Morgunblaðið - 31.05.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 31.05.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Hjóla- legur Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Morgunblaðið/Eggert Grunnskóli Erfiðlega gengur nú að ráða í auglýstar stöður í skólum. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum farin að fá ákveðna mynd af komandi hausti og hún er ekkert sérstaklega glæsileg. Við munum þá að líkindum slá Íslandsmet þegar kemur að fjölda undanþága, en það lítur út fyrir að á komandi skólaári verði metfjöldi leiðbeinenda við kennslu í grunnskólum á Íslandi,“ segir Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Undanþágunefnd grunnskóla fyr- ir skólaárið 2019-2020 hafði í síðustu viku fengið inn á sitt borð yfir 600 umsóknir til afgreiðslu. „Það er nú bara enn maí. Ég veit ekki hvar við endum eiginlega þegar skólastarf hefst loks í ágúst því það er enn verið að auglýsa eftir kennurum,“ segir Þorsteinn og bætir við að þetta sé af- leiðing þróunar undanfarin ár og um leið „mikið áhyggjuefni“. Segir hann brýnt að bregðast við stöðunni. „Þetta er langtímaverkefni og snýst um marga þætti. Hið augljósa er launamálin, en einnig snýst þetta um áhuga fólks á starfinu og vænt- anlega spila launin eitthvað þar inn í líka – af hverju fer ungt fólk ekki að læra til kennara í dag? Endurnýjun kemur mjög hægt á móti því þegar aðrir ganga úr stéttinni og við náum ekki að svara því,“ segir Þorsteinn. Spurður hvort þessi mikli skortur á kennurum sé séríslenskt vandamál kveður Þorsteinn nei við. „Nei, ég vildi að ég gæti sagt það, en svo er ekki. Það má t.a.m. nefna Svíþjóð sem dæmi, en þar horfa menn upp á nákvæmlega sömu þróun og eru í ná- kvæmlega sömu umræðu og hér, þ.e. umræðu um launamál, endurnýjun og starfsumhverfi kennara.“ Lítill áhugi á efstu stöðum Mjög hefur einnig verið auglýst eftir skólastjórnendum að undan- förnu. Aðspurður segir Þorsteinn mun færri sækja um æðstu stöður í grunnskólum nú en áður. „Áhugi fólks á stöðum skólastjórn- enda er því miður langt frá því að vera ásættanlegur. Það er af sem áð- ur var þegar auglýstar voru stjórn- endastöður í grunnskólum, þá höfðu menn úr nógu að velja. Nú er staðan sú að mjög fáir sækja um hverja stöðu,“ segir Þorsteinn og bætir við að launamál, líkt og þegar kemur að kennurum, eiga stóran þátt í þessu áhugaleysi. Að auki segir hann starfsaðstæður skólastjórnenda og mikið álag í starfi hafa sitt að segja þegar kemur að dræmum áhuga. Mikið hallæri á næsta skólaári  Borist hafa yfir 600 undanþáguumsóknir til kennslu fyrir næsta skólaár í grunnskólum landsins  Ég veit ekki hvar við endum eiginlega þegar skólastarf hefst, segir formaður Skólastjórafélagsins Guðni Einarsson gudni@mbl.is Metár var í förgun bíla í fyrra og voru um 11.300 bílar afskráðir það ár, samkvæmt upplýsingum frá end- urvinnslufyrirtækinu Hringrás. Fyrra met var frá árinu 2017 þegar fargað var um 9.500 bílum. Það þriðja í röðinni er árið 2008 en þá var 8.400 bílum skilað til förgunar. Daði Jóhannesson, framkvæmdastjóri Hringrásar, sagði að sér sýndist að ekki hefði dregið úr förgun bíla á þessu ári. Yfirleitt eru bílarnir sem komið er með til förgunar ónýtir og óökufær- ir. Fyrir kemur að fólk komi akandi á bílunum og afhendi starfsmönnum Hringrásar lyklana, að sögn Daða. Algengt er að gamlir bílar fari fyrst í gegnum bílapartasölur þar sem not- hæfir hlutir eru teknir úr þeim og það sem eftir er svo sett í förgun. Hjá Hringrás eru spilliefni á borð við olíur, bensín og rafgeyma fjar- lægð úr bílunum. Einnig eru dekkin tekin undan. Bílhræin fara svo í pressu sem þjappar þeim saman í kubba. Brotajárnið er ýmist selt til Norð- ur-Evrópu eða Tyrklands og selst allt brotajárn, að sögn Daða. Þar ytra eru bílakubbarnir settir í öflug- ar kvarnir sem brytja þá í smátt og er plast og annað flokkað frá málm- um sem síðan fara í bræðslu. Allt er því endurunnið. Auk Hringrásar flytur Fura í Hafnarfirði einnig út brotajárnsbíla. Úrvinnslusjóður greiðir 20.000 króna skilagjald til eiganda fyrir að láta afskrá bíl og farga honum eða endurnýta. Ekkert lát virðist vera á förgun bíla á þessu ári  Metár í fyrra en þá var fargað um 11.300 bílum hér á landi Morgunblaðið/Eggert Hringrás Gömlum bílum fargað. Sjómannadag- urinn er á sunnu- daginn og sjó- menn og fjölskyldur fagna víða um land. Í Vestmannaeyjum byrjaði hátíðin í gær þegar bjór- inn Beddi sem nefndur er eftir Bedda heitnum á Glófaxa var kynntur á The Brothers Brewery og Hatarar spiluðu í Al- þýðuhúsinu, að sögn Sævalds Páls Hallgrímssonar, ritara Sjómanna- dagsráðs Vestmannaeyja. Hann seg- ir sjómannamót Ísfélags Vest- mannaeyja í golfi hefjast kl. 08 í dag og lögð verði áhersla á að krakkarnir hlakki til helgarinnar. Á bryggjunni á morgun verði hefðbundin dagskrá með koddaslag kappróðri og tuðru- spyrnu í fyrsta sinn. Auk þess sem krakkarnir geti leikið sér með fjar- stýrða báta í stórri sundlaug og fleira. Sævald segir að aðrir dag- skrárliðir verði með hefðbundnu sniði. Sjómannamessa, hátíðarhöld á Stakkó og Eykyndilskaffið. Sjó- mannaskemmtunin á laugardags- kvöldinu verði með öðru sniði. Hún byrji fyrr og horft verði á úrslitaleik- inn í Meistaradeildinni og borðhald hefjist strax á eftir leik. Hátíðarhöld sjómanna eru hafin Koddaslagur á sjómannadeginum.  Vilja að börnin hlakki til helgarinnar Það var líf og fjör á Hafravatni í gær þegar hug- djarfir einstaklingar skelltu sér á sæketti, eins konar vélsleða sem brúka má á vatni. Sólin baðaði bæði menn og ketti, suma hverja í nokkuð þjóðlegum litum, en veður var með besta móti fyrir sækattaför sem þessa. Vatnið var spegilslétt þar til sækettirnir og húsbændur þeirra og mæður skelltu sér af stað og þyrluðu vatninu í kringum sig upp í háaloft. Sullað á sæköttum í skínandi sumarsól Morgunblaðið/Hari Líf og fjör á Hafravatni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.