Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 04.10.2006, Blaðsíða 17
akUSUnu.Jl MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006 17 Bjartmar með fleiri sögur úr sveitmni Af sér genginn, en ánægihir söngvari í tónleikalok, ásamt gladlegri fjölskyldu sinni. F.v. Þóra Geirlaug, Unnar Þorsteinn, Bjartmar og Kolbrún Sveinsdóttir. Ljósm. BHS. Eins og alþjóð veit, eða í það minnsta Borgfirðingar, gaf Bjart- mar Hannesson á Norðurreykjum út á liðnu hausti fyrri hluta úrvals af gamanvísum úr Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu. Hljómdiskur þessi nefndist „Sögur úr sveitinni," og hafði að geyma 23 bragi um vini og nágranna Bjartmars fyrr og síðar. Nú hefur Bjartmar lokið verkinu og gefið út síðari hluta þessa verkefiiis. Fyrri diskurinn fékk afbragðs góðar viðtökur og seldist upp og var end- urútgefinn í janúar sl. „Þetta gekk svo ljómandi vel hjá mér að við gát- um endurnýjað múgavéhna í vor og gekk heyskapurinn af þeim sökum aldrei eins vel þrátt fyrir óþurrka- sumar. Nú sjáum við ffam á að þurfa að endumýja heytætluna og sjáum okkur því leik á borði og freistum þess að geta keypt nýja tætlu fyrir næsta vor ef nýi diskur- inn selst eins vel og sá fyrri,“ sagði Bjartmar í samtali við Skessuhorn og bætir við. „Þó hljómplötuútgáfa sé skemmtileg þá má segja að þetta brölt sé alltof mikið álag fýrir ríf- lega hálfsextugan hjartasjúkling í bullandi samkeppni við Steinar Berg og fleiri. Því hygg ég ekki á meiri opinbera útgáfu að sinni að minnsta kosti,“ segir hann. „Það er mtm meira lagt í nýja diskinn en þann fyrri. Tónlistin er fjölbreyttari og fleiri hljóðfæri koma við sögu. Að stofiii tdl er þetta country músík með harmonikku- og hammondorgelsívafi. Upptök- um stjórnaði Vilhjálmur Guðjóns- son sem sá um allan hljóðfæraleik ásamt Vigni Bergmann. Sjálfur sjmg ég öll lögin en fæ aðstoð heimasætunnar, Þóru Geirlaugar, við flutning eins þeirra enda ekki á allra færi að syngja í orðastað Möggu á Melteignum. Þóra Geir- laug sá einnig um hönnun plötu- umslags,“ segir Bjartmar. A diskn- um er að finna 18 texta Bjartmars við ýmis lög, flest frumsamin effir vini og vandamenn hans. Til að fylgja effir útfáfu nýja disksins var boðað til útgáfuteitis í félagsheimilinu Logalandi sl. föstu- dagskvöld þar sem húsfyllir af fólk fylgdist með Bjartmari og félögum hans flytja valin lög af nýja diskin- um. Undirleik annaðist „Sinfómu- hljómsveit Keflavíkur," sem saman stendur af þeim Einari Gunnars- syni á harmonikku, Sigurði Björg- vinssyni á bassa og Vigni Bergmann á gítar. I tdlefni dagsins hélt Gísli Einarsson, fréttamaður mergjaða ræðu um Bjartmar bónda og affek hans. Fleiri sögur úr sveitirmi má nálg- ast á effirtöldum stöðum: Hjá Bjartmari í síma 435-1219, hjá Hárskeranum á Akranesi, Borgar- sporti í Hymutorgi, Baulunni í Stafholtstungum og Vegbitanum í Reykholti. MM Ráð og réttir borgfirskra kvenna Bókin Ráð og réttir - uppskriffa- bók, húsráð og heilræði er komin út. Það er Samband borgfirskra kvenna sem hefur veg og vanda að útgáfu bókarinnar, sem kemur út í 1000 eintökum. Bókin er 100 blað- síður. „Við gefum bókina út til styrktar líknarmálum á dvalarheim- ilinum á Akranesi og í Borgarnesi og vonumst til að selja öll eintök- in,“ segir Svandís Bára Steingríms- dóttir, formaður samstarfsnefndar Sambands borgfirskra kvenna í samtali við Skessuhorn. Hún segir að bókin verði nú til sölu hjá öllum kvenfélögum í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu, í Knapanum í Hymu- torgi og hjá Kristínu Höllu Har- aldsdóttur í Gröf 4 í Grundarfirði. „Við viljum koma kæru þakklæti á framfæri tdl allra sem styrktu út- gáfuna á einn eða annan hátt. Sér- stakar þakkir fá þær Asa Erlings- dóttir á Laufskálum og Ingunn Jónsdóttir á Hagamel fyrir alla að- stoðina,“ sagði Svandís Bára. MM Bæjarstjóri ísafjarðarbæjar kosinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Isafirði var kosinn nýr formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga á landsþingi þeirra sem lauk á Akur- eyri á föstudag. Þetta er í fyrsta skdpti sem kosið er milli manna um for- Halldór Halldórsson. Ljósm. www.bb.is mennskuna en Halldór vann nauman sigur á Austfirðingnum Smára Geirssyni, með 68 at- kvæðtun gegn 64. Kjörtímabil formanns sambandsins er fjögur ár og tekur Halldór nú við af Vilhjálmi Þ. Vil- hjálmssyni, borgarstjóra Reykjavík- ur, sem gegnt hefur starfinu xmdan- farin 16 ár. I viðtölum við fjölmiðla sagði Halldór fyrir helgi að for- mennskustarfið sé fyrst og ffernst stefnumótandi hlutverk, þar sem formaður kemur fram í ákveðnum málum fyrir hönd sveitarfélaganna í landinu. MM Frábærir tónleikar í Olafsrikurkirkju Þeir sem mættu í Ólafsvíkur- kirkju sl. fimmtudagskvöld áttu svo sannarlega ánægjulega kvöldstund með þeim Ingibjörgu Aldísi Ólafs- dóttur, sópransöngkonu, Stefáni Helga Stefánssyni, tenórsöngvara og Ólafi Beinteini Ólafssyni undir- leikara þeirra. Tónleikarnir sem hófust klukkan 20 voru í einu orði sagt frábærir. Allt kom saman; laga- val, söngurinn og undirleikurinn. Fjölmargir áheyrendur tóku vel á móti listamönnunum og klöppuðu þeim lof í lófa á milli laga og að tónleikunum loknum. Var það mál manna að þessir tónleikar hafi ver- ið með þeim allra bestu sem fluttir hafa verið í bæjarfélaginu. Vonandi koma listamennirnir fljótt aftur og hafi þeir kærar þakkir fyrir. PSJ Hvalfjarðars veit auglýsir nýtt símanúmer hj’á sveitarfélaginu 433-8500 www. h valfíordur. is Ihvalfjardarsveit@nvalfjardarsveit.is Innrimelur 3 - Melahverfi l 301 Akranes i4ké>*& WÆS Reykhoitskírkju rji WM| Laugardaginn 7. október 2006 '4 kl, 17,00 Kórstjóri: Ingibjörg Guðjónsdóttir Píanóleikari: Helga Laufey Finnbogadóttir Aðgangseynr: 1000 kr 'J^'ennaKdr 1 QxRÐAMJÁR f vvwvy.kvennakor.is PGV ehf. i Bæjarhrauni 61220 Hafnafjörður i Sími: 564 6080 i Fax: 564 60811 www.pgv.is GLUGGI TIL FRAMTIÐAR ENGIN MÁLNINGAVINNA HV0RKI FÚI NÉ RVÐ FRÁBÆR HiTA OG HUÓÐEINANGRUN FALLEGT ÚTLIT MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR ÖRUGG VIND- OG VATNSÞETTING PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga hurða, sólstofa og svalalokanna úr PVC-u Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir 10 ára ábyrgð Gluggarnir eru viðhaldsfríir og á sambærilegum verðum og gluggar sem stöðugt þarfnast viðhalds * r v Flligger Hörpuskin, Hörpusilki og Utitex fást nú hjá KB Búrekstrardeild BÚREKSTRARDEILD borgarnesi Egilsholt 1-310 Borgarnes Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501 Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga %

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.