Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
17
ist stórlega þann persónulega
myndarbrag og þá snyrtimennsku,
sem þau báru um ljóst vitni, hvort
sem þau voru ætluð til íbúðar eða
verzlunar - eða þjónuðu útgerð-
inni.“ Af uppsetningu sýningarinn-
ar í Haraldarhúsi nú má ráða að
persónulegur myndarbragur og
snyrtimennska ræður ennþá ríkjum
í því húsi.
I lok eftirmála
ævisögu sinnar
sagði Haraldur
Böðvarsson: „Ég
lejrfi mér svo að
vænta þess, að
einhverjum
kunni að þykja
Meðal muna á sýningunni má sjá verðlaunagripi Þórðar Sigurðs-
sonar skipstjóra er honum hlotnaðist jýrir framgöngu hans og
áhafnar hans á Ægi þegar Pourquoi Pasfórst.
þessi saga ffóð-
leg um mikið og
merkilegt tíma-
bil í sögu ís-
lenzku þjóðar-
innar og sumt í
henni kunni að
verða ungum
mönnum, sem
eitthvað vilja og
geta, til nokk-
urrar leiðsagnar." Ekki er að efa að
afmælissýningin sem opnar á laug-
ardaginn mun þykja fróðleg um
mikið og merkilegt tímabil í sögu
þjóðarinnar og ekki síst sögu Akra-
ness. Sá staður og Haraldur Böðv-
arsson eru órjúfanleg heild síðustu
hundrað árin.
Halldór Jónsson.
Nýr hótelstjóri í Reykholti
Nýr hótelsljóri í Reykholti, Baldvin Frederiksen.
Nýr hótelstjóri hefur tekið við
rekstri Fosshótelsins í Reykholti.
Sigrún Hjartardóttir, sem áður
gegndi stöðunni, lét af störfum 1.
október og Baldvin Frederiksen tók
við sem yfirmaður á staðnum 1.
nóvember sl. I samtali við Skessu-
horn sagði Baldvin að hann hefði
ekki mikla reynslu af hótelrekstri
sem slíkum, en af rekstri og mark-
aðsmálum almennt hefði hann tölu-
verða reynslu. Meðal annars rak
hann sitt eigið fyrirtæki í sjö ár, sem
hann gat með sóma lagt niður, því
að reksturinn var góður. Það var
hægt að komast ffá barninu, eins og
Baldvin orðaði það.
Honum líst vel á að vera kominn
í Borgarfjörðinn og hlakkar til að
lifa og starfa í sveitinni. „Hótelið í
Reykholti er rekið sem Fosshótel og
ég er starfsmaður þeirra. Ætltmin er
að reka þetta áffam sem heilsutengt
menningarhótel og upplagt að gera
það á stað þar sem sagan fæddist
fyrst á bókfell, ef svo má segja. Eg
held að við Islendingar gerum okk-
ur ekki fulla grein fyrir því hversu
mikla gullmola við eigum víða og
það sama gildir hér í Reyk-
holti með Snorrastofu og
það tónhstarumhverfi sem
hér er. A þessum tíma er yf-
irleitt minna að gera í hót-
elrekstri. Það eru helst
helgamar sem meira er tnn
að vera. Ég er kominn með
góðan kokk og mér finnst
það lykilatriði að maturinn
sé góður, við rétt hitastig
og komi á réttum tíma til
viðskiptavinanna. Eg fæ
líka að þjóna aðeins til
borðs, það er ekki verra, því
ég þarf að læra það líka.“
Aðspurður um áherslur
hans í rekstrinum svaraði
Baldvin því til að hann von-
aðist til þess að skapa já-
kvætt viðmót við Fosshótelin al-
mennt og að fólkið í sveitinni finndi
að við reksturinn væri einhver sem
vildi hfa og hrærast í sveitinni. „Eg
er svona spekúlant um mannh'f og
mannlegt eðli, hef gaman af báðu.
Mig langar að verða mjúkur stjóm-
andi sem lætur starfsfólkið njóta sín
og ef hægt er að virkja fólkið í sveit-
inni til samvinnu og samstarfs. Við
hjónin erum í fjarbúð sem stendur.
Konan er hjúkrunarfræðingur og er
að vinna við það. Hana langar að
koma og vera með mér í sveitinni
og það verður að líkindum þegar
húsnæðið sem við ætlum að búa í
verður tilbúið."
BGK
Basar hjá eldri borgurum í Snæfellsbæ
Síðastliðinn sunnudag héldu
eldri borgarar í Snæfellsbæ (60
plús) sinn árlega basar í félagsheim-
ilinu Khfi. A boðstólnum var mikið
úrval m.a. af prjónafatnaði, glerhst-
arvömm, myndum og að ógleymdu
bakkelsinu sem félagsmenn höfðu
sjálfir gert.
Einnig var boðið uppá heitar
vöfflur og súkkulaði með rjóma
sem fjölmargir gestir nýttu sér. A
eftír sýndi danshópur eldri borgara
línudans og ekki sást hjá þeim eitt
einasta feilspor. Góðar undirtektir
vom við dansinum og fengu dans-
aramir gott klapp. Mikið er um að
vera hjá félagi eldri borgara í Snæ-
fellsbæ en 30 félagar era nýkomnir
úr Örkinni í Hveragerði eftír fimm
daga dvöl. Ekki er látíð þar við sitja
því nú í vikunni fer htlu minni hóp- ræddi við, og ekki era komnir í fé-
ur til Kanaríeyja og verður þar í lagið, er með óþreyju beðið eftír að
hálfan mánuð. Að sögn nokkurra komast að í 60 plús, því þá fyrst
gesta sem blaðamaður Skessuhoms byrjar fjörið í Snæfellsbæ. PSJ
Hvanneyrargöíu 3 - Hvanneyri - 311 Borgarnes
Shni: +354 437 1500 - Fax: +354 437 1501
nyhonnun@nyhonnun.is - www.nyhonnun.is
ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA-^ÁRANGUR
www.limtrevirnet.is
VANTAR ÞIG SMÍÐAJÁRN?
H bitar 100mm alls 154 mtr.
Vinklar 50x1 OOmm í meterslengd 126 stk.
Rör 3" í 1,2 mtr. lengd. 110 stk.
Prófill 50x1 OOmm. Alls 51 mtr.
Einnig nokkrir metrar af 40x40 prófíl.
Rör og vinklar eru soðin á H bitana og prófílinn.
Efnið er málað og óryðgað.
Fæst gegn því að vera fjarlægt.
Uppl. veitir framleiðslustjóri Jakob
Guðmundsson í síma 530-6063
Ungmennafélag íslands óskar eftir að ráða
svæðisfulltrúa í 100% starf á Vesturlandi
• Starfið er krefjandi en jafnframt fjölbreytt og líflegt.
• Svæðisfulltrúi þarf að geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og hafa
góða framkomu. Þekking á starfi ungmennafélagshreyfingarinnar
er góður kostur en ekki nauðsynleg.
• Aðsetur svæðisfulltrúa verður í Stykkishólmi.
Umsóknarfrestur er til 1. desember
• Skriflegri umsókn með upplýsingum um fyrri störf,
menntun og reynslu skal skila til Þjónustumiðstöðvar UMFÍ,
Fellsmúla 26,108 Reykjavík, fyrir 1. des 2006.
• Umsóknir má einnig senda í tölvupósti á umfi<s>umfi.is fyrir
sama tíma.
• Allar nánari upplýsingar um starf svæðisfulltrúa eru veittar í
síma 568 2929. Upplýsingar um Ungmennafélag íslands má
finna á heimsíðunni www.umfi.is.
Svæðisfulltrúi
Vesturlandi
Flligger
Hörpuskin, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga