Skessuhorn - 04.10.2006, Blaðsíða 23
t
SK1SS1IH0BRI
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006
23
Komínn heim á fomar slóðir
✓
Rætt við Guðjón Þórðarson, nýráðinn þjálfara IA í knattspyrnu sem er kominn heim úr víking
Guðjón Þórðarson er öllum þeim
sem fylgst hafa með knattspymu síð-
usm áratugina vel kunnur. Harm lék
á árunum 1972-1986 um 400 leiki
með IA, þar af 22 í Evrópukeppnum,
og varð fimm sinnum Islandsmeist-
ari og fimm sinnum bikarmeistari
með hðinu. Þá hefur hann leikið A-
landsleik, þrjá leiki með U-21 árs
landsliðinu og sjö með U-18 lands-
fiðinu. Guðjón hóf þjálfun árið 1987
og sem þjálfari hefur hann unnið
íjóra Islandsmeistaratida, fjóra bik-
armeistaratida og einnig deildarbik-
arkeppnina. Hann er eini þjálfari
landsins sem hefur náð þeim ein-
stæða árangri að vinna „þrennuna"
efrirsóttu, þ.e. Islandsmeistara-, bik-
armeistara- og deildarbikarmeistara-
titil, en það gerði hann með hði IA
árið 1996. Þá var Guðjón landsliðs-
þjálfari íslands árin 1997-1999 og
lék fiðið undir hans stjóm 24 leiki,
vann tíu, gerði sex jafhtefli og tapaði
átta og skoraði 35 mörk og fékk á sig
23. Þá hefur Guðjón einnig þjálfað
félagslið á Englandi, kom t.a.m.
Stoke City upp í fyrstu deildina þar
ytra. Hann hefur þjálfað efrirtalin fé-
lagslið: ÍA, KA, KR, ÍBK, Stoke
City, Barnsley, Start og Notts
County.
Guðjón hefur, eins og flestum ætti
að vera kunnugt, nú verið ráðinn
þjálfari IA. Hann er því snúinn heim
á ný eftir nokkurra ára fjarveru í út-
löndum. Skessuhorn hitti Guðjón að
máh og spurði hann fyrst að því
hvort það hefði ætíð verið ædun
hans að snúa aftur á Skagann á ný.
„Eg sá það alltaf fyrir mér að það
yrði góður kostur að taka á ný við
þjálfún IA, hvenær sem það yrði.
Það veit hinsvegar enginn sína ævina
fyrr en öll er. Það sem réði úrshtum
að ég tók við starfinu nú var að ég sá
að hægt yrði að koma IA í ffemstu
röð á ný. Undanhald síðustu ára er
ekki ásættanlegt í fótboltabæ eins og
Akranesi. Eg tel mig vita hvað vel
hefúr verið gert og hvað ekki hefúr
verið gert síðustu ár og hef því for-
sendur til að breyta gengi liðsins."
Allir verða að standa
þétt saman
Guðjón segir að forsenda fyrir því
að árangur náist sé að allir sem komi
að liðinu standi þétt saman. Það eigi
við um þjálfarana, stjórnina og
stuðningsmennina, bæði stuðnings-
aðila og einstaka stuðningsmenn.
Hann telur forsendur fyrir því að
byggja til ffamtíðar á Akranesi. „Hér
hefur verið unnið mjög gott starf hjá
yngri flokkunum. Það sýnir stórhug
í unglingastarfinu að þar em tveir
þjálfarar á fullum launum og einn
starfsmaður í hlutastarfi. Síðan hefur
Hafliði Guðjónsson tmnið geysilega
gott og oft og tíðum óeigingjamt
starf með 2. flokkinn. Undirbún-
ingsvinnan hefur því verið unnin til
frambúðar og að henni þarf að
standa vel áffam. Það sem er hins-
vegar mikilvægara en nokkuð annað;
ef IA ædar að eiga ffamtíð í boltan-
um, er að það náist breið og sterk
samstaða um hðið. Fótboltinn hefur
verið flaggslrip íþróttanna hér í bæj-
arfélaginu, þrátt fyrir að við höfum
átt affeksmenn í öðrum greinum,
t.a.m. Evrópumeistara í sundi. Ef
allir velunnarar hðsins vilja sjá ár-
angur verðum við að starfa saman.
Það er enginn einstaklingur stærri
en IA og við verðum að vinna saman
að því að halda nafúi bæjarins eins
hátt á lofiri og kostur er.“
Stórhuga
stj ómmálamenn
Guðjón lýsir sérstakri ánægju
sinni með þá aðstöðu sem byggð
hefur verið upp í fótboltanum og
horfir þá til Akraneshallarinnar.
Hann segir hana vettvang tril að
þjálfa unga og efúilega leikmenn enn
betur og standa fagmannlegar að æf-
ingum meistaraflokks. „Hún er í
raun undirstaða undir þær vonir og
væntingar sem við erum að setja af
stað í dag. Þeir sveitarstjómarmenn
sem tóku ákvörðun um að ráðast í
byggingu hússins eiga heiður skril-
inn. Akraneshöllinn breytir allri að-
stöðu til þjálfúnar og er grundvöllur
undir þá velgengni sem ædunin er
að byggja hér upp til ffambúðar.
Að halda í
ungu strákana
Guðjón segir að margt hafi breyst
í fótboltanum ffá því að hann hóf
þjálfún. „Ég er búinn að þjálfa í tutt-
ugu ár, þó það sjáist nú ekki á údit-
inu,“ segir Guðjón og hlær. Hann
segist hafa fylgst vel með í boltanum
á þessum tíma og segir peningana
skipta orðið gríðarlega miklu máh.
Það sé eklri lengur nóg að búa til
efúilega leikmenn, það þurfi að vera
hægt að verja þá fyrir ásælni annarra
liða. „Það er orðin mikil samkeppni
á milli hða hér heima. Það era þrjú,
kannski íjögur, lið á höfuðborga-
svæðinu sem era tílbúin tril að tmdir-
gangast miklar fjárhagslegar skuld-
bindingar til að ná sér í leikmenn og
reka liðin,“ segir Guðjón og vísar til
FH, KR og Vals og mögulega Fram
sem virðist vera að blása til sóknar.
„Ef við ædum okkur að vera félag í
ffemstu röð þarf að sækja grimmt
inn á þennan markað. Vtð erum lítið
bæjarfélag, ekkri einu sinni helming-
urinn af Arbænum tril að mynda, og
því enn mikilvægara að við stöndum
þétt saman og viðurkennum að þetta
gerist ekki nema með mikilli vinnu.
Það eru tækifæri og uppgangur í
samfélaginu og við þurfúm að yfir-
færa það á íþróttimar."
Guðjón er ekki hrifún af þeirri
þróun sem orðið hefur ríkjandi und-
anfarin ár að ungir og efiúlegir leik-
menn fari í síauknum mæli til liða á
Norðurlöndunum. Hann segir það
orðið plagsið að tun leið og kalhð
komi ffá údöndum stökkvi menn af
stað og þá skipti engu máli hvert er
farið. „Við erum að missa leikmenn
tril Norðurlandanna og ég hef ekki
milrið áht á þeirri þróun. Við eigum
ffekar að horfa til alvöru atvinnu-
mennsku og ekki láta Norðurlöndin
stýra þessari þróun. Lið þaðan eru
að sækja sér leikmenn hingað tiltölu-
lega ódýrt. Það þarf að breyta stöð-
unni þannig að bestu liðin hér verði
valkostur við þessi erlendu lið. Til
þess þarf að standa faglega að fjár-
hagshhðinni.“
Ber lof á fyrrum þjálfara
Endurkoma Guðjóns til IA hefur
ekki verið með öllu átakalaus. Þeir
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir,
sem ráðnir voru til liðsins á miðju
sumri, þóttu hafa staðið sig vel og
voru ýmsir tilbúnir til þess að gefa
þeim áffamhaldandi tækifæri. Guð-
jón leggur hins vegar áherslu á að nú
sé komin upp sú staða að hann sé
ráðinn þjálfari og menn verði að
standa saman um það tíl frambúðar.
En hvað segir hann um þjálfaraferil
þeirra bræðra? ,Arnar og Bjarki hafa
í sjálfu sér staðið sig ágædega. Það
var mikið á þá lagt og þeir bjuggu
ekki yfir neinni reynslu af þjálfun.
Það er með það starf eins og svo
margt annað að það er auðveldara
um að tala en í að komast. Ég hef
aldrei efast um að þeir hafa verið
einlægir í sinni nálgun á liðið og þeir
lögðu sig alla fram um að gera sitt
besta. Þeir eru mjög fótboltalega
sinnaðir og juku mjög á flæðið í leik
hðsins sem er jákvætt. Það hefur
sýnt sig að það er milrill fótbolti í
liðinu. Það er hins vegar staðreynd
að fótboltinn rúhar í báðar áttir og
það verður því að leggja mikla
áherslu á vinnu án bolta."
Guðjón segir hins vegar ekki hægt
að neita því að síðasta sumar hafi
verið vonbrigðasumar og árangur-
inn eklri verið eins og lagt var af stað
með. „Ég get ekki dæmt um hvað
fór úrskeiðis. Það er hins vegar off
þannig þegar illa gengur að fúllt af
lidum atriðum fara úrskeiðis. Eitt-
hvað var um meiðsl en þau vora ekki
úrshtaþáttur. Heilt yfir held ég að
staðan sé þannig að það eigi að vera
hægt að gera mun betur.“
Of stutt leiktímabil
Mörgum hefur verið tíðrætt um
fyrirkomulag leiktímabilsins á ís-
landi og vilja margir meina að það sé
of stutt og sundurslitið. Það hefur
oftar en ekkri verið vísað til þess sem
skýringar á því hvers vegna árangur
íslenska landshðsins er eklri alltaf í
samræmi við væntingar. Nú hefur
KSI boðað grundvallarbreytingar á
skipulagi Islandsmótsins og að þær
taki gildi árið 2010. Er þar talað um
lengja tímabilið um tvo og hálfan
mánuð og spila það að hluta til inn-
anhúss. Þessar tillögur lágu ekki fyr-
ir þegar Skessuhom hitti Guðjón.
Lengd og fyrirkomulag tímabilsins
bar hins vegar á góma, enda hefúr
Guðjón lengi verið þeirrar skoðtmar
að það beri að lengja.
„Ég hef lengi talað fyrir því að það
verði fjölgað í deildinni og tímabilið
lengt. Það á að vera hægt að bæta
viku sitt hvoru megin við tímabilið
án nokkurra vandkvæða nú þegar.
Við sjáum menn spila hér á golfvöll-
Guíjón segir aS menn verði að standa þétt saman að liðinu til að ná árangri og leggja á
sig mikla vinnu.
Guðjón Þórðarson er nú snúinn ajiur á Skagann til að þjálfa meistaraflokk ÍA í knatt-
spymu.
um langt fram á vetur og þekkmgin
er orðin það mikil á umhirðu vall-
anna að þetta á ekki að vera mikið
mál. Það kostar vissulega eitthvað
aukalega en ávinningurinn er gríðar-
legur.“ Þá segir Guðjón að tímabilið
hafi verið allt of mikið slitið í sundur
og þar hafi verið of mikið af götum.
„Vissulega era menn að leika í Evr-
ópukeppnum og einhverjir lands-
leikrir eru en þannig er það nú bara ef
menn eru í ffemstu röð. Við þurft-
um oft hér fyrr á tíðum að fara um
langan veg til að spila leiki. Við fór-
um t.a.m. til Albaníu, komum heim
og spiluðum deildarleik skömmu
síðar og bikarleik þar rétt á eftir.
Þetta er álag sem hð í ffemstu röð
verða að vera undir það búin.“
Góðar móttökur
á Skaganum
Guðjón segir að það hafa verið
mjög ánægjulegt að snúa aftur heim
á fomar slóðir. Það hafi ahtaf verið
öruggt að hann mundi snúa heim á
best hvaða kröfur eru gerðar til
manns í þessu starfi, ég geri sjálfúr
miklar kröfur til mín og þeirra sem
vinna með mér.“
Vinna og afitur viirna
Guðjón hitti á dögunum leik-
menní meistarflokki og í 2. flokki og
kynnti þeim gróflega æfingaráædun
vetrarins. Leikmönnum gefast eldri
mikil ffí því æfingar munu hefjast á
ný þann 17. október, eða um þrem-
ur vikum eftir að tímabilinu lauk. Þá
hefur Guðjón boðað að allir leik-
menn verði teknir í mælingar og
þeir verði að gera sér grein fyrir því
að þetta verður mikil vinna. „Ég
þekki einungis eina leið að árangri
og það er vinna og aftur vinna og svo
enn meiri vinna. Menn verð að byrja
strax að æfa. Knattspyrnumaður
verður ekki til á nokkrum mánuð-
um, til þess þarf mikla vinnu.“
Guðjón segist snúa aftur á Skag-
ann reynslunni ríkari eftir áratuga
feril. Harm segir skemmtilegt að hta
Stjóm meistaraflokks ÍA ásamt GwSjáni bitti liðsmenn áfundi áfimmtudag í liðinni viku
og ræddi væntanlegar breytingar. Hér er hluti leikmannahópsins að hlýða á boðskapinn.
endanum. Hann segir að oft sé það
þannig að Islendingar virðist ekki
kunna að meta landið sitt fyrr en
þeir búa erlendis. „Það er nú bara
þannig að það er á fáum stöðum
betra að búa en hér. Við höfum fjöl-
breytt veður til að tala um, skellum
okkur bara í góð hlífðarföt ef með
þarf og bútun við góðan húsakost
þar sem við getum kúrt við kertaljós
í verstu hríðunum. A endanum snýst
þetta um fjölskylduna, börn og
barnaböm og þau tengsl sem þú vilt
hafa við fólkið þitt til frambúðar. Við
sjáum til dæmis að íslenskir atvinnu-
menn sækja allir heim á endanum."
Guðjón segist hafa fengið mjög
góðar móttökur á Akranesi. Mikill
stuðningur hafi verið á meðal stuðn-
ingsmanna við að hann tæki við lið-
inu. „Til okkar, sem komnir eru til
starfa hjá IA, eru gerðar miklar
væntingar og fólk bindur vonir við
góðan árangur. Ég þekki það manna
yfir farinn veg. „Það er gaman til
þess að hugsa að maður hittir sömu
karakterana affur og affur Jþó þeir
heiti mismunandi nöfúum. Ég þekki
þetta bæði sem þjálfari og leikmað-
ur. Það eru ákveðin karakterein-
kenni sem fleyta mönntun langt í
boltanum. Eftir því sem maður vex
að árum og viti þekkir maður betur
inn á þau og skynjar betur hluti sem
kannski fóru framhjá manni í upp-
hafi.“
Guðjón segir árangur í fótbolta á
endanum aðeins snúast um eitt sem
allir verði að velta fyrir sér, þjálfarar,
stjómarmenn, leikmenn og stuðn-
ingsmenn. „Það langar alla að vera
góðir í fótbolta og búa til gott lið.
En eru menn tilbúnir til að gera það
sem þarf til þess? Þeirri spurningu
þurfúm við að svara, ég, stjómin,
leikmennimir og allir þeir sem koma
að liðinu," segir Guðjón að lokum.
-KÓP
*
*
♦
■#-
*