Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2019, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 14.09.2019, Qupperneq 64
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Asískur matur þarf ekkert endilega að innihalda öll ósköp af kryddtegundum. Hægt er að kaupa alls kyns paste í verslunum sem innihalda flest þau krydd sem við þurfum á að halda í réttina. Kryddblandan geymist vel í ísskáp og hægt að nota í alls kyns rétti, er til dæmis mjög góð í fisk- rétti og súpur. Taílenskur massaman karríréttur Massaman karrí er í miklu uppá- haldi hjá mörgum. Í þessum rétti er notað massaman curry paste sem maður býr til sjálfur en vitaskuld er hægt að kaupa það til- búið. Þetta virðist nokkuð flókin uppskrift. Flest hráefni er hægt að kaupa í asískum verslunum. Hér er notað svínakjöt en kjúklingur passar líka vel. Uppskriftin miðast við fjóra. Currypaste: 1 msk. salt 1 msk. grófhakkað sítrónugras 2 skalottlaukar 2 msk. kóríanderfræ 1 msk. engiferrót 5 þurrkaðir, rauðir chili 4 stórir hvítlauksbátar 1 msk. cuminfræ (broddkúmen) 1 msk. kóríanderrót 1 msk. rækjumauk (shrimp paste) Fjarlægið fræin úr chili-piparnum og leggið í vatn í um það bil 10 mínútur. Skerið engifer, sítrónu- gras, kóríander-rótina og laukinn mjög smátt. Veljið mýksta partinn af sítrónugrasinu eftir að það hefur verið flysjað. Ristið kóríander- og cuminfræ á þurri pönnu. Setjið í mortel ásamt chili og salti. Merjið. Bætið þá við engifer, sítrónugrasi og kóríand- errótinni. Haldið áfram að merja allt saman. Bætið þá við lauk og hvítlauk. Haldið áfram að merja þangað til úr verður fínt mauk. Ef ekki er til stórt mortel má setja þetta í matvinnsluvél í staðinn en áferðin verður þá ekki sú sama og á maukinu. Karrísósa: 5 kartöflur, soðnar 5 dl kókosmjólk 400 g svínakjöt sem skorið er í strimla 2½ dl coconut cream 2 msk. ristaðar, ósaltaðar kasjú- hnetur 3 msk. tamarindsósa 5 smálaukar, skornir í sneiðar 3 lárviðarlauf 5 ristaðar kardemommur 1 heill kanill ½ msk. kaffir lime blöð 3 msk. pálmasykur (eða púður- sykur) 2 msk. asísk fiskisósa 3 msk. massaman curry paste (uppskrift að framan) Flysjið og skerið kartöflurnar í bita eftir að þær hafa verið soðnar. Setjið til hliðar. Steikið svínakjötið og hellið síðan kókosmjólkinni yfir. Látið malla þangað til kjötið er að fullu eldað. Takið til hliðar. Setjið olíu á aðra pönnu og steikið curry paste. Setjið síðan kókoskremið út á (coconut cream). Það á að koma kryddolíurák efst á sósuna þegar hún er tilbúin. Blandan á síðan að fara yfir svína- kjötið sem er aftur sett undir hita. Þá er hnetunum, pálmasykri, fiski- sósu og tamarindsósu bætt við. Loks er smálauknum, kartöflum, lárviðarlaufi, kardimommum og kanilstöng bætt við. Látið allt malla í smástund þar til sósan þykknar. Skerið kaffir lime blöðin smátt og setjið út í að lokum. Tom Kha Gai súpa með kjúklingi Þetta er fræg taílensk uppskrift sem er mjög góð og bragðmikil. Súpan er oft borin fram með hrís- grjónum til hliðar. 3 kjúklingabringur 100 g fersk engiferrót 2 hvítlauksrif 1 stöngull sítrónugras 8 dl kjúklingasoð 3½ dl kókosmjólk 2 msk. fiskisósa (asísk) Safi og börkur af einni límónu ½ tsk. chili-flögur 2 msk. ferskt kóríander Skerið kjúklinginn í bita. Þá er engifer, hvítlaukur og sítrónugras skorið mjög smátt. Sjóðið upp kjúklingasoðið og setjið engifer, hvítlauk og sítrónugras þar út í. Látið smámalla í um það bil þrjár mínútur. Þá er kókosmjólk, fiskisósa og kjúklingur settur út í súpuna og allt látið sjóða í 5-10 mínútur. Í lokin er rifinn börkur af límónu, safi og chili sett saman við og soðið áfram. Ferskt kóríander er sett út að lokum. Berið strax á borð og hafið hrísgrjón með ef vill. Vel kryddað lambakarrí Góður lambapottréttur frá Asíu sem einfalt er að gera. 250 g beinlaust lambakjöt í bitum 1 rauður chili-pipar 2 tsk. smátt skorinn engifer 2 gulrætur í bitum 1 laukur, smátt skorinn 1 haus spergilkál, hlutaður niður 2 stönglar sellerí 4 dl kókosmjólk 2 stönglar sítrónugras 1½ msk. rautt curry paste 2 tsk. púðursykur 1 laukur Hitið olíu á pönnu og brúnið kjötið en takið það síðan frá. Bætið á pönnuna engifer, chili og græn- meti, bætið því næst við curry paste, smátt skornu sítrónugrasi og kókosmjólkinni. Látið malla á pönnunni í 15 mínútur. Setjið kjötið út í og bragðbætið með púðursykri. Látið malla stutta stund og berið fram með hrís- grjónum. Sítrónugras er vinsælt í Asíu til að bragðbæta rétti. Bragðið er mildara en af sítrónu. Blöðin eru löng, hvít og ljósgræn. Best er að berja með buffhamri á stöngulinn áður en hann er f lysjaður og skorinn niður en þá mýkist hann. Það má sleppa sítrónugrasi í asískum réttum en þá fá þeir ekki alveg sama bragðið. Vel kryddað í kvöldmatinn Nú þegar kólnar í veðri er gott að fá sér eitthvað vel kryddað í matinn. Asískur matur er alltaf afar vinsæll og það getur stundum verið einfalt að útbúa hann heima. Hér eru nokkrar hugmyndir. Massaman karríréttur er alltaf góður. Lambakjöt í karríi. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is BIRGJAR OG HEILDSÖLUR Hinn 20. september kemur út sérblað um birgja og heildsölur. Blaðið er ætlað heildsölum og birgjum til að kynna sín vörumerki og starfsemi fyrir öðrum fyrirtækjum og lesendum Fréttablaðsins. Vertu viss um að tryggja þér gott auglýsingapláss í stærsta blaði landsins. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 9 6 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C 4 -B 6 D C 2 3 C 4 -B 5 A 0 2 3 C 4 -B 4 6 4 2 3 C 4 -B 3 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.