Morgunblaðið - 31.05.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.05.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 18.900,- KAHLER HAMMERSHOI Vasi 20 cm fleiri litir Verð 7.690,- KARTELL BOURGIE Lampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- KAY BOJESEN Api lítill og stúdentshúfa Verð 20.580,- stk STOFF NAGEL Kertastjaki - fleiri litir Verð frá 5.800,- stk. LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.890,- glæsilegar ÚTSKRIFTARGJAFIR FLOS MISS K Borðlampi fleiri litir Verð 38.900,- KAY BOJESEN Söngfugl– fleiri litir Verð frá 10.990,- KARTELL LOUIS GHOST Stóll Verð frá 39.900,- AF TÓNLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ég var á lokatónleikum Sykur-molanna á tónleikastaðnumLimelight hér í New York fyrir 27 árum, þar sem hljómsveitin lék af einstökum og hrífandi krafti, og undir kraumaði vissan um að þetta væru lokin og meðlimir sveit- arinnar gáfu allt í flutninginn – minningin um Björk Guðmunds- dóttur hreinlega syngja tónleika- gesti sem hlupu upp á sviðið fram af sviðsbrúninni er ógleymanleg. Aðrir eftirminnilegir og tilfinninga- þrungnir tónleikar með Björk hér í borg voru í tónleikahöllinni kunnu Carnegie Hall fyrir rúmlega fjórum árum; þar frumflutti Björk á sviði tónlistina á plötunni Vulnicura, sem fjallar um skilnað hennar og það var auðheyrilega erfitt fyrir hana og átakanlegt, en frábærlega gert og fallegt engu að síður. Og enn hef ég komið djúpt snortinn af tónleikum með Björk í þessari borg borga, tón- leikum eða réttara væri að segja margbrotinni tónlistarsýningu sem sett hefur verið upp í nýjasta menn- ingarhúsi borgarinar, hinu umtalaða The Shed; Cornucopia eða Gnægta- horn er sýning engu lík, hreint makalaus upplifun sem Björk hefur ásamt einvalaliði aðstoðarfólks boðið upp á í New York undanfarinn mán- uð. Tók The Shed yfir í mánuð The Shed er einskonar tröllvax- inn braggi í nýjasta háhýsahverfi borgarinnar, hinu umdeilda Hudson Yards sem gagnrýnendur hafa viljað rífa niður; þessi fútúríski menning- arskáli er bjarta ljósið í turnakjarn- anum og segir sitt um stöðu Bjarkar hér í borg, þar sem hún hefur lengi átt sitt annað heimili, að henni hafi verið boðið að vera fyrsti listamað- urinn sem tekur víðáttumikinn aðal- salinn yfir og það í heilan mánuð. Forstöðumaður The Shed stýrði áður listahátíðinni í Man- chester og vann þar með Björk; í formála í sýningarskrá segir hann tvö ár síðan hann bauð listakonunni að setja upp sýningu í byggingunni Einstakur ævintýraheimur Bjarkar Ljósmynd/Santiago Felipe Myndaveisla Allir þeir sem koma að sviðsetningu Cornucopia-heimsins fara á kostum. Björk syngur hér í berg- málsklefanum til hægri á sviðinu þar sem viibrur blása og dansa hjá öðrum hljómsveitarmeðlimum. þegar hún yrði opnuð og hún hafi greint frá þeirri hugmynd sinni að gestir myndu ganga inn í draumsýn; í framtíðarlegt rými tónlistar og tækni. Og það hefur heldur betur tekist, á snilldarlegan hátt. Björk hefur unnið áfram með efniviðinn sem hún hélt með út í heim í fyrra til að fylgja eftir síðustu plötu sinni, Ut- opia. Þar kynnti hún til leiks flautu- septettinn viibra, nokkra af fremstu flautuleikurum landsins sem mynda kjarnann í hljómsveitinni og leika dansandi einstaklega lífrænar og fal- legar útsetningar Bjarkar; ásláttar- meistarinn fimi Manu Delago var aftur kallaður til samstarfs, Katie Buckley hörpuleikari Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, er þarna og Bergur Þórisson fer lipurlega hönd- um um tölvur og ýmis hljóðfæri. Við sáum mörg fyrstu Utopia-tónleikana í Háskólabíói í fyrra og það var gam- an en það sem er boðið er upp á í The Shed er samt eitthvað allt ann- að, hefur verið þróað gríðarlega og bætt. Þetta eru mikið til sömu lögin og þá, þeim eldri hefur þó fækkað, en leikurinn og flutningurinn, studd- ur af stórkostlegu myndrænu sjón- arspili, einstaklega vel lukkað. Kórinn fór á kostum Cornucopia-tónleikar Bjarkar verða alls átta talsins í The Shed; ég sá þá sjöundu í röðinni en þeir síð- ustu verða annað kvöld. Það seldist hratt upp á þá alla og hafa miðar síð- an skipt um hendur á svarta mark- aðinum fyrir háar upphæðir. Enda er talað um Cornucopia sem eitt það mest spennandi í menningarlífi borgarinnar þessar vikurnar. Og það var auðfinnanleg spenna í þétt- skipuðum salnum þar sem fugla- söngur hljómaði áður en tónleikarn- ir hófust. Og þeir hófust með fögrum hætti og þar var Hamrahlíðarkórinn kominn, félagarnir 52 röðuðu sér fyrir framan sviðið í íslenskum þjóð- búningum og sungu guðdómlega fal- lega undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur. Fyrst „Ísland, farsælda frón“, svo meðal annars „Vísur Vatnsenda-Rósu“, tvö lög eftir Björk, „Maríukvæði“ Atla Heimis Sveinssonar og þau enduðu á gáska- fullan hátt á „Ríður ríður hofmann“, einnig eftir Atla Heimi, þar sem söngvararnir örkuðu um salinn, upp og niður ganga og tröppur, og hrifu gesti með fjöri sínu og samstillingu. Björk hefði eflaust getað fengið kór hér í New York með í sýninguna en það var hjartnæmt að sjá Hamra- hlíðarkórinn svona fjölmennan mættan og syngja óaðfinnanlega, og eins með Björk síðar um kvöldið. Og Björk átti eftir að hylla kórinn og sérstaklega stjórnandann Þorgerði í lokin, þegar hún sagðist sjálf hafa verið í kórnum sextán ára gömul og það hefði mótað sig sem tónlistar- konu; og ef gestir þekktu til fleiri ís- lenskra tónlistarmanna þá væri afar líklegt að þeir hefðu fengið sitt tón- listaruppeldi hjá Þorgerði. Hreint makalaus tækni Um leið og Hamrahlíðarkórinn kvaddi salinn byrjaði hin sjón- og myndræna veisla Bjarkar. Vídeóum var varpað á tjald bak við flytjendur og á tvö forhengi sem ýmist voru dregin frá eða fyrir. Myndverkin eru eftir Tobias Gremmler og furðulega lífræn; einhverskonar sjávardýr fe- ttast og fálma, jurtir spretta, ferðast er inn í göng og sprotar og furðuský fylla sviðið. Tæknin er hreint maka- laus og falleg og í anda sýning- arinnar allrar sem hverfist um trúna um vöxt og þroska og betri heim. Argentínskur stjörnuleikstjóri, Luc- recia Martel, vann að uppsetning- unni og hefur tekist listavel til, í samspili sviðsmyndar Chiara Steph- enson, búninga Olivier Rousteing og Iris van Herpen og gríma eftir sam- starfsmann Bjarkar í langan tíma, James Merry. Svo er hljómburð- urinn í The Shed hreint makalaust góður og umlykur gesti. Björk steig fram klædd í hvítt með furðuleg skeljaform um axlir og upphandleggi og með svart háský í afróstíl; hún átti eftir að þramma og dansa um palla sviðsins og út á rampinn sem lá út í sal til áhorfenda þar sem hún söng hreint listavel, af kunnuglegu öryggi og krafti. Flautuleikararnir sjö og hinir hljóð- færaleikararnir voru í skrautlegum búningum sem minntu á skordýr eða ljósálfa, viibra-stúlkurnar dönsuðu um sviðið, á samræmdan hátt en þó einstaklingsbundinn í kóreógrafíu eftir Margréti Bjarnadóttur og virkjuðu rýmið vel; þegar leið á tón- leikana tóku meðlimir kórsins líka að birtast hvítklæddir og skiluðu sínu óaðfinnanlega. Og það má segja um alla hljóðfæraleikarana; Delago er afar snjall og lék eftirminnilega á vatnstrommur og meðal hljóðfæra sem leikið var á var falleg segul- harpa Úlfs Hanssonar tónskálds og það var gaman að sjá og heyra. Og í sviðsvængnum hafði verið byggður lítill bergmálsklefi, eins og hlýlegt leg; Björg steig nokkrum sinnum þangað inn og söng og stundum flautuleikarar með henni. Thunberg sagði til syndanna Og auðvitað er Björk stjarnan. Þessi glæsilega sýning hverfist um hana, tónlist hennar, útsetningar, hugmyndir og stíl. Fyrst voru flutt lögin „The Gate“ og „Utopia“ og slógu tóninn vel; skömmu síðar hljómaði gamall smellur, „Venus as a boy“ í nýrri útsetningu; söngvar- inn sem kallar sig serpentwithfeet var gestur og söng fallega með Björk dúett í „Blissing Me“; og kór- inn söng frábærlega með henni í „Body Memory“. Meðal annarra há- punkta voru „Pagan Poetry“ og „Ta- bula Rasa“. Þegar dagskránni lauk birtist sænska baráttukonan unga, Greta Thunberg, í vídeóvörpun og sagði okkur öllum en þó sérstaklega ráða- mönnum til syndanna fyrir þann aumingjaskap að standa ekki vörð um móður Jörð fyrir afkomendur okkar. Það var þörf áminning. Tón- leikunum lauk síðan með kröftugum hætti á „Future Forever“ og „ Not- get“ og þá spruttu gestir á fætur, dönsuðu, hristu sig og skóku. Cornucopia er einstaklega vel heppnuð sýning, hvernig sem á er litið. Nú hefur verið tilkynnt að hún verði sett upp í Mexíkóborg í ágúst. Umfangið við hana er slíkt að það hlýtur að vera afar ólíklegt að hún rati nokkrum sinnum til Íslands svo ef einhverjir lesendur eiga leið um Mexíkó þegar hún verður þar þá ættu þeir að tryggja sér miða. Eða hreinlega að gera sér ferð sér- staklega til að sjá hana og upplifa. Þetta er þess konar gjörningur. » Cornucopia eðaGnægtahorn er sýn- ing engu lík, hreint makalaus upplifun sem Björk hefur ásamt ein- valaliði aðstoðarfólks boðið upp á í New York undanfarinn mánuð. Ljósmynd/Santiago Felipe Stjarnan Björk á lágu sviði sem gengur út í salinn til tónleikagesta, um- kringd af viibrum með flauturnar sem þær leika á af mikilli hind.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.