Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Síða 22

Skessuhorn - 04.10.2006, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTOBER 2006 Réttir haustið 2006 Ljósmyndarar Skessuhorns, þau Björn A Einarsson í Búðardal og Þóra Sif Kópsdóttir í Kolbeinsstað- arhreppi tóku meðfylgjandi myndir í réttunum á liðnum dögum og vik- um. Þær eru teknar í Þverárrétt í Eyja og Miklaholtshreppi, Mýr- dalsrétt í Kolbeinsstaðarhreppi, Osrétt á Skógarströnd og í Ljár- skógarétt, Skerðingsstaðarétt og Gillastaðarétt í Dölum. Myndirnar tala sínu máli. I Gillastaðarétt I Skeröingsstaðarétt I Ljárskógarétt I Þverárrétt í Eyja- og Miklaholtsbreppi. I Mýrdalsrétt í Kolbeinsstaðarhreppi. Skagamenn gera það gott með U-17 landsliðinu Fjórir Skagamenn spiluöu með U-17 landsliðinu sem tryggði sér áframhaldandi þátttökurétt í und- ankeppni fyrir Evrópumót U-17 landsliða í knattspyrnu. Leikirnir fóru fram í Rúmeníu. Skagamenn- irnir eru: Trausti Sigurbjörnsson og Ragnar Þór Gunnarsson, báð- ir fæddir 1990, og Björn Berg- mann Sigurðarson, fæddur 1991, en þeir leika allir með ÍA. Þar að auki var Björn Jónsson, fæddur 1990, einnig í liðinu, en líkt og Skessuhorn greindi frá skrifaði hann nýverið við atvinnumanna- samning við hollenska liðið Heer- enveen. Mikil spenna var í riðlinum og fyrir lokaleikinn voru íslendingar aðeins með eitt stig og Rúmenía fjögur, en Frakkar voru öruggir áfram með sex stig. Litháen var neðst án stiga og átti ekki mögu- leika. Til að komast áfram þurfti ísland að vinna stórt og Rúmenar að sama skapi að tapa stórt. ís- lendingar unnu Litháen 4-1 og Rúmenía þurfti því að tapa með þriggja marka mun fyrir Frakk- landi. Frakkar leiddu 2-0 lengi vel og skoruðu svo þriðja markið átta mínútum fyrir leikslok og komu ís- lendingum þannig áfram. Björn Jónsson skoraði tvö mörk í riðlinum, eitt í leiknum við Litháen og jöfnunarmarkið gegn Rúmeníu í fyrsta leik. Það mark reyndist Rúmenum dýrkeypt og íslendingum happadrjúgt að sama skapi. -KOP Fjórir í liði úrvalsdeild- arinnar Fjórir leikmenn ÍA voru í síðustu viku útnefndir í lið 13.-18. umferð- ar úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu. Þetta eru þeir Bjarki Gunnlaugsson, Bjarni Guðjóns- son, Hafþór Ægir Vilhjálmsson og Arnar Gunnlaugsson. Besti þjálf- ari þessara umferða var valinn Skagamaðurinn gamli Teitur Þórðarson og meðal annarra leik- manna sem valdir voru eru Krist- ján Finnbogason og Gunnlaugur Jónsson fyrrverandi leikmenn ÍA. HJ Skallagrím- ur áfram í fyrirtækja- bikarnum Skallagrímur sigraði Hauka í átta liða úrslitum fyrirtækjabikarsins í körfuknattleik í Borgarnesi á sunnudaginn. Úrslit leiksins urðu 101-89 fyrir Borgnesinga. Skalla- grímur var mun betri aðilinn í leiknum og leiddi strax eftir fyrsta leikhluta, 21-12. Staðan í hálfleik var 55-35 fyrir heimamenn og sig- urinn var aidrei í hættu. Jovan Zdravevski var stigahæst- ur í liði Skallagríms með 22 stig, Dimitar Kardovski skoraði 19 og Hafþór Gunnarsson 15. Njarðvík, KR og Keflavík eru einnig komin í undanúrslit, en þau fara fram fimmtudaginn 5. október í Laug- ardalshöllinni. íslandsmótið hefst síðan fimmtudaginn 19. október. -KÓP Bjarni er leikmaður ársins Fréttablaðið valdi Bjarna Guð- jónsson, ÍA leikmann ársins í Landsbankadeildinni í sumar. í viðtali við Bjarna í blaðinu kemur fram að lið í Katar hafi gert tilboð í hann sem ÍA hafi tekið. Fyrirvar- inn hafi hins vegar verið stuttur og því hafi Bjarni ekki tekið tilboðinu enda þótt töluverðir peningar hafi verið í boði. Þá valdi blaðið lið árs- ins og er Bjarni eini fulltrúi ÍA íþví. HJ Snæfell úr leik Fyrstu keppnisleikirnir fóru fram í körfuknattleiknum á fimmtudags- kvöld, en áður höfðu liðin leikið einhverja æfingaleiki. Snæfell tók á móti Tindastóli frá Sauðárkróki og laut í lægra haldi 83-90. Snæ- fellingar eru því úr leik í fyrir- tækjabikarnum. Lið Snæfells byrj- aði betur og átti Tindastóll erfitt uppdráttar framan af. Gestirnir áttu hins vegar góðan kafla í seinnihluta fyrri hálfleiks og tókst að minnka muninn. Engu að síður leiddi Snæfell í hálfleik með tíu stiga mun; 48-38. Stólarnir komu vel stemmdir til síðari hálfleiks og tókst að vinna sig inn í leikinn. Justin Shouse lenti í villu- vandærðum hjá Snæfelli og við það riðlaðist vörnin. Tindastóll gekk á lagið og náði forskoti í lok þriðja fjórðungs sem Snæfelli tókst aldrei að jafna. Leiktíðin fer ekki vel afstað hjá Snæfelli en lið- ið tapaði fyrir Skallagrími í æf- ingaleik í síðustu viku. KÓP

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.