Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Blaðsíða 28
KVIKMYNDIR Brian May, gítarleikari Queen, sagði í samtali við BBC Radio 2 á dögunum að sveitin hefði enn ekki þénað krónu á kvikmyndinni Bo- hemian Rhapsody, þrátt fyrir ótrúlega vel- gengni hennar. Aðrir sem að myndinni komu gangi fyrir. May lætur sér þetta þó í léttu rúmi liggja enda þykir honum aðalatriðið að myndin hafi verið gerð og að hún hafi orðið jafngóð og raun ber vitni. „Fólk er agndofa yfir því hversu nálægt Rami [Malek] komst Freddie [Mercury]. Það er með ólíkindum hvernig hann komst einhvern veginn inn í líkama Freddies – smaug undir húðina á honum,“ sagði May. Rami eða Freddie? Það er ekki gott að segja. 20th Century Fox Ekki þénað krónu á kvikmyndinni 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2019 LESBÓK Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt LEIKLIST Breska leikkonan Leslie Manville viðurkennir í samtali við dagblaðið The Guardian að hún hafi sjaldan eða aldrei haft úr bitastæðari hlutverkum að velja og að Hollywood hafi loksins uppgötvað hana, 63 ára að aldri. Manville segir sérstaklega ánægjulegt að konur á hennar aldri séu ennþá sýnilegar í kvikmyndum og sjónvarpi enda sé mikilvægt að æska þessa heims haldi ekki að fólk sé sjálfkrafa komið að fótum fram á þessum aldri. „Mig langar að fara út að dansa, svitna og fá mér of mikið neð- an í því og skila mér ekki heim fyrr en þrjú að nóttu. Mig langar að stunda kynlíf, klæða mig eins og mér sýnist og gera það sem mig langar til. Og ég er orðin sextug,“ segir Melville í viðtalinu en hún hefur fengið mikið lof upp á síðkastið fyrir leik sinn í gamanþáttunum Mum. Langar að stunda kynlíf BBC Leslie Manville í hlutverki sínu í Mum. Ward, Butler og Iommi sameinaðir. Gamlir vinir sameinast á ný MÁLMUR Athygli vakti að trym- billinn Bill Ward var með Black Sabbath þegar þessi goðsögulega sveit var heiðruð á Grammy Salute To Music Legends-verðlaununum í Los Angeles á dögunum. Ward, sem er einn af stofnmeðlimum Sabbath, hætti sem kunnugt er í fússi árið 2012 fyrir kveðjutúr bandsins og gaf þá skýringu að hans hlutur hefði einfaldlega verið of rýr. Aðrir hafa þó haldið því fram að hann hafi einfaldlega ekki verið í nógu góðu formi til að túra. Tony Iommi gítarleikari og Geezer Butler bassaleikari voru einnig á hátíðinni en söngvarinn, Ozzy Osbourne, sat hjá enda að jafna sig eftir að hafa hrasað á heimili sínu í skjóli nætur. Doris Mary Ann Kappelhoffætlaði að verða dansari enbílslys sem hún lenti í að- eins fimmtán ára gömul árið 1937 gerði þau áform að engu. Á þeim tíma hélt stúlkan raunar að hún væri aðeins þrettán ára enda stóð hún í þeirri meiningu að hún hefði fæðst 3. apríl 1924. Áratugum síðar, árið 2017, fann AP-fréttastofan fæð- ingarvottorð hennar og þá kom í ljós að hún fæddist í raun 3. apríl 1922. En alltént, til að stytta sér stundir meðan hún var að jafna sig eftir slysið fór stúlkan að syngja með út- varpinu, Benny Goodman, Duke Ell- ington, Glenn Miller og síðast en ekki síst Ellu Fitzgerald. „Gæðin í rödd hennar heilluðu mig,“ sagði hún síðar í endurminningum sínum. Og stúlkunni til ómældrar undrunar var rödd hennar góð; svo góð raunar að hún var drifin í söngtíma, þar sem kennarinn gaf henni þrjá tíma á verði eins vegna hæfileikanna sem í henni bjuggu. Nafnið sótt í dægurlag Hljómsveitarstjórinn Barney Rapp varð fyrstur til að gefa henni tæki- færi árið 1939 og hann gerði gott betur; gaf henni líka sviðsnafnið Doris Day. Honum þótti Kappelhoff alltof stirt og hátíðlegt en stúlkan var af þýsku bergi brotin, í báðar Bjó og dó í næsta húsi Doris Day, ein skærasta söng- og kvikmynda- stjarnan frá 6. og 7. áratugnum, sálaðist í hárri elli í vikunni. Ímynd hennar var alla tíð flekklaus, raunar svo flekklaus að sumum þótt nóg um. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ættir. Day var ekki út í bláinn en Rapp hafði mikið dálæti á túlkun söngkonunnar ungu á slagaranum Day After Day. Day starfaði með ýmsum böndum næstu árin en sló ekki í gegn fyrr en 1945 með laginu Sentimental Jour- ney sem hún hljóðritaði með hljóm- sveit Les Brown. Lagið hitti banda- rísku þjóðina í hjartastað enda beið hún í eftirvæntingu eftir að fá her- mennina sína heim í lok seinna stríðs. Eftir þetta átti Day hvern smellinn af öðrum á vinsældalist- anum vestra. Day ferðaðist vítt og breitt um landið til að koma fram og þótti búa að ósviknum sviðssjarma. Það hringdi bjöllum í Hollywood og árið 1948 var henni boðið hlutverk í kvik- myndinni Romance on the High Seas. Day brá í brún og benti mönn- um í einlægni á að hún hefði enga reynslu af leiklist. Leikstjórinn, Michael Curtiz, kunni að meta hrein- skilnina og þótti Day fullkomin í Doris Day var fjórgift. Fyrsti eig- inmaður hennar var básúnuleik- arinn Al Jorden, frá 1941 til 1943, og með honum eignaðist hún sitt eina barn, soninn Terrence Paul Jorden, árið 1942. Næst giftist hún saxófónleikaranum George Willi- am Weidler og stóð hjónaband þeirra frá 1946 til 1949. Á 29 ára afmælisdaginn sinn gekk Day að eiga kvikmyndaframleiðandann Martin Melcher og voru þau gift þar til hann lést árið 1968. Loks var Day gift yfirþjóninum Barry Comden frá 1976 til 1982 en eftir skilnaðinn var haft eftir honum að Day hefði meiri áhuga á hinum ferfættu vinum sínum en honum. Martin Melcher ættleiddi son Day sem hét upp frá því Terry Melc- her. Hann var um tíma farsæll tónlistarútgefandi og líklega frægastur fyrir að hafa ætlað að gefa út tónlist Charles Mansons. Upp úr því samstarfi slitnaði og sumir halda því fram að Melcher hafi verið skot- markið þegar Sharon Tate og vinir hennar voru myrt enda leigðu þau Roman Polanski húsið af Melcher. Terry Melcher lést árið 2004. Gifti sig fjórum sinnum Doris Day og Martin Melcher, bóndi hennar, á góðri stund.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.