Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2019 LÍFSSTÍLL Fyrir lofthrædda, bílveika ogrússíbanafælna móður á fertugsaldri eru skemmti- garðar ekki endilega draumaáfanga- staðir í fríinu. En hvað gerir maður ekki fyrir börnin? Átta manna hópur, fjórir fullorðnir og fjögur börn, ákvað í sinni fyrstu Flórídaferð að fjárfesta í tveggja daga miðum í Universal-garðinn. Reyndar er ekki rétt að tala um Uni- versal í eintölu, því þetta eru í raun tveir garðar. Við keyptum miða í garðana tvo sem tengdir eru saman með lest – Hogwarts-lestinni. Það var góð ákvörðun að taka tveggja daga passa, minna stress þegar þarf ekki að „klára“ að fara í öll helstu tæki á einum degi. Garðarnir heita Universal Studios og Islands of Adventure og það þarf að vera með sérstakan tveggja garða miða til að komast í þá báða. Reyndar líka hægt að kaupa þriggja garða passa og fara þá í vatnsrennibrautar- garðinn Volcano Bay, en við sleppt- um honum. Harry Potter alltumlykjandi Universal hefur passað vandlega uppá að aðdráttarafl Harry Potters nýtist báðum skemmtigörðum því hlutar galdraveraldarinnar eru í hvorum garði fyrir sig. Vilji fólk upp- lifa það að ganga eftir strætum Hogs- meade líkt og þeim er lýst í verkum J.K. Rowling en líka heimsækja Ská- stræti (e. Diagon Alley) og sjá drek- ann á toppi Gringott-banka spúa eldi (í alvöru) af þakinu dugar því ekki að kaupa miða í annan garðinn. Í grunninn er væntanlega sama hugmyndin á bak við alla skemmti- garða – að skemmta fólki. Universal tekur þessa hugmynd inn í aðra vídd því hvert einasta tæki er ákveðin upplifun. Hvert tæki hefur sitt ákveðna þema sem er tengt t.d. kvik- mynd, teiknimyndafígúrum eða skálduðum persónum. Þarna er til dæmis að finna The Mummy-rússí- bana (sem ég lét mig hafa en var þó heldur mikið af hinu góða), Simp- sons-reið (e. ride), Hulk-rússíbana, Harry Potter-rússíbana, Spiderman upplifun í þrívídd og svo mætti lengi telja. Fyrir fólk sem fær ekkert nema ógleði út úr því að fara í hraðskreið tæki þá er E.T. reiðin tilvalin. Þar er hægt að lifa sig inn í söguna, fá skila- boð frá Steven Spielberg og láta eins og maður sé í miðri kvikmynd með því að svífa yfir sögusviðið á nokkurs konar reiðhjóli. Enginn rússíbani, heldur bara þægileg ferð. Harry Potter-svæðin í görðunum tveimur eru stórbrotin, ekki bara vegna þess að þar líður fólki sem það stígi inn í galdraveröldina heldur ekki síst fyrir mannlífið. Þar má sjá gesti í fullum skrúða; galdraskikkjum og með sprotann á lofti. Víða er líka hægt að stoppa og sveifla galdra- sprota. Þá t.d. kvikna ljós í gluggum, fígúrur fara að syngja, vatn skýst úr gosbrunni og fleira. Allt útbúið með hreyfiskynjurum sem virkjast þegar sprota er sveiflað á réttum stað. Það er ekki annað hægt en að bera virðingu fyrir ástríðunni sem ein- kennir einlæga Harry Potter-aðdá- endur. Að vera í síðri, svartri skikkju í 30 stiga hita og steikjandi sól er alvöru! Í það minnsta hefði ég ekki treyst mér til þess, valdi þess í stað hefðbundnari Flórída-klæðnað: stutt- buxur, bandaskó og hlýrabol. Samt var kærkomið að kæla sig í Stjána bláa bátsferðinni þar sem óhjákvæmi- legt var að blotna frá toppi til táar. Heimur kvikmynda er svo óendan- lega umfangsmikill og ferð í Univer- sal sýnir vel hvernig góðar bíómynd- ir, teiknimyndir, sjónvarpsþættir eða bara eftirminnilegar skáldaðar per- sónur geta átt eilíft framhaldslíf. Í Universal má víða sjá börn og fullorðna í fullum galdramannaskrúða. Heitustu Harry Potter-aðdáendur láta steikjandi Flórída-hita ekki stoppa sig í að klæð- ast skósíðri galdraskikkju og trefli af sinni uppáhalds heimavist í Hogwarts. Universal Studios Græni Hulk-rússíbaninn er ægilega stór. Þau hugrökkustu úr hópnum fóru margar ferðir en ég lét mér nægja að horfa á og hlusta á æsingsöskrin. Universal Studios Það þyrfti einbeittan vilja til að láta sér leiðast í Universal í Orlando. Universal Studios Í undraveröld Universal Skemmtigarður er orð sem vart dugir til að lýsa Universal í Orlando. Undraveröld eða töfraheimur nær betur utan um þennan gríðarstóra garð þar sem öll áhersla er á stórkostlega upplifun gesta. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Orlando-svæðið er svo pakkað af afþreyingu að maður gæti upplifað flugeldasýningu (bók- staflega) dag hvern. Skemmti- garðar af öllum stærðum og gerðum lúra meðfram hrað- brautunum og þess vegna er svo kærkomið að finna líka eitthvað lágstemmt að gera sem allir njóta. Bláberjatínsla hjá Late Bloom Blueberry Farm (lbbfarm.com) var til dæmis al- veg sérstök upplifun. Allir fengu fötur til að hengja framan á sig og gátu staðið við bláberjarunna sem náðu um eða yfir metra á hæð og tínt dýrindis bláber. Af sama toga var upplifunin af CaptainFred’s Airboat Nature Tours (www.captfreds.com). Þar kynntumst við krókódílum í ná- vígi og fuglalífinu í fenjunum. Það er alltaf gott að tengjast náttúrunni á ferðalögum, líka í mekka afþreyingarferða- mennskunnar í Flórídaríki. FLEIRA SKEMMTILEGT Í NÁGRENNI ORLANDO Jafnt yngstu og elstu í hópnum nutu sín við að tína ber í hitanum. Ljósmynd/Úr einkasafni Bláber og krókódílar Vantar þig fagmann? Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.