Morgunblaðið - 31.05.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 31.05.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Guðni Einarsson gudni@mbl.is Afkoma ríkissjóðs getur mögulega versnað um allt að 35 milljarða á þessu ári og jafn mikið á því næsta, án allra mótvægisaðgerða. Þetta kemur fram í tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á fjármálastefnu fyrir árin 2018-2022 sem Bjarni Benedikts- son, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram. Í henni felst að dregið verði úr áformuðum afgangi á heildarafkomu hins opinbera í samræmi við breyttar efnahagshorfur sem koma fram í nýj- um hagspám. Lagðar verða til breytingar á fjármálaáætluninni Ríkisstjórnin mun leggja til við fjárlaganefnd að gerðar verði breyt- ingar á fjármálaáætlun í því skyni að tryggja hallalausan ríkisrekstur, samkvæmt frétt fjármála- og efna- hagsráðuneytisins. „Gildandi fjármálastefna gerir ráð fyrir 1,4% afgangi á heildarjöfnuði hins opinbera árið 2018 og að jafnaði 1% afgangi á árunum 2019-2022. Í til- lögu að endurskoðaðri stefnu er gert ráð fyrir breyttum afkomuhorfum frá og með árinu 2019 en þó þannig að heildarjöfnuður verði jákvæður á gildistíma stefnunnar. Þannig verði afgangur á heildarjöfnuði að lág- marki -0,4% af vergri landsfram- leiðslu (VLF) árin 2019 og 2020, -0,3% af VLF árið 2021 og í jafnvægi árið 2022,“ segir í fréttinni. Mikil breyting á hagþróun Í greinargerð með þingsályktunar- tillögunni segir m.a. að hagþróun árs- ins og næstu missera verði allt öðru- vísi en spáð var þegar núgildandi fjármálastefna var samþykkt. Sam- kvæmt maíspá Hagstofunnar mun hagkerfið dragast saman um 0,2% á þessu ári. Það er frávik um hátt í þrjú prósentustig frá spám sem lagðar voru til grundvallar núgildandi fjár- málastefnu, fjármálaáætlun og fjár- lögum ársins 2019. „Að undanskild- um árunum eftir hrun bankakerfisins haustið 2008 yrði þetta í fyrsta skipti frá árinu 1992 sem hagvöxtur er nei- kvæður.“ Þrátt fyrir samdrátt 2019 er útlit fyrir að spennan sem hefur verið í hagkerfinu leiti nærri jafnvægi þrátt fyrir nokkra aukningu atvinnuleysis, ef hagspáin gengur eftir. Árlegur hagvöxtur á árunum 2020-2024 verð- ur samkvæmt spánni nálægt lang- tímaleitnivexti, eða í kringum 2,5%. Samdráttur og loðnubrestur Breyttar efnahagshorfur má eink- um rekja til samdráttar í ferðaþjón- ustu og loðnubrests. Í nýrri hagspá er gert ráð fyrir um 11% fækkun ferða- manna á þessu ári, einkum vegna gjaldþrots WOW air. Aflabrestur í loðnu leiðir til um 18 milljörðum minni útflutnings 2019 en 2018. „Gert er ráð fyrir að skráð atvinnu- leysi verði að meðaltali 3,7% árið 2019, sem er 1,2 prósentustigum hærra en í spánni sem lá til grund- vallar gildandi fjármálastefnu. At- vinnuleysi er nú 3,7% og hefur hækk- að um 1,4 prósentustig frá sama tíma 2018. Þá er í spánni gert ráð fyrir 3,4% verðbólgu í ár og 3,2% verð- bólgu árið 2020 en spáin sem lá til grundvallar gildandi fjármálastefnu gerði ráð fyrir 2,9% verðbólgu bæði árin,“ segir í greinargerðinni. Í niðurlagi greinargerðarinnar segir að það að gerlegt sé að bregðast við erfiðari aðstæðum en áður var miðað við, án þess að afkoma hins op- inbera verði neikvæð, sé til marks um trausta stöðu þjóðarbúsins og þann innri styrk ríkisfjármálanna sem tek- ist hefur að byggja upp. Hagkerfið og hið opinbera séu mun betur í stakk búin nú en áður til að mæta tíma- bundinni ágjöf. Einnig hafi heimili og fyrirtæki nýtt sér vaxtarskeiðið til að lækka skuldir sínar svo um munar og hafi nú borð fyrir báru. Skuldir sem ríkis- sjóður axlaði vegna endurreisnar fjármálakerfisins hafi verið greiddar upp að fullu og aðrar skuldir vegna hallareksturs í kjölfar falls banka- kerfisins hafi einnig verið lækkaðar mikið. Við það og með endurfjár- mögnun lána á langtum hagstæðari kjörum en boðist hafa til þessa hafi vaxtabyrði ríkissjóðs lækkað til muna. „Vegna þessa góða árangurs er hið opinbera nú í ágætri stöðu til að standa af sér tímabundinn mótvind á meðan hagkerfið aðlagast breyttum skilyrðum og fær viðspyrnu fyrir nýtt hagvaxtarskeið,“ eru lokaorð grein- argerðarinnar. Tryggja hallalausan ríkisrekstur  Fjármálastefna fyrir árin 2018-2022 verður endurskoðuð  Fækkun ferðamanna og loðnubrestur setja strik í reikninginn  Hagkerfið og hið opinbera eru betur í stakk búin en áður til að mæta ágjöf Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Dekkra útlit Í nýrri hagspá er gert ráð fyrir um 11% fækkun ferðamanna. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Catalina-flugbátur númer 2459 sem staðsettur var hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni lenti á Reykjavík- urflugvelli seinni partinn í gær. Flugbáturinn verður til sýnis á flug- sýningu sem fram fer á Reykjavík- urflugvelli á laugardag. Eggert Norðdal, rithöfundur og flugsögusérfræðingur, hefur kynnt sér sögu Catalina-flugbátsins sem tilheyrði að hans sögn 73. og 84. flotaflugsveit Bandaríkjahers. Hann segir vélina hafa komið til Íslands ásamt nokkrum öðrum með her- flutningaskipinu Albemarle til Hval- fjarðar rétt fyrir óveðrið mikla sem geisaði 15. janúar 1942. ,,Vélarnar voru hífðar á sjóinn í Hvalfirði og flogið þaðan til Reykja- víkur þar sem þær lentu á hjólunum. Það var ekki fyrr en í byrjun maí 1942 sem Catalina-báturinn 2459 sem nú er aftur kominn til landsins var auðkenndur í 73. flugsveit með númerinu 9,“ segir Eggert sem hef- ur upplýsingar um að vélinni hafi verið flogið til Bandaríkjanna 1. september 1943 í gegnum Nar- saksuak á Grænlandi. Vélin hafi síð- ar verið keypt til Hollands og þaðan sé hún að koma á leið aftur heim til Bandaríkjanna. Eggert segir að búið sé að taka úr vélinni allan vopnabúnað. ,,Á meðan Catalina-flugbáturinn var á Íslandi tók hann aðallega þátt í verndarflugi yfir skipalestum, her- flugi gegn kafbátum og gerði árás á kafbáta ef þeir sáust, ísleiðangra og fór alla vega eina ferð til Akureyrar. Frá miðju árinu 1941 og næstu fjög- ur ár þar á eftir var nánast alltaf ein flugsveit af Catalinum á Íslandi,“ segir Eggert, sem skrifaði 1. bindi Flugsögu Íslands. Hann telur sig eiga 95% af gögnum sem tilheyra 100 ára flugsögu landsins sem fyllt gætu a.m.k. tvö bindi í viðbót. Gerði árásir og fór í ísleiðangra  Catalina-flugbátur 2459 er kominn aftur til Íslands  Var á Íslandi á styrjaldarárunum 1942 til 1943 Ljósmynd/Eggert Norðdal Nr. 9 Catalina-flugbáturinn lendir á Reykjavíkurflugvelli í gærdag. Atvinna Gripið verður til fjölbreyttra ráð- stafana til að vega upp fyrirsjáan- legan samdrátt í tekjum ríkis- sjóðs. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir í samtali við Morgunblaðið að fyrirhugaðar ráðstafanir séu að umfangi um tíu milljarðar á ári. Seinka lækkun bankaskatts Meðal annars er hugmynd um að seinka lækkun bankaskatts um eitt ár. Lagt var nokkuð ríflega í varasjóð vegna næsta árs á meðan beðið var hagspár vorsins og sagði Bjarni það gefa svigrúm til að mæta tekjusamdrætti á næsta ári. Verið er að endurmeta ýmis út- gjaldaáform eins og t.d. uppbygg- ingu á Stjórnarráðsreitnum og að hliðra eitthvað til ferli uppbygg- ingar Nýsköpunarsjóðs. Út- greiðslur vegna þyrlukaupa munu einnig færast til vegna aðstæðna. Stefnt að hallalausum rekstri „Við erum að taka til endur- skoðunar fyrri áform um út- gjaldavöxt innan einstakra mál- efnasviða,“ sagði Bjarni. Unnið hefur verið að ýmsum umbóta- verkefnum til að tryggja betri ráðstöfun opinbers fjár. Útgjöld eru endurmetin og skoðað hvort hægt sé að gera betur. Bjarni seg- ir kröfu gerða um að það skili ákveðinni hagræðingu á næstu ár- um. Einnig á stafræn opinber þjónusta að skila hagræðingu. „Þetta leggst allt saman í all- nokkra milljarða sem gerir okkur kleift að stefna að hallalausum rekstri,“ sagði Bjarni. Staðið verður við áform um skattalækkanir en til stendur að gera mikla skattalækkun í tekju- skattskerfinu. „Við áætlum að heildaráhrifin verði upp undir 20 milljarðar á ári þegar allt er kom- ið til framkvæmda,“ sagði Bjarni. Hann sagði að gert hefði verið ráð fyrir talsverðum af- gangi af ríkis- fjármálunum og með því að gefa frá sér áform um já- kvæða afkomu sé hægt að mæta slak- anum í efnahagslífinu án þess að þurfa að standa undir ríkisút- gjöldum með lántökum. Snúa við hverri krónu Bjarni segir að þegar sé farið gæta breytinga í hagkerfinu. Á fyrstu þremur mánuðum ársins var afkoma ríkissjóðs um sjö milljörðum króna lakari en spáð hafði verið. „Þetta er rétti tíminn til að snúa við hverri krónu og skoða leiðir til að gera betur,“ sagði Bjarni. „Það er alveg ljóst að þær umbætur sem við höfum gert í tilfærslu- kerfunum á undanförnum árum, það er almannatryggingum og sjúkratryggingum, taka mjög mikið til sín og skilja eftir minna svigrúm fyrir aðrar áherslur í rík- isfjármálunum,“ sagði Bjarni. Þar kemur við sögu hækkandi aldur þjóðarinnar sem þýðir fjölgun þeirra sem fá lífeyrisgreiðslur al- mannatrygginga. Réttindi þeirra hafa verið bætt mjög verulega á undanförnum árum. Heildar- útgreiðslur vegna örorku hafa einnig hækkað vegna fjölgunar öryrkja og styrkingar kerfanna. Bjarni sagði það kalla á ráðstaf- anir annars staðar til að standa undir því. Hann segir mikilvægt að koma í veg fyrir bótasvik. Markmiðið með bótakerfunum þurfi að nást, en það er að ná til þeirra sem eru í mestri þörf. Slaka í hagkerfinu verð- ur mætt með ýmsu móti Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.