Fréttablaðið - 09.09.2019, Side 9
Komdu bara kallinn minn,
sögðu Íslendingar. Við
skulum loka götunum, svo
þú getir ferðast einn með
paranojunni þinni.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust™
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Ég hugsa að það væri dálítið miklu erfiðara að búa á Íslandi, í þessu veðurbarða
fásinni á hjara veraldar, ef Íslend-
ingar væru yfirhöfuð fordóma-
fullir leiðindapúkar. Það mætti vel
ímynda sér að þróun mannlífsins
á árhundruðum hefði orðið slík
að hér byggi í einangrun sinni fólk
sem þyldi ekki að aðrir væru öðru-
vísi, sem vildi steypa fólk í sama
mót og gera öllum þeim lífið leitt
sem strituðu við að synda á móti
straumnum og vera það sjálft.
Slík er jafnan ímynd eyjarskeggja,
ekki satt? Eru eyjarskeggjar ekki
svona fólk sem vill síður að utan-
aðkomandi og öðruvísi mann-
eskjur ruggi bátnum? Þola ekki
utanaðkomandi áreiti og vilja hafa
hlutina í föstum skorðum. Sem
sagt, leiðindaskarfar.
Staðalmyndir eru sem betur fer
sjaldan sannar. Vissulega hristir
maður hausinn stundum yfir
Íslendingum. Maður á erfitt með
að skilja hvað er að gerast stundum
í hausnum á sumum samborgur-
unum og maður gapir yfir athuga-
semdum á netinu. Það verður ekki
komist hjá því að í samfélagi gæti
alls konar skoðana, og líklega er
það einmitt fallegur hlutur, þótt
stundum reyni á þolþrifin. Og
maður dæsir stundum yfir því
hvernig hlutum er háttað, hvernig
alls konar ákvarðanir eru teknar
eða ekki teknar og hvernig sumt
er ekki klárað og hvernig hægt er
að hjakka áfram í sama farinu í
alls konar málum. Jafnvel koma
stundir þar sem mann langar
að búa annars staðar, sérstak-
lega þegar saman fer skítaveður,
myrkur og leiðindi. Sem gerist.
En svo koma aðrar stundir. Þau
koma sem betur fer þessi blik í lífi
þessarar þjóðar sem sýna manni
á einhvern undursamlegan hátt
að þrátt fyrir allt býr á þessu landi
fólk sem er satt að segja upp til
hópa bara nokkuð gott. Þetta er
þokkalegt lið. Ég ætla ekki að vera
sentimental — óþarfi að missa
sig — en Íslendingar eru sem sagt
alveg ágætir. Maður verður smá
stoltur. Ef ekki mjög stoltur.
Frændinn kemur
Hingað kom Mike Pence. Ég hugsa
að hann sé kannski svona eintak
sem ég hef í huga þegar ég segi
að mér finnist gott að á Íslandi
búi ekki bara leiðindapúkar.
Mikið væri glatað ef allir væru
eins og Mike Pence. Ekki þekki ég
manninn, en ferillinn segir sína
sögu sem og áherslumálin og mál-
flutningurinn. Á grunni einbeitts
og markviss virðingarleysis í garð
réttinda samkynhneigðra, kvenna
og alls kyns minnihlutahópa hefur
Pence byggt upp stjórnmálaferil.
Það var ekki einfalt verkefni, býst
ég við, fyrir ráðafólk þjóðarinnar
að taka á móti þessum manni.
Bandaríkjamenn, í öllum sínum
stórbrotna fjölbreytileika, eru
vinaþjóð okkar og jafnvel fyrir-
mynd. En hvað gerir maður þegar
varaforsetinn er hommafóbískur
afturhaldsseggur og trúarof-
stækismaður? Og hann kemur í
heimsókn?
Yfir túnið að bænum kemur
arkandi í stígvélum meðfram
skurðinum gamli, fúli frændinn.
Heimilisfólkið — friðelskandi
og umtalsgott— gægist með-
fram gardínunum út um glugg-
ann og sér hann koma. Ó, nei.
Húsfrúna langar helst að senda
yngsta barnið til dyra, til að segja
frændanum að enginn sé heima,
en mómentið fór. Of seint. Smá
panik. Allt í einu er hann kominn
inn í anddyri. Og allt í einu, yfir
kaffinu, er hann farinn að flytja
ræður um það hvað það sé nú gott
að heimilisfólkið sé með honum í
liði í glímunni við aðra í sveitinni.
Húsfrúin maldar í móinn og
húsbóndinn líka en frændinn
hlustar ekki. Talar bara. Hann
klukkar kotið í viðureign sinni
við heiminn. Þið eru með mér í
liði, segir hann. Fer svo. Arkar til
baka yfir túnið. Heimilisfólk situr
ringlað eftir. Hvað gerðist?
Fánarnir í Borgartúni
Jú, þetta gerðist: Íslendingar sýndu
sínar bestu hliðar þegar Mike
Pence kom í heimsókn. Komdu
bara kallinn minn, sögðu Íslend-
ingar. Við skulum loka götunum,
svo þú getir ferðast einn með
paranojunni þinni. Við skulum
leyfa þér að setja leyniskytturnar
þínar á húsþökin. Og segðu það
sem þú vilt. En eitt skulum við hafa
á hreinu. Gildin okkar eru ekki
gildin þín. Við skrifum ekki undir
fordóma þína og deilum á engan
hátt sýn þinni á veröldina.
Þegar regnbogafánarnir fóru
að birtast í Borgartúninu einn
af öðrum, þegar borgarstjórinn
mætti á hjóli, forsetafrúin í hvítri
dragt, forsetinn með regnboga-
armband og forsætisráðherrann
okkar stóð við hlið hans, ung kona
við hlið karls sem vill ekki einu
sinni að konur ráði yfir líkama
sínum, hvað þá meira, þá greip
mann sem sagt þetta áðurnefnda
stolt: Mikið er þessi þjóð með
hjartað á réttum stað. Eitthvað
höfum við gert rétt, þrátt fyrir allt.
Við erum hið prýðilegasta fólk.
Og á Lækjartorgi reyndu
nýnasistar um svipað leyti að
efla hreyfingu sína með áróðri.
Viðbrögðin við þeim ógeðfellda
gjörningi hafa styrkt þessa sömu
tilfinningu: Þótt þjóðin sé skrýtin
stundum, þá er hún ekki í ruglinu.
Þjóðin er fín. Jafnvel smá mögnuð,
svei mér.
Ágætis fólk
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
0
9
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
A
-5
F
2
0
2
3
B
A
-5
D
E
4
2
3
B
A
-5
C
A
8
2
3
B
A
-5
B
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K