Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Side 11

Skessuhorn - 15.11.2006, Side 11
 MIÐVIKUDAGUR 15. NOVEMBER 2006 11 Stykkishólmshöfti verði áfiram í grunnneti haftia Bæjarráð Stykkishólms hefur gert athugasemdir við tillögur Samgönguráðs um samgönguáætl- un fyrir árin 2007-2018. Vill ráðið að Stykkishólmshöfh verði ein þeirra hafha sem tilheyri svoköll- uðu grunnneti samgöngukerfisins. Bæjarráð segir Stykkishólmshöfn þjóna mikilvægri tengingu yfir Breiðafjörð sem ferjuhöfn og einnig sé hún ein af stærri ferða- mannahöfiium landsins. I drögum Samgönguráðs að sam- gönguáætlun fyrir árin 2007-2018 er skilgreint grunnnet samgöngu- kerfisins sem nær til alls landsins „og er ætlað að tryggja landsmönn- um greiðar samgöngur,“ eins og segir orðrétt. Grunnnetið verði byggt upp samkvæmt tillögum um forgangsröðun framkvæmda og þjónsta í netinu verði aukin. Veg- um, flugvöllum og höfnum er með- al annars skipað í slíka forgangs- röðtm. Þær haftiir á Vesmrlandi sem tilheyra grunnnetinu sam- kvæmt tillögum ráðsins eru Grund- artangahöfn, Akraneshöfn, Rifs- höfn, Ólafsvíkurhöfn og Grundar- fjarðarhöfn. HJ Seiður Lands og sagna - Vestur undir Jökul Fjórða bókin í bókaflokki Gísla Sigurðssonar blaðamanns og rit- stjóra er komin út. I þessari bók er fjallað um Mýrar og Snæfellsnes. Sú yfirferð, sem í þessari bók hefst í Hvítársíðu, nær allar götur vestur undir Jökul, sem án efa er merkasta og magnaðasta kennileiti við Faxa- flóa og Breiðafjörð. Eins og í fyrri bókum er efnið sótt í sögu þjóðar- innar frá landnámi til okkar tíma. Ljósmyndirnar sýna sögusviðið eins og það lítur út nú í aldarbyrj- un, en auk þess eru dregnar fram í dagsljósið gamlar ljósmyndir og teikningar. (fréttatilkynning) Efri röð fi'á vinstri:Jón Harðarson, umsjónamaður ungliðadeildar Brákar, Sigurborg Jónsdóttir og Þorgerður Erla Bjamadóttir. Neðri röðfrá vinstri: Ingi Þór Þórarinsson, 9 ára; Sandra Steinarsdóttir, 10 ára og Hafdís Lára Halldórsdóttir, 9 ára. Gjöf til Brákar Þann 6. nóvember sl. gáfu þrjú um með sölu á hinum ýmsu mun- liðinni viku. Vill björgunarsveitin ungmenni björgunarsveitinni Brák um. Ungmennin fengu hugmynd- Brák færa þeim bestu þakkir fyrir peningagjöf. Höfðu þau haldið ina eftir að hafa séð björgunnar- stuðninginn. hlutaveltu og söfnuðu 7000 krón- sveitarfólk selja Neyðarkallinn í ný- BGK Smalahundakeppni á Snæfellsnesi Valgeir Magnússon og Skotta í brautinni. Smalahundadeild Snæfellsness og Hnappadalssýslu hélt sína árlegu smalahundakeppni þann 11. nóvem- ber sl. og var þá búið að ffesta henni einu sinni vegna veðurs. Var keppn- in haldin að þessu sinni í Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi og tókst hún með ágætum. Alls tóku 11 hundar þátt í keppninni og dómari var Mar- Ljósm. Kolbrún Grétarsdóttir, Grundarfirði. ía Dóra Þórarinsdóttir ffá Mora- stöðum í Kjós. Keppt var í A, B og unghunda flokki. Úrslit í A flokki 1. sæti Vaskur og Svanur Guð- •mundsson með 16 stig 2. sæti Týra og Hilmar Sturluson með 68 stig 3. sæti Skotta og Valgeir Magnússon með 63 stig Aðrir keppendur í A flokki voru Spóla og Gísli Þórðarson, Dögg og Kristbjörn Steinarsson og Týra og Gunnar Guðmundsson. Bflokkur 1. sæti Týra og Gunnar Guðmunds- son með 13 stig 2. sæti Smali og Halldór Pálsson með 41 stig 3. sæti Assa og Svanur Guðmundsson með 43 stig 4. sæti Loppa og Hjalta Júlíusdóttir Unghundar 1. sæti Mýra og Svanur Guðmunds- son með 31 stig 2. sæti Tralli og Gunnar Guðmunds- son með 10 stig ÞSK Skallagrímur- Grindavík Sunnudaginn 19. nóv. kl. 19:15 í Borgarnesi ALLIRÁ VÖLLINN! Leikdeild Umf. íslendings sýnir í Félagsheimilinu Brún, Bæjarsveit Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman Sýningardagar: Þriðjudagur 14. nóvember kl. 21:00 Laugardagur 18. nóvember kl. 15:00 Sunnudagur 19. nóvember kl. 21:00 Þriðjudagur 21. nóvember kl. 21:00 Tekið er á móti pöntunum eftir kl. 19:30 í símum: 437 0018 (Solrún) og 437 0031 (Haraldur) Náttúrustofa Vesturlands Fræðastörf í Stykkishólmi á vegum Náttúrustofu Vesturlands og Háskólaseturs Snæfellsness Þriðjudagskvöldið 21. nóvember klukkan 20.00 á Ráðhúsloftinu, Hafnargötu 3 verður opin kynning á starfsemi og rannsóknum Náttúrustofunnar og Háskólasetursins. Forstöðumennirnir Róbert A. Stefánsson og Tómas G. Gunnarsson | flytja erindi um starfsemi þessara tveggja rannsóknastofnana og | segja frá rannsóknum þeirra og nokkrum niðurstöðum fram til þessa. j Að fyrirlestrum loknum verður farið með gesti um húsnæði stofnananna og rannsóknastofur skoðaðar. Þessi uppákoma er einstakt tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að kynna sér hvaða fræðastörf fara fram í ráðhúsi bæjarins. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis BORGARNESI EHF Loftorka Borgarnesi ehf. leitar eftir starfsfólki á eftirtaldar vinnuvélar • KOMASTU 340 - reynsla nauðsynleg • MAN kranabíll með 50 tonnmetra krana - reynsla æskileg Mikil vinna framundan. Nánari upplýsingar veita; Áslaug Þorvaldsdóttir sími 860-9057 netfang: aslaug@loftorka.is Reynir Magnússon sími 860-9014 netfang: reynir@loftorka.is Loftorka Borgarnesi ehf. er alhliða verktakafyrirtæki á sviði byggingamann virkja og sérhæfir sig í framleiðslu á forsteyptum hiutum úr steinsteypu, steinsteyptum einingum til húsbygginga og steinrörum í holræsi. Loftorka er fyrirtæki í örum vexti og leitar að liðsmönnum í sterka og skemmtilega liðsheild. Hvetjum við bæði kynin til þess að sækja um störf I okkar hópi. Loftorka Borgarnesi er starfsvettvangur þar sem metnaðarfullir einstaklingar njóta sín í umhverfi í mikilli þróun.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.