Morgunblaðið - 31.05.2019, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019
» Borgarleikhúsið hef-ur í vikunni boðið öll-
um börnum í elsta ár-
gangi leikskóla Reykja-
víkurborgar að koma og
sjá sýningu um töfra
leikhússins. Um er að
ræða árlegan viðburð og
í ár er sýningin sett
saman af Bergi Þór Ing-
ólfssyni leikstjóra og
leikurunum Arnari Dan
Kristjánssyni, Lalla
töframanni, Rakel
Björk Björnsdóttur,
Sölva Viggóssyni Dýr-
fjörð og Viktoríu Sig-
urðardóttur.
Töfrar leikhússins í Borgarleikhúsinu fyrir leikskólabörn
Morgunblaðið/Eggert
Sýningargestir Alls fengu um 1.700 leikskólabörn tækifæri til að heimsækja Borgarleikhúsið í vikunni.
Tilhlökkun Eftirvænting skein úr augum leikhúsgestanna.
Á áfangastað Leikskólabörnin gengu í halarófu inn í salinn til að upplifa töfra leikhússins.
Myndlistar- og sögusýningin Út
fyrir sviga: Myndlist og Samtökin
7́8 verður opnuð í dag kl. 16 á
Reykjavíkurtorgi Grófarhúss,
Tryggvagötu 15
og mun hún
standa fram yfir
Hinsegin daga í
ár eða til 18.
ágúst. „Sýningin
varpar ljósi á
myndlist og sýn-
ingar hinsegin
fólks bæði innan
og utan Samtak-
anna 7́8 í áranna
rás. Hér gegnir
skjalasafn Samtakanna 7́8 sem
varðveitt er Borgarskjalasafni
Rekjavikur þýðingarmiklu hlut-
verki vegna þess að þar er mik-
ilvægur hluti hinsegin listasög-
unnar varðveittur ásamt öðru efni
sem varðar sögu samtakanna,“ seg-
ir í tilkynningu.
Þegar litið sé yfir sögu Samtak-
anna 7́8 komi í ljós að á vegum
þeirra og hinsegin listafólks hafi
verið haldinn fjöldi myndlistarsýn-
inga sem flestar eiga sameiginlegt
að hafa ekki ratað út fyrir hinsegin
samfélagið og orðið hluti af opin-
berri listasögu íslensku þjóð-
arinnar. Á sýningunni sé því dregin
fram saga sem hafi ekki fengið að
vera með og brugðið er ljósi á þá
fjölbreyttu myndlist sem liggur eft-
ir hinsegin fólk á Íslandi.
Sýningin leggur áherslu á verk
íslensks hinsegin myndlistarfólks.
Lögð er áhersla á verk eftir tíu ís-
lenskar listamanneskjur sem sýnt
hafa verk sín í húsakynnum sam-
takanna eða í opinberum sýning-
arrýmum frá 1984 og fram á þessa
Sýningarstjóri og höfundur texta
er Dr. Ynda Gestsson listfræðingur.
Myndlist og Samtökin ’78
Á sýningu „Karammellubréf“ eftir
Örn Karlsson frá árinu 1998.
Dr. Ynda
Gestsson
Sendiráð Þýskalands á Íslandi,
Goethe-stofnun í Kaupmannahöfn
og Reykjavík bókmenntaborg
UNESCO standa þessa dagana fyr-
ir viðburðaröð með þýska rithöf-
undinum og blaðamanninum Anne
Siegel í tilefni 70 ára afmælis komu
þýskra landbúnaðarverkamanna til
Íslands.
Siegel mun segja frá kynnum sín-
um af þýskum konum sem komu
hingað til lands eftir seinni heims-
styrjöldina og hvernig bók hennar
Frauen Fische Fjorde varð til. Við-
burðirnir eru á ensku og öllum opn-
ir og fara fram sem hér segir: Í dag
kl. 16.30 í Bókasafninu á Ísafirði í
Safnahúsinu, 2. júní kl. 15 í Héraðs-
bókasafni á Blönduósi, 4. júní kl. 17
í Orðakaffi í Amtsbókasafninu á
Akureyri, 6. júní kl. 20.30 í gisti-
heimilinu Tungulendingu á Húsa-
vík, 7. júní kl. 17 í Félagsheimilinu
Ásbyrgi á Laugarbakka og 8. júní
kl. 15 í Borgarbókasafni Reykjavík-
ur í Grófinni.
Segir frá kynnum af þýskum konum
Á ferðinni Anne Siegel verður á ferð um landið næstu vikuna og kemur víða við.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s
Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s
Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s
Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fim 6/6 kl. 20:00 21. s Fös 7/6 kl. 20:00 22. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fim 6/6 kl. 20:00 Lokas.
Alltof mikið testósterón
Sýningin sem klikkar (Stóra sviðið)
Lau 1/6 kl. 20:00 aukas.
Aðeins örfáar sýningar.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 2/6 kl. 13:00 Lau 8/6 kl. 13:00
Sun 2/6 kl. 16:00 Lau 8/6 kl. 16:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 31/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Hárið (Stóra sviðið)
Fös 14/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30
Áhugasýning ársins 2019
Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is