Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Page 6
HEIMURINN 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2019 Fyrsti atvinnumaðurinn í knatt- spyrnu sem gekkst opinberlega við samkynhneigð sinni var Englendingurinn Justin Fashanu árið 1990. Orðrómur um sam- kynhneigð Fashanus hafði verið á kreiki lengi en hann staðfesti hann loksins í samtali við götu- blaðið The Sun í október 1990. Þar hélt Fashanu því meðal annars fram að hann hefði hald- ið við giftan þingmann breska Íhaldsflokksins sem hann hitti á hommabar í Lundúnum. „Við enduðum saman uppi í rúmi í íbúð hans,“ sagði Fashanu. Málið vakti mikla at- hygli og hneykslan. Viku síðar birti blaðið The Voice viðtal við bróður Fashanus, John, sem einnig var frægur knatt- spyrnumaður, undir fyrir- sögninni: Hinn samkynhneigði bróðir minn er hornreka. Sumarið 1991 fjallaði tímaritið Gay Times ítarlega um mál Fashanus, þar sem fram kom að vangaveltur um náin kynni af þingmönnum, knattspyrnu- mönnum og poppstjörnum væru að mestu byggðar á sandi. Þar kom líka fram að Fashanu hefði efnast töluvert á upp- ljóstrun sinni en þó hefðu hon- um staðið mun hærri fúlgur til boða fyrir að vera um kyrrt í skápnum. Í viðtalinu viður- kenndi Fashanu að hann hefði ekki verið búinn und- ir bakslagið sem kom í knattspyrnuferil hans en ekkert félag vildi af hon- um vita fyrst eftir að hann ljóstraði upp um kyn- hneigð sína. Fashanu átti mjög erfitt upp- dráttar eftir þetta og svipti sig lífi árið 1998 eftir að ungur piltur sakaði hann um kynferðislega áreitni. SÁ FYRSTI SEM KOM ÚT ÚR SKÁPNUM Féll fyrir eigin hendi Justin Fashanu Í gegnum allan minn feril í A-deildinni og í knattspyrnu hef égaldrei þekkt, hitt eða talað við knattspyrnumann hér í Ástralíu sem hefur viðurkennt opinberlega að hann væri samkynhneigður. Á heimsvísu er það með ólíkindum hversu fáir knattspyrnumenn hafa komið út úr skápnum meðan á ferli þeirra hefur staðið.“ Þetta segir Andy Brennan, 26 ára gamall ástralskur knattspyrnumað- ur, í grein sem upphaflega birtist á vef áströlsku leikmannasamtakanna á dögunum og fjölmargir fjölmiðlar hafa tekið upp og vitnað til. Árið 2019 ætti það ekki að vera neitt tiltökumál fyrir ungan mann að gangast opinberlega við kynhneigð sinni; nema þá helst ef hann leikur knattspyrnu. Af einhverjum ástæð- um, eins og Brennan bendir á hér að ofan, eru karlkyns knattspyrnu- menn „ekki samkynhneigðir“. Sem er auðvitað tölfræðilega fráleitt, þegar horft er til þess hvílíkur fjöldi leggur stund á íþróttina á heimsvísu. Þeir þora bara ekki út úr skápnum; væntanlega af ótta við að verða illa tekið. Einmitt þess vegna er Brenn- an að stíga hér risastórt skref. Í greininni viðurkennir Brennan að hann hafi lengi leyft sér að efast um kynhneigð sína, talið sér trú um að það væri bara vitleysa að hann væri samkynhneigður, sem hann hefði mögulega ekki gert starfaði hann við eitthvað annað en knattspyrnu. „Þegar ég var hjá Newcastle Jets [sem leikur í efstu deild í Ástralíu] vildi ég ekki gang- ast við kynhneigð minni. Á þeim tíma var ég alfarið með hugann við fótboltann og að standa mig eins vel og ég mögulega gat enda þótt ég glímdi á köflum við meiðsli. Ég lagði allt mitt í leikinn og ýtti öðru til hliðar,“ segir Brennan. Vildi ekki lifa í lygi Hann segir það hafa tekið tíma að átta sig á því að hann gæti ekki lifað í lygi; að hann vildi vera sáttur við sjálfan sig. „Á einhverjum tíma- punkti verður maður að gera sér grein fyrir kenndum sínum og vera sá sem maður er. Þetta er undarleg tilfinning, en þegar allt kemur til alls er ég líklega sá sem er að fella múr- inn hérna í Ástralíu. Það hljóta að vera fleiri samkynhneigðir knatt- spyrnumenn þarna úti.“ Brennan áréttar þó að hann sé ekki að taka skrefið fyrir neinn nema sjálfan sig; þetta sé það eina rétta. Eigi að síður er hann ekki í nokkrum vafa um að til séu menn sem hafi lifað með því sama og hann. „Ef þeir eru í íþróttum og geta ekki verið þeir sjálfir, hvort sem þeir eru atvinnu- eða áhugamenn, getur það verið mikil áskorun.“ Hann vonar að fordæmið skipti sköpum enda sé mikilvægt fyrir aðra sem eru í sömu stöðu og hann að geta horft til einhvers sem hafi stigið skrefið til fulls og komið út úr skápn- um. „Hafandi sagt það þá er ég ekki að hvetja nokkurn mann til að koma út. Ég myndi vissulega fagna því en menn verða eigi að síður að gera það á sínum eigin forsendum. Ekkert ferðalag er eins. Gerðu það sem þú vilt, gerðu það sem þér líður vel með, vegna þess að það er ekkert sem heitir rétt eða röng leið. Líti fólk á mína sögu sem hvatningu, sem dæmi um það hvernig allt getur farið vel, og geri þó ekki væri nema einni manneskju grein fyrir tilfinningum sínum, getur það skipt höfuðmáli. Það er alltaf betra en að byrgja þetta inni eins lengi og ég gerði.“ Löngu ferðalagi er loksins lokið hjá Andy Brennan en hann viður- kennir í greininni að hafa velt þess- um hlutum fyrir sér mestallt sitt líf og sérstaklega eftir að hann varð fullorðinn. Nú er hann kominn á endastöð og segir tilfinninguna, að geta sagt hverjum sem er að hann sé samkynhneigður, ótrúlega góða. Mest virðist hræðsla hans hafa hverfst um það hvernig aðrir tækju þessum tíðindum. Innst inni var hann sannfærður um að hans nánustu kæmu til með að bregðast vel við en hann gat ekki verið viss. Þegar á reyndi tóku fjölskylda og vinir honum opnum örmum. Hitt var ennþá erfiðara, að koma út gagnvart knattspyrnufélaginu, samherjunum og stuðningsmönn- unum. Það gekk að sama skapi von- um framar. Hann segir alla hjá Green Gully, þar sem hann leikur, hafa tekið sér vel og hefur enga ástæðu til að ætla að annað hefði gerst hjá fyrri félögum. „Mér gæti ekki liðið betur!“ Sparkaði upp skáphurðinni Það vakti mikla athygli á dögunum þegar ástralski knattspyrnumaðurinn Andy Brennan kom út úr skápnum enda eru samkynhneigðir knattspyrnu- menn ótrúlega fáir. Alltént opinberlega. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Andy Brennan hefur hlotið mikið lof fyrir frumkvæði sitt og hugrekki. Nú er að sjá hvort fleiri knattspyrnumenn koma í kjölfarið. Brennan segir sér hafa verið vel tekið bæði af fjölskyldu og vinum og ekki síður félögum í knattspyrnunni. Sky Sports Af einhverjum ástæðum hefur það reynst samkynhneigðum knattspyrnu- mönnum þrautin þyngri að gangast opinberlega við kynhneigð sinni. AFP Falleg og vönduð silkiblóm Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 LISTHÚSINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.