Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 32
Sorgarmiðstöð er fyrir alla sem hafa misst og syrgja og henni er ætlað að halda utan um upp- lýsingar fyrir syrgjendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ásdís Stefánsdóttir Sólvangi, Fnjóskadal, andaðist mánudaginn 2. september á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 11. september kl. 13.30. Jarðsett verður í Hálskirkjugarði Fnjóskadal. Bergsveinn Jónsson Ingvar Jónsson Þórdís H. Jónsdóttir Birgir Jónasson Sigrún Jónsdóttir Aðalheiður Erla Jónsdóttir Óskar H. Albertsson Þórunn Jónsdóttir Rúnar Jóakimsson Sólveig Jónsdóttir Friðfinnur Hauksson Steinunn H. Jónsdóttir Stefán Sævarsson Magnús Skúlason barnabörn og barnabarnabörn. 1000 Svoldarorrusta var háð í Eystrasalti og Ólafur Tryggvason féll. 1087 Vilhjálmur rauður varð konungur Englands. 1208 Víðinesbardagi var háður í Hjaltadal, en þó gæti hann hafa verið daginn áður. Höfðingjar sóttu með mikinn her að Guðmundi góða Arasyni, biskupi á Hólum. Í þessum bardaga féll Kolbeinn Tumason. 1850 Kalifornía er útnefnd 31. ríki Bandaríkjanna. 1867 Lúxemborg öðlast sjálfstæði. 1877 Þingeyrakirkja, sem Ásgeir Einarsson alþingismaður lét reisa, var vígð. 1905 Sogsbrú, 38 metra löng og 2,5 metra breið hengi- brú, var vígð. Um 1.000 manns voru viðstödd vígsluna. 1913 Íþróttafélagið Þór stofnað í Vestmannaeyjum. 1914 Orrustunni við Marne lauk. 1926 Snjókoma var og vöknuðu Reykvíkingar við alhvíta jörð að morgni. Talið er að aldrei hafi gert alhvítt fyrr að hausti í Reykjavík. 1939 Landher nasista ræðst inn í Varsjá í Póllandi. 1942 Breskum flugmanni tókst á síðustu stundu að beina flugvél sinni frá húsi í Elliðaárdalnum er hann brot- lenti þar í kartöflugarði. 1950 Fjöldahandtökur kommúnista í Frakklandi. 1956 Elivs Presley kemur fram í sjónvarpsþætti Eds Sullivan. 1965 Tíbet er gert að óháðu landsvæði Kína. 1971 John Lennon gefur út plötuna „Imagine". 1985 Ronald Reagan fyrirskipar refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku. 1990 Bush og Gorbachev hittast í Helsini og hvetja Íraka til að fara frá Kúveit. 1991 Mike Tyson er ákærður fyrir nauðgun. 1998 Háhyrningurinn Keikó kom til Vestmannaeyja. Merkisatburðir Það var á þessum degi árið 1543 sem hin níu mánaða gamla María Stuart var opinberlega krýnd drottning af Skot- landi í kapellu í Stirling-kastala. Hún fæddist 7. desember 1542, en í stjórnartíð Róberts annars af Skot- landi hafði verið staðfest að krúnuna gætu aðeins karlmenn í ættinni erft, nema þeir væru útdauðir. Því taldi James fimmti víst að fæðing dóttur sinnar markaði endalok Stuart-ættar- innar á konungsstóli, en það var vegna Maríu sem ættin fékk yfirráð og ríkti bæði yfir Skotlandi og Englandi. María var ekki nema sex daga gömul þegar faðir hennar lést úr kóleru og hún varð drottning. Krýningin var umtöluð í Evrópu enda einstök í sinni röð vegna þess að drottningin var enn kornabarn. Hún var íklædd fagurrauðum möttli með loðermum og steinum skreyttum satínkjól. Livingstone lávarður studdi við Maríu í hásætinu svo hún ylti ekki um koll og út á gólf. Sökum dragsúgs í kapell- unni brast barnið í grát meðan það var smurt vígðri olíu um leið og krýningar- eiðurinn var lesinn. Jarlinn af Lennox kom aðvífandi með veldissprota og kom honum fyrir í hönd barnsins um leið og kardinálinn framkvæmdi athöfn með þriggja feta sverði við örsmáan kroppinn. Að því loknu tyllti kardinálinn kór- ónu á höfuð Maríu þar sem hún rétt tolldi á flauelshring sem barnið hafði á höfðinu. Í lok athafnar var líkama barnsins haldið uppréttum meðan jarlar af Len- nox og Arran kysstu kinnar Maríu af drottins hollustu og prelátar og aðals- menn hneigðu sig fyrir hinni ný krýndu drottningu. Þ E T TA G E R Ð I S T: 9. S E P T E M B E R 15 4 3 María Stuart krýnd drottning Mary Stuart, drottning af Skotlandi. Á f i m m t u d a g v e r ð -ur opnuð Sorgarmiðstöð sem ætlað er að styðja við einstaklinga og fjöl-skyldur í sorg. Um er að ræða reg nhlífarsam- tök grasrótarfélaga á sviði sorgarúr- vinnslu. Stofnendur Sorgarmiðstöðvar eru félögin Ný dögun, Birta, Ljónshjarta og Gleym mér ei. „Árið 2017 voru samtökin Ný dögun þrjátíu ára og af því tilefni héldum við vinnufund með hópi fólks sem kemur að stuðningi við syrgjendur. Þarna komu saman fagaðilar úr heilbrigðiskerfinu, ýmsir úr grasrótinni, frá kirkjunni, lög- reglunni og margir f leiri. Við unnum með spurninguna: Hvað getum við gert betur fyrir syrgjendur á Íslandi?“ segir Hulda Guðmundsdóttir, formaður Sorgarmiðstöðvar. „Fundurinn skilaði þeirri eindregnu niðurstöðu að bæta þyrfti þjónustu við syrgjendur. Hún væri of dreifð, ómark- viss og af ýmsu tagi. Æskilegast væri að koma upp sorgarmiðstöð þar sem syrgjendur og aðrir gætu gengið að upp- lýsingum og þjónustu á einum stað, með símtali, heimsókn eða á vefsíðu. Eins þyrfti að efla fræðslu á sviði sorgarúr- vinnslu,“ bætir Hulda við. Að vinnufundinum loknum var ákveðið að vinna áfram með niðurstöð- ur fundarins og rúmu ári síðar undir- rituðu félögin fjögur viljayfirlýsingu um stofnun Sorgarmiðstöðvar sem verður opnuð á fimmtudaginn. Hlutverk Sorgarmiðstöðvar er að styðja við einstaklinga og fjölskyldur í sorg ásamt því að ef la samfélagsum- ræðu um mikilvægi sorgarúrvinnslu. „Markmiðið er að bæta félagslega virkni syrgjenda og minnka líkur á heilsubresti þeirra við áföllin,“ segir Hulda. „Rannsóknir hafa sýnt að góð úrræði í sorg fækka geðheilbrigðisvandamálum og flýta félagslegri endurhæfingu syrgj- enda,“ segir hún. Hulda er fyrrverandi formaður sam- takanna Ný dögun, og hefur unnið með samtökunum í áraraðir. Tilgangur Nýrr- ar dögunar er að styðja syrgjendur og þá sem vinna að velferð þeirra og þekkir Hulda því vel til sorgarúrvinnslu og mikilvægi þess að takast á við þau áföll sem fólk verður fyrir í lífinu. Hún segir mikla þörf á opnari umræðu um dauðann og að Sorgar- miðstöð muni veita þeim sem misst hafa ástvin upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru. „Sorgarmiðstöð er fyrir alla sem hafa misst og syrgja og henni er ætlað að halda utan um upplýsingar fyrir syrgjendur. Til dæmis hvert við- komandi getur leitað eftir frekari stuðn- ingi í sinni sorg og miðað við aðstæður, svo sem ef viðkomandi missir barn, maka eða systkini,“ segir Hulda. „Sorgarmiðstöð vill vera vettvangur sem upplýsir nærsamfélagið um sorg og sorgarviðbrögð og hjálpa því að tala um dauðann, skilja að hann er hluti af lífinu og alls ekki alltaf óvinur,“ segir Hulda. Opnun Sorgarmiðstöðvar fer fram í Lífsgæðasetrinu á gamla Sankti Jósefs- spítalanum í Hafnarfirði fimmtudaginn 12. september klukkan átta og eru allir velkomnir. olof@frettabladid.is Vilja gera betur fyrir þá sem syrgja ástvini sína Hulda Guðmundsdóttir og Ína Ólöf Sigurðardóttir eru í stjórn Sorgarmiðstöðvar- innar. Þær vilja gera betur fyrir fólk sem syrgir. MYND/ÍNA ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR Á fimmtudag verður opnuð Sorgarmiðstöð sem styður við þá sem syrgja ástvini. Góð úrræði í sorg fækka geðheilbrigðis- vandamálum og flýta endurhæfingu syrgjenda. 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 0 9 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B A -5 F 2 0 2 3 B A -5 D E 4 2 3 B A -5 C A 8 2 3 B A -5 B 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.