Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 9
Komdu bara kallinn minn, sögðu Íslendingar. Við skulum loka götunum, svo þú getir ferðast einn með paranojunni þinni. HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Beltone Trust™ Guðmundur Steingrímsson Í DAG Ég hugsa að það væri dálítið miklu erfiðara að búa á Íslandi, í þessu veðurbarða fásinni á hjara veraldar, ef Íslend- ingar væru yfirhöfuð fordóma- fullir leiðindapúkar. Það mætti vel ímynda sér að þróun mannlífsins á árhundruðum hefði orðið slík að hér byggi í einangrun sinni fólk sem þyldi ekki að aðrir væru öðru- vísi, sem vildi steypa fólk í sama mót og gera öllum þeim lífið leitt sem strituðu við að synda á móti straumnum og vera það sjálft. Slík er jafnan ímynd eyjarskeggja, ekki satt? Eru eyjarskeggjar ekki svona fólk sem vill síður að utan- aðkomandi og öðruvísi mann- eskjur ruggi bátnum? Þola ekki utanaðkomandi áreiti og vilja hafa hlutina í föstum skorðum. Sem sagt, leiðindaskarfar. Staðalmyndir eru sem betur fer sjaldan sannar. Vissulega hristir maður hausinn stundum yfir Íslendingum. Maður á erfitt með að skilja hvað er að gerast stundum í hausnum á sumum samborgur- unum og maður gapir yfir athuga- semdum á netinu. Það verður ekki komist hjá því að í samfélagi gæti alls konar skoðana, og líklega er það einmitt fallegur hlutur, þótt stundum reyni á þolþrifin. Og maður dæsir stundum yfir því hvernig hlutum er háttað, hvernig alls konar ákvarðanir eru teknar eða ekki teknar og hvernig sumt er ekki klárað og hvernig hægt er að hjakka áfram í sama farinu í alls konar málum. Jafnvel koma stundir þar sem mann langar að búa annars staðar, sérstak- lega þegar saman fer skítaveður, myrkur og leiðindi. Sem gerist. En svo koma aðrar stundir. Þau koma sem betur fer þessi blik í lífi þessarar þjóðar sem sýna manni á einhvern undursamlegan hátt að þrátt fyrir allt býr á þessu landi fólk sem er satt að segja upp til hópa bara nokkuð gott. Þetta er þokkalegt lið. Ég ætla ekki að vera sentimental — óþarfi að missa sig — en Íslendingar eru sem sagt alveg ágætir. Maður verður smá stoltur. Ef ekki mjög stoltur. Frændinn kemur Hingað kom Mike Pence. Ég hugsa að hann sé kannski svona eintak sem ég hef í huga þegar ég segi að mér finnist gott að á Íslandi búi ekki bara leiðindapúkar. Mikið væri glatað ef allir væru eins og Mike Pence. Ekki þekki ég manninn, en ferillinn segir sína sögu sem og áherslumálin og mál- flutningurinn. Á grunni einbeitts og markviss virðingarleysis í garð réttinda samkynhneigðra, kvenna og alls kyns minnihlutahópa hefur Pence byggt upp stjórnmálaferil. Það var ekki einfalt verkefni, býst ég við, fyrir ráðafólk þjóðarinnar að taka á móti þessum manni. Bandaríkjamenn, í öllum sínum stórbrotna fjölbreytileika, eru vinaþjóð okkar og jafnvel fyrir- mynd. En hvað gerir maður þegar varaforsetinn er hommafóbískur afturhaldsseggur og trúarof- stækismaður? Og hann kemur í heimsókn? Yfir túnið að bænum kemur arkandi í stígvélum meðfram skurðinum gamli, fúli frændinn. Heimilisfólkið — friðelskandi og umtalsgott— gægist með- fram gardínunum út um glugg- ann og sér hann koma. Ó, nei. Húsfrúna langar helst að senda yngsta barnið til dyra, til að segja frændanum að enginn sé heima, en mómentið fór. Of seint. Smá panik. Allt í einu er hann kominn inn í anddyri. Og allt í einu, yfir kaffinu, er hann farinn að flytja ræður um það hvað það sé nú gott að heimilisfólkið sé með honum í liði í glímunni við aðra í sveitinni. Húsfrúin maldar í móinn og húsbóndinn líka en frændinn hlustar ekki. Talar bara. Hann klukkar kotið í viðureign sinni við heiminn. Þið eru með mér í liði, segir hann. Fer svo. Arkar til baka yfir túnið. Heimilisfólk situr ringlað eftir. Hvað gerðist? Fánarnir í Borgartúni Jú, þetta gerðist: Íslendingar sýndu sínar bestu hliðar þegar Mike Pence kom í heimsókn. Komdu bara kallinn minn, sögðu Íslend- ingar. Við skulum loka götunum, svo þú getir ferðast einn með paranojunni þinni. Við skulum leyfa þér að setja leyniskytturnar þínar á húsþökin. Og segðu það sem þú vilt. En eitt skulum við hafa á hreinu. Gildin okkar eru ekki gildin þín. Við skrifum ekki undir fordóma þína og deilum á engan hátt sýn þinni á veröldina. Þegar regnbogafánarnir fóru að birtast í Borgartúninu einn af öðrum, þegar borgarstjórinn mætti á hjóli, forsetafrúin í hvítri dragt, forsetinn með regnboga- armband og forsætisráðherrann okkar stóð við hlið hans, ung kona við hlið karls sem vill ekki einu sinni að konur ráði yfir líkama sínum, hvað þá meira, þá greip mann sem sagt þetta áðurnefnda stolt: Mikið er þessi þjóð með hjartað á réttum stað. Eitthvað höfum við gert rétt, þrátt fyrir allt. Við erum hið prýðilegasta fólk. Og á Lækjartorgi reyndu nýnasistar um svipað leyti að efla hreyfingu sína með áróðri. Viðbrögðin við þeim ógeðfellda gjörningi hafa styrkt þessa sömu tilfinningu: Þótt þjóðin sé skrýtin stundum, þá er hún ekki í ruglinu. Þjóðin er fín. Jafnvel smá mögnuð, svei mér. Ágætis fólk S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 0 9 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B A -5 F 2 0 2 3 B A -5 D E 4 2 3 B A -5 C A 8 2 3 B A -5 B 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.