Fréttablaðið - 09.09.2019, Qupperneq 12
Skarðshlíðin er vissulega falin náttúruperla í jaðri Hafnar-fjarðar,“ segir Jóna Draumey
Hilmarsdóttir. Jóna og eiginmaður
hennar, Sigurjón Atli Benedikts-
son, eru í hópi þeirra sem fengu
úthlutað lóð í nýju og spennandi
hverfi sem rís nú í Skarðshlíð í
Hafnarfirði. Svæðið, sem er nú í
örri byggingu, þykir eftirsóknar-
vert, raunar svo að ein gatan hefur
hlotið nafngiftina „Glimmerskarð“
en það er einmitt gatan sem þau
hjónin eru að koma sér fyrir í.
„Við fjölskyldan höfðum lengi
látið okkur dreyma um að byggja
okkar eigið hús frá grunni og geta
hannað það sjálf,“ segir Sigurjón.
Þau hjónin segja að ákvörðunin
um að sækja um lóð hafi ekki
átt sér langan aðdraganda. „Það
var hálfgerð skyndihugdetta hjá
okkur að sækja um lóð hjá Hafnar-
fjarðarbæ sem við gerðum haustið
2018 og eftir það var eiginlega ekki
aftur snúið,“ segir Jóna.
Sigurjón segir að það sem hafi
helst komið á óvart hafi verið
hversu fljótlegt ferlið hefur
verið. „Við fengum úthlutað lóð í
september 2018 og tókum fyrstu
skóflustunguna í febrúar 2019,“
segir hann. „Við fengum fokheldis-
vottorð í byrjun september og nú
erum að gera okkur vonir um að
geta flutt inn fyrir jól,“ útskýrir
Sigurjón.
Þá hafi þau lært ýmislegt í
leiðinni. „Ferlið er því búið að
taka okkur eitt ár í heildina. Það
sem hefur komið okkur mest á
óvart er hversu stuttan tíma þetta
hefur tekið og hversu skemmtilegt
og lærdómsríkt þetta ferli hefur
verið,“ segir Jóna.
„Við ákváðum að byggja
einingahús og höfum átt í ákaflega
góðu samstarfi við BM-Vallá en
þeir eru með sér deild innan fyrir-
tækisins sem snýr eingöngu að
steypueiningum og koma sterkir
inn ef að maður vill leggja áherslu
á að gera þetta á sem stystum
tíma,“ segir Sigurjón. Það tekur þó
alltaf tíma að byggja frá grunni.
„Við mælum alveg með þessu en
það er mikilvægt fyrir fólk að gera
sér grein fyrir því að þetta tekur
tíma og er svolítið mikil vinna,“
segir hann.
Þau hjónin segja hverfið sniðið
að þörfum fjölskyldufólks og stutt
er í alla þjónustu. „Á svæðinu er
bæði frábær skóli og leikskóli og
öflugt íþróttafélag ásamt fjöl-
breyttri verslun og þjónustu,
þannig að þjónustan við íbúa er
mjög góð á svæðinu,“ segir Jóna.
Þá er byggðin umlukt grænum
svæðum sem henta vel til útivistar
af öllu tagi.„Það er stutt í frábær
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Jóna Draumey Hilmarsdóttir, frumbyggi í Skarðshlíð.
Það er nóg
um að vera
í Skarðshlíð
þessa dagana
eins og sjá má á
fjölda bygg-
ingakrana og
nýbygginga.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANT-
ON BRINK
„Þótt áhersla sé lögð á þéttingu
byggðar á ákveðnum svæðum þarf
einnig að mæta þeim hópi sem vill
búa í grænu og fjölskylduvænu
úthverfi með greiðan aðgang að
fjöllum, vötnum og öðrum nátt-
úruperlum. Þar liggur einmitt ein
sérstaða Skarðshlíðarhverfisins af
mörgum,“ útskýrir Rósa.
Þá er menningin skammt undan.
„Á sama tíma er stutt í miðbæ
Hafnarfjarðar sem hefur að geyma
fjöldann allan af veitingastöðum,
kaffihúsum, leikhús, tónlistar-
hús og menningarstofnanir auk
verslana með íslenskri hönnun og
handverki,“ segir Rósa.
Margir valmöguleikar í boði
„Áhersla hefur verið lögð á bland-
aða byggð á svæðinu og húsagerðir
með því móti að geta svarað þörf
ólíkra fjölskyldugerða sem og
einstaklingum,“ segir Rósa. „Hug-
myndafræði deiliskipulagsins
gerir það kleift að bæði er hægt að
minnka við sig og komast í minna
einbýli, par- eða raðhús eða íbúð
í fjölbýli,“ segir hún. Hún segir
þann valmöguleika koma sér vel
fyrir vissa hópa. „Það er jákvæður
kostur fyrir þá sem eiga aldraða
foreldra eða ungmenni sem eru að
stíga sín fyrstu skref í eigin búsetu
eða þá sem vilja fjármagna kaup
að einhverju leyti með útleigu á
íbúð. Möguleikarnir eru margir,“
segir Rósa bjartsýn.
Þá eru allir helstu innviðir nú
þegar til staðar og hverfið skipu-
lagt út frá hagkvæmum sjónar-
miðum. „Það sem er öðruvísi og
áhugavert við Skarðshlíðina er að
nú þegar eru bæði grunnskóli og
leikskóli komnir í rekstur undir
einu og sama þakinu þannig að
fullbúnir og nýir skólar taka vel á
móti nýbúum,“ segir Rósa.
„Fjölþætt starfsemi í einu og
sama húsinu er til þess fallin að
hafa samlegðaráhrif í margþættu
tilliti. Ekki bara rekstrarlegu
heldur ekki síður með beinum
áhrifum á skólastarfið. Skólinn er
staðsettur í kjarna hverfisins, lítil
og meðalstór fjölbýlishús umlykja
skólann og svo hríslast blönduð
byggð einbýlishúsa, raðhúsa,
parhúsa og fjölskylduhúsa upp í
hlíðina,“ segir hún.
„Í Vallahverfi, sem liggur næst
við Skarðshlíðarhverfi, er að finna
helstu verslanir, líkamsræktar-
stöðvar auk þess sem fjölmörg
fyrirtæki eru með rekstur á svæð-
inu sem opnar á möguleika þeirra
sem vilja lifa og starfa í heima-
byggð og hafa tækifæri til að ganga
eða hjóla í vinnuna,“ segir Rósa.
„Íþróttasvæðið á Ásvöllum er
einnig í göngu- og hjólafæri en þar
er að finna fyrsta flokks aðstöðu
sem áform eru um að eflist enn
frekar með byggingu knatthúss á
svæðinu. Sannkölluð draumaað-
staða fyrir einstaklinga, börn og
ungmenni sem stunda íþróttir.“
Forvitnileg götuheiti
Götuheitið „Glimmerskarð“
hefur vakið eftirtekt, enda óvenju
skrautlegt. „Nafnið Glimmerskarð
var ákveðið á árunum 2010-2014
þegar ég sat í skipulags- og bygg-
ingarráði. Þá strax vakti nafngiftin
mikla athygli og rataði meira að
segja inn á borð örnefnanefndar
sem þótti nafnið ekki eins við-
eigandi og skemmtilegt eins og
okkur,“ segir Rósa, létt í bragði.
„Við ákváðum þó að láta slag
standa og sjáum ekki eftir því,“
segir hún.
útivistarsvæði eins og Hvaleyrar-
vatn, Ástjörn, Helgafell og svo er
fjöldinn allur af göngu- og hjóla-
leiðum,“ segir Jóna.
Eftirsóknarverð staðsetning
Skarðshlíð er nýbyggingar-
svæði sem liggur sunnan og
vestan í Ásfjalli. Svæðið er svar
Hafnarfjarðarbæjar við aukinni
eftirspurn eftir húsnæði. Rósa
Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, segir svæðið
löngum hafa lofað góðu, enda
einstök staðsetning með tilliti
til nálægðar við bæði náttúru og
byggð. „Skarðshlíðin hefur lengi
þótt vænlegt svæði til uppbygg-
ingar,“ segir Rósa.
Þá eru heitin líka innblásin af
jarðfræði. „Nafn Skarðshlíðar-
hverfis er sótt í lögun landsvæðis-
ins og forskeyti gatna er svo sótt í
jarðmyndanir, íslenska steina og
steindir. Þar liggur grunnurinn,“
útskýrir Rósa. „Undantekningin
er gatan, sem tengir allt hverfið
saman og skólinn stendur við,
Hádegisskarð, en það er gamalt
örnefni á svæðinu. Þarna má líka
finna m.a. göturnar Apalskarð,
Drangsskarð og Móbergsskarð.“
Frumbyggjum fer fjölgandi
„Hverfið hefur byggst upp í
þremur áföngum. Fyrsti áfangi fól í
sér undirbúning og sölu á fjölbýlis-
húsalóðum sem liggja við skólann.
Allar þessar lóðir eru þegar seldar
og uppbygging komin nokkuð
vel á veg. Lóðir í öðrum og þriðja
áfanga eru nú í sölu og töluvert
margar seldar nú þegar. Frum-
byggjarnir í hverfinu fluttu inn í
sumar og alltaf bætist í hóp íbúa.“
Áhersla var lögð á að gæta sann-
girnis í úthlutunarferlinu. „Fyrsta
úthlutun í hverjum áfanga var
bundin ákveðnum dagsetningum
og dregið úr umsóknum þegar þær
voru fleiri en ein um sömu lóðina.
Þannig áttu allir jafnan möguleika
á draumalóðinni en ekki bara sá
sem var fyrstur.“
„Í dag er opið fyrir umsóknir
um allar lausar lóðir á svæðinu
og afgreiðsla þeirra tekin fyrir á
bæjarstjórnarfundum á tveggja
vikna fresti. Allar upplýsingar
um lausar lóðir er að finna á
www.skardshlidin.is þar sem
áhugasamir geta m.a. mátað sig í
hverfið og séð hvernig það fellur
að núverandi byggð þegar það
verður fullbyggt. Umsóknar-
form um lausar lóðir er á Mínum
síðum á hafnarfjordur.is. Ferlið er
aðgengilegt og einfalt og allar lóðir
tilbúnar til afhendingar.“
Framtíðin björt
Rósa segist sjá fyrir sér líf legt og
náið samfélag í þessu nýja hverfi.
„Ég sé fyrir mér blandaðan hóp
íbúa, að heilu stórfjölskyldurnar
setjist að á svæðinu og að sam-
félagið verði sterkt og samheldnin
mikil.“
„Að sjálfsögðu fylgir því eitthvað
rask meðan framkvæmdir standa
yfir en virk þátttaka í stækkun,
mótun og uppbyggingu mun skila
sér í sterku og samheldnu sam-
félagi einstaklinga þar sem allir
hafa það markmið að búa sér til
framtíðarheimili á fallegum stað
í Hafnarfirði,“ segir Rósa. „Það er
ómetanlegt til lengri tíma litið.“
Skarðshlíðin hefur
lengi þótt vænlegt
svæði til uppbyggingar.
Rósa Guðbjartsdóttir
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
Opið 8-22
LEIÐSÖGUNÁM
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS,
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00,
Martha Jensdóttir
kennari.
Martha Jensdóttir
kennari.
Ferða álaskóli Íslands • www. enntun.is • Sí i 567 1466
pið 8-22
I
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS,
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00,
Martha Jensdóttir
kennari.
Martha Jensdóttir
kennari.
- Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið -
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8-22
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri
Guðrún Helga
Bjarnadóttir,
Vestmannaeyjum
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem vilja læra leiðsögn erlendra og innlendra ferða-
manna um Ísland.
Flest stéttarfélög styrkja nemendur til náms.
Námið:
• Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
• Mannleg samskipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
• Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
• Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á sínu sviði.
Boðið er upp á dag eða kvöldnám auk þess sem farið verður í fjölda vettvangsferða.
Umsögn: „Fyrir nokkrum árum stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla
Íslands. Námið stóð vel undir væntingum mínum. Fjölmargir kennarar komu
að kennslunni sem áttu auðvelt með að ná til mín, auka áhuga minn á náms-
efninu og ekki síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið
okkar er. Auk þess hvöttu þeir okkur til að virða landið okkar. Kennararnir
voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma
efninu til skila.
Námið gefur mikla atvinnumöguleika og það eru spennandi tímar framundan.
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM Í ATVINNULÍFINU
Ferðamálaskóli Íslands • ww .menntun.is • Sími 5
elga
Bjarnadóttir
OPIÐ
8-22
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
0
9
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
A
-5
5
4
0
2
3
B
A
-5
4
0
4
2
3
B
A
-5
2
C
8
2
3
B
A
-5
1
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K