Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Qupperneq 24

Skessuhorn - 04.10.2006, Qupperneq 24
f % i ' r » Láttu ekki vandræðin verða tii vandræða /- íbúðalánasjóður www.ils.is FJÁRHAGSLEG GLITNIR^ VELGENGNI ÞÍN ER 0KKAR VERKEFNI Daglegar ferðir Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17. Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880 landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is Landflutningar ' SAMSKIP Dæla efiii af hafebotni án starfsleyfis Björgun ehf. hefur stundað efnis- töku af Hvalfjarðarbotni, í Kolla- firði og við Syðra Hraun í Faxaflóa án starfsleyfis í rúmt ár. Forsaga málsins er sú að fyrirtækið hafði námuleyfi ffá árinu 1990, sem iðn- aðarráðuneytið gaf út, en með nýj- um lögum árið 2000 um breyting- ar á lögum um eignarrétt íslenska ríkisins á auðlind- um hafsbotnsins, féll leyfið úr gildi fimm árum eftir gildistöku laganna. Leyfið féll því úr gildi í júní árið 2005 og sækja þurfti um endurnýjun starfsleyfis á grundvelli nýju laganna. Skipulagsstofhun hefur tekið fyr- ir umsókn um áframhaldandi leyfi í Kollafirði og hefur úrskurðað að það starfsleyfi verði að fara í um- hverfismat. Er þar einungis um að ræða framkvæmdir í Kollafirði, en að höfðu samráði við fyrirtækið var ákveðið að fara þá leið að sækja fyrst um leyfi fyrir framkvæmdum í Kollafirði, þá Hvalfirði og loks við Syðra Hratm. Þetta eru því þrjár aðskildar umsóknir en ljóst er að af- greiðsla þeirrar fyrstu, efnistöku í Kollafirði, mun verða fordæmisgef- andi fyrir hinar. I niðurstöðu stofn- unarinnar segir að efnistaka af hafs- ’ bomi Kollafjarðar „kunni að hafa í för með sér umtalsverð umhverfis- áhrif og skuli því háð mati á um- hverfisáhrifum. Niðurstaða Skipu- lagsstofnunar byggir á því að um er að ræða mjög umfangsmikla fram- kvæmd og að takmarkaðar upplýs- ingar liggja fyrir um vistkerfi, jarð- efni á fyrirhuguðum námuvinnslu- svæðum, tilhögun námuvinnslunn- ar, samanburð á vinnslusvæðum og um áhrif á vistkerfi, hættu á strandrofi og hættu fyrir mannvirki og áhrif á skipulagsáætlanir.“ Sveitarfélög lítt hrifin Björgun ehf. hefur kært þennan úrskurð til umhverfsiráðherra og óskað eftir því að framkvæmdin verði undanþegin mati á umhverf- isáhrifum. I samtali við Sigrúnu Agústsdóttur, lögfræðing hjá Um- hverfisráðuneytinu, kom fram að gögnin séu búin að fara til umsagn- ar og athugasemda og búast megi við úrskurði í október. Umhverfis- og náttúruvemdar- nefnd Hvalfjarðarsveitar fjallaði á fundi sínum nýverið um efhistöku Björgunar. Lýsti hún yfir áhyggjum af uppdælingu malarefna úr botni Hvalfjarðar og þeim áhrifum sem það hefur á fjörur og líffíki sjávar í firðinum. Nefndin ritaði umhverf- isráðherra bréf þar sem þeim til- mælum var beint til umhverfisráð- herra að umræddri ffamkvæmt yrði gert að fara í umnhverfis- mat áður en starfsleyfi fyrir frekari efnistöku yrði gefið út. Er þar vísað í lög um um- hverfismat en þar eru þær fram- kvæmdir sem eru háðar umhverfis- mati tíundaðar. Þar á meðal er „efnistaka á landi eða úr hafsbotni þar sem áætluð efnistaka raskar 25.000 fermetra svæði eða stærra eða er 50.000 rúmetrar eða meiri. Efnistaka þar sem fleiri en einn efn- istökustaður vegna sömu fram- kvæmdar og á sama svæði ná sam- anlagt yfir 25.000 fermetra," líkt og segir í lögunum. Ekki hefur enn verið sótt um starfsleyfi fyrir um- ræddri framkvæmd, líkt og áður kom fram. Þá hefur sveitarstjórn Kjósarhrepps einnig sent umhverf- isráðherra bréf þar sem hvatt er til að efhistaka fyrirtækisins fari í um- hverfismat. Ekki náðist í Sigurð Helgason forstjóra Björgunar við vinnslu þessarar fféttar. -KOP Bjami Ólafeson AK kominn heim eftir endurbætur Bjami Olafsson AK-70 kom í síð- ustu viku til Akra- ness eftir miklar endurbætur sem fram fóru í Gdansk í Pól- landi. Skipinu var siglt utan um miðjan júlí. Vistar- skipið sandblásið hátt og lágt. Skip- verur skipverja vom endurbættar ið var smíðað í Noregi árið 1978 og verulega og einnig var brúin tekin í er í eigu Runólfs Hallfreðssonar gegn og tækjum bætt við. Þá var ehf. á Akranesi. HJ Tekið fyrir lögheimili í Érístundabyggð Magnús Stefánsson, félagsmála- ráðherra hefur lagt ffarn ffumvarp til kynningar í ríkisstjórninni sem kveður á um að lögheimi í húsnæði sem byggt er á svæði sem skipulagt er sem frístundabyggð sé ekki heimilt. Ekki sé hægt að líta á dvöl í slíku húsnæði sem ígildi fastrar búsetu og þess vegna ekki hægt að skrá þar lögheimili. Ef þessi breyt- ing gengur í gegn verður ekki hægt að skrá lögheimili í frístundabyggð nema sveitarstjórnir samþykki breytingar á skipulagi viðkomandi svæðis. Ekki er tekið fyrir skrán- ingu lögheimilis í sumarhús sem standa á svæðum sem ekki eru skipulögð sem frístundabyggð. Eins og Skessuhom greindi ffá hafnaði sveitarstjórn Hvalfjarðar- sveitar flutningi lögheimilis í frí- stundabyggðina við Olver fyrr í sumar. Einar Orn Thorlacius sagði í samtali við blaðið fyrir skömmu að hann byggist eins við að sá úr- skurður yrði kærður, enda úrskurð- aði Hæstiréttur í fyrra að sveitarfé- laginu Bláskógarbyggð hafi verið óheimilt að synja um samsvarandi beiðni. Einar taldi að með gjörð sinni væri Hæstiréttur að taka skipulagsvaldið úr höndum sveitar- stjórna. Eftir úrskurðinn væri það í raun hverjum og einum í sjálfs vald sett að ákveða hvað væri íbúða- byggð og hvað frístundabyggð. Verði lagabreytingin að vemleika er kominn lagagrandvöllur fyrir synjun af þessu tagi. -KÓP Menning, spenning - fyrir hvern? Ráðstefna u m menningarmál á Vesturlandi Laugardaginn lS.október býður Menningarráð Vesturlands og Háskólinn á Bifröst til ráðstefnu um menningu á Vesturlandi í Hriflu hátíðarsal Háskólans á Bifröst. Dagskrá 10:00 10:20 10:50 11:05 11:15 12:00 13:00 13:15 13:55 14:10 ■ I 14:25 15:00 15:40 Ráðstefna sett Menningarfulltrúi Vesturlands Elísabet Haraldsdóttir kynnir verkefnið Njörður Sigurjónsson, kennari við Mennta- og menningastjórnun á Bifröst: Menning, spenning - fyrir hvern? Kaffihlé Elísabet Vilbergsdóttir, söngkona og Jónína Erna Arnardóttir, píanóleikari Njörður Sigurjónsson: Frh. Menning, spenning - fyrir hvern? Hádegishlé Tónlistaratriði frá Grundarskóla Kjartan Ragnarsson: Landnámssetrið, draumur sem varð að veruleika Kaffihlé Elísabet Vilbergsdóttir, söngkona og Jónína Erna Arnardóttir, píanóleikari Bárður Örn Gunnarsson, markaðsstjóri VÍS - Af hverju eiga fyrirtæki að styrkja menningu? Umræður Ráðstefnuslit Ræddar verða spurningar eins og af hverju þarf menningu? Er hægt að græða á menningu? Og fyrir hverja er menning? Ráðstefnan á að höfða til allra Vestlendinga sem áhuga hafa á menningu. Ráðstefnan hefst kl. 10:00 og stendur til 16:00 Tilkynna þarf þátttöku fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 12. október á vef Viðskiptaháskólans www.bifrost.is, á tölvupóstfangið bifrost@bifrost.is eða í síma 433 3000 á skrifstofutíma. Þátttökugjald er kr. 2.500,- Hádegismatur og kaffi innifalið. Myndlista- og listhandverksmenn munu halda sýningu samhliða ráðstefnunni: Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Lára Gunnarsdóttir úr Stykkishólmi, Snjólaug Guðmundsdóttir frá Brúarlandi, Dýrfinna Torfadóttir frá Akranesi, Ingibjörg Ágústsdóttir frá Stykkishólmi og Sigríður Erla Gunnarsdóttir sem kynnir verkefni unnin úr Búðadalsleir. Menningarfulltrúi Vesturlands HASKOLINN A BIFROST BIFRÖST UNIVERSITY

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.