Skessuhorn - 15.11.2006, Qupperneq 24
2
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða
B - WSk ' .' M SSBHM - SE ■ .
íbúðaiánasjóður
www.ils.is
mm&smmk - m r
FJÁRHAGSLEG GLITNIR,
VELGENGNI ÞÍN
ER 0KKAR VERKEFNI
Dagiegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is /SAMSKIP
Landjflutningar
Flottrollsveiðisvæði við
Snæfellsnes lokað
Skipin viö veiðar út af Snæfellsnesi í liöinni viku. Ljósm. Alfons Finnsson.
Hafrannsóknarstofnun
lokaði um helgina svæði
því við Snæfellsnes þar
sem undanþága var veitt
til síldveiða á dögunum.
Skyndilokanir Hafrann-
sóknarstofnunarinnar
gilda í tvær vikur. Astæða
lokunarinnar er mikill
meðafli við veiðarnar. Sú
ákvörðun Einars Kristins
Guðfinnssonar að veita
undanþágu til þessara
veiða féll í grýttan jarð-
veg á Snæfellsnesi og
urðu ýmsir til að mót-
mæla henni í liðinni viku
og er óhætt að segja að
margir hafi brugðist
harkalega við og mótmælt. Síðast
tók bæjarráð Stykkishólmsbæjar
undir mótmæli við veiðarnar en
þar áður hafði bæjarstjórn Grund-
arfjarðar mótmælt þeim og bæjar-
stjórn Snæfellsbæjar fól bæjarstjóra
að ræða málið við ráðherra. Þá
mótmælti Utvegsmannafélag Snæ-
fellsness veiðunum og loks sam-
þykkti Forseti, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Snæfellsbæ sl. laug-
ardag tillögu þar sem öllum veið-
um með flottrolli inn á fjörðum og
flóum landsins er mótmælt.
„Breiðafjörðurinn er ein af upp-
eldisstöðvum þorsks og til að
byggja upp þorskstofninn þarf
hann á æti að halda. Flottrollsveið-
um í Breiðafirði íylgir auk þess
meðafli þar sem síld er æti bolfiska
eins t.d. þorsksins. Skyndilokun
Hafrannsóknastofnunar nr. 132
sýnir fram á þetta. Félagið lýsir
andstöðu sinni við veiðar með
flottrolli í Breiðafirði og Faxaflóa,“
segir m.a. í tillögu Forseta.
Utvegsmenn mótmæltu
Útvegsmannafélag Snæfellsnes
samþykkti á fundi sínum í liðinni
viku ályktun þar sem skorað var á
sjávarútvegsráðherra að draga til
baka undanþágu til veiða með
flottrolli innan 12 sjómílna til
baka. Útvegsmannafélag Snæfells-
nes hélt fund á Hótel Höfða á
miðvikudag og var hann fjölmenn-
ur. Talsverðar umræður urðu á
fundinum um málið og að endingu
var samþykkt svohljóðandi álytkt-
un: „Fundur haldinn í Útveg-
mannafélagi Snæfellsness 8. nóv-
ember telur að veiðar íslenskra
síldarveiðiskipa með flottroll sam-
rýmist illa þeim hugmyndum sem
uppi eru um hagkvæmar og sjálf-
bærar veiðar. Fundurinn telur þær
brot á þeim reglum sem settar hafa
verið um veiðar í íslenskri land-
helgi. Útgerðarmenn við Breiða-
fjörð hafa verið forgöngumenn
þeirra sem vilja ganga vel um okk-
ar verðmætustu auðlindir. Sjálfir
hafa útgerðarmenn lagt til að
Nýtt sldpulag sam-
þyldct við Borgarbraut
A fundi skipulags og byggingar-
nefndar Borgarbyggðar í gær var
ífamlagt til kynningar og sam-
þykkt nýtt deiliskipulag fyrir
Borgarbraut 55, 57 og 59. Að
sögn Torfa Jóhannessonar, for-
manns nefndarinnar var ákveðið í
vor að draga fýrra skipulag fýrir
Borgarbraut 59 til baka og svæðið
fyrir lóðirnar 55 og 57 tekið með
og skipulagt sem heild eftir
ábendingar frá Skipulagsstofnun
þar að lútandi. Helstu breytingar
frá fyrri tillögu felast að sögn
Torfa m.a. í að byggingin á lóð-
inni 59 færist nær Borgarbraut,
bílageymsla verður að öllu leyti
neðanjarðar og innkeyTsla verður
ffá Borgarbraut en ekki Kjartans-
götu eins og upphaflega var áætl-
að. Afram er gert ráð fyrir að há-
markshæð byggingar á lóð númer
59 verði 6 hæðir. Þá er gert ráð
fyrir því að lóðirnar 55 og 57
verði sameinaðar og á þeim rísi
bygging að hámarki 5 hæðir.
Deiliskipulagið fer nú í venju-
bundið kynningarferli þar sem
íbúum og málsaðilum gefst tæki-
færi til að koma athugasemdum á
framfæri.
MM
Breiðafirði væri lokað fyrir flestum
veiðum í áratug. Því skoraði fund-
urinn á sjávarútvegsráðherra að
draga undanþágu um veiðar með
flottrolli innan 12 sjómílna til
baka, þannig að sómi sé að um-
gengni um auðlindir hafsins."
Segir smábátasjómenn
með skítamóral
Skipstjórinn á Engey RE segist
ekki skilja umræðu um að
flottrollsveiðar skaði lífríkið því
trollið komi ekki við botn og eini
meðaflinn sem fengist hafi við
veiðarnar séu 20-40 karfar. Hann
telur smábátasjómenn með skíta-
móral, og vísar þar til ályktunar
þeirra sem í raun hreifðu fyrst
mótmælum við veiðunum, og telur
Þórður að þeir eigi að líta í eigin
barm. Þetta kemur fram á heima-
síðu Alfons Finnssonar, ljósmynd-
ara í Olafsvík. Þórður segir við-
brögð við flottrollsveiðunum
skítamóral og trillusjómenn ættu
að líta í eigin barm um umgengni
og væru sennilega að væla útaf því
að Snæfellingar ættu ekki síldar-
kvóta sjálfir og einnig væri
eftirlitsmaður Fiskistofu um borð í
skipunum.
Eins og fram kemur í upphafi
fréttarinnar setti Hafrannsóknar-
stofnun skyndilokun til síldveiða í
flottroll næstu tvær vikur og var á-
stæða lokunarinnar „mikill meðafli
við veiðarnar.“
HJ
*
AVINNINGUR GULLVILDAR I
hmotskurn-.
. Eno hagstæðari vaxtaKjöf ^
200 fríar debetkorta eer
’ GreiðsluþiónustaGi-tnis-Óke,
, Netbanki Glitnis - Ókeyp's
* itVda at greiddum voxi
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ
VERA I GULLVILD
GULLVILD Glitnis skarar fram úr annarri vildarþjónustu.
Vaxtakjör GULLVILDAR eru í öllum tilfellum hagstæðari
en vaxtakjör hinna bankanna og munar allt að 2 prósentu-
stigurn sarnkvæmt samanburði á vaxtatöflu bankanna.*
SAMANBURÐUR A VILDARÞJONUSTU
BANKANNA
Þjónusta
Yfirdráttar- Innláns
vextir vextir
Glitnir - GULLVILD 20,25% 9,00%
KB Banki - Gullkjör 22,25% 8,00%
Landsbankínn - Varðan 22,20% 8,30%
SPM-Gull 21,70% 7,25%
Vaxtakjör miðast við einstakling með 200.000 kr. innstæðu eða yfirdrátt
þann 3. ok.tóber 2006
FJARHAGSLEG VELGENGNI ÞIN ER
OKKAR VERKEFNI