Morgunblaðið - 31.05.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 31.05.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Verð 6.990 Tunikur Stútfull búð af Nýjum vörum BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um breytingu á ýmsum laga- ákvæðum sem tengjast fiskeldi. Þær breytingar varða meðal ann- ars ferlið við útgáfu rekstrarleyfa. Skipulagsstofnun metur fram- kvæmdir í nokkrum skrefum sem lýkur með áliti á mati á umhverfis- áhrifum á grunni matsskýrslu. Um- hverfisstofnun gefur út starfsleyfi og Matvælastofnun rekstrarleyfi. Leyfin geta skapað mikil verð- mæti fyrir handhafa þeirra. Þá með- al annars vegna þess að umsóknar- ferlið er tímafrekt og kostar sitt. Fram kemur í áliti atvinnuvega- nefndar vegna frumvarpsins að þeir aðilar sem ekki hafa lagt inn umsókn um rekstrarleyfi í fiskeldi til Mat- vælastofnunar, en eru langt komnir í ferli hjá Skipulagsstofnun, hafa tækifæri til þess að skila inn umsókn og leggja fram fullnægjandi gögn skv. 8. gr. fiskeldislaga til Matvæla- stofnunar fyrir gildistöku laganna. Lilja Rafney Magnúsdóttir, for- maður atvinnuveganefndar, segir aðspurð að lagatextinn, eins og hann verði eftir breytingatillöguna, muni opna fyrir þetta undanþáguákvæði, sem er samkvæmt heimildarákvæði í 2. mgr. 17. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Hún segir það vera í forgangi að skera úr um hver skurðarpunktur verður fyrir þetta undanþáguákvæði áður en frumvarpið verður að lögum. Fari ekki öll á byrjunarreit „Það var búið þannig um þetta að það væri ekki verið að láta öll málin fara á byrjunarreit. Þ.e.a.s. að þeim sem væru komnir langt með sínar umsóknir í þessu ferli hjá Matvæla- stofnun og Skipulagsstofnun væri hleypt inn á grundvelli gömlu lag- anna. Þeir hefðu unnið eftir þeim og væru komnir á lokametrana. Hins vegar muni þær umsóknir sem koma eftir það verða meðhöndl- aðar á grundvelli laganna sem við er- um að fara að setja. Við erum engu að síður að skoða þetta m.t.t. skýr- leika þannig að enginn vafi leiki á því hvar á að draga línuna í þessu ferli innan Matvælastofnunar, Skipulags- stofnunar og Umhverfisstofnunar.“ – Hvenær er umsókn langt komin hjá Skipulagsstofnun? „Við höfum verið að skoða það eftir að við afgreiddum málið úr nefndinni. Við reiknum með að koma með breytingu sem geri þetta eins skýrt og hægt er. Við höfum átt sam- töl við fulltrúa þessara stofnana til að finna þennan skurðarpunkt. Öll nefndin er meðvituð um að það þurfi að skoða þetta betur. Við erum auð- vitað ekki komin með málið í um- ræðu í þinginu. Við getum gert það áður en málið fer í 2. umræðu, eða milli 2. og 3. umræðu,“ segir Lilja Rafney. Markmiðið sé að frumvarpið verði að lögum á þessu þingi. Verði gefin út á nýjum grunni Hún útskýrir svo að nefndin vilji ekki að útgáfa rekstrarleyfa á burðarþolsmetnum svæðum í dag verði til langrar framtíðar alltaf á grundvelli gömlu laganna. Með því verði hægt að gefa út ný leyfi á svæð- unum á grundvelli nýrra laga. „Til þess erum við að setja þessi nýju lög að geta gert meiri kröfur til þeirra sem fá leyfin varðandi umhverfismál og ýmislegt sem við tiltökum. Það eru tilteknar ákveðnar kröfur sem við viljum gera gagnvart greininni sem slíkri til framtíðar,“ segir Lilja Rafney. Sem áður segir koma umsóknir í fiskeldi til kasta Skipulagsstofnunar. Matsferlinu vindur fram í ákveðnum skrefum. Fyrst er gerð matsáætlun, síðan er kynnt frum- matsskýrsla og að lokum er lögð inn matsskýrsla sem endar svo með áliti Skipulagsstofnunar. Matinu sé lokið Ásdís Hlökk Theodórsdóttir er forstjóri Skipulagsstofnunar. Spurð hvað felist í því að vera langt kominn í ferlinu hjá stofnun- inni, samanber textann í áliti at- vinnuveganefndar, segir Ásdís Hlökk að samkvæmt 8. gr. laganna sé almenna reglan sú að matinu sé lokið, áður en hægt er að leggja inn umsókn um rekstrarleyfi. „Það er hins vegar undanþáguleið frá því í 8. greininni. Sem er að ef framkvæmdaaðili hefur fengið heim- ild til að vinna samhliða að undirbún- ingi starfsleyfis og mati á umhverfis- áhrifum er heimilt að leggja inn umsókn um rekstrarleyfi. Það verð- ur að skilja þetta nefndarálit þannig, og breytingatillöguna á lögunum, að nefndin hafi í huga að sú leið geti þjónað þessum tilgangi. Að þarna sé leið fyrir þá að leggja inn umsókn um rekstrarleyfi sem eru komnir langt við mat á umhverfisáhrifum. Það eru hins vegar ákveðnir vankantar á þessu samspili.“ – Hvaða vankantar? „Í nefndarálitinu er rætt um að skapa svigrúm fyrir þá sem eru komnir langt í matsferli en í raun nær þessi undanþáguheimild, sem er vísað til í 8. greininni, ekkert frekar til þeirra sem eru komnir langt í ferl- inu. Hún tekur í rauninni jafnt til allra. Það geta allir, og ekki síður þeir sem eru á fyrstu stigum, leitað eftir þessari samkeyrslu umhverfis- mats og starfsleyfisferlis. Þannig að sú leið takmarkar í raun á engan hátt mengið við þá sem eru langt komnir,“ segir Ásdís Hlökk. Felur í sér opnun Hún telur aðspurð að breytinga- tillögurnar á lögunum opni fyrir slíka samkeyrslu. „Þótt það sé ekki beint orðað í breytingatillögunum er þar vísað til 8. greinarinnar sérstaklega og í henni er þessi opnun má segja.“ – Þarf þá nýjan og sérstakan laga- texta varðandi umsóknir sem eru langt komnar? „Það má segja að ef vilji löggjaf- ans er að gefa þarna eingöngu svig- rúm fyrir þá sem eru langt komnir í matsferlinu þá tel ég svo vera, já,“ segir Ásdís Hlökk. Óvissa um umsóknir í fiskeldi  Formaður atvinnuveganefndar segir forgangsmál að skýra hvaða umsóknir verða metnar gildar  Afgreiða eigi fiskeldisfrumvarp á þessu þingi  Forstjóri Skipulagsstofnunar bendir á vankanta Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Áform Hugmyndir eru um að stórauka fiskeldi hér við land á næstu árum. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir Lilja Rafney Magnúsdóttir Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir bæjarfélagið ekki gera miklar athugasemdir við fiskeldis- frumvarpið eins og það liggur nú fyrir. Meðal breytingatillagna er að ný máls- grein komi inn í lögin varðandi áhættumat erfða- blöndunar. Tekið skuli tillit til mót- vægisaðgerða sem dragi úr mögulegri erfðablöndun. Hafró skuli leita eftir tillögum eldisfyrirtækja að slíkum mótvægisaðgerðum. Enginn eftirlitsmaður Rebekka segir fulltrúa Vestur- byggðar ekki hafa sterkar skoðanir á þessu atriði. „Við höfum verið hugsi yfir því, og höfum minnst á það líka við atvinnuveganefnd, að við erum nú þegar komin með 10 þús. tonna eldi í gang hér á sunnan- verðum Vestfjörðum og erum ekki með einn eftirlitsmann á svæðinu.“ Fram kemur í áliti atvinnuvega- nefndar að þeir aðilar sem hafa ekki lagt inn umsókn til Matvælastofn- unar en eru langt komnir í ferli hjá Skipulagsstofnun hafi tækifæri til þess að skila inn umsókn og leggja fram fullnægjandi gögn til Matvæla- stofnunar fyrir gildistöku laganna. Þetta er rakið hér að ofan. Skýra þurfi betur ákvæðin Spurð hvaða áhrif þetta muni hafa á leyfi og umsóknir á Vestfjörðum segir Rebekka að bráðabirgðaleyfi séu í gildi. Þá sé verið að meta um- hverfisáhrif vegna tiltekinna um- sókna. Skýra þurfi betur umrætt ákvæði um það hversu langt í ferlinu fyrirtækin þurfi að vera komin. „Okkar afstaða er sú að það sé ekki verið að stöðva verkefni sem eru komin langt af stað. Þetta er margra ára ferli hjá fyrirtækjunum. Það sem ég hef nefnt í mínum sam- tölum við þingmenn er að við þurf- um að hafa það skýrt hvað það þýðir að vera komin langt í ferlinu. Hve- nær er umsóknin langt komin? Er það þegar búið er að skrifa umsókn- ina og senda hana til Skipulagsstofn- unar? Eða þegar fyrirtækið er búið að eyða milljónum króna í að vinna í frumvarpsskýrslu um mat á um- hverfisáhrifum?“ spyr Rebekka. Skýra þurfi ákvæði um umsóknirnar  Bæjarstjóri vill eftirlit með fiskeldi Rebekka Hilmarsdóttir Rætt var við Óðin Sigþórs- son, sem sat í starfshópi sjávar- útvegs- ráðherra um stefnumörk- un í fiskeldi, í Morgun- blaðinu í gær. Hann taldi óheppilegt að Gunnar Atli Gunnarsson, að- stoðarmaður Kristjáns Þórs Júl- íussonar, sjávarútvegsráðherra, sem hafi sterk fjölskyldutengsl inn í fiskeldisfyrirtæki, skuli hafa jafn mikla aðkomu að mál- inu og raun ber vitni. Ekki náð- ist í Kristján Þór í gær. Tengslin talin óheppileg EKKI NÁÐIST Í RÁÐHERRA Kristján Þór Júlíusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.