Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 27

Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17. JAPANSKIR HNÍFAR Allt fyrir eldhúsið Hágæða hnífar og töskur Allir velkomnir Einstaklingar og fyrirtæki Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin! gegn mjög sterkri vörn FH, en FH- ingar hefðu á öðrum degi getað skorað mun fleiri mörk. Árni Snær Ólafsson stóð vaktina virkilega vel í marki ÍA og mikið reyndi á varn- armennina sem heilt yfir gerðu vel. ÍA varð hins vegar undir í barátt- unni á miðjunni og fengu sóknar- mennirnir úr litlu að moða. FH- ingar voru eldsnöggir til baka og fékk ÍA sárafá tækifæri til að beita sínum hættulegu skyndisóknum. FH gaf engin færi á sér í föstum leikatriðum, þar sem menn voru klárir. FH-ingar voru sterkari, klókari og betri. Brandur Olsen er búinn að vera mjög góður upp á síðkastið og réðu Skagamenn illa við hann. Ják- up Thomsen gerði sig líklegan til að skora allan leikinn og Björn Daníel Sverrisson, Kristinn Steindórsson og Davíð Þór Viðarsson stjórnuðu miðsvæðinu. Maður leiksins var hins vegar Guðmundur Krist- jánsson. Nánast hver einasta sókn Skagamanna endaði á honum. Var líkt og leikmenn ÍA lentu á vegg í hvert skipti sem þeir komu nálægt Guðmundi. Takist liðum að slá helstu vopnin úr höndum Skagamanna, virðist engin varaáætlun til. FH setti leik- inn mjög vel upp og verður spenn- andi að sjá hvernig ÍA bregst við þessum leik. Er búið að finna lyk- ilinn að því að vinna ÍA, eða var þetta bara slæmur dagur á skrif- stofunni hjá Skagamönnum? FH fyrst til að vinna ÍA  FH sló vopnin úr höndum Skagamanna  Guðmundur klettur í vörninni Morgunblaðið/Hari Loftfimleikar Steinar Þorsteinsson úr ÍA í áhugaverðri stellingu í Kaplakrika í gær. FH varð fyrsta liðið til að leggja ÍA að velli í sumar. Í KAPLAKRIKA Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is FH er komið í átta liða úrslit Mjólk- urbikars karla í fótbolta eftir 2:1- sigur á ÍA í skemmtilegum leik í 16- liða úrslitunum í Kaplakrika í gær. Með sigrinum varð FH fyrsta liðið til að leggja topplið Pepsi Max- deildarinnar að velli í sumar. FH gerði ekki sömu mistök og þegar liðin mættust á Akranesi í deildinni á dögunum. Þá fékk ÍA að beita sterkustu vopnum sínum, án þess að FH-ingar kæmu vörnum við. Leikaðferð ÍA er einföld. Liðið freistar þess að verjast vel, sækja hratt og nýta föst leikatriði. FH- ingar voru heldur betur klárir í þann slag. ÍA skapaði sér lítið af færum 1:0 Steven Lennon 72. 2:0 Jákup Thomsen 81. 2:1 Jón Gísli Eyland 83. I Gul spjöldBrynjar Ágúst Guðmundsson, Guðmundur Kristjánsson, Jákup FH – ÍA 2:1 Thomsen (FH). Arnar Már Guð- jónsson, Viktor Jónsson, Hörður Ingi Gunnarsson (ÍA). Dómari: Þorvaldur Árnason, 8. Áhorfendur: 1.290.  Ólympíufarinn Ásgeir Sigur- geirsson er búinn að koma sér vel fyrir í sögubókum Smáþjóðaleikanna. Ás- geir stóð uppi sem sigurvegari í keppni í skotfimi með loftbyssu í Svartfjallalandi í gær og hefur þá unn- ið til gullverðlauna á fimm leikum í röð. Ásgeir fékk 576 stig í undan- keppninni og 234,9 stig í úrslitum.  Óðinn Þór Ríkharðsson er kominn í úrslitin um danska meistaratitilinn í handknattleik eftir að lið hans GOG sló út meistarana í Skjern. Óðinn skoraði tvö mörk þegar GOG vann oddaleik lið- anna 28:25. Björgvin Páll Gústavsson og Tandri Konráðsson leika með Skjern.  Ægir Þór Steinarsson og sam- herjar í Regatas eru lentir 0:2 undir gegn Instituto de Córdoba í 8-liða úr- slitum um argentínska meistaratitilinn í körfuknattleik eftir 85:96-tap á úti- velli í öðrum leik liðanna.  Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék afar vel á öðrum hring á La- vaux Ladies-mótinu á LET Access- mótaröðinni í golfi í gær. Guðrún lék á 69 höggum, þremur höggum undir pari og er samtals á einu höggi undir pari. Berglind Björnsdóttir er úr leik á samanlagt 13 höggum yfir pari. Eitt ogannað Aðeins eitt lið utan Pepsi Max- deildarinnar verður í skálinni þeg- ar dregið verður í átta liða úrslit í bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum. Þetta var ljóst eftir að Fylkir vann Þrótt R., 3:1, í 16-liða úrslitunum í gærkvöld. Ásgeir Eyþórsson, Geoffrey Ca- stillion og Valdimar Þór Ingimund- arson skoruðu mörk Fylkis, áður en Rafael Victor minnkaði muninn fyr- ir Þrótt. KR komst áfram í gær eftir sigur á 2. deildar liði Völsungs á Húsavík 2:0. Eftir markalausan fyrri hálf- leik skoraði Alex Freyr Hilmarsson eftir rúman klukkutíma leik og braut ísinn fyrir KR þegar hann fylgdi eftir skoti sem var varið. Vesturbæingar fengu nokkur dauðafæri í viðbót til þess að gera út um leikinn en það var ekki fyrr en í uppbótartíma sem sigurinn var innsiglaður. Guðmundur Óli Stein- grímsson, leikmaður Völsungs, braut þá á Björgvini Stefánssyni innan teigs og fékk að líta rauða spjaldið. Tobias Thomsen fór á víta- punktinn og tryggði KR sigur. Húsvíkingurinn Pálmi Rafn Pálmason var fyrirliði KR, gegn sínu gamla félagi sem hann lék með fyrstu árin á meistaraflokksferl- inum. Hinn Húsvíkingurinn í Vest- urbæjarliðinu, Aron Bjarki Jós- epsson, var ekki í leikmannahópi KR-inga en var hins vegar á leik- skýrslu sem liðsstjóri, rétt eins og einn Húsvíkingurinn enn í KR, Friðgeir Bergsteinsson. Auk Fylkis og KR verða úrvals- deildarlið Breiðabliks, FH, Grinda- víkur, ÍBV, KR og Víkings R. ásamt 1. deildar liði Njarðvíkur í skálinni þegar dregið verður. Eitt lið utan efstu deildar fór áfram Morgunblaðið/Golli Skoraði Miðvörðurinn Ásgeir Ey- þórsson skoraði gegn Þrótti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.