Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 agBSSHIIWMSBIM Hjálmnrinn bjargaði að ekki fór verr Valgerður Helgadóttir, 13 ára stúlka búsett á Akranesi, lenti í heldur óskemmtilegri lífsreynslu um daginn, er hún hjólaði í veg fyr- ir bíl og hefði getað stórslasast ef ekki hefði komið til hjálms sem hún bar á höfði sér. Hjálminn telur hún vissulega hafi bjargað því að ekki fór verr en hún lemstraðist þónokk- uð við áreksturinn. Hún segir ekki marga vini sína eða kunningja, á svipuðum aldri, notast við hjálma en hjá henni hafi aldrei komið neitt annað til greina og er alveg sama þó það þyki „púkó.“ Forsaga málsins er sú að Valgerð- ur var á leiðinni í skólann að morgni dags, ekki enn farið að birta og hún á ljóslausu hjóli. „Eg var búin að ákveða að kaupa ljós á hjól- ið mitt þennan sama dag en bíl- stjórinn hefði líklegast séð mig hefði ég haft ljós,“ viðurkennir hún. Þar sem hún var að koma að skólanum hjólandi, veit hún ekki fyrr til en hún er skollin á stéttina og hjólið komið undir framanverð- an bíl sem kom þar að. „Til þess að bílar komist inn á bílastæði skólans þarf að keyra yfir þvera gangstétt- ina og einmitt þar átti óhappið sér stað. Kennari skólans var að koma til vinnu, keyrandi inn á bílastæðin þar sem ég kem aðvífandi á gang- stéttinni og við skellum saman.“ Valgerður segist til þess að byrja með ekki hafa áttað sig á hvað gerð- ist og hafi verið ansi ringluð. „Kennarinn var í algeru áfalli og miður sín lengi á effir en áfallið hjá Valgeríhir Helgadóttir. mér kom ekki fyrr en nokkru síðar, þegar ég áttaði mig á því hvað ratm- verulega hefði getað gerst. Eg tel að hjálmurinn hafi bjargað mér frá því að ég stórslasist en frá því ég var bam og byrjaði að hjóla, hef ég alltaf notað hjálm. Við pabbi minn höfiirn hjólað mikið saman alla tíð og það hefur aldrei komið neitt annað til greina en að nota hjálrn," Aðspurð um hvort kunningjar eða vinir hennar séu jafh skynsamir, svarar hún: „Það er varla að nokkur vina minna noti hjálma, né aðrir krakkar á mínu reki og í sannleika sagt þykir það ffekar hallærislegt.“ En hvað finnst Valgerði réttast að gera til þess að bæta ástandið: „Mér firmst að lögreglan mætti beita sér betur og hiklaust áminna krakka og ekki síður fullorðna ef hún sér þá hjólandi hjálmlausa. Fullorðnir ættu að hafa vit á því að nota hjálma og eins ætti það að vera skylda samkvæmt lögum,“ segir hún ákveðin, en sú undarlega regla er að hjálmanotkun á hjólum er skyldug aðeins til 15 ára aldurs. „Það geta allir orðið fyrir slysi og þá er eins gott að vera eins vel útbú- inn og mögulegt er. Hausinn er jafhframt svo viðkvæmur og þarf ekki nema smáhögg til þess að eitt- hvað alvarlegt gerist. Það hefur enginn strítt mér á því að vera með hjálm hingað til, enda myndi það ekki skipta mig neinu máli, ég mun alltaf nota hjálm og hvet eindregið til að fleiri geri slíkt hið sama,“ seg- ir Valgerður að lokum. Segja má að skynsemi og sjálf- stæði hafi orðið þessari ungu stúlku til láns og happs. KH Hjólið er illafarið eftir óhappið. Kennarar í námsferð til Barcelona Fyrir skömmu lögðu kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar land undir fót og fóru í námsferð til Barcelona. Tilgangur ferðarinnar var m.a. að heimsækja tónlistar- skóla þar í borg og kynnast spænskri tónlist. „Tónlistarskólinn sem við heimsóttum heitir Escola d'Arts Musicals Luthier, sem er eins og okkar skóli með nemendur á öllum aldri og kennt er á flest hljóðfæri," segir Theodóra Þor- steinsdóttir skólastjóri Tónlistar- skóla Borgarfjarðar í samtali við Skessuhorn. „Svo heppilega vildi til að aðstoðarskólastjóri tónlistarskól- ans sem við heimsóttum er íslend- ingur, Arnaldur Amarson gítarleik- ari. Við fengum mjög góðar mót- tökur, okkur var sýndur skólinn og við fengum einnig að fylgjast með kennslu. Við skoðuðum líka verslun sem tilheyrir skólanum en hún sel- ur aðallega gítara, nótur og geisla- diska. Stærsti hluti nemenda tón- listarskólans er í gítarnámi, en rík hefð er fyrir gítarleik á Spáni.“ Að sögn Theodóru var tíminn nýttur vel, farið var í skoðunarferð um borgina en þar gefur m.a. að líta hinn sérkennilega byggingarstíl Gaudis. Farið var í tónlistarverslan- ir og keyptar nótur og hljóðfæri sem nýtast í kennslunni heima. Oll dýrin í skóginum verða vinir á Gleðiíundi Hinn árlegi Gleðifundur Ung- mennafélags Reykdæla verður í Logalandi laugardagirm 25. nóv- ember nk. Undanfarin ár hefur fastur liður í dagskrá fundarins ver- ið dægurlagakeppni, en nú hefur verið ákveðið að hún verði ekki lið- ur í Gleðifundi, heldur verði gerð sérstök skil á Dægurlagahátíð síð- asta vetrardag í apríl nk. Að sögn Katrínar Eiðsdóttur, formanns Gleðifundarnefndar verður áhersla hátíðarinnar að þessu sinni á gamalt og gott efni og sem mest heimatilbúið. „Við fáum Bjartmar í heimsókn venju sam- kvæmt, dustum rykið af gömlum veislustjóra og höfum léttan anda svífandi yfir vötnunum. Það verður Country stemning ríkjandi hjá okk- ur í sveitinni og gestum verður gert að draga úr fórum sínum hatta til að skreyta höfuð sín af þessu tilefni. Veitum við sérstök verðlaun á skemmtuninni fyrir besta - og ljótasta hattinn. Þá verða gömlu Skriðjöklarnir sem spila fyrir dansi, en hljómsveitin heitir að vísu Hun- ang núna; eru eitthvað farnir að Katrín Eiðsdóttir, best þekkt sem Kata bílasali, erformaður Gleðifundamefndar 2006. Það er þó ekkifullt statf því milli þess sem hún stýrir skemmtunum er hún pósthússstjóri í langminnsta pósthúsi landsins (rúmast í hyllunum þremur fyrir aftan hana) og verslunarstjóri í Vegbitan- um í Reykholti. róast með aldrinum piltarnir. Um- fram allt leggjum við þó áherslu á það sem felst í gamla boðskapnum að „Öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir.“ Hingað eru semsagt all- ir velkomnir með rétta skapið í farteskinu," segir Katrín í samtali við Skessuhorn. MM Hópurinn í Park Gúell. Einnig fóru kennararnir á tónleika þar sem m.a. var boðið upp á óp- erusöng, zarzuela, gítarleik, jazz og síðast en ekki síst flamencodans. „Þetta var lærdómsrík ferð fyrir okkur, við fengum heilmikinn inn- blástur og heppnaðist ferðin í alla staði vel,“ sagði Theodóra. MM Pólskar stúlkur á sviðinu að syngja við góðar undirtektir gesta. Mikið fjör á pólska þjóðhátíðardeginum Síðastliðinn laugardag var haldið upp á pólska þjóðhátíðardaginn í Snæfellsbæ. Hátíðardagskrá var í Röst á Hellissandi. A dagskránni var upplestur, fróðleikur um Pól- land, söngur og einnig var fleira til gamans gert. Þá flutti bæjarstjóri Snæfellsbæjar ávarp og færði Pól- verjum blóm frá bæjarbúum í til- efni dagsins. A borðum var hátíðar- matur gerður af Pólverjum sem búa í Snæfellsbæ og var hann rómaður af fjölmörgum gestum sem mættu á hátíðina. Þetta er annað árið í röð sem Pólverjar halda upp á sinn þjóðhátíðardag í Snæfellsbæ og var þessi hátíð fjölmennari en í fyrra. Nokkrir pólskir þjóðfánar blöktu við hún og einnig flögguðu bæjarbúar Pólverjum til heiðurs. Eins og áður sagði komu fjölmarg- ir á hátíðina og voru Pólverjar að sjálfsögðu í meirihluta. Einnig komu gestir frá öðrum bæjarfélög- um á Snæfellsnesi. Þá heiðruðu m.a. skólastjóri Grunnskóla Snæ- fellsbæjar, sóknarprestur og for- ráðamenn stærstu atvinnufyrir- tæka bæjarins Pólverja með því að mæta og taka þátt í hátíðarhöldun- um. Vonandi er þessi hátíð komin til að vera en fjölmargir Pólverjar eru í vinnu í bæjarfélaginu og margir hafa sest þar að. PSJ s Eg skal mála allan heiminn... Fyrir ótal árum þegar ég var að byrja að fóta mig á vinnumarkað- inum, fékk ég vinnu í járnvöru- deild Kaupfélags Borgfirðinga þar sem Gestur Kristjánsson ffá Hreðavatni réði ríkjum. Þama var ég sumarlangt og hef sjaldan unnið með jafh skemmtilegu fólki og lent í jafn mörgum skemmti- legum viðburðum. Þið verðið að hafa í huga lesendur góðir að um 30 ár em liðin síðan þetta var en við vorum nýtískuleg þarna í jám- vömdeildinni, því við buðum m.a. upp á að blanda málningu fyrir fólk. Og meira að segja var hægt að hrista málninguna saman í þar til gerðum hristara, sem reyndar var barn síns tíma. Eitt sinn kemur maður að kaupa málningu. Hann velur sér appel- sínugult. Maðtu þessi var orð- lagður fyrir nísku og skapbræði svo unglingurinn, ég, afgreiddi hann af virðingu. Að sjálfsögðu valdi maðurinn þriggja lítra fötu, þótt hann þyrffi bara einn og hálfan lítra, það var mikið ódýr- ara. Hvað um það, málningin var blönduð, sett í hristaragræjuna, hert vel og allt sett af stað. A með- an spjölluðum við saman um heima og geyma. En allt í einu gerist hið óvænta. Dósin flýgur úr hristaranum, opnast og innihald- ið steypist að hluta yfir manninn. Uff, þarna stóð appelsínugul stytta, þar sem áður hafði verið maður í vinnufötum. Maðurinn mokaði málningu úr augum, nefi og munni. I hræðslu minni stama ég út úr mér við manninn. „Þú færð auðvitað málninguna frítt!“ Það sem leit úr fyrir að verða að brjálaðri bræði breyttist í sól- skinsbros. Hið appelsínugula andht mannsins Ijómaði. Eg náði í fægiskóflu, mokaði málningu af manninum, gólfinu og umhverf- inu, ofan í fötuna. Maðminn gekk út sæll og glaður, appelsíu- gulur ffá toppi til táar, en með 2 FRÍA lítra af málningu í fötunni. í mörg ár á effir, sást móta fyrir appelsínumgulum röndum í fug- tun flísanna á gólfinu. Enginn vissi hvers vegna nema ég og hann. Sýslumannssvið Fyrir slatta af árum mátti ekki nefna orðið pungur opinberlega, slíkt þótti ekki við hæfi. Því var það að þegar Þorri nálgaðist og verið var að auglýsa þorramatinn í útvarpinu var yfirleitt notað orð- ið kviðsvið eða sýslumanns- konfekt, yfir hrútspunga. Eitt sinn þegar þulur útvarpsins var að lesa auglýsingar yfir þorramat, mig minnir að þetta hafi verið Jó- hannes Arason, hætti hann í miðj- um lestri og segist æda að hætta þessari vitleysu. Þetta hafi verið og muni verða hrútspungar og hann muiu kalla þessa vöru sínu rétta nafni hér eftír. Hefur hann svo lesturinn með hárri raustu: Hrústpungarnir komnir, hrúst- pungamir komnir, Múlakaffi. Nóakonfekt Svo var það eitt sinn í slátur- sölu KB að einhver fin ffú hring- ir og spyr hvort til sé sýslumanns- konfekt. Einhver ung stúlka svar- ar og segir: „Nei, því miður, en við eigum Nóakonfekt, en það er reyndar frá árshátíðinni í fyrra!" Svo mörg voru þau orð úr sveitinni í þetta sinn. Meira síð- ar! Umsjón: Bima Konráðsdóttir

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.