er óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. -KOP Akraneshöllin eða Akranesshöllin? Uppsetning heitis nýja fjölnota íþróttahússins á Jaðarsbökkum hefur kallað ffam sígilda umræðu um fall- beygingu nafiisins Akraness. Öllum er ljóst að það beygist Akranes, um Akranes, frá Akranesi, til Akraness. Og þá er spurt, hvers vegna heitir húsið ekki Akranesshöllin frekar en Akraneshöllin. Hvers vegna heitir sveitarfélagið ekki Akranesskaup- staður í stað Akraneskaupstaður. Samsett orð sem þessi geta bæði myndast með eignarfalfi, í þessu tdl- felli Akraness, eða með stofnsam- setningu, í því tilfelH Akranes. Báðar samsetningamar eru því réttar að mati Guðna Kolbeinssonar, ís- lenskuffæðings sem Skessuhorn hafði samband við vegna málsins. Is- lenskt mál gefur mörg dæmi þar sem sitt hvor leiðin er notuð. Alhr þekkja Hvolsvöll en einnig var til Hvol- hreppur. Hvolsvöllur myndast með eignarfalli af orðinu hvoll en Hvol- hreppur er stofiisamsetning. Ames- sýsla er því ekki rituð Amesssýsla, nær okkur er Snæfellsnessýsla en ekki Snæfellsnesssýsla og Reykja- nesskaginn að ekki sé talað um Reykjaneshöllina. HJ HRAUNSNEF sveitahOtel með íslensku ívafi 24 og 25 nóvember, 1 og 2 desember, 8 og 9 desember og 15 og 16 desember. Jutefrokost 4200,- á mann. Allir réttir eru bornir á borð, (ekki hlaðborð). Tvíreykt lamb með melónu. Síld 3 tegundir. Reyktur silungur. Frikadeller. Innbökuð lifrakæfa með baconi og sveppum. Kartöflusalat og meðlæti. Pörusteik. Bayonskinka. Lambalæri, brúnaðar kartöflur og meðlæti. Ris a la mande. Serrýfrómas, kaffi og konfekt. Tílboð Julefrukost og gisting fyrir tvo með morgunmat á 16.000 krónurfyrir parið. www.kjolur.is Sími 525 8383 www.skessuhorn.is Framsóknarflokkurinn boðar til funda með nýrri forystu flokksins. Jón Sigurðsson formaður, Guðni Ágústsson varaformaður og Sæunn Stefánsdóttir ritari verða á 20 opnum fundum um land allt á næstu vikum. Þar munu þau ræða stjórnmálin í aðdraganda kosninga og svara fyrirspurnum. Allir hjartanlega velkomnir. Jón Sigurðsson Guðni Ágústsson Sæunn Stefánsdóttir 30. sept. kl. 11.00 4. okt. kl. 20.30 5. okt. kl. 20.30 Reykjanesbær Hafnargötu 62 Reykjavík Grand Hótel Selfoss Hótel Selfossi 10. okt. kl. 20.30 Akranes Framsóknarhúsinu við Sunnubraut 12. okt. kl. 20.30 Borgarnes Landb.hásk. á Hvanneyri - Matsal 17. okt. kl. 20.30 Stykkishólmur Hótel Stykkishólmi 28. okt. kl. 11.00 28. okt. kl. 16.00 28. okt. kl. 21.00 31. okt. kl. 17.00 31. okt. kl. 20.30 2. nóv. kl. 17.30 11. nóv. kl. 11.00 11. nóv. kl. 17.00 14. nóv. kl. 17.30 14. nóv. kl. 21.00 16. nóv. kl. 20.30 18. nóv. kl. 11.00 18. nóv. kl. 14.30 21. nóv. kl. 20.30 Akureyri Hótel KEA Húsavík Veitingastaðnum Sölku Vopnafjörður Félagsheimilinu Miklagarði Egilsstaðir Austra salnum Reyðarfjörður Safnaðarheimilinu Reyðarfirði Kópavogur Digranesvegi 12 ísafjörður Hótel (safirði Patreksfjörður Félagsheimilinu Blönduós Félagsheimilinu Blönduósi Sauðárkrókur Kaffi Krók Húnaþing vestra Félagsh. Hvammstanga Vestmannaeyjar Akóges salnum Hella Árhúsum Höfn í Hornafirði Hótel Höfn STILLHOLT116-18 AKRANESI - SÍMI 431-3333 model.ak@simnet.is KVIKA

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.