Morgunblaðið - 31.05.2019, Page 26

Morgunblaðið - 31.05.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Í KÓPAVOGI Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Breiðablik ætlar að gera betur en í fyrra og það vita allir hvað það þýð- ir. Þetta sagði Guðjón Pétur Lýðs- son, leikmaður Blika, við Morg- unblaðið eftir 3:1-sigur liðsins á HK í grannaslag 16-liða úrslita bikar- keppninnar í knattspyrnu í gær- kvöldi. Blikarnir fóru alla leið í fyrra en töpuðu fyrir Stjörnunni í víta- spyrnukeppni í úrslitunum og eru hungraðir að skipta silfrinu út fyrir gull í ár. Breiðablik var með yfirhöndina lengst af í grannaslagnum á Kópa- vogsvelli í gærkvöldi, en fékk reynd- ar ágæta forgjöf frá gestunum í HK sem virtust varla átta sig á því að leikurinn væri hafinn þegar Kwame Quee kom Blikum yfir strax á þriðju mínútu. Það var því lítil pressa á Blikum svo til frá upphafi leiks og það að þurfa ekki að taka mikla áhættu gerði HK-ingum mjög erfitt fyrir. Eftir að Blikar skoruðu svo tvö mörk með skömmu millibili snemma í síðari hálfleik var ljóst að sigurinn yrði þeirra. Gestirnir mega þó eiga það að þeir börðust áfram og upp- skáru eitt mark eftir hornspyrnu. Annars var lítið að gerast þegar komið var fram á vallarhelming and- stæðingsins og í raun helst klaufa- gangur Blikanna sjálfra sem skapaði hættur við markið. Blikarnir leyfðu sér að hrókera nokkuð í liði sínu og þó varnarlínan hafi hökt á tímum var sóknarþung- inn ekki minni en áður í sumar. Brynjólfur Darri Willumsson var í fremstu víglínu, hörkuduglegur, og Kwame Quee þakkaði traustið í fyrsta byrjunarliðsleiknum. Fyrir aftan er svo Guðjón Pétur að sjálf- sögðu töframaður með boltann. Hann er svo sannarlega maðurinn sem getur tekið Blikana skrefinu lengra í ár. Breiddin er töluvert meiri en í fyrra og ef betri stöðug- leiki kemur með fleiri leikjum er lið- ið til alls líklegt. Vakna þegar í óefni er komið Hjá HK er áhyggjuefni hversu illa gengur að spila heilsteyptan leik. Eins og gegn KR í deildinni á dög- unum sýndu HK-ingar ekki sitt rétta andlit fyrr en þeir voru lentir 3:0 undir og það sama var uppi á ten- ingnum í þessum leik. Það þarf eitt- hvað að skerpa á hlutunum þar á bæ og Arnar Freyr Ólafsson í marki þeirra bjargaði því að staðan var ekki enn svartari þegar liðsfélag- arnir vöknuðu. Ásgeir Marteinsson og Kári Pétursson voru ekki nægi- lega skapandi á köntunum og mun- aði um minna. En það er jákvætt að gefast ekki upp, þó heppilegra væri að berjast frá fyrstu mínútu í stað þess að þurfa alltaf að reyna að kreista eitthvað út úr leikjum. HK-ingar þurfa nú að einbeita sér að stigasöfnun í deildinni, sem hefur verið fyrir neðan þeirra væntingar. Það er mikill kraftur í liðinu en það er ekki nóg að eiga hann inni á loka- sprettinum. Þannig vinnast ekki langhlaup. Ætla skrefinu lengra í ár  Breiðablik, silfurlið bikarkeppninnar í fyrra, vann HK í Kópavogsslag 16-liða úrslitanna  Töluvert meiri breidd en í fyrra  Enn gera HK-ingar sér erfitt fyrir Morgunblaðið/Hari Færi Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK, verst skoti Höskuldar Gunnlaugssonar í liði Blika í grannaslagnum í gær. 1:0 Kwame Quee 3. 2:0 Guðjón Pétur Lýðsson 52. 3:0 Höskuldur Gunnlaugsson 59. 3:1 Björn Berg Bryde 69. I Gul spjöldViktor Örn Margeirsson, BREIÐABLIK – HK 3:1 Thomas Mikkelsen, Brynjólfur Darri Willumsson (Breiðabliki). Björn Berg Bryde, Kári Pétursson (HK). Dómari: Ívar Orri Kristjánsson, 6. Áhorfendur: 1.123. Mjólkurbikar karla Völsungur – KR ....................................... 0:2 Alex Freyr Hilmarsson 65., Tobias Thom- sen 90. (víti). FH – ÍA...................................................... 2:1 Steven Lennon 71., Jákup Thomsen 80. – Jón Gísli Eyland Gíslason 81. Þróttur R. – Fylkir .................................. 1:3 Rafael Victor 84. – Ásgeir Eyþórsson 5., Geoffrey Castillion 14., Valdimar Þór Ingi- mundarson 45. Breiðablik – HK ....................................... 3:1 Kwame Quee 3., Guðjón Pétur Lýðsson. 52., Höskuldur Gunnlaugsson 59. – Björn Berg Bryde 69. Inkasso-deild karla Magni – Haukar ....................................... 1:1 Kristinn Þór Rósbergsson 54. – Daði Snær Ingason 90. 2. deild karla Dalvík/Reynir – Selfoss.......................... 1:1 Pálmi Birgisson 75. – Hrvoje Tokic 81. 3. deild karla Reynir S – Vængir Júpíters .................... 0:3 Álftanes – Höttur/Huginn ....................... 1:1 Einherji – Kórdrengir ............................. 0:0 Augnablik – KV ........................................ 1:3 Skallagrímur – KH................................... 2:0 2. deild kvenna Álftanes – Leiknir R. ............................... 6:0 Frakkland Umspil, fyrri leikur: Lens – Dijon.............................................. 1:1  Rúnar Alex Rúnars. varði mark Dijon. Tyrkland B-deild, umspil: Hatayspor – Gazisehir ............................ 1:1  Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik- inn hjá Gazisehir og lagði upp markið.  Gazisehir vann 5:3 eftir vítakeppni og fer upp í efstu deild. Danmörk Fyrri leikir í umspili: Lyngby – Vendsyssel............................... 2:1  Jón Dagur Þorsteinsson spilaði allan leikinn með Vendsyssel. Hobro – Viborg ........................................ 1:0  Ingvar Jónsson varði mark Viborg. Vináttulandsleikur Tyrkland – Grikkland ...............................2:1 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Mjólkurbikar kvenna: Hásteinsvöllur: ÍBV – Valur .....................18 Norðurálsvöllur: ÍA – Þróttur R..........19:15 Þórsvöllur: Þór/KA – Völsungur .........19:15 Inkasso-deild karla: Leiknisvöllur: Leiknir R.– Víkingur Ó.....19 Nettóvöllur: Keflavík – Grótta.............19:15 Framvöllur: Fram – Afturelding.........19:15 Í KVÖLD! Anton Sveinn McKee setti glæsilegt Íslandsmet þegar hann sigraði í 100 metra bringusundi á Smáþjóðaleik- unum í Svartfjallalandi í gær. Anton Sveinn synti á 1:00,33 mínútum og bætti sitt gamla met um 12/100 úr sekúndu frá því í ágúst í fyrra. Er þetta annað Íslandsmetið sem Anton Sveinn hefur sett í þessum mánuði, en hann bætti tíu ára gamalt met Jakobs Jóhanns Sveinssonar í 50 metra bringusundi hinn 18. maí. Miðað við þá lista sem liggja fyrir á netinu þá er tími Antons sá tuttugasti og annar besti í heiminum á þessu ári. Mjótt er á mununum en tímarnir frá 16. sæti eru yfir mínútunni. Efstur á listanum er Bretinn kunni Adam Peaty á 57,87 sek- úndum. Fara þarf undir mínútuna til að ná HM-lágmarki í greininni en HM fer fram í Suður-Kóreu í júlí. Eygló Ósk Gústafsdóttir bætti við gullverðlaunum í gær þegar hún sigr- aði í 50 metra baksundi á 29,46 sekúndum. Hún náði í vikunni HM- lágmarki í 100 metra baksundi. kris@mbl.is Anton setti Íslandsmet Anton Sveinn McKee Margt af sterkasta frjálsíþróttafólki þjóðarinnar var á ferðinni á Smáþjóðaleikunum í gær. Ólympíufararnir Aníta Hinriksdóttir og Guðni Valur Guðnason voru þar á meðal. Aníta hafnaði í 2. sæti í 1.500 metra hlaupi á 4:22,34 mínútum og Guðni varð einnig annar í kringlu- kasti með 57,64 metra kast. Íslendingar unnu til fimm gullverðlauna í frjálsum í gær. Hafdís Sigurðardóttir náði stökki upp á 6,42 metra þegar hún sigraði í langstökki. Þórdís Eva Steinsdóttir sigraði í 400 metra hlaupi á 56,39 sekúndum. Hlynur Andrésson sigraði í grein sem er Íslendingum frekar framandi sem keppnisgrein, 3000 metra hindr- unarhlaupi, á 8:57,20 mínútum. Ísland vann tvöfaldan sigur í 400 metra grindahlaupi. Fjóla Signý Hann- esdóttir í kvennaflokki á 1:02,60 mínútum og Ívar Kristinn Jasonarson í karlaflokki á 52,31 sekúndu. kris@mbl.is Fimm gull í frjálsum Hafdís Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.