Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 25

Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 Vont en það venst er lag sem dúettinn Súkkat gerði frægt árið 1995. Ég var fjögurra ára þegar lagið var gefið út og ekki var ég mikill aðdáandi á þeim tíma enda skildi ég ekki kímnina á bak við textann. Með árunum hefur mér hins vegar ekki tekist að gleyma þessum fleygu orðum sem Haf- þór Ólafsson söng: „Það er vont en það venst.“ Þau eiga að mörgu leyti við í mínu lífi, þar sem ég er stuðn- ingsmaður Leeds United. Það er oftast afskaplega vont, en ég er nú orðinn vanur því. Á tíma- bilinu sem var að líða tókst lið- inu að komast alla leið í umspil í B-deildinni, en tapaði að lokum fyrir Derby County. Ég þekki einn stuðnings- mann Derby County en ekki hef ég heyrt í honum síðustu daga. Það er allt önnur saga. Ég hef síðustu ár látið mig dreyma um velgengni hjá Leeds, en með árunum hefur sá draum- ur orðið veikari. Sársaukinn varð verri eftir því sem trúin var meiri svo ég passa mig að vera raunsær og temmilega svart- sýnn. Ég hélt ég yrði rúmfastur í viku og myndi láta reka mig úr vinnunni fyrir að láta ekki sjá mig eftir tap í undanúrslitum umspils, en ég er orðinn vanur. Vont er það, en það venst. Liðið mitt er búið að vera meira í neðri deildunum en þeirri efstu síðan ég kom í heim- inn í nóvember 1991. Eldri stuðningsmenn fé- lagsins hlæja enn að því í dag að styttra sé síðan Leeds varð enskur meistari en Liverpool. Eitthvað efast ég um að stuðn- ingsmenn Liverpool taki það mjög nærri sér í dag. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi8@mbl.is UNDANKEPPNI HM Ívar Benediktsson iben@mbl.is Það verður við ramman reip að draga hjá íslenska landsliðinu í handknattleik kvenna í umspils- leikjunum tveimur við spænska landsliðið þar sem bitist verður um keppnisréttinn á heimsmeist- aramótinu sem fram fer í Japan í nóvember og desember á þessu ári. Spænska landsliðið hefur nán- ast verið fastagestur í lokakeppni stórmóta á þessari öld á meðan ís- lenska landsliðið hefur verið ekki verið það. Rík hefð er fyrir öfl- ugum kvennalandsliðum hjá Spán- verjum þótt á allra síðustu árum hafi mátt sjá að eitthvað hafi verið gefið eftir. Í þessum slaka liggur e.t.v. möguleiki fyrir íslenska landsliðið sem hefur hægt og bít- andi sótt í sig veðrið undanfarin misseri undir stjórn Axels Stef- ánssonar landsliðsþjálfara. Fyrri viðureign kvennalandsliða Íslands og Spánar fer fram í Ante- quera í Málaga á Spáni í kvöld. Sú síðari verður í Laugardalshöll á fimmtudaginn. Miklu máli skiptir fyrir íslenska liðið að ná sem jöfn- ustum leik og niðurstöðu í leiknum í kvöld til þess að hægt sé að stilla upp síðari viðureigninni sem úr- slitaleik um HM-sæti. Kosturinn er góður, þ.e. að íslenska lands- liðið eigi síðari leikinn heima. Af þeim handknattleikskonum sem á annað borð gefa kost á sér í landsliðið þá eru flestar þær bestu með. Skarð er fyrir skildi í fjar- veru Lovísu Thompson sem lék einstaklega vel með Val á nýliðinni leiktíð. Meiðsli í baki tóku sig upp í vikunni og varð hún að minnsta kosti að bakka út úr leiknum í kvöld af þeim sökum. Sandra Er- lingsdóttir tók hennar sæti. Einnig er söknuður að markverðinum reynda, Guðnýju Jenny Ásmunds- dóttur, sem sleit krossband í marslok. Annars er landsliðshópurinn skipaður reyndum leikmönnum í bland við yngri og lítt reyndari. Þær leikreyndari eru Karen Knútsdóttur fyrirliði, Arna Sif Pálsdóttir, Steinunn Björnsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Arnfjörð Jónsdóttur, sem er nú komin í landsliðið á ný eftir tveggja ára fjarveru vegna meiðsla og fæðingarorlofs. Allar hafa þær leikið um eða yfir 100 landsleiki, að undanskilinni Stein- unni. Allar tóku þær þátt í sigr- inum frækna á Spánverjum á heimavelli vorið 2012, 21:18, í ein- um besta leik kvennalandsliðsins frá upphafi. Sjö leika utan heimalandsins Af 16 leikmönnum spænska landsliðsins leika sjö utan heima- landsins, tvær í Frakklandi, aðrar tvær í Ungverjalandi og þrjár í Rúmeníu. Reynslan er e.t.v. ekki mikil en tiltrúin á sigur er fyrir hendi innan liðsins og sjá mátti á viðtali við landsliðsþjálfarann, Carlos Viver, á heimasíðu spænska sambandsins þegar hann valdi 16-manna hóp snemma í maí að hann reikni með að íslenska lið- ið verði ekki erfiður hjalli að yf- irstíga. Viver lét þess jafnframt getið að hann hefði farið afar vel yfir leik íslenska landsliðsins eftir að hafa skoðað upptökur með leikjum þess. Ólíkur leikur Axel Stefánsson landsliðsþjálfari sagði í samtali við Morgunblaðið í vikunni að leikur Spánverja væri um margt ólíkur þeim sem Íslend- ingar eiga að venjast. T.d. léki spænska liðið vörnina á annan hátt en t.d. landslið Norður- landanna eða Þýskalands. „Bak- verðirnir (tvistarnir) sækja yfir- leitt mjög framarlega á móti skyttum andstæðinganna. Hins- vegar eru þristarnir (miðjumenn- irnir) yfirleitt frekar aftarlega. Þetta atriði verðum við að nýta. Síðan hefur spænska liðið ekki mikla breidd í leikmannahóp sín- um ef borið er saman við allra bestu landsliðin,“ sagði Axel. „Ég held að okkar möguleiki liggi talsvert í því að halda uppi hraðanum og vera óhrædd við að keyra upp hraðann og nýta vel hraðaupphlaupin. Þau eru mikil- vægt vopn,“ sagði Axel sem vonast einnig til að framliggjandi 5/1 vörn Íslands geti gert spænska liðinu skráveifu. „Varnarleikur okkar í vináttuleiknum við Norðmenn í vikunni var mjög góður,“ sagði Axel sem var nokkuð bjartsýnn á gott gengi í leikjunum tveimur. Ólíkar leiðir Leiðir liðanna í umspilið voru ólíkar. Íslenska liðið komst eftir mikla baráttu í gegnum forkeppni sem haldin var í Skopje í Make- dóníu í byrjun desember. Íslenska landsliðið var fimmta og síðasta liðið sem komst í umspilið upp úr forkeppninni. Spánverjar gátu sleppt forkeppninni vegna þess að þeir voru þátttakendur á EM sem fram fór í Frakklandi í desember. Eftir að spænska landsliðið vann til silfurverðlauna á EM fyrir fimm árum hefur það ekki náð fyrri hæðum. Það hefur náð inn á stórmótin en ekki tekist að blanda sér í hóp þeirra allra fremstu. Á fjórum síðustu Evrópu- og heims- meistaramótum hefur spænska lið- ið annaðhvort hafnað í 11. eða 12. sæti. Kynslóðaskiptum hefur verið kennt um en sennilega kemur eitt- hvað fleira til og eins Axel bendir á þá er breiddin í leikmannahópn- um ekki mikil. Möguleikar fyrir hendi hjá konunum í Málaga  Fyrri leikur kvennalandsliðsins í handknattleik gegn Spáni í kvöld Morgunblaðið/Ómar 2012 Karen Knútsdóttir í leik gegn Spánverjum fyrir sjö árum í undankeppni EM. Ísland vann þá mikilvægan sigur á Hlíðarenda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.