Fréttablaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 31
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Range Rover Sport HSE PHEV
Verð frá: 13.690.000 kr.
Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun,
framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega
lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti.
Verið velkomin í reynsluakstur!
RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ
Í RANGE ROVER
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
5
8
9
R
a
n
g
e
R
o
v
e
r
S
p
o
rt
P
H
E
V
5
x
2
0
s
e
p
t
Ég held að það sé
mat flestra að það
þurfi að lengja Íslandsmótið
og spila fleiri mótsleiki sem
skipta máli.
Valur hefur lagt fram tillögur að breyttri deildarkeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M Á N U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
FÓTBOLTI Það er mat Valsmanna
að ætli íslensk lið sér að ná betri
árangri í Evrópukeppnum í fram-
tíðinni þurfi að gera mikið meiri
kröfur, f jölga gæðaleikjum og
lengja tímabilið. Það eru nokkrir
möguleikar fyrir hendi og má til að
mynda nefna að fjölga liðum um tvö
og leika 26 leiki, fækka liðum um
tvö og leika þrjár umferðir, þannig
verða leikirnir 27. Annar möguleiki
er að gera meira úr Lengjubikarnum
og byrja hann í byrjun febrúar en þá
þyrfti að færa félagaskiptagluggann
til loka janúar.
Valsmenn telja best að halda sér
við 12 liða deild þar sem leiknar yrðu
22 umferðir með úrslitakeppni þar
sem sex efstu liðin fara í keppni um
titilinn, sama á við sex neðri liðin
sem spila þá um tvö fallsæti. Þetta
fyrirkomulag er svipað því og notað
er í Danmörku. Með þessu er verið
að fjölga leikjum um 10 hjá hverju
liði og leiknar verða alls 32 umferðir.
Til að ná þetta mörgum umferð-
um þarf mótið að standa yfir frá 1.
apríl til um það bil 10. október og
fyrstu umferðirnar yrðu að fara
fram á gervigrasvöllum þar sem
ólíklegt er að vellir með náttúru-
grasi verði tilbúnir. Til að koma
mótinu fyrir innan þessa tíma-
ramma þyrfti hugsanlega að leika
einhverja leiki í landsleikjahléum.
Fréttablaðið fékk Ólaf Helga
Kristjánsson, þjálfara karlaliðs FH
sem bæði hefur leikið og þjálfað í
Danmörku, til þess að velta vöngum
yfir því hvernig heillavænlegast
væri að haga hlutunum hvað leikja-
fyrirkomulag varðar.
Flestir á því máli að gera þurfi
einhverjar breytingar
„Fyrir það fyrsta fagna ég því að
Valsarar setji fram þessar pælingar
sína og skapi þar af leiðandi grund-
völl fyrir umræður um leiðir til
úrbóta á fyrirkomulagi deildar-
keppninnar hér heima sem að
margra mati sem starfa í knatt-
spynuhringiðunni þarf að hrista
upp í. Ég held að það sé mat f lestra
að það þurfi að lengja Íslandsmótið
og spila f leiri mótsleiki sem skipta
máli. Þá þarf að skoða það að spila
undir stöðugra álagi á lengri tíma
í stað þess að spila um það bil níu
leiki á sex vikum á vorin og svo
stopulla það sem eftir lifir sumars
og fram á haust,“ segir Ólafur Helgi
í samtali við Fréttablaðið.
„Hvað varðar kosti og galla við
þrefalda umferð á móti því að spila
styttri deildarkeppni og svo úrslita-
keppni, þá var ein ástæða þess að
Danir fóru þá leið að spila úrslita-
keppni í stað þess að spila þrefalda
umferð sú að það þótti ekki spenn-
andi að sömu lið væru að mætast
aftur og aftur á tiltölulega stuttu
tímabili. Á móti kemur að eins og
fyrirkomulagið er í Danmörku þá
er mikill munur milli þess að lenda
í sjötta og sjöunda sæti eins og ég
fékk að kenna á með Randers," segir
Ólafur Helgi enn fremur.
„Ef þú kemst í úrslitakeppni
efstu sex liða þá spilar þú nokkuð
pressulaust, allavega hvað varðar
falldrauginn og getur meðal ann-
ars tekið f leiri sénsa, til dæmis
hvað varðar yngri, óreyndari leik-
menn. Hins vegar er pressan meiri
og af leiðingarnar mögulega dýr-
keyptari ef félag lendir í neðri hluta
úrslitakeppninnar.
Lið með módel eins og Nordsjæll-
and, sem gengur út á að þróa unga
leikmenn og ýta þeim svo út í aðal-
liðsfótbolta, geta fengið marga leiki
við góð lið þar sem pressan er ekki
svo mikil að svigrúm er til þess að
gefa ungum leikmönnum tækifæri
og leyfa þeim að gera mistök,“ segir
hann.
„Að mínu viti væri best að hlut-
laus aðili, sem hefur reynslu af
vinnu með skipulagningu og mögu-
lega breytingu á deildarkeppnum,
myndi fá það verkefni að þróa
þessar pælingar og sá aðili myndi
kalla að borðinu alla þá sem hafa
hagsmuni að gæta, það er leikmenn,
þjálfara, forráðamenn félaganna,
jafnvel stuðningsmenn og sponsora
og þann aðila sem fær það hlutverk
að sjá um deildarfyrirkomulagið.
Það er hætt við því að ef annað
hvort einstakt félag eða ÍTF myndi
leggja fram tillögu á ársþingi, að
hún yrði tætt niður og fengi ekki
brautargengi og myndi daga uppi.
Vonandi leiðir frumkvæði Vals
til þess að eitthvað verði gert og
hlutirnir færðir frá kaffistofunni
og í framkvæmd,“ segir þjálfar-
inn um næstu skref í málinu.
hjorvaro@frettabladid.is
Öllum til heilla að lengja tímabilið
Knattspyrnudeild Vals
setti fram hugmyndir
um mögulegar leiðir til
að lengja deildarkeppn-
ina hér á landi. Þar segir
meðal annars að það sé
mat Vals að skoða þurfi
breytingar á deildar-
keppninni. Þróunin á
undanförnum árum sé
sú að þjálfarar og leik-
menn fái greidd laun í
10 til12 mánuði á ári en
á sama tíma stendur Ís-
landsmótið aðeins yfir í
rétt rúma fimm mánuði.
0
9
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
A
-5
A
3
0
2
3
B
A
-5
8
F
4
2
3
B
A
-5
7
B
8
2
3
B
A
-5
6
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K