Morgunblaðið - 31.05.2019, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019
Brimbretti Þessi mannvera ákvað að nýta sólina í flugdreka-
brim við Gróttu en slíkt athæfi er sjaldséð hérlendis.
Kristinn Magnússon
Samkvæmt mati Alþjóðaheil-
brigðismálstofnunarinnar, Al-
þjóðadýraheilbrigðismálastofn-
unarinnar, Sóttvarnastofnunar
Evrópusambandsins og Mat-
vælastofnunar Evrópusam-
bandsins er útbreiðsla sýkla-
lyfjaónæmis ein helsta
heilbrigðisógn sem steðjar að
mönnum. Þrátt fyrir að sýkla-
lyfjaónæmi á Íslandi hafi verið
umtalsvert minna vandamál en í nálæg-
um löndum er mikilvægt að stemma
stigu við frekari útbreiðslu. Því kynnti
ríkisstjórnin í þessari viku þá stefnu-
mörkun að Ísland ætlar að vera í far-
arbroddi í aðgerðum til að draga úr út-
breiðslu sýklalyfjaónæmis. Jafnframt
kynnti ríkisstjórnin aðgerðir sem miða
að því að þessu markmiði verði náð en
þær byggjast á öflugri vinnu okkar
helstu sérfræðinga á undanförnum ár-
um.
Opinber stefna
stjórnvalda
Árið 2017 skilaði starfshópur um að-
gerðir til að draga úr útbreiðslu sýkla-
lyfjaónæmra baktería á Íslandi tillögum
sínum. Í hópnum áttu sæti yfirdýra-
læknir, sóttvarnalæknir og deildarstjóri
á Keldum. Í febrúar sl. undirrituðum við
yfirlýsingu um átak til að draga úr út-
breiðslu slíkra baktería. Jafnframt lýst-
um við því yfir að tillögur starfshópsins
marki opinbera stefnu stjórnvalda í
þessum málaflokki. Stýrihópur beggja
ráðuneyta fékk það hlutverk að fram-
fylgja þeirri stefnu og jafnframt að móta
tillögur að aðgerðum.
Gripið til aðgerða
Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt til-
lögu okkar beggja að umræddum að-
gerðum sem eru fjármagnaðar bæði á
þessu ári og til framtíðar. Á meðal að-
gerða er að myndað verður teymi fimm
sérfræðinga þvert á stofnanir sem helgar
sig vörnum gegn sýklalyfjaónæmi. Þá
verður settur á fót Sýklalyfjaónæmis-
sjóður sem mun hafa það hlutverk að
greiða fyrir skimun og vöktun á sýkla-
lyfjaónæmi í dýrum, matvælum, um-
hverfi og fóðri. Jafnframt að greiða fyrir
frekari rannsóknir á sýklalyfjaónæmi og
annan ófyrirséðan kostnað. Einnig má
nefna að sett verður af stað vinna við að
útbúa viðbragðsáætlanir ef ónæmi grein-
ist.
Heildstæð nálgun
Það er grundvallaratriði í þeirri
stefnumörkun sem ríkisstjórnin hefur
samþykkt að tekið verði með heild-
stæðum hætti á þeirri ógn sem sýkla-
lyfjaónæmi ber með sér. Í því felst að
horft verður til þess að taka á öllum þeim
þáttum sem geta stuðlað að útbreiðslu
sýklalyfjaónæmis.
Umræðan undanfarna mánuði hefur
verið með þeim hætti að ætla mætti að
matvæli, og þá sérstaklega kjöt, séu þar
stærsti áhættuþátturinn. Þetta er rangt.
Í því samhengi má vísa til þess sem kem-
ur fram í skýrslu starfshópsins frá 2017
að almennt sé talið „að lítil hætta sé á að
ónæmar bakteríur berist í fólk með
neyslu búfjárafurða þar sem þær eru að
jafnaði hitameðhöndlaðar (soðnar/
steiktar) fyrir neyslu og bakteríurnar
þannig drepnar. Annað gildir um græn-
meti sem borðað er hrátt. Því má færa
fyrir því rök að líkur á smiti frá græn-
meti geti verið meiri en frá kjöti.“
Þrátt fyrir þetta ber að taka alvarlega
og af fullum þunga útbreiðslu sýkla-
lyfjaónæmis með matvælum. Því ætla
stjórnvöld, innan ramma alþjóðlegra
skuldbindinga og á grundvelli lýðheilsu-
sjónarmiða, að koma í veg fyrir dreifingu
matvæla sem í kunna að greinast sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur.
Öflug samstaða
Við vonumst til þess að um það skapist
öflug samstaða að Ísland verði í fremstu
röð þegar kemur að vörnum gegn út-
breiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Þær
tillögur sem nú munu koma til fram-
kvæmda eru mikilvægur liður í því að svo
megi verða.
Eftir Kristján Þór
Júlíusson og
Svandísi
Svavarsdóttur
Kristján Þór
Júlíusson
Sýklalyfjaónæmi:
Heildstæð nálgun nauðsynleg
Svandís
Svavarsdóttir
Höfundar eru sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra og heilbrigðisráðherra
»Ríkisstjórnin hefur nú
samþykkt tillögu okkar
beggja að umræddum að-
gerðum sem eru fjármagn-
aðar bæði á þessu ári og til
framtíðar.
Skipulögð brota-
starfsemi á Íslandi er
staðreynd og henni
fylgir „gífurleg
áhætta“ að mati grein-
ingardeildar ríkislög-
reglustjóra sem sendi
frá sér svarta skýrslu
í byrjun vikunnar.
Deildin tekur fram að
þrátt fyrir þetta mat
varðandi skipulagða
glæpastarfsemi teljist Ísland enn
sem fyrr „afar öruggt samfélag í al-
þjóðlegum samanburði“.
Hvort mikil huggun felst í þeim
samanburði er álitamál. Hnífaárásir
eru í London, skotbardagar á göt-
um Kaupmannahafnar og morð-
hrina í Svíþjóð. Í matsskýrslunni
segir að hér starfi nokkrir alþjóð-
legir glæpahópar og koma kunni til
uppgjörs milli þeirra. Í slíku upp-
gjöri er ofbeldi jafnan mikið.
Oftar en einu sinni hefur verið
vakið máls á því hér á þessum stað
að skynsamlegasta leiðin til að
bregðast við ítrekuðum viðvörunum
greiningardeildarinnar sé að stór-
efla landamæraeftirlit.
Heimildir yfirvalda til að skoða
farþegaskrár eru miklar. Tækni til
að bera saman og rannsaka slíkar
skrár með aðstoð gervigreindar vex
ár frá ári.
Miðlægt samræmt landamæra-
eftirlit með aðild margra opinberra
aðila er hornsteinn í vörnum gegn
skipulagðri alþjóðlegri glæpastarf-
semi.
Spilling vegna skipulagsmála
Eins og jafnan stígur greiningar-
deildin varlega til jarðar þótt niður-
staða hennar sé skýr og afdráttar-
laus. Vakið er máls á því að í nýrri
skýrslu norsku efnahagsbrota-
lögreglunnar sé fullyrt að „aukin
spilling geti grafið
undan sjálfum stoðum
og fjármögnun hins
lýðræðislega velferð-
arsamfélags“. Sakamál
síðustu ára gefi til
kynna sérstaka hættu
á spillingu í tengslum
við leyfisveitingar
vegna skipulagsmála
og byggingarfram-
kvæmda.
Þá bendir Evrópu-
lögreglan á „að skipu-
lagðir glæpahópar leit-
ist við að koma félögum hópanna í
störf eða ná tökum á starfsfólki
jafnt í einkageiranum sem í op-
inberum rekstri. Þetta sé gert með
mútugreiðslum og annars konar
freistingum og markmiðið sé að
greiða fyrir annars konar brota-
starfsemi. Þannig geti spilling á
bæjar- og sveitarstjórnarstigi ýtt
undir frekari skipulagða brota-
starfsemi“.
Þá segir greiningardeildin:
„Horft til Íslands hafa hin síð-
ustu ár einkennst af stórauknum
umsvifum í byggingariðnaði, eink-
um á höfuðborgarsvæðinu, og
hækkun fasteignaverðs. Mikil
spurn eftir lóðum og fasteignum
getur skapað freistnivanda og þar
með hættu á spillingarbrotum líkt
og almennt gildir um úthlutun eða
kaup takmarkaðra gæða. Slíkt
ástand getur skapað spilling-
arhættu jafnt í einkageiranum sem
hinum opinbera.“
Að um þessi mál sé rætt á þenn-
an veg er nýmæli. Þarna er varað
við hættu sem er ekki síður hér á
landi en annars staðar. Víða um
lönd verða spillingarmál tengd
framkvæmdum með opinberu leyfi
eða tengd opinberum samningum
stjórnmálamönnum að falli.
Farandþjófar
Í skýrslunni er minnt á að reglu-
lega gangi hér yfir hrinur innbrota
og þjófnaða svo sem úr verslunum,
vinnuskúrum, nýbyggingum og
sumarbústöðum. Á síðustu miss-
erum hafi erlendir brotahópar
ítrekað stolið miklum verðmætum
úr skartgripa- og fataverslunum á
höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan hefur haft til rann-
sóknar mál sem tengjast hælisleit-
endum frá öruggum ríkjum, það er
mönnum sem koma á ólögmætan
hátt til landsins og misnota sér al-
þjóðareglur um alþjóðlega vernd.
Þessir menn koma hingað til að
stunda farandþjófnað, ræna og
rupla um land allt, á meðan
embættismenn fara yfir tilhæfu-
lausar hælisumsóknir þeirra.
„Skipulagi þessara farand-
brotahópa má líkja við „vinnuhópa“
sem hafa með sér vaktaskipti, einn
hópur leysir annan af hólmi, e.t.v.
með einhverri skörun á dvöl“, segir
greiningardeildin.
Misnotkun opinberrar þjónustu
Greiningardeildin bendir á að
skipulega sé unnið að því að mis-
nota opinber bótakerfi, vinnu-
miðlun, móttökukerfi vegna flótta-
fólks og hælisleitenda auk
margvíslegrar félagslegrar þjón-
ustu sem þeim stendur til boða.
Hér hefur hælisleitendum undan-
farið skipulega verið veitt lið til að
gera miklar kröfur á hendur ís-
lenska ríkinu. Samtökin No Bor-
ders stofnuðu til aðgerðar sem stóð
í nokkrar vikur. Mótmælt var við
dómsmálaráðuneytið, tjaldað með
leyfi borgaryfirvalda á Austurvelli,
farið í Keflavíkurgöngu og gerð til-
raun til að hleypa upp fundi tveggja
ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
Í hættumatsskýrslunni segir að
rannsóknir lögreglu leiði í ljós
skipulagða misnotkun tiltekinna er-
lendra afbrotamanna og -hópa á op-
inberum þjónustukerfum á Íslandi.
Líklegt sé að í einhverjum tilvikum
njóti hóparnir aðstoðar íslenskra
ríkisborgara og/eða erlendra manna
sem búsettir séu hér á landi.
Í þessu sambandi bendir grein-
ingardeildin á að brotalamir sé að
finna í opinberum kerfum, jafnt
innan einstakra stofnana og í sam-
starfi þeirra. Gefið er til kynna að
hælisleitandi sem hingað kemur
kunni að vera „gerður út“ af tengi-
lið hér á landi sem taki af honum
það fé sem honum er greitt úr op-
inberum sjóðum sem hælisleitanda.
„Í einhverjum tilvikum eru tengilið-
ir hér á landi sem þekkja staðhætti
og móttökukerfi og veita ein-
staklingum og jafnvel hópum að-
stoð,“ segir í skýrslunni.
Misnotkun alþjóðlegrar
verndar
Greiningardeildin segir að marg-
ir skipulögðu glæpahópanna sem
hafa náð fótfestu hér komi frá
Austur-Evrópu, Póllandi, Litháen,
Rúmeníu og Albaníu. Til dæmis viti
deildin um þrjá hópa frá sama
Austur-Evrópuríkinu. Í skýrslunni
segir:
„Rannsóknir lögreglu leiða í ljós
að einstaklingum sem tengjast
þessum þremur hópum hefur verið
veitt alþjóðleg vernd á Íslandi m.a.
á grundvelli kynhneigðar. Nokkrir
þessara karlmanna frá íslömsku
ríki hafa verið kærðir fyrir kynferð-
islega áreitni gagnvart konum hér á
landi. Hópar þessir hafa án teljandi
vandkvæða aflað sér kennitalna á
Íslandi og í kjölfar þess opnað
bankareikninga og jafnvel stofnað
fyrirtæki. Kennitölur og banka-
reikningar eru grunnþættir í pen-
ingaþvætti og tilfærslum á fjár-
munum sem aflað hefur verið með
skipulagðri brotastarfsemi. Mál
sem lögregla hefur haft til rann-
sóknar sýna að nokkrir meðlimir
þessara hópa hafi nýtt sömu kenni-
tölu og þannig m.a. getað leynt
veru sinni í landinu en stundað
„svarta vinnu“ á sama tíma. Leið-
togi eins hópsins hefur á síðustu
misserum sent tugi milljóna króna
úr landi. Sami maður hefur þegið
félagslega aðstoð af margvíslegu
tagi, þ.á m. fjárhagsaðstoð á sama
tíma. Fyrirliggjandi upplýsingar
eru á þann veg að innan hópa þess-
ara sé að finna réttnefnda „kerf-
isfræðinga“; einstaklinga sem búa
yfir yfirgripsmikilli þekkingu á
kerfum opinberrar þjónustu og fé-
lagsaðstoðar hér á landi. Hátt
flækjustig innan opinberra kerfa á
Íslandi nýta þessir menn til fulln-
ustu, m.a. með notkun á fölsuðum
skilríkjum og fjölda tilbúinna nafna.
Með þessu móti getur það kostað
mikla vinnu að afla grundvallarupp-
lýsinga um viðkomandi svo sem
rétts nafns, fæðingarlands og þess
háttar.“
Eins og af ofangreindu má sjá
snýst svarta skýrslan um fleira en
fíkniefni og vændi. Efni hennar lýt-
ur að verulegu leyti að því hvernig
staðið er að úrlausn mála á vett-
vangi stjórnsýslunnar. Þegar kem-
ur að kennitölum gegnir Þjóðskrá
til dæmis lykilhlutverki. Spyrja má
hvort samskiptanetið innan opin-
bera kerfisins í tengslum við hana
virki sem skyldi miðað við lýsingar
greiningardeildarinnar.
Almenna löggæslu ber að efla en
hitt skiptir ekki síður máli að allar
stjórnsýslustofnanir hafi að mark-
miði að sporna gegn skipulagðri
glæpastarfsemi.
Eftir Björn
Bjarnason » Skynsamlegasta
leiðin til að bregðast
við ítrekuðum viðvör-
unum greiningardeild-
arinnar er að stórefla
landamæraeftirlit.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Svört skýrsla um skipulagða glæpastarfsemi