Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 15. NOVEMBER 2006
Að loknum
Vökndögum á
Akranesi
Vökudagar voru haldnir á Akra-
nesi í fjórða skiptíð dagana 2.-9.
nóvember sl. Menningarmála- og
safhanefnd Akraness hefur staðið
fyrir undirbúningi umræddra daga
og hefúr form hátríðarinnar þróast
smám saman, en megin hugmynd-
in hefúr verið sú að bjóða Akur-
nesingum upp á sem fjölbreyttasta
menningarviðburði fyrir fólk á öll-
um aldri þannig að sem flestir
finni eitthvað við sitt hæfi og auka
þar með fjölbreytni í menningar-
lífi bæjarins í skammdeginu.
Að þessu sinni voru margir
glæsilegir viðburðir sem vöktu
verðskuldaða athygli bæjarbúa.
Má þar nefna tónleika, leiksýning-
ar, málverkasýningar, ljósmynda-
sýningar, flugeldasýningu og
margt fleira, en undirritaður getur
ekki dregið einn viðburð framar
öðrum fram, en fullyrðir þó að yf-
irhöfúð voru viðburðir sem í boði
voru, hinir glæsilegustu og þeim
aðilum sem stóðu að skipulagn-
ingu þeirra til mikils sóma.
Menningarmála- og safúanend
heiðraði Hauk Guðlaugsson, fýrr-
um organista Akraneskirkju og
skólastjóra Tónlistarskóla Akra-
ness og Kirkjukór Akraness fyrir
mikil og merk störf að tónlistar-
málum á Akranesi. Var þessum
aðilum færðar sérstakar viður-
kenningar fýrir störf þeirra, við
setningu Vökudaga, föstudaginn
3. nóvember s.l. í safnaðarheimil-
inu Vinaminni.
Ljóst er að Vökudagar eru
komnir til að vera, en til þess að
vel megi
fara, er nauðsynlegt að bæjarbúar
ásamt fýrirtækjum sjái sér hag í því
að taka höndum saman um að gera
Vökudaga að ánægjulegum og
fjölbreyttum dögum í skammdeg-
inu og leggja hönd á vogaskálar til
að svo geti orðið.
Undirritaður fýrir hönd Menn-
ingarmála- og safnanefndar færir
þeim fjölmörgu aðilum sem komu
að viðburðum, undirbúningi og
skipulagningu Vökudaga 2006
kærar þakkir fýrir þeirra framlag.
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari.
Andakílsárvirkjun
og vatnsstaðan í Skorradalsvatni
F y r i r
n o k k r u m
árum varð
mikið tjón
vegna mikils
vatnsveðurs samfara krappri lægð
sem olli miklum öldugangi á
Skorradalsvatni. Vatnsstaðan var
mjög há rétt eins og nú. Nýlagður
vegur innan við Haga skolaðist
burtu, tjón varð umtalsvert og end-
urgera þurfti veginn fýrir mikið fé. I
sama veðri skolaði öldugangurinn
töluvert af jarðvegi ffá bökkum.
Gróf m.a. undan mörgum bátaskýl-
um t.d. í landi Vamsenda og sjálfsagt
víðar.
Nú hefur í allt haust verið
óvenjuhátt í Skorradalsvami. Söfú-
un vatns fýrir virkjunina virðist vera
forgangsverkefni þrátt fyrir að
margsinnis hafi verið kvartað við
Orkuveitu Reykjavíkur sem eig-
anda Andakílsárvirkjunar. Vinsæl
gönguleið með strönd vatnsins hef-
ur vegna þessa verið lokuð á löng-
um köfhim í allt haust.
Hefja þarf umræðu um Skorra-
dalsvam, hvernig unnt verði að
færa lífkerfi þess í fýrra horf en það
hefúr verið allt meira og minna í
rugli síðan stíflan var hækkuð fýrir
nokkrum árum. Eg leyfi mér að ef-
ast um þörfina fýrir því að hafa
vatnsyfirborðið jafúhátt og það er.
Rekstur Andakílsárvirkjunar miðast
í dag fýrst og ffemst við að vera
toppstöð, þ.e. rafmagnsffamleiðsla
fer einungis fram þegar álagstoppar
eru. Annars virðist þörf á raffnags-
framleiðslu virkjunarinnar ekki
vera jafn mikil og áður var þegar
verið var að rafvæða sveitirnar.
Andakílsárvirkjun er með mjög litla
framleiðslugem á við stóru virkjan-
inar og þörfin því minni en áður
var.
Eg hvet alla sem þessar línur lesa
að mynda sér einhverja skoðun um
þessi mál. Við verðum að huga bet-
ur að umhverfi okkar, varðveita það
sem best eftír megni. Allt kæruleysi
og öll léttúð í þessum efúum kemur
okkur um koll.
Við þurfum að lagfæra sem mest
og færa í rétt horf í náttúrunni áður
en í óefúi er komið. En frumkvæði
að slíku er hjá þeim virkjunar-
mönnum, Orkuveitu Reykjavíkur
sem eiganda Andakílsárvirkjunar
sem og landeigendum.
Vinsamlegast,
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ
áhugamaður um umhverfismál
esja@heimsnet. is
*etuujiti—s
Frá nemendiim í 3. bekk Gnmdaskóla
Grundaskóla, 20. október 2006
Við nemenur í 3. bekk í Grundaskóla óskum
eftir því að ökumenn á Akranesi og víðar fari
eftir settum umferðarreglum.
Við hvetjum alla ökumenn, unga sem aldna,
að keyra á löglegum hraða.
Við biðjum ykkur kæru ökumenn að virða
gangbrautarljósin því kennarar okkar, foreldrar
og lögreglan á Akranesi segja okkur að við
megum bara fara yfir á grænum karli.
Virðingarfyllst,
Krakkamir í 3. bekk í Grundaskóla
»
t
l/íuifi/ifttué
Þótt ég nöldri nótt og daga - nuddast verkið seint
Svolítið hefur tíðin
verið rysjótt að und-
anförnu og blíðan
stundum verið örlítíð
að flýta sér. í leið-
indaveðri fýrir
nokkrum árum sat
Sigfús Jónsson við
eldhúsgluggann og
horfði á illviðrið úti og varð það tilefni eft-
irfarandi vísu:
Kneifa hlýðinn kaffilút,
kátur bíð í vari.
Ég er síður settur út
í svona tíðarfari.
í aftakaveðri í janúar 1942 fuku meðal
annars refabúr á Sauðárkróki og ortí þá Is-
leifur Gíslason:
Voga skefur vindakast,
virðar trefil brúka.
Það er án efa þéttingshvasst
þegar refir fjúka.
I annað sinn í norðan hvassviðri kvað ís-
leifur:
Norðanáttin svipsúr
sýnir mátt, en er klúr.
Brimið grátt við grjótmúr
grenjar hátt í b-dúr.
Eftirfarandi vísa er í ljóðabók Einars
Beinteinssonar með lítilsháttar öðru orða-
lagi en ég set hér þá útgáfu sem ég lærði í
æsku minni, kannske fyrst og fremst vegna
þess að mér finnst hún öllu hljómmeiri, en
allavega virðist hún ort í hálfgerðu skíta-
veðri:
Rigningin í fossum fellur
fyrir utan gluggann minn,
það er eins og milljón mellur
mígi í sama hlandkoppinn.
Einu sinni þótti það ekki búmannlegt að
ausa töðunni út í stóðið enda var taðan dýr-
mætari á þeim tíma. Ekki fer þó svona veð-
urlag neitt sérstaklega vel með útigöngu-
fénað hverrar tegundar sem hann er. Isleif-
ur Gíslason kvað einhverntíman í harð-
indatíð:
Kreppir að kaldur vetur
og kyngir niður snjó.
Sagt er að Sankti Pétur
setji inn hverja dróg.
Eitthvað hefur Rögnvaldi Rögnvaldsyni
orðið hugsað tíl reiðhesta sinna þegar hann
orti:
Úti berja klárar klaka,
komið sólarlag.
Ort var þessi afbragðs staka
annan jóladag.
Lengi hefur eldri kynslóðin haft áhyggj-
ur af þeirri yngri og að minnsta kosti munu
til ritaðar heimildir frá tímum Forn-
Grikkja þar sem menn lýsa áhyggjum sín-
um af ungdómnum. Eftir skóladansleik fyr-
ir mörgum árum í ónefúdum skóla sá skóla-
stjóri sig tilneyddan að halda áminningar-
ræðu yfir nemendum sínum. Af því tilefni
orti Jón Thor Haraldsson:
Á skólaböllum eykst nú áfengisneysla.
íafkimum hússins stendurhin fegursta veisla.
Skólastjóri fjallar um málið af funa.
- Fáir vilja barnæsku sína muna!
I öðrum skóla kvað Olafur Sigfússon frá
Forsæludal:
Nóttin var góð og nœðishlý.
Nutum við hennar bœði.
Nú kann ég orðið nokkuð í
náttúru - landafræði.
A eftirstríðsárunum og reyndar síðar var
mikið rætt um atómljóð annarsvegar og
hinsvegar hið stuðlaða fastmótaða ljóðform
og sýndist sitt hverjum eins og gengur. Má
kannske segja að Þorbjörn Þorskabítur hafi
hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði:
Að smíða úr efni svo í stuðlum standi
ei stór er list þó margur dáist að.
En skapa efni er öllu meiri vandi
og engir nema skáldin geta það.
Ekki virðist Jón Bjarnason frá Garðsvík
hafa verið ofþjakaður af sjálfsálitinu þegar
hann kvað:
Hagyrðinga úr lœgstu lœgð
lít ég upp til fjalla,
þar sem enn af ofurgnœgð
atómskriður falla.
Innlegg Gísla Olafssonar frá Eiríksstöð-
um í þessa umræðu var með þessum hætti:
Metur þjóðin menntafróð
mikla kvœðafenginn?
Sitt úr hverju horni hljóð
en höfuðstafur enginn.
Sigurður J. Gíslason var einhverntíma
spurður að því hvort hann væri ekki alltaf
að yrkja en gerði heldur lítið úr því:
Þótt ég geri stöku stöku stöku sinni,
lítt ég því að sinni sinni,
sinni bara vinnu minni.
Ekki ætti illa við að slá botninn í þennan
þátt með eftirfarandi vísum Einars Bein-
teinssonar:
Mínu hraða vísnavési
verð ég nú um sinn,
þó svo enginn annar lesi
óðarþáttinn minn.
Þetta er mikil manndrápssaga,
mig hún klárar hreint,
þótt ég nöldri nótt og daga
nuddast verkið seint.
Við mig sagði kvæðakverið
kaldri meður ró:
„ Þú hefur alltaf vitlaus verið,
versnar heldur þó."
En ég munninn aftur þandi,
öskraði með kraft:
„Skaltu þora, skruddufjandi,
skæla við mig kjaft."
Skruddan þagði, það var lóðið,
þóttist vilja frið.
Annars hefði ég hana og Ijóðið
haft í eldivið.
Og þó! Kannske við látum koma hér
þennan ágæta ritdóm eftir Sigtrygg Símon-
arson sem upprunalega var ortur vegna á-
gengni farandbóksala en getur vafalaust átt
fullt eins vel við þann sem skrifaði þennan
vísnaþátt:
Þó að svona seljist víða
sést í ritinu
að orðin nenntu ekki að bíða
eftir vitinu.
Með þökk jjrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Refsstöðum 320 Reykholt
S 435 1361 og 849 2115
dd@sinmet.is