Morgunblaðið - 31.05.2019, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.05.2019, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 skattur.is 2019 Álagningar- og innheimtuseðlar einstaklinga 2019 eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra skattur.is. Barnabætur, vaxtabætur og inneignir verða greiddar út 31. maí. Upplýsingar um greiðslustöðu veita ríkisskattstjóri og sýslumenn utan höfuðborgarsvæðisins. Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra dagana 19. ágúst til 2. september 2019, að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti lýkur 2. september 2019. 442 1000 rsk@rsk.is Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Álagningu skatta á einstaklinga er lokið Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Sumar Tún slegin í blíðunni í Eyja- fjarðarsveit fyrir margt löngu. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Einar Ófeigur Björnsson, bóndi á Lóni II í Kelduhverfi á Norðausturlandi, segir að þar sé alveg drullukalt, fjögurra stiga hiti hafi verið á uppstigningardag og við frostmark nóttina áð- ur. Hann segir Þingeyinga ekki óvana slydduéli eða hreti á þessum árstíma. Að sögn Einars eru bændur alveg pollrólegir þrátt fyrir fréttir af því að sláttur sé byrjaður á Suður- og Vesturlandi. Hann telji hins vegar líklegt að það styttist í slátt í Eyjafirði. ,Ég hef stundað búskap í 40 ár og aldrei sleg- ið í maí. Minn sláttutími er oftast um miðjan júlí. Við erum ekki einu sinni farnir að huga að slætti svona norðarlega,“ segir Einar sem bætir við að aprílmánuður hafi veri einstakur og um miðjan maí hafi komið mjög hlýr kafli. Haginn sé grónari en oft áður, einhvern tímann ljúki kuldanum og bændur á Norðausturlandi séu bjartsýnir. Einar segir bændur hafa hleypt út strax eftir sauðburð en lítið sé um að bændur séu farnir að sleppa í haga. Yfirleitt hefjist sláttur á Norðausturlandi ekki fyrr en í lok júní því beitt sé á öll tún og ekki slegið á meðan. Auk þess sem engin kúabú séu á svæðinu en í Eyjafirði sé að finna mörg kúabú og þar sé heitara. Snjókoma á Fjarðarheiði Það var frost á fleiri stöðum á landinu í fyrrinótt en á Norðausturlandi. Jóhann Karl Briem, formaður Björgunarsveitarinnar Héraðs á Egilsstöðum, segir að björgunarsveitin hafi þurft að aðstoða nokkra bíla á Fjarðarheiði um tvöleytið aðfaranótt uppstigningardags vegna hálku og snjókomu. Jóhann segir slík útköll ekki algeng á þessum tíma en þau komi fyrir. Bændur pollrólegir á Norðausturlandi  Eru ekki farnir að huga að slætti  Hiti við frostmark  Fjarðarheiði ófær Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Næstum því tvöfalt fleiri Íslend- ingar hafa skráð sig í inntökupróf fyrir Jessenius-læknaskólann en skráðu sig í fyrra. Jessenius- læknaskólinn er í háskólabænum Martin í norður- hluta Slóvakíu og er deild innan helsta háskóla landsins, Come- nius-háskóla. Runólfur Odds- son er ræðis- maður Slóvakíu á Íslandi og um- boðsmaður Comenius- háskóla hér- lendis. Hann segir að í vor muni 26 íslenskir nemendur útskrifast úr skólanum, auk þriggja sem tóku fyrstu þrjú ár læknanámsins þar eystra, en tóku svo seinni árin við læknadeild SDU-háskóla í Dan- mörku. Nemendur skjótast heim „Mig minnir að það hafi verið 61 eða 62 sem voru skráðir í fyrra, en núna eru það 111,“ segir Runólfur í samtali við Morgunblaðið. Spurður hvers vegna áhuginn á því að flytja alla leið til Slóvakíu til að fara í læknanám sé orðinn svo mikill meðal íslenskra ungmenna, segir Runólfur að í fyrsta lagi sé fólk farið að átta sig á því hversu góður skólinn í Martin er, og svo sé hann einnig til- tölulega hagkvæmur. „Svo er ódýrt að búa í Martin,“ segir hann og bæt- ir við: „Samstaða meðal nemenda hefur verið mjög góð. Svo virðist Wizz-flugfélagið hafa breytt ýmsu því það flýgur þarna allt í kring. Þegar það er orðið þrisvar sinnum ódýrara að fara til Martin heldur en til Akureyrar þá skjótast nemendur nokkuð mikið heim.“ Borgarstjórinn fer norður Á mánudaginn kemur verður inn- tökupróf fyrir Jessenius-háskólann haldið í Menntaskólanum í Kópa- vogi, og degi síðar í Mennta- skólanum á Akureyri. „Það helgast af því að það er verið að skrifa undir samstarf á milli Akureyrar og Mart- in,“ segir Runólfur en af þessu tilefni mun Ján Danko, borgarstjóri Mart- in, sækja bæinn heim. „Hann var rektor háskólans um átta ára skeið.“ Að síðustu bætir Runólfur við: „Það er engin launung að skólinn er mjög ánægður með íslenska stúd- enta.“ Hann segist fylgjast nokkuð grannt með íslensku nemendunum, og flestir þeirra stíli inn á að fá A í einkunn. Í skólanum eru einnig nemendur frá öðrum löndum, svo sem um 450 Norðmenn, en Runólfur segir: „Íslendingarnir þykja kurteis- astir og eru líka hæstir í prófunum.“ Margir vilja fara til Martin Runólfur Oddsson  Nánast tvöfalt fleiri í inntökuprófið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.