Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2019
LÍFSSTÍLL
Colorbox
Gott með
grillmat
Vorið er komið og sumarið á næsta leiti. Nú er
tíminn til að drífa fram grillið og grilla kjöt, fisk
og grænmeti. Meðlætið skiptir líka máli en ýmsar
sósur og salöt henta vel með grillmat.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
2 stk. eggaldin
250 g hreinn rjómaostur
½ stk. fetakubbur, mulinn
smátt
2 msk. sýrður rjómi
10 stk. steinlausar döðlur
1 stk. rauður chili, fræhreins-
aður og skorinn smátt
2 stk. vorlaukar
ólífuolía
salt og pipar
klettasalat
Skerið eggaldinið langsum í
sneiðar.
Penslið með ólífuolíu og
grillið við háan hita á báð-
um hliðum þannig að fal-
legar grillrendur komi á
sneiðarnar og þær mýkist.
Leggið sneiðarnar á fat
og leyfið að kólna á meðan
þið gerið fyllinguna.
Hrærið saman rjómaosti,
fetaosti og sýrðum rjóma.
Saxið döðlurnar, chili og
vorlauk smátt og hrærið
saman við.
Smakkið til með salti og
pipar.
Setjið eina matskeið af
fyllingunni á endann á hverri
eggaldinsneið ásamt dálitlu
klettasalati og rúllið upp.
Berið fram með kletta-
salati og stráið rauðum chili
ofan á.
Af gottimatinn.is, höf.:
Helena Gunnarsdóttir
Grillað eggaldin fyllt með
döðlum og rjómaosti
1 bolli hvítlauksrif, um 130 g
1 tsk salt
¼ bolli nýkreistur safi úr 2
sítrónum
¼ bolli ísvatn
3 bollar (600g) canola-olía
Með beittum hníf skerið
hvítlauksrifin í tvennt langs-
um.
Fjarlægið stilkinn innan
úr hvítlauknum.
Setjið hvítlaukinn í mat-
vinnsluvél ásamt saltinu.
Maukið í vélinni en gott
getur verið að stoppa vélina
af og til og ýta hvítlauk sem
situr eftir á hliðum niður á
botn. Maukið þar til orðið
að fínu mauki.
Bætið út í einni matskeið
af sítrónusafa og haldið
áfram að vinna maukið í
vélinni. Bætið þá við ann-
arri matskeið af sítrónusafa
og hrærið þar til alveg slétt
og dálítið loftkennt.
Á meðan vélin vinnur
áfram, hellið varlega í
hægri bunu ½ bolla af olíu
og þar næst 1 matskeið af
sítrónusafa.
Endurtakið þetta með
öðrum ½ bolla af olíu og
einni matskeið af sí-
trónusafa. Haldið áfram að
hella og nú skal skiptast á
að hella ½ bolla olíu og
einni matskeið af vatni þar
til ekkert er eftir. Setjið
sósuna í gott box og geym-
ið í ísskáp í allt að einn
mánuð.
Frábært með grillkjöti og
kebab.
Líbönsk hvítlaukssósa