Morgunblaðið - 31.05.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.05.2019, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 Brimbretti Þessi mannvera ákvað að nýta sólina í flugdreka- brim við Gróttu en slíkt athæfi er sjaldséð hérlendis. Kristinn Magnússon Samkvæmt mati Alþjóðaheil- brigðismálstofnunarinnar, Al- þjóðadýraheilbrigðismálastofn- unarinnar, Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins og Mat- vælastofnunar Evrópusam- bandsins er útbreiðsla sýkla- lyfjaónæmis ein helsta heilbrigðisógn sem steðjar að mönnum. Þrátt fyrir að sýkla- lyfjaónæmi á Íslandi hafi verið umtalsvert minna vandamál en í nálæg- um löndum er mikilvægt að stemma stigu við frekari útbreiðslu. Því kynnti ríkisstjórnin í þessari viku þá stefnu- mörkun að Ísland ætlar að vera í far- arbroddi í aðgerðum til að draga úr út- breiðslu sýklalyfjaónæmis. Jafnframt kynnti ríkisstjórnin aðgerðir sem miða að því að þessu markmiði verði náð en þær byggjast á öflugri vinnu okkar helstu sérfræðinga á undanförnum ár- um. Opinber stefna stjórnvalda Árið 2017 skilaði starfshópur um að- gerðir til að draga úr útbreiðslu sýkla- lyfjaónæmra baktería á Íslandi tillögum sínum. Í hópnum áttu sæti yfirdýra- læknir, sóttvarnalæknir og deildarstjóri á Keldum. Í febrúar sl. undirrituðum við yfirlýsingu um átak til að draga úr út- breiðslu slíkra baktería. Jafnframt lýst- um við því yfir að tillögur starfshópsins marki opinbera stefnu stjórnvalda í þessum málaflokki. Stýrihópur beggja ráðuneyta fékk það hlutverk að fram- fylgja þeirri stefnu og jafnframt að móta tillögur að aðgerðum. Gripið til aðgerða Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt til- lögu okkar beggja að umræddum að- gerðum sem eru fjármagnaðar bæði á þessu ári og til framtíðar. Á meðal að- gerða er að myndað verður teymi fimm sérfræðinga þvert á stofnanir sem helgar sig vörnum gegn sýklalyfjaónæmi. Þá verður settur á fót Sýklalyfjaónæmis- sjóður sem mun hafa það hlutverk að greiða fyrir skimun og vöktun á sýkla- lyfjaónæmi í dýrum, matvælum, um- hverfi og fóðri. Jafnframt að greiða fyrir frekari rannsóknir á sýklalyfjaónæmi og annan ófyrirséðan kostnað. Einnig má nefna að sett verður af stað vinna við að útbúa viðbragðsáætlanir ef ónæmi grein- ist. Heildstæð nálgun Það er grundvallaratriði í þeirri stefnumörkun sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að tekið verði með heild- stæðum hætti á þeirri ógn sem sýkla- lyfjaónæmi ber með sér. Í því felst að horft verður til þess að taka á öllum þeim þáttum sem geta stuðlað að útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Umræðan undanfarna mánuði hefur verið með þeim hætti að ætla mætti að matvæli, og þá sérstaklega kjöt, séu þar stærsti áhættuþátturinn. Þetta er rangt. Í því samhengi má vísa til þess sem kem- ur fram í skýrslu starfshópsins frá 2017 að almennt sé talið „að lítil hætta sé á að ónæmar bakteríur berist í fólk með neyslu búfjárafurða þar sem þær eru að jafnaði hitameðhöndlaðar (soðnar/ steiktar) fyrir neyslu og bakteríurnar þannig drepnar. Annað gildir um græn- meti sem borðað er hrátt. Því má færa fyrir því rök að líkur á smiti frá græn- meti geti verið meiri en frá kjöti.“ Þrátt fyrir þetta ber að taka alvarlega og af fullum þunga útbreiðslu sýkla- lyfjaónæmis með matvælum. Því ætla stjórnvöld, innan ramma alþjóðlegra skuldbindinga og á grundvelli lýðheilsu- sjónarmiða, að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í kunna að greinast sýkla- lyfjaónæmar bakteríur. Öflug samstaða Við vonumst til þess að um það skapist öflug samstaða að Ísland verði í fremstu röð þegar kemur að vörnum gegn út- breiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Þær tillögur sem nú munu koma til fram- kvæmda eru mikilvægur liður í því að svo megi verða. Eftir Kristján Þór Júlíusson og Svandísi Svavarsdóttur Kristján Þór Júlíusson Sýklalyfjaónæmi: Heildstæð nálgun nauðsynleg Svandís Svavarsdóttir Höfundar eru sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra og heilbrigðisráðherra »Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt tillögu okkar beggja að umræddum að- gerðum sem eru fjármagn- aðar bæði á þessu ári og til framtíðar. Skipulögð brota- starfsemi á Íslandi er staðreynd og henni fylgir „gífurleg áhætta“ að mati grein- ingardeildar ríkislög- reglustjóra sem sendi frá sér svarta skýrslu í byrjun vikunnar. Deildin tekur fram að þrátt fyrir þetta mat varðandi skipulagða glæpastarfsemi teljist Ísland enn sem fyrr „afar öruggt samfélag í al- þjóðlegum samanburði“. Hvort mikil huggun felst í þeim samanburði er álitamál. Hnífaárásir eru í London, skotbardagar á göt- um Kaupmannahafnar og morð- hrina í Svíþjóð. Í matsskýrslunni segir að hér starfi nokkrir alþjóð- legir glæpahópar og koma kunni til uppgjörs milli þeirra. Í slíku upp- gjöri er ofbeldi jafnan mikið. Oftar en einu sinni hefur verið vakið máls á því hér á þessum stað að skynsamlegasta leiðin til að bregðast við ítrekuðum viðvörunum greiningardeildarinnar sé að stór- efla landamæraeftirlit. Heimildir yfirvalda til að skoða farþegaskrár eru miklar. Tækni til að bera saman og rannsaka slíkar skrár með aðstoð gervigreindar vex ár frá ári. Miðlægt samræmt landamæra- eftirlit með aðild margra opinberra aðila er hornsteinn í vörnum gegn skipulagðri alþjóðlegri glæpastarf- semi. Spilling vegna skipulagsmála Eins og jafnan stígur greiningar- deildin varlega til jarðar þótt niður- staða hennar sé skýr og afdráttar- laus. Vakið er máls á því að í nýrri skýrslu norsku efnahagsbrota- lögreglunnar sé fullyrt að „aukin spilling geti grafið undan sjálfum stoðum og fjármögnun hins lýðræðislega velferð- arsamfélags“. Sakamál síðustu ára gefi til kynna sérstaka hættu á spillingu í tengslum við leyfisveitingar vegna skipulagsmála og byggingarfram- kvæmda. Þá bendir Evrópu- lögreglan á „að skipu- lagðir glæpahópar leit- ist við að koma félögum hópanna í störf eða ná tökum á starfsfólki jafnt í einkageiranum sem í op- inberum rekstri. Þetta sé gert með mútugreiðslum og annars konar freistingum og markmiðið sé að greiða fyrir annars konar brota- starfsemi. Þannig geti spilling á bæjar- og sveitarstjórnarstigi ýtt undir frekari skipulagða brota- starfsemi“. Þá segir greiningardeildin: „Horft til Íslands hafa hin síð- ustu ár einkennst af stórauknum umsvifum í byggingariðnaði, eink- um á höfuðborgarsvæðinu, og hækkun fasteignaverðs. Mikil spurn eftir lóðum og fasteignum getur skapað freistnivanda og þar með hættu á spillingarbrotum líkt og almennt gildir um úthlutun eða kaup takmarkaðra gæða. Slíkt ástand getur skapað spilling- arhættu jafnt í einkageiranum sem hinum opinbera.“ Að um þessi mál sé rætt á þenn- an veg er nýmæli. Þarna er varað við hættu sem er ekki síður hér á landi en annars staðar. Víða um lönd verða spillingarmál tengd framkvæmdum með opinberu leyfi eða tengd opinberum samningum stjórnmálamönnum að falli. Farandþjófar Í skýrslunni er minnt á að reglu- lega gangi hér yfir hrinur innbrota og þjófnaða svo sem úr verslunum, vinnuskúrum, nýbyggingum og sumarbústöðum. Á síðustu miss- erum hafi erlendir brotahópar ítrekað stolið miklum verðmætum úr skartgripa- og fataverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan hefur haft til rann- sóknar mál sem tengjast hælisleit- endum frá öruggum ríkjum, það er mönnum sem koma á ólögmætan hátt til landsins og misnota sér al- þjóðareglur um alþjóðlega vernd. Þessir menn koma hingað til að stunda farandþjófnað, ræna og rupla um land allt, á meðan embættismenn fara yfir tilhæfu- lausar hælisumsóknir þeirra. „Skipulagi þessara farand- brotahópa má líkja við „vinnuhópa“ sem hafa með sér vaktaskipti, einn hópur leysir annan af hólmi, e.t.v. með einhverri skörun á dvöl“, segir greiningardeildin. Misnotkun opinberrar þjónustu Greiningardeildin bendir á að skipulega sé unnið að því að mis- nota opinber bótakerfi, vinnu- miðlun, móttökukerfi vegna flótta- fólks og hælisleitenda auk margvíslegrar félagslegrar þjón- ustu sem þeim stendur til boða. Hér hefur hælisleitendum undan- farið skipulega verið veitt lið til að gera miklar kröfur á hendur ís- lenska ríkinu. Samtökin No Bor- ders stofnuðu til aðgerðar sem stóð í nokkrar vikur. Mótmælt var við dómsmálaráðuneytið, tjaldað með leyfi borgaryfirvalda á Austurvelli, farið í Keflavíkurgöngu og gerð til- raun til að hleypa upp fundi tveggja ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Í hættumatsskýrslunni segir að rannsóknir lögreglu leiði í ljós skipulagða misnotkun tiltekinna er- lendra afbrotamanna og -hópa á op- inberum þjónustukerfum á Íslandi. Líklegt sé að í einhverjum tilvikum njóti hóparnir aðstoðar íslenskra ríkisborgara og/eða erlendra manna sem búsettir séu hér á landi. Í þessu sambandi bendir grein- ingardeildin á að brotalamir sé að finna í opinberum kerfum, jafnt innan einstakra stofnana og í sam- starfi þeirra. Gefið er til kynna að hælisleitandi sem hingað kemur kunni að vera „gerður út“ af tengi- lið hér á landi sem taki af honum það fé sem honum er greitt úr op- inberum sjóðum sem hælisleitanda. „Í einhverjum tilvikum eru tengilið- ir hér á landi sem þekkja staðhætti og móttökukerfi og veita ein- staklingum og jafnvel hópum að- stoð,“ segir í skýrslunni. Misnotkun alþjóðlegrar verndar Greiningardeildin segir að marg- ir skipulögðu glæpahópanna sem hafa náð fótfestu hér komi frá Austur-Evrópu, Póllandi, Litháen, Rúmeníu og Albaníu. Til dæmis viti deildin um þrjá hópa frá sama Austur-Evrópuríkinu. Í skýrslunni segir: „Rannsóknir lögreglu leiða í ljós að einstaklingum sem tengjast þessum þremur hópum hefur verið veitt alþjóðleg vernd á Íslandi m.a. á grundvelli kynhneigðar. Nokkrir þessara karlmanna frá íslömsku ríki hafa verið kærðir fyrir kynferð- islega áreitni gagnvart konum hér á landi. Hópar þessir hafa án teljandi vandkvæða aflað sér kennitalna á Íslandi og í kjölfar þess opnað bankareikninga og jafnvel stofnað fyrirtæki. Kennitölur og banka- reikningar eru grunnþættir í pen- ingaþvætti og tilfærslum á fjár- munum sem aflað hefur verið með skipulagðri brotastarfsemi. Mál sem lögregla hefur haft til rann- sóknar sýna að nokkrir meðlimir þessara hópa hafi nýtt sömu kenni- tölu og þannig m.a. getað leynt veru sinni í landinu en stundað „svarta vinnu“ á sama tíma. Leið- togi eins hópsins hefur á síðustu misserum sent tugi milljóna króna úr landi. Sami maður hefur þegið félagslega aðstoð af margvíslegu tagi, þ.á m. fjárhagsaðstoð á sama tíma. Fyrirliggjandi upplýsingar eru á þann veg að innan hópa þess- ara sé að finna réttnefnda „kerf- isfræðinga“; einstaklinga sem búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á kerfum opinberrar þjónustu og fé- lagsaðstoðar hér á landi. Hátt flækjustig innan opinberra kerfa á Íslandi nýta þessir menn til fulln- ustu, m.a. með notkun á fölsuðum skilríkjum og fjölda tilbúinna nafna. Með þessu móti getur það kostað mikla vinnu að afla grundvallarupp- lýsinga um viðkomandi svo sem rétts nafns, fæðingarlands og þess háttar.“ Eins og af ofangreindu má sjá snýst svarta skýrslan um fleira en fíkniefni og vændi. Efni hennar lýt- ur að verulegu leyti að því hvernig staðið er að úrlausn mála á vett- vangi stjórnsýslunnar. Þegar kem- ur að kennitölum gegnir Þjóðskrá til dæmis lykilhlutverki. Spyrja má hvort samskiptanetið innan opin- bera kerfisins í tengslum við hana virki sem skyldi miðað við lýsingar greiningardeildarinnar. Almenna löggæslu ber að efla en hitt skiptir ekki síður máli að allar stjórnsýslustofnanir hafi að mark- miði að sporna gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Eftir Björn Bjarnason » Skynsamlegasta leiðin til að bregðast við ítrekuðum viðvör- unum greiningardeild- arinnar er að stórefla landamæraeftirlit. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Svört skýrsla um skipulagða glæpastarfsemi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.