Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 2
 Ef unglingurinn er kominn með nýja vini í einhverju allt öðru hverfi og finnst það ekkert tiltökumál að taka strætó í 45 mínútur til að hitta einhverja sem þú hefur ekki hitt, þá er ástæða til að kanna hvort það geti verið eitthvað meira í gangi. Berglind Gunnars- dóttir, fram- kvæmdastjóri Foreldrahúss- Vímulausrar æsku Veður Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt, skúrir og hiti 7 til 16 stig. Norð- austan 5-10 norðvestan til. Áfram dálítil væta í flestum landshlutum og hiti 4 til 13 stig, mildast sunnan- lands. SJÁ SÍÐU 14 BRIDS SKÓLINN BYRJENDUR (stig 1) 30. sept. 8 mánudagar frá 20-23 KERFIÐ (stig 2) 2. okt. 8 miðvikudagar frá 20-23 • STIG 1 Á byrjendanámskeiði er farið vel yfir leikreglur spilsins og undirstöður hins vinsæla Standard-sagnkerfis. Ekkert mál að mæta ein/einn. • STIG 2 Standard-kerfið er í forgrunni á þessu námskeiði, bæði tveggja-manna-tal og ýmsar stöður í sagnbaráttu. Mikið spilað og ekki nauðsynlegt að koma með makker. • Staður . . . Síðumúli 37 í Reykjavík • Sjá nánar á . . . bridge.is • Upplýsingar og innritun í síma . . . 898-5427 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦  Sniglarnir 35 ára Sniglar, Bifjólasamtök lýðveldisins, fögnuðu 35 ára afmæli sínu í blíðskaparveðri og frábærum félagsskap gær. Dagurinn var haldinn hátíðlegur með pompi og prakt og var bif hjólafólki boðið í allsherjar afmælisveislu þar sem boðið var upp á kaffi og kökur í félagsheimili samtakanna í Skerjafirði. Um tvö hundruð afmælisgestir lögðu leið sína í veisluna og voru gestirnir afar ánægðir með daginn og veitingarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMFÉLAG „Til þessa hefur sím­ tölum frá foreldrum barna sem eru að byrja í neyslu fækkað á sumrin en ekki núna. Við munum varla eftir öðru eins sumri í þau 33 ár sem við höfum starfað,“ segir Berglind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Foreldrahúss – Vímulausrar æsku. Mynstrið er iðulega þannig að upp kemst um neyslu ungmenna þegar skólarnir hefjast á ný. Merkja þær Berglind og Guðrún B. Ágústs­ dóttir ráðgjafi aukningu núna í september frá fyrri árum. „Það vantar alltaf fjármagn í þennan málaf lokk, þá má ekki gleyma landsbyggðinni þar sem minni hjálp er að fá,“ segir Berg­ lind. Foreldrahús – Vímulaus æska er sjálft að hleypa af stað fjáröflun fyrir nýju húsnæði og f leira starfs­ fólki. Í síðustu viku var hleypt af stokkunum þjóðarátakinu Á allra vörum. Að þessu sinni á að styrkja forvarnar­ og fræðsluátakið Eitt líf. Samhliða því var frumsýnd áhrifa­ mikil auglýsing til að vekja fólk til umhugsunar um lyfjamisnotkun ungmenna. Alls létust 39 ungmenni vegna lyfjamisnotkunar í fyrra. Berglind fagnar öllu sem vekur athygli á þessum vanda. „Við þekkj­ um þennan vanda vel. Það sem við rekumst oft á er að þau halda að þau viti alveg hvað þau eru að gera,“ segir Berglind. Guðrún segir mikilvægt að for­ eldrar hafi varann á þegar kemur að lyfjum. „Læsið þau inni. Ekki hafa þau uppi í hillu þar sem unglingar eða vinir þeirra geta náð í þau,“ segir Guðrún. „Það eru ljót dæmi um að ungmenni hafi jafnvel tekið inn hjartalyf því þau hafa ruglast á þeim og öðrum. Líka dæmi um að þrettán ára hafi prófað fentanýl hjá krabbameinsveikum fjölskyldu­ meðlim.“ Þær ítreka að börnin sem um sé að ræða séu ekki þau sem kalla má vandræðaunglinga. „Þau koma ekki endilega frá fátækum heimilum eða foreldrum sem sinna þeim ekki. Oft tala foreldrarnir einmitt um að þau séu í íþróttum, eigi marga vini og hafi gengið vel í skólanum,“ segir Guðrún. Berglind segir að það séu nokkur merki sem foreldrar eigi helst að hafa í huga. Börnin mæta verr í skól­ ann, koma síður heim í kvöldmat og geta illa gert grein fyrir fjárút­ látum. „Ef unglingurinn er kominn með nýja vini í einhverju allt öðru hverfi og finnst það ekkert tiltöku­ mál að taka strætó í 45 mínútur til að hitta einhverja sem þú hefur ekki hitt, þá er ástæða til að kanna hvort það geti verið eitthvað meira í gangi.“ arib@frettabladid.is Fleiri börn í vanda í ár Starfsmenn Foreldrahúss – Vímulausrar æsku merkja aukningu á neyslu ung- menna. Mikilvægt að foreldrar hafi varann á og hafi lyfjaskápinn læstan.  Í fyrra létust 36 ungmenni af völdum lyfjamisnotkunar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMGÖNGUR „Í ár verður tæplega níu milljónum klukkustunda sóað í umferðartafir innan höfuðborg­ arinnar. Umferðartafir á annatíma hafa aukist um nærri 50 prósent á örfáum árum,” segir Hildur Björns­ dóttir, borgarfulltrúi, í grein í blað­ inu í dag. „Þessar tafir samsvara um 40 klukkustundum – eða heilli vinnu­ viku – á hvern höfuðborgarbúa árlega.“ Ferðavenjum verði að breyta. „Um 79 prósent allra ferða á höfuðborgarsvæðinu eru nú farnar á bíl,“ segir jafnframt. - bdj /sjá síðu 8 Níu milljónir klukkustunda í umferðartafir Hildur Björns- dóttir borgar- fulltrúi. ALÞINGI Jón Þór Ólafsson, þing­ maður Pírata, mun ekki taka við formennsku í stjórnskipunar­ og eftirlitsnefnd (SEN) líkt og lagt var upp með í upphafi kjörtíma­ bils. Samningur var gerður á milli Samfylkingar og Pírata um að for­ mennsku nefndarinnar skyldi skipt á milli f lokkanna. Áformað var að Jón Þór yrði for­ maður í haust og myndi sinna því starfi í eitt ár. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir myndi svo ljúka kjör­ tímabilinu. Þórhildur Sunna tekur hins vegar við strax í haust. Jón Þór hefur einnig látið eftir sæti sitt í forsætisnefnd, en Helgi Hrafn Gunnarsson, samf lokks­ maður Jóns, mun taka sæti í nefnd­ inni í hans stað. Jón Þór mun hins vegar áfram sitja í atvinnuvega­ nefnd og segist geta sinnt starfi sínu þar betur með þessum breytingum. Aðspurður um ástæður þess að hann víki úr forsætisnefnd og fari ekki með formennsku í SEN, líkt og áformað var, segist Jón Þór vilja ein­ beita sér að starfi þingmannsins í vetur. „Ég notaði sumarið í að melta það hvar og hvernig kraftar mínir myndu nýtast best. Með þessu get ég farið aftur í grasrótina. Þar á ég heima. Svona get ég einbeitt mér að því sem skiptir landsmenn máli í stað þess að vera fastur í skrifræði þingsins,“ segir Jón Þór. „Svo þegar ég fór að hugsa út í þetta sá ég að Þórhildur Sunna yrði miklu öflugri formaður SEN en ég,“ segir Jón Þór kíminn. „Svona get ég verið óbreyttur þingmaður og einbeitt mér að því sem er að gerast fyrir utan skipu­ lagsheildina á Alþingi.“ ­ bdj Jón Þór verður ekki formaður Jón Þór Ólafs- son, þingmaður Pírata. 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B A -4 B 6 0 2 3 B A -4 A 2 4 2 3 B A -4 8 E 8 2 3 B A -4 7 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.