Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 17

Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 ✝ SvanhildurÁrney Ásgeirs- dóttir fæddist á Bræðraborgarstíg í Reykjavík 24. nóvember 1937. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 27. maí 2019. Foreldar hennar voru Ásgeir Árna- son vélstjóri, f. 24. maí 1901, d. 7. feb. 1958, og Theódóra Einhildur Tómasdóttir húsfreyja, f. 7. jan. 1906, d. 17. okt. 1969. Systkini hennar eru Tómas, f. 26. okt. 1929, d. 16. maí 1984, Sigrún Erna, f. 18. maí 1932, d. 5. júní 1991, Theodóra Kolbrún, f. 12. des. 1933, d. 24. mars 1971, og Ásgerður, f. 11. mars 1942. Svanhildur giftist 28. júní 1957 Reykjavíkur og bjuggu þau þar með sín þrjú börn. Eftir skilnað fluttist hún, ásamt börnum sín- um, að Brú í Hrútafirði þar sem hún hóf störf sem talsíma- og matráðskona. Þar kynnist hún seinni manni sínum, Regin, en þar starfaði hann sem símvirki. Þau giftust og eignuðust tvo syni og fluttust þau síðan á höfuðborgarsvæðið og bjuggu þar lengst af í Kópavogi. Svanhildur fór ung í Hús- mæðraskólann á Laugalandi og starfaði síðar sem húsmóðir eftir það þar til hún hóf störf í fisk- verkun í Ísbirninum í Reykjavík. Að því loknu hóf hún störf á Landspítalanum á skiptiborðinu við símsvörun. Var hún síðar með þeim fyrstu er störfuðu á tölvudeild Landspítalans. Seinna stofnaði hún innan Landspítalans nýsigagnadeildina Tölvuverið, gegndi þar starfi forstöðumanns til fjölda ára og var síðar heiðruð fyrir störf sín þar á Landspít- alanum. Svanhildur verður jarðsungin frá Digraneskirkju í dag, 31. maí 2019, klukkan 13. Sveinbirni Krist- inssyni, f. 4. okt. 1932, d. 7. des. 1989. Börn þeirra eru Theodóra Ásgerður Svanhildardóttir, f. 25. mars 1955, Aðal- heiður Svanhild- ardóttir, f. 7. apríl 1959, og Tómas Ás- geir Sveinbjörns- son, f. 19. júní 1961. 9. apríl 1966 gift- ist hún seinni manni sínum, Reg- in Valtýssyni símvirkjameistara, f. 9. apríl 1936, d. 16. okt. 2007. Börn þeirra eru Valtýr Reg- insson, f. 9. júní 1967, og Kol- beinn Reginsson, f. 12. des. 1968. Svanhildur bjó fyrstu árin sín í Reykjavík en fluttist ung til Akureyrar og sleit þar barns- skónum. Með fyrri manni sínum, Sveinbirni, fluttist hún síðar til Minningarorð til móður. Þá hefur elskuleg móðir mín kvatt okkur í bili en hún lést hinn 27. maí. Fyrir utan móðurhlutverkið þá var hún einnig besti vinur sem ég hef átt, besti ráðgjafi minn og hvatningarstjóri. Hún færði mér óteljandi tækifæri í lífinu, ham- ingju og gleði. Nærvera hennar gaf svo mikið og gleðin sem fylgdi henni var svo hlý en um leið glettin og kát. Hún var sterk, ákveðin og úrræðagóð, uppfull af hæfileikum sem hún náði að nýta sér að fullu. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa átt hana sem móður og ég veit það nú að hún er komin á góðan stað, ásamt pabba, þar sem hún mun halda áfram að láta gott af sér leiða þangað til ég hitti hana næst. Elska þig mamma mín, þinn sonur Meira: mbl.is/minningar Kolbeinn (Kolli). Elsku amma mín ég kveð þig með miklum söknuði, þú varst mér svo kær og lífið virðist ótrú- lega tómlegt þegar ég hugsa um að þú sért farin. Þú varst frumkvöðull, fyrir- mynd, dugnaðarforkur og líflegri karakter er varla hægt að finna. Sögurnar eru óteljandi. Þú varst ekki þessi amma sem var með svuntu að baka. Ást þín á Mac- anum var óumdeild og átti hann hug þinn og hjarta alla tíð. Þegar ég var 10 ára var hún einungis 51 árs og ég man að allir í skólanum voru að öfunda mig af hvað ég átti unga ömmu. Þá var hún forstöðumaður tölvudeildar Landspítalans og ég notaði tæki- færið og montaði mig heldur bet- ur af því að amma mín væri að setja upp og kenna öllum á tölv- urnar á Landspítalanum. Það var ekkert sem stoppaði hana ömmu mína og vildi hún alltaf það sama fyrir mig. Frá því ég var lítil hefur hún sagt við mig mjög reglulega að ég ætti eftir að starfa í viðskiptaborginni Bruss- el. Eftir að ég kláraði hagfræði- námið þá bara varð hún ákveðnari í því að þetta ætti eftir að rætast. Hún vildi alltaf að allir myndu elta drauma sína og láta ekkert aftra sér, í hennar huga var aldrei nein fyrirstaða. Spánn var þér svo kær og hús- ið þitt þar. Gleymi því ekki þegar við vorum þar saman og skelltum okkur nokkrar saman á barinn og dönsuðum við kallana. Skemmtum okkur mikið yfir því að konurnar voru nú ekkert ánægðar með það að við værum að bjóða körlunum upp í dans. Þeim fannst við snúa þeim heldur mikið. Ómetanlegt var að halda í hönd þína alla nóttina og vera tvær saman þegar stutt var í að þú myndir kveðja okkur, ég mun alltaf eiga þessa minningu með þér. Takk fyrir að leyfa mér að búa hjá þér, takk fyrir öll dásamlegu símtölin, takk fyrir allar sam- verustundirnar. Elsku besta amma mín, ég mun alltaf sakna þín. Takk fyrir allt. Vaka. Elsku amma mín. Ég sit hér á Sunnuhlíð, hinsta dvalarstað þín- um, á næturvakt og er að rifja upp okkar tíma saman. Þegar ég hugsa til baka eru dýrmætustu barnsminningar mínar geymdar á heimili ykkar afa, Álfhólsvegi 101. Ég mun aldrei gleyma þeirri væntumþykju sem ég upplifði í nærveru ykkar. Þið sýnduð skil- yrðislausa ást og kærleik sem mun fylgja mér að eilífu. Minn- ingarnar eru endalausar, amma mín. Þegar ég loksins gaf mér tíma til þess að hugsa til baka eftir þessa erfiðu daga áttaði ég mig á því hversu góðan tíma við höfðum átt saman. Lífsgleðin sem fylgdi þér var ómótstæðileg, það var engin eins og amma Svana. Ég man svo vel eina minningu frá bernskuárum mín- um. Ég var í heimsókn hjá þér og afa. Þú tilkynntir mér að þú hefð- ir fengið mikilvæg skilaboð í svefni. Álfur hafði heimsótt þig með það erindi að það þyrfti að þrífa innkeyrsluna við álfastein- inn sem fyrst og að ég væri hinn besti kostur í verkið. Hverjum öðrum en ömmu Svönu átti ég að trúa, að sjálfsögðu átti þetta sér stað hugsaði ég með mér og klár- aði verkið hiklaust. Svona lékstu á lífið, með húmorinn og lífsgleð- ina að vopni gerðir þú tilveru okkar allra talsvert betri. Að verki loknu fékk ég hina sígildu kossa, knús og hrós frá þér. Þú hafðir alltaf eitthvað jákvætt um mig að segja í gegnum tíðina, al- veg sama hvernig mér leið náð- irðu alltaf að draga fram það góða í mér og lofa ég þér því að halda út í lífið með þá jákvæðni að vopni. Eftir að afi lést seldirðu húsið og fluttir til Spánar, ásamt því að eiga heima í kjallaranum hjá okkur á sumrin. Þá hófst nýr kafli í lífi mínu. Ég er afar þakk- látur fyrir þann tíma sem við átt- um með þér heima og úti á Spáni. Þau forréttindi að geta séð þig þegar ég labbaði út úr húsi og fyrir utan kjallarann, þá sast þú með bros á vör og bauðst mér góðan daginn og hvattir mig til dáða, tilbúin að láta lífið leika við þig einn dag í einu í sólinni. Til gamans getið vorum við amma herbergisfélagar í rúman mánuð á meðan á flutningum stóð. Þá fyrst upplifði ég hversu mikill vinur hún var í raun og veru, hvernig maður fylltist af öryggi og vellíðan þegar hún var til stað- ar. Hreint út sagt yndislegir tímar. Ferðir okkar til Spánar eru ógleymanlegar og eru minning- arnar þaðan yndislegar. Við átt- um mjög góða stund saman um daginn í góða veðrinu á Sunnu- hlíð sem minnti mig einmitt á ferðir okkar. Sólin skein og það var heiðskírt, en vindurinn var kaldur og það fór ekki alveg nógu vel í þig. „Amma mín, þetta er bara hafgolan,“ sagði ég hressi- lega og þá kom bros á vör, því hafgoluna á La Marina hafðirðu alltaf lofað. Þessi stund með þér er ógleymanleg í dag, gaman hvernig góðar minningar verða til á einfaldan hátt. Í dag ertu komin á betri stað, amma mín, ég veit það með vissu. Ég horfi með björtum augum út í lífið og til baka í tímann. Með þig sem fyrirmynd og leiðarvísi held ég að lífið eigi eftir að leika vel við mig og fjölskyldu mína. Það styttir alltaf upp hjá okkur, elsku amma mín. Skál fyrir Kanarí! Huginn. Svanhildur Árney Ásgeirsdóttir  Fleiri minningargreinar um Svanhildi Árney Ásgeirs- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. minningar eru smitaðar af glettni Dóra og framkalla bros þegar þær dúkka upp. Við rifj- uðum oft upp skemmtilegar og ógleymanlegar stundir, eins og þegar við burðuðumst með níð- þungt baðkar (í minningunni mörg hundruð kíló), sem Edda hafði fundið í Bandaríkjunum, upp á aðra hæð í Brekkuseli 36 þar sem þau hreiðruðu um sig. Dóri var fastur fyrir og oftar en ekki flugu skotin á milli okkar en alltaf var stríðnin jákvæð og gáskafull og varð uppspretta ógleymanlegra minninga. Hann var skemmtilegur, spurði og hlustaði á fólk; nokkuð sem fáum er gefið. Hann hafði alltaf áhuga fyrir því hvað aðrir voru að gera, og var ótrúlega minnugur á fólk og atburði. Ég varð oft hissa þeg- ar hann fór að minnast á gengi dóttur minnar í knattspyrnu. Eðlilegt að áhugafólk um íþróttir fylgdist með stjörnunum og þeim stóru, en Dóri hafði sannarlega ekki síður áhuga fyrir hinum líka. Hin seinni árin urðum við værukærir og fækkaði þá heim- sóknum. Við vorum þó alltaf „á leiðinni“ og alltaf af og til kom Dóri og þá var eins og við hefðum hist í gær. Þetta voru samt fastir punktar og ófrávíkjanlegt að hittast á hverju ári. Ég á eftir að sakna þess mikið að geta ekki lengur hitt minn góða vin en verð þá að láta allar jákvæðu minning- arnar duga. Við Hildur sendum Eddu, Daða og Ívari, sem og tengda- dætrum og barnabörnum, inni- legar samúðarkveðjur. Sigurður R. Guðjónsson. Halldór Jón Sigurðsson er lát- inn – langt um aldur fram. „Dóri í mínum“ eins og Vala bekkjarsyst- ir okkar segir gjarnan. Haustið 1967 hófu um 30 nem- endur nám í A-bekknum í gamla Kennaraskólanum – Kennara- skóla Íslands við Stakkahlíð – sem þá var á framhaldsskólastigi undir styrkri og húmanískri stjórn doktors Brodda Jóhannes- sonar. Bekkurinn varð með tím- anum alkunnur – eða alræmdur eftir smekk. Dóri var einn af strákunum í bekknum. A-bekkurinn varð snemma baldinn og samheldinn – og margt var sér til gamans gert. A.m.k. fjögur félög störfuðu í bekknum: Heldrimannafélagið, sem hélt fundi sína jafnan í Glaumbæ, Sveinafélagið, kvenfélagið Vesica og Stúkan Eilífðarblómið nr. 7. Dóri var auðvitað bæði í Heldri- mannafélaginu og stúkunni. Ég var þá eini bindindismaðurinn í Eilífðarblóminu og endurreisir stúkunnar – hafði jafnan ærinn starfa á mánudagsmorgnum við að endurreisa fallna félaga. Dóri er sá þriðji af fjórum fé- lögum í Heldrimannafélaginu sem kveður þessa jarðvist. Áður voru farnir þeir Bergsveinn Auð- unsson og Magnús Jón Árnason – báðir ungir að árum. Allir voru þeir miklir sómamenn sem sárt er saknað. Við Magnús Jón gáfum út bekkjarblaðið MAÓ, fyrst hand- skrifað í grasafræðitímum hjá Þráni Löve, en síðan fjölritað þar til skólavist lauk. Blaðið átti að- allega að vera fyndið. Stundum tókst það. Dóri var tíður gestur á síðum blaðsins. Fregnir um hann og aðra bekkjarfélaga voru fullar af kerskni og stráksskap – og oftast uppspuni frá rótum. Dóri tók fals- fréttum blaðsins ævinlega vel – kímdi yfir kerskninni um sjálfan sig, eða hló á sinn hógværa hátt. Ein Dóra-frétt var þó sönn. Á forsíðu handskrifaða MAÓs frá 26.11. 1968 (5. tbl. 5. árgangur) er límd inn úrklippumynd úr dag- blaði. Myndatextinn í dagblaðinu var svona: Halldór Sigurðsson markvörður ÍR ver línuskot frá Framara í gær. Handskrifuð for- síðufyrirsögn MAÓs var hins veg- ar: Dóri er að verða heimsfrægur! Halldór var mikill íþróttamað- ur og ansi góður markmaður í handbolta. Hann stundaði líka íþróttir í skólanum og var um tíma formaður íþróttanefndar Skólafélagsins. Raunar tóku margir A-bekk- ingar virkan þátt í félagslífi Kennaraskólans. Síðasta vetur- inn 1970-71 komu formaður og gjaldkeri Skólafélagsins úr A- bekknum – og ritstjóri skóla- blaðsins Örvar-Odds líka. Margir fleiri voru virkir. Að kennaraprófi loknu vorið 1971 tók Dóri til við kennslu, sem varð hans ævistarf. Hann var alla tíð vinsæll og virtur kennari, enda ljúflingur með góða kímnigáfu. Nú er góður drengur kvaddur. Eftir lifa ógleymanlegar minning- ar um traustan og skemmtilegan vin og félaga. Blessuð sé minning Dóra. Ólafur Þ. Harðarson.  Fleiri minningargreinar um Halldór Jón Sigurðs- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Hvernig minnist maður fyrr- verandi tengdaföður? Þegar við Sigrún fórum að rugla saman reytum fyrir hart- nær 20 árum var ekki laust við að ég bæri ákveðinn kvíðboga í brjósti fyrir að hitta tilvonandi tengdaforeldra. Enda ærin ástæða til. Þær áhyggjur reynd- ust óþarfar. Sigurður og Guðrún tóku mér og börnum mínum opnum örm- um. Aldrei fann ég fyrir öðru en vinsemd og virðingu. Það eru for- réttindi að hafa orðð samferða Dedda og fjölskyldu hans. Innilegustu samúðarkveðjur. Franz Ploder. Fallinn er í valinn einn af okkar aldursforsetum í Flugbjörgunar- sveitinni í Reykjavík, Sigurður Waage. Sigurður gekk í raðir björgunarsveitamanna ungur að árum eða strax í upphafi. Á þess- um tíma voru það aðallega fjalla- menn, skíðamenn, flugmenn og véstjórar, aðrir íþróttamenn, svo eitthvað sé nefnt, sem gengu í raðir flugbjörgunarsveitarinnar. Frá upphafi hefur Sigurður verið vinsæll og farsæll samstarfsmað- ur og stjórnandi og báru menn mikla virðingu fyrir þessum glæsilega manni sem bauð af sér mikinn þokka. Í lok fimmta ára- tugarins kleif Sigurður ásamt tveimur félögum sínum Hraun- dranga í Öxnadal. Var þar um mikið afrek að ræða og ekki margir sem hafa fetað í þau fót- spor. Hann var mjög virkur í starfi fyrir Flugbjörgunarsveit- ina alla tíð. Frá 1960 var hann varaformaður í rúman áratug, þau ár var mikill uppgangur í björgunarsveitamálum almennt. Þennan tíma stýrðu þeir félagar Sigurður M. Þorsteinsson for- maður og Sigurður Waage af miklum dugnaði. Eins og gengur og gerist minnka menn sjálfboða- liðastörf eftir því sem árin færast yfir. Fyrir 32 árum var stofnaður Lávarðaflokkur fyrir eldri félaga og þá sem ekki voru lengur virkir félagar. Gekk Sigurður fljótlega í þann hóp og frá 1998 hefur þessi hópur haft kaffifundi á hverjum laugardagsmorgni. Meðan Sig- urður gat keyrt mætti hann flesta laugardaga og eftir að hann hætti keyrslu var séð um að hann gæti mætt og hefur hann gert svo framundir það síðasta. Þetta hef- ur verið hans líf og yndi að fylgj- ast með því sem hefur verið að gerast innan sveitarinnar enda átti maðurinn sér mikla hugsjón í sambandi við flugbjörgunarsveit- ina sem margur gæti lært af. Þegar Sigurður varð 90 ára lét hann setja á annan handlegginn húðflúr af Hraundranginum í Öxnadal. Geri aðrir betur. Sig- urður hefur í langan tíma verið einn af heiðursfélögum sveitar- innar, auk þess var hann sæmdur gullorðu Flugbjörgunarsveitar- innar fyrir sín farsælu störf í hennar þágu. Hann gaf einnig fyrsta hátíðarfána Flugbjörgun- arsveitarinnar sem nú er varð- veittur á Flugvallarvegi. Nú er góður og gegn félagi fallinn frá og Sigurður farinn í sína loka ferð. Við sem eftir sitjum segjum „góða ferð, Sigurður Waage“. Lá- varðaflokkur/FBS-R sendir börnum, ættingjum og vinum dýpstu samúðarkveðjur, við syrgjum góðan félaga og góðan dreng. F.h. Flugbjörgunarsveitarinn- ar í Reykjavík. Grétar F. Felixson. Í augum átta ára drengs var maðurinn sem bjó á efstu hæð þrílyfta nágrannahússins á Laug- arásvegi 73 ansi snaggaralegur. Hann var kvikur í hreyfingum, dökkleitur og hafði yfir sér dálítið suðrænt yfirbragð. Hann átti líka fallega konu og myndarlegar dætur, sem gerði þessa ná- grannafjölskyldu enn meira spennandi í huga snáðans. Brátt kynntist ég betur þeim hjónum, Sigurði og Guðrúnu Waage, ávalt kölluð Deddi og Gunna. Dæturn- ar urðu vinir og leikfélagar svo áður en varði var ég orðinn eins og heimalningur hjá þessari fjöl- skyldu og alltaf velkominn. Í stigaganginum upp á efstu hæð- ina var stór ljósmynd á veggnum af tignarlegum fjallstindi. Það var ekki að ástæðulausu. Deddi var þekktur fjallamaður og meðlimur í Flugbjörgunarsveitinni. Fyrst- ur manna kleif hann með félögum sínum tindinn Hraundrang hinn 5. ágúst 1956. Ungum strák fannst óneitanlega ævintýra- og hetjuljómi yfir slíku afreki. Það var mikill samgangur á milli húsa í hverfinu við austur- enda Laugarásvegarins. Bæði fullorðnir og krakkarnir tengdust langvinnum vinaböndum. Ég bjó meginhluta bernsku minnar og fram á fullorðinsaldur í þessu nána samfélagi. Af fullorðna fólk- inu sem ég kynntist þar kveður Deddi nú þeirra síðastur. Ýmsar minningar um Dedda rifjast upp. – Skíðaferð sem strákur í Jósefsdal. Á hásléttu fyrir ofan dalinn stóð skáli sem félagar Dedda höfðu reist og þarna naut ég leiðsagnar hans í skíðamennsku. – Menntaskólaár- in, partí í fullum gangi og allt bland búið. Þá kom sér vel að Deddi átti alltaf Pepsi í bílskúrn- um og brást vel við þótt bankað væri upp á síðla kvölds og hann beðinn að bjarga málum. – Bíl- velta fyrir austan fjall, ég óslas- aður, gítarinn minn brotinn, bíll- inn í klessu. Lét draga hann í bæinn og staðsetja í uppkeyrsl- unni heima. Í því renndi Deddi í hlað, hafði séð að alvarlegt slys hafði orðið. Pabbi hringdi svo á annan dráttarbíl til að flytja bílhræið, en bíll Dedda var fyrir. Hann rétti mér bíllyklana, leit fast á mig og sagði: „Flyttu bíl- inn.“ Ég gerði eins og hann skip- aði. Þetta reyndist hnitmiðuð og áhrifarík áfallahjálp. Árin liðu og Deddi, Gunna og fjölskylda fluttu í nýtt einbýlis- hús sem þau höfðu byggt á Laug- arásvegi 28. Það varð vani að líta þar við og alltaf voru móttökurn- ar jafn ánægjulegar. Þegar ald- urinn færðist yfir þau hjónin fluttu þau í hentugra húsnæði. Guðrún átti við vanheilsu að stríða síðustu æviárin og dvaldi á hjúkrunarheimili en ávallt var Deddi til staðar og heimsótti hana daglega. Guðrún lést árið 2011. Deddi var ótrúlega ern jafnvel eftir að hann komst á tí- ræðisaldur. Það var ánægjulegt að sjá hann með fjölskyldu sinni og vinum þegar haldið var upp á 90 ára afmæli hans. Þar var góður drengur og höfðingi heiðraður. En ellin sigrar alla og Deddi hef- ur nú kvatt. Börnum hans og að- standendum votta ég samúð mína. Deddi klífur ekki fleiri dranga í þessu jarðlífi. Hann er farinn á hærri tinda. Ragnar Danielsen. Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐMUNDAR ÞORSTEINSSONAR, Leynisbraut 38, Akranesi. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Gyða Bergþórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.