Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Blaðsíða 10
Ég greindist með krabbamein íblöðruhálskirtli í ágúst í fyrraog svo byrjaði boltinn að rúlla og ég fór í aðgerð 17. janúar,“ segir Bjarni Guðmundsson, 58 ára gamall verkefnastjóri hjá Jarðborunum. Bjarni segist hafa farið til læknis upp- haflega vegna þess að honum fannst hann þurfa fulloft á salerni. „Ég hélt jafnvel að þetta væru bara einhverjar bólgur en sem betur fer tók heim- ilislæknirinn vel á þessu og þreifaði og fann bólgur við blöðruhálskirtil og vildi blóðprufur. Eftir það sendi hann mig til sérfræðings og hann þreifaði, tók blóðprufur og sendi mig svo í myndatöku. Á myndum sáust skuggar sem bentu til krabba. Því næst voru tekin um tíu sýni og kom í ljós án vafa að þetta væri krabbamein,“ segir Bjarni og útskýrir að sér hafi aldrei dottið í hug að hann gæti verið með krabbamein. Hann fékk að vonum áfall þegar læknirinn sýndi honum dökku skuggana á myndinni og sagði honum fréttirnar. „Ég var sleginn. Ég man nánast ekkert eftir þessum degi eftir að hann sagði þetta við mig. Konan mín hafði spurt hvort hún ætti að koma með mér til læknisins en ég taldi það ekki nauðsynlegt. Eftir á sá ég mikið eftir því að hafa ekki haft hana hjá mér. Ég man bara að hann sagði mér að þetta væri krabbi og eftir það fór ég í einhvers konar tómarúm.“ Lifi í voninni Krabbamein í blöðruhálskirtli er með- höndlað á ýmsan hátt og fékk Bjarni sjálfur að velja hvort hann vildi geisla eða aðgerð. „Læknarnir sögðu þetta vera í mín- um höndum og það fannst mér dálítið erfitt. Ég þurfti að velja á milli geisla og aðgerðar og hvað ef ég myndi ekki velja rétt? Þetta var erfið ákvörðun en við ákváðum að við skurðinn myndi ég losna alveg við þetta. Aðgerðin gekk vel og allt kom vel út úr fyrstu blóðprufum; ég er hreinn. En þessu fylgja aukakvillar sem ég er að fást við í dag en er að vona að ég fái bata. Ég bjóst ekki við þessum kvillum, þvagleka og risvandamáli. En ég lifi ennþá í voninni því mér er sagt að stundum taki þetta ár eða meira að batna,“ segir hann. Bjarni var frá vinnu hátt í þrjá mánuði og fær nú leyfi frá vinnu ef hann þarf að sinna læknaheimsóknum eða endurhæfingu í Ljósinu. Hann segir aðgerðina hafa tekið frá honum mikla orku sem enn sé ekki komin til baka. Einnig er alltaf hætta á að krabbinn banki upp á annars staðar og er því Bjarni í stöðugu eftirliti. „Ég á tíma núna í júní og þá fer kvíð- inn að láta á sér kræla. Maður hugsar alltaf; hvernig verður næsta blóð- prufa?“ Gríðarleg hjálp „Ég er ekki feiminn að tala um þetta en auðvitað tekur það alltaf á. Ég hef líka reynt að forðast að detta í það að tala of mikið um þetta; velta mér of mikið upp úr þessu. Ég reyni bara að lifa lífinu eins vel og ég get og njóta þess,“ segir Bjarni sem segist hafa rætt málið við vini sína og ráðlagt þeim að fara í skoðun. Veit hann að nokkrir þeirra létu af því verða. Bjarni ákvað strax að þiggja alla þá aðstoð sem í boði væri og leitaði til Ljóssins strax að aðgerð lokinni. „Ég hef stundað það þónokkuð og nýtt mér það sem er boðið upp á þar. Það hefur hjálpað mér alveg gríðarlega mikið,“ segir Bjarni. Hann hittir fast- an hóp karlmanna í hádeginu á föstu- dögum og eins hefur hann sótt ýmis námskeið sem þar eru í boði. Til að mynda hefur hann sótt námskeið í nú- vitund og annað sem nefnist Karlar með krabba. „Þarna koma bæði sál- fræðingar og læknar og eins karlar sem hafa fengið krabba sem lýsa því sem þeir hafa gengið í gegnum. Svo hef ég farið á miðvikudögum í flugu- hnýtingar til að dreifa huganum. Mér finnst oft gott að mæta þangað, fá mér hádegismat, skoða blöðin og vera innan um fólkið sem þangað mætir. Þetta er frábær stuðningsstaður og rosalega vel tekið á móti manni,“ seg- ir Bjarni og segist strax hafa fengið ítarlegar upplýsingar um allt sem er í boði hjá Ljósinu. Í karlahópnum sem Bjarni tilheyrir eru um tuttugu karlar. „Þar er farið hringinn, menn kynna sig og segja frá sér. Svo er lögð fyrir okkur spurning vikunnar sem menn geta íhugað. Síð- asta föstudag var spurt: hvað gætir þú gert í dag til að gera morgundag- inn betri. Þetta stuðlar að jákvæðni og betri líðan.“ Eins og góð strætóstöð Húsakostur Ljóssins á Langholtsvegi er orðinn of lítill fyrir alla starfsemina sem þar fer fram. Til stendur að flytja annað hús á lóð við hliðina en slíkt er kostnaðarsamt og stendur Ljósið nú fyrir söfnun svo það geti orðið að veruleika. Bjóða þeir landsmönnum að gerast Ljósavinir en hægt er að skrá sig á ljosid.is og leggja málefninu lið. Bjarni segir augljóst að brýn þörf sé á stærra húsnæði. „Þetta er ansi góð strætóstöð oft á tíðum; ég veit að þarna fara í gegn oft hundrað manns á dag,“ segir Bjarni og nefnir að þarna sé verið að leira, mála, tálga, skera út og eins er þarna jóga, lík- amsrækt og ýmis námskeið svo eitt- hvað sé nefnt. „Börnin mín hafa líka sótt námskeið hjá Ljósinu en það er boðið upp á námskeið fyrir aðstandendur. Þeim fannst það mjög hjálplegt. Það er líka verið að hlúa að þeim,“ segir hann. „Þessi staður ætti að vera á föstum fjárlögum því það hlýtur að vera erfitt að þurfa alltaf að leita eftir fé. Ef fólk fer í hjartaaðgerð er það sent í end- urhæfingu á Reykjalund en ef maður greinist með krabba er ekkert gert ráð fyrir endurhæfingu, þrátt fyrir að það sé vitað að maður missi mikla orku. Manni veitir ekki af að fá ein- hverja aðstoð til þess að koma sér aft- ur af stað. Ég finn það enn í dag að það vantar upp á orkuna. Ég veit ekki hvernig ég hefði farið í gegnum þetta án þess að hafa Ljósið. Þetta er meiri- háttar staður. Ég vona að mín saga geti hjálpað einhverjum að taka skref- ið til að leita til Ljóssins.“ „Man nánast ekkert frá þessum degi“ Morgunblaðið/Ásdís Bjarni Guðmundsson greindist með krabbamein í ágúst í fyrra og fór í aðgerð í janúar. Hann fór að sækja styrk til Ljóssins sem hann segir nauðsynlegan griðastað fyrir fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þar hittir Bjarni aðra sem standa í sömu sporum, sækir námskeið og lyftir andanum. Hann hvetur landsmenn til að leggja Ljósinu lið til að halda starfseminni gangandi. Hann hefði ekki viljað fara á mis við stuðninginn sem hann fær hjá Ljósinu. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Bjarni Guðmundsson, sem greindist með krabbamein í fyrra, hefur leitað mikið til Ljóssins og segir það hafa hjálp- að sér alveg gríðarlega mikið. VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2019 Ljósið var stofnað árið 2005 þar sem mikil þörf var á endurhæfingarúrræði fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Síðan þá hefur starfsemin vaxið gíf- urlega og heilbrigðiskerfið orðið meðvitaðra um að end- urhæfing við krabbameins- greiningu er nauðsynleg. Ljósið er eina sérhæfða endurhæfingar- miðstöðin á Íslandi sem sinnir þessum mála- flokki og sinnti Ljósið að meðaltali um 420 manns í hverjum mánuði árið 2018. „Stjórnendur hafa frá upphafi þurft að hafa mikið fyrir að reka starfsemina og fjárhagur af skornum skammti,“ segir Sólveig Kolbrún Páls- dóttir, markaðs- og kynningarstjóri. Hún segir að þau hafi þrátt fyrir það gert sitt besta til að sinna þeim sem þurfa á endurhæfingu að halda. Sólveig segir endurhæfingu skipta gríð- arlegu máli til að koma krabbameins- greindum aftur út í lífið og til þess að há- marka lífsgæði meðan á þessum erfiða tíma stendur. Eitt af verkefnum Ljóssins er að stækka hús- næðið og segir Sólveig að málið sé brýnt. „Þrátt fyrir stækkun með flottu framtaki Odd- fellowreglunnar árið 2015, eru þrengsli orðin mikil. Við höfum mætt þessu ástandi með því að festa okkur flytjanlegt hús, 243 fm að stærð, sem flutt verður á lóðina við hliðina á okkur eða á Langholtsveg 47 og verður það hrein við- bót við það húsnæði sem fyrir er. Ljósið þarf að bera kostnað af þessu sjálft,“ segir hún. „Af þessum sökum er Ljósið að fara af stað með herferðina „Ljósavinur“ til að geta sinnt öllum þeim fjölda sem þarf á þjónustunni að halda. Við viljum ná til þjóðarinnar allrar og fá þá fólk til liðs við okkur með því að gerast mán- aðarlegir Ljósavinir og styðja þannig við starf- semina sem þarf að stærstum hluta að reiða sig á styrki frá velunnurum,“ segir Sólveig. Markmið herferðarinnar er að safna 2.000 mánaðarlegum Ljósavinum og er hægt að leggja málefninu lið á ljosid.is. LJÓSIÐ 2.000 Ljósavini vantar Sólveig Kolbrún Pálsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.