Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 4
ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR FIAT DUCATO Verð frá 4.024.194 án vsk. 4.990.000 m/vsk. FIAT TALENTO L2H1 Verð frá 3.298.387 án vsk. 4.090.000 m/vsk. FIAT DOBLO Verð frá 2.225.806 án vsk. 2.760.000 m/vsk. FIAT FIORINO Verð frá 1.854.032 án vsk. 2.299.000 m/vsk. ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 FJÖLMIÐLAR Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, stefnir á að taka Ríkisútvarpið af auglýsinga- markaði. Engar slíkar fyrirætlanir hafa verið kynntar ríkisstjórninni með formlegum hætti en mennta- málaráðherra vill umræðu um málið. Forsætisráðherra er opin fyrir hugmyndinni, en vill þá auka framlög til RÚV. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að áður en framlög til ríkismiðilsins séu ákvörðuð, sé rétt að skilgreina hlut- verk og skyldur RÚV. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir koma vel til greina að taka RÚV af auglýsingamarkaði. „Fyrirkomulagið er þannig víða í kringum okkur, en það á sér þar töluvert langa sögu. Það sem ég myndi vilja leggja til er að það yrði skoðað sérstaklega hvaða áhrif það myndi hafa á íslenska auglýsinga- markaðinn, það er að segja, hvort þeir rúmir tveir milljarðar sem Ríkisútvarpið hefur í tekjur af aug- lýsingasölu muni skiptast yfir á hina innlendu miðlana eða hvort þeir fari annað, til dæmis úr landi,“ segir Katrín. Hún vill að Ríkisút- varpinu sé bætt upp sú upphæð sem það verði af, fari það af auglýsingamarkaði. „Ég myndi vilja gera það með því að hækka ú t v a r p s - gjaldið. Mér hugnast ekki að almanna- f jöl m iðl i l l sé á f jár- lögum.“ Óli Björn K á r a s o n , þingmaður Sjálfstæðisf lokksins, segir um að ræða tvö aðskilin mál, annars vegar framlög til ríkis- miðilsins og hins vegar það hvort ríkið eigi að standa í óeðli- legri samkeppni við einkaaðila. „Eitt er að taka ákvörðun um að reka RÚV. Ef við ætlum að gera það sk u lu m við gera það m e ð þ e i m hætti að það h a f i s e m minnst nei- kvæð áhrif á einkarekna miðla. Auglýsinga- sala RÚV eyðileggur og skekkir alla stöðu gagnvart sjálfstæðum fjöl- miðlum. Það er því rétt og eðlilegt að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði þó ekki sé nema bara af þeirri ástæðu,“ segir Óli Björn. „Með hið svokallaða tekjutap sem af því kann að hljótast, það er ein- faldlega annað mál. Það hefur ekk- ert að gera með það hvort menn eigi að lofa ríkisfyrirtæki að keppa með óeðlilegum hætti við einkaaðila, í þessu tilfelli á auglýsingamarkaði. Spurningin um framlög til RÚV er allt önnur og snýr að því hvaða skyldum og hlutverki RÚV á að gegna, sem mér þætti eðlilegt að væri svarað áður en menn byrja að velta því fyrir sér hvort eigi að bæta upp tekjutap, innan gæsalappa, vegna auglýsingasölu. Ég tel að þar eigi að byrja. Svo má taka afstöðu til þess hvort þurfi að tryggja því auknar tekjur eða hvort það komist af með minna en það hefur nú,“ útskýrir Óli Björn. Lilja segir það ekki liggja fyrir hvenær hún muni kynna fyrirætl- anir sínar með Ríkisútvarpið fyrir ríkisstjórn. „Það kemur að því. Ég ligg núna undir feldi og er að skoða hvernig þetta sé best gert. Ég held að umræða um málið sé mikilvæg og að þetta sé best gert í skrefum.“ olof@frettabladid.is Ráðherra ætlar sér að taka RÚV af auglýsingamarkaði Menntamálaráðherra ætlar sér að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Forsætisráðherra vill bæta stofnuninni upp þær tekjur með hækkuðu útvarpsgjaldi. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill hins vegar að hlutverk og skyldur RÚV séu skilgreindar áður en tekin er afstaða um framlög til ríkisfjölmiðilsins. Menntamálaráðherra hefur einnig boðað sérstaka styrki til einkarekinna fjölmiðla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK Óli Björn Kárason. Katrín Jakobs- dóttir. LÖGGÆSLA Engar fastar lokanir verða á götum vegna komu Ind- landsforseta til landsins eins og var við heimsókn Mikes Pence í síðustu viku. Hann fær þó lögreglufylgd hvert sem hann fer, líkt og Angela Merkel og aðrir þjóðhöfðingjar sem heim- sækja landið, með tilheyrandi trufl- unum á umferð. Óvenju mikið hefur verið um opinberar heimsóknir upp á síðkastið og mikið að gera hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Þetta verður náttúrulega ekkert í líkingu við Pence en þetta verður svona meira í áttina að Merkel,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn umferð- ardeildar lögreglunnar, spurður út í viðbúnað vegna heimsóknarinnar. „Það verður umferðarfylgd á öllum ferðum hans og þar af leiðandi truflun á umferð svona rétt á meðan fylgdin er að fara í gegn en svo opn- ast allt aftur.“ Shri Ram Nath Kovind, forseti Indlands, kemur í opinbera heim- sókn til landsins í dag eins og greint hefur verið frá. Hann mun hitta Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, á Bessastöðum á morgun og að því loknu halda opinn fyrir- lestur í Háskóla Íslands, sem ber yfirskriftina Indland og Ísland fyrir græna plánetu. – ókp Mun minni viðbúnaður vegna komu Indlandsforseta en Pence Shri Ram Nath Kovind, forseti Indlands. LÖGREGLUMÁL Maður sem var stöðvaður af tollgæslunni í komusal Keflavíkurflugvallar viðurkenndi að vera með fíkniefni innvortis. Þá hafði hann ætlað að smygla tæpum 700 grömmum af kókaíni til lands- ins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suður- nesjum. Maðurinn kom frá Madríd fyrsta september síðastliðinn og er af erlendu bergi brotinn. Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn í kjölfar játningar hans og færði hann á lögreglustöð. Þar skilaði hann af sér samtals 70 pakkningum af fíkni- efninu. Hann  er nú í  gæslu- varðhaldi en rann- sókn málsins er í höndum lög- r e g l u n n a r á Suðu r- nesjum. – kdi Með tæpt kíló af kókaíni innvortis LÖGREGLUMÁL Flytja þurfti björg- unarsveitarmann á sjúkrahús eftir að ráðist var á hann í miðri flugelda- sýningu Ljósanætur á laugardags- kvöld. Björgunarsveitarmaðurinn hafði bjargað lífi manns sem stakk sér til sunds undir Berginu en eftir björgunina réðst maðurinn á hann. Björgunarsveitarmaðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja. „Þaðan var hann sendur til frekari skoðunar til Reykjavíkur þar sem talin var þörf á því vegna áverka,“ segir Haraldur Haraldsson, formaður Björgunarsveitar Suður- nesja. Björgunarsveitarmaðurinn var marinn og bólginn á eftir. Maðurinn sem stökk í sjóinn kvaðst ætla að synda til Hafnar- fjarðar. Ljóst sé að mati Haraldar að maðurinn hefði drukknað hefði honum ekki verið komið til bjargar. – kdi Marinn og blár eftir björgun 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B A -5 F 2 0 2 3 B A -5 D E 4 2 3 B A -5 C A 8 2 3 B A -5 B 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.