Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Qupperneq 17
ólst upp í mjög hægrisinnaðri fjölskyldu,“ þá hefði henni brugðið og kannski spurt, því hún er töff: „Fylgdu þessir öfgahægrimenn Hitler eða Mussolini?“ Eins og þeir sem fylgjast með „RÚV“ vita glöggt er ekkert til sem heitir vinstriöfgar. Það er aldrei nefnt. Allir vita hvernig enn er fjallað af rétttrúnaðinum um Gunnar Gunnarsson af því að hann hefði hitt Hitler í korter en þó ekki haft sig í frammi fyrir framgangi nasisma hér né skrifað bækur honum til dýrðar. Annar frábær rithöfundur, Halldór Laxness, var hins vegar slyngasti baráttumaður fyrir kommúnisma á Íslandi árum og áratugum saman, og án hans hefðu margir hérlendis vafalítið sloppið við að festast í því neti. Það var lakara að hann skyldi halda þessu striki sínu svo löngu eftir að honum varð ljóst að með því varð hann samverkamaður mannvonsku sem er með því versta sem veröldin þekkir. Vafalaust er að Halldór sá eftir þessum kafla lífs síns síðar og Íslendingar láta ekki þennan svarta blett fæla sig frá að njóta verka hans, enda hafa þeir lengi verið veikir fyrir snillingum. Loksins Af erlendum molum skal það fyrst nefnt að Theresa May var upplýst um það í vikunni að nú væri þetta bú- ið. Í gær sigldu svo viðræður hennar við Jeremy Cor- byn í strand, en áttaviti hans hafði frá upphafi miðast við þann endapunkt. Í Kanada er Trudeau forsætisráðherra og forsætis- ráðherrasonur í vaxandi vandræðum. Trudeau naut mikilla vinsælda frá fyrstu stundu. Hann er „mjúkur“ stjórnmálamaður. Jafnvel svo mjúkur að hann er við endimörk hugtaksins. Nefna má nokkur atriði sem urðu til þess að Kanada- menn eru margir komnir með upp í kok af allri þessari mýkt. Þau hjón fóru í opinbera heimsókn til Indlands og þá lét forsætisráðherra eins og hann væri kominn í sirkus og ætti að apa eftir einhverju sem hann hélt að væru látalæti. Það fór ekki vel í gestgjafana, þá merku og miklu þjóð. En ekki þótti heimamönnum betra að fylgjast með fíflaganginum á skerminum. Næst voru það samningarnir um Nafta, á milli Bandaríkjanna, Mexíkó og Kanada, eftir leiðtogafund í Kanada þar sem þeir nágrannarnir áttu einnig sinn fund þar sem hnífurinn komst ekki á milli þeirra. Trud- eau hélt svo blaðamannafund þar sem hann virtist segja frá allt öðrum fundi. Hann gerði ráð fyrir því að Trump forseti gerði ekki athugasemdir og myndi, sem stjórnmálamaður, skilja að látalætin væru fyrir heima- markað. Vandinn var sá, og Trump hefur ekki leynt því, að hann Trump er ekki „venjulegur“ stjórn- málamaður. Hann brást strax við og sagði að Trudeau væri ekki að lýsa þeirra fundi. Og Trump fylgdi þessu eftir. Hann tilkynnti að forseti Bandaríkjanna og for- seti Mexíkó myndu gera þennan þriggja landa samn- ing. Hins vegar væri ekki útilokað að Trudeau fengi að undrrita samninginn fyrir Kanada þegar hann væri frágenginn af hinum tveimur. Svo kom fjórða atriðið. Trudeau kom þeim skila- boðum til dómsmálaráðherra síns, sem jafnframt var helsti handhafi ákæruvaldsins, að ekki ætti að ákæra forsvarsmann byggingarfyrirtækis fyrir mútur, því það gæti þrengt að störfum í því fyrirtæki. Ástæðan var þó önnur. Þegar konan sem starfanum gegndi reyndist treg í taumi var henni hótað stöðulækkun og jafnvel stöðumissi. Hún sagði þá af sér og á daginn kom að hún hafði haft vit á því að tryggja sér sönn- unargögn gagnvart þessari „ómjúku“ framgöngu. Þetta mál hefur reynst mjög skaðlegt. Í styrjöld við Duterte Eins og öllum má vera ljóst er svo almjúkur maður einnig í hópi einlægustu umhverfiselskenda. Eins og sumir umhverfisvinir aðrir hafði Trudeau lengi vitað að meginmálið væri að koma sóðaskapnum úr augsýn og það þótt þyrfti að borga fyrir það. Því höfðu miklir farmar af óþverra verið sendir um hálfan hnöttinn til Filippseyja. En þegar tilgangurinn er svona göfugur fylgir slíkum siglingum engin mengun. Duterte forseti er, eins og sumir aðrir forsetar, dálítið óvenjulegur. Hann borgar mönnum fyrir að drepa skæruliða og seg- ist raunar skjóta þá á færi sjálfur. Þegar svona ofsalega mjúkur maður eins og Trudeau átti leið um þessar slóðir taldi hann sér nauðsynlegt að setja ofan í við Duterte vegna mannréttindamála svo hann sjálfur slyppi í gegnum blaðamannafund heima. Duterte var ekki skemmt, eins og sést á því að hann hótaði að segja Kanada stríð á hendur. Trudeau hafði gengið út frá því að allir vissu að ekkert væri meint með svona muldri. En þótt margt megi segja um Dut- erte þá er hann ekki nærri eins mjúkur og Trudeau. Látum þetta vera með stríðsyfirlýsinguna. En þegar Duterte fór að tala um ruslið sem Trudeau væri að drekkja fátæku fólki á Filippseyjum í og heimtaði að hann sækti það aftur versnaði málið verulega. Því þótt menn séu mjúkir vilja þeir síður vera sakaðir um að drekkja fátæku fólki í fjarlægu ríki í rusli allsnægta- fólks. Af öllum þessum ástæðum er Trudeau í dálitlum vandræðum enda ekki gamall fimleikamaður eins og pabbi var, þótt mjúkur sé. Það hjálpar ekki að Kan- adamenn voru einnig farnir að taka eftir að út úr for- sætisráðherranum komu stundum frasar sem hljóm- uðu ekki illa en ef staðnæmst var við þá sást að þetta var hrein merkingarleysa. Mjúkur íslenskur stjórnmálamaður, Dagur B., sagði í þessari viku að það væri „uppsöfnuð þörf fyrir þró- un“. Svona setningu myndi Trudeau öfunda hann af. Gamli Churchill var oftast mjúkur líka, en það er allt annað mál. Og það valt ekki upp úr honum merkingarleysa hversu mjúkur sem hann var. Skál fyrir honum. Morgunblaðið/RAX 19.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.