Morgunblaðið - 12.06.2019, Side 18

Morgunblaðið - 12.06.2019, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019 ✝ Baldvin Rún-arsson fæddist á Akureyri 15. jan- úar 1994. Hann lést á heimili sínu 31. maí 2019 eftir rúmlega fimm ára baráttu við krabbamein. Foreldrar Bald- vins eru Ragnheið- ur Jakobsdóttir framkvæmdastjóri, f. 28.10. 1968, og Rúnar Her- mannsson vélfræðingur, f. 17.6. 1968. Bróðir Baldvins er Her- mann Helgi, f. 2.8. 2000. For- eldrar Ragnheiðar eru Jakob Kristinsson, f. 15.3. 1945, d. 29.6. 2010, og Jóhanna Marí- Bandaríkjunum og í Esbjerg Business Academy í Dan- mörku, en þurfti frá að hverfa heim til Íslands úr báðum skólum vegna veikinda sinna. Baldvin var mikill áhuga- maður um fótbolta og harður Þórsari. Hann spilaði fótbolta með Þór Akureyri frá sjö ára aldri til tvítugs. Baldvin spil- aði knattspyrnu með Magna Grenivík hluta úr sumri 2014. Allt frá unglingsárum til mars 2019 þjálfaði hann yngri flokka Þórs í knattspyrnu. Baldvin var mikill fé- lagsmaður og vann mikið og óeigingjarnt sjálfboðastarf fyrir félagið allt fram til síð- asta dags. Útför Baldvins fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. júní 2019, klukkan 13.30. anna Antonsdóttir, f. 30.4. 1946. For- eldrar Rúnars eru Hermann Jónsson, f. 17.10. 1939, og Helga Hilmars- dóttir, f. 3.11. 1948, d. 19.1. 2000. Baldvin hóf skólagöngu sína í Oddeyrarskóla á Akureyri fyrstu þrjú skólaárin og flutti síðan yfir Glerána og var í Glerárskóla frá 2003 til 2010. Baldvin lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 2014. Baldvin stundaði háskólanám í Auburn Univers- ity of Montgomery í Alabama í Elsku besti Baldvin okkar hefur farið í ferðalagið langa sem bíður okkar allra, allt of snemma. Það er svo óraunveru- legt að eiga ekki eftir að heyra fallegu ljúfu röddina hans aftur og fá knús frá honum. Mottóin hans lífinu voru ein- föld „Gerðu það sem þér þykir skemmtilegt sama hvað öðrum finnst“ og „stressaðu þig ekki á hlutum sem þú færð engu um ráðið“. Með þetta að leiðarljósi voru uppátækin mörg og sum þeirra fengu okkur foreldrana til að svitna, en í dag eru skemmti- legar minningar. Veikindin sem poppuðu upp hjá honum fyrir rúmlega fimm árum, þá á fjórða ári í mennta- skóla, lét hann ekki stoppa sig, kallaði þau smá hraðahindrun. Hann tæklaði þau á einstakan hátt, vildi enga vorkunn og ætl- aði ekki að láta þau marka líf sitt. Þetta tókst honum á ein- stakan hátt með miklu æðru- leysi og hélt gleðinni áfram í líf- inu. Litla fjölskyldan, mamman með strákana sína þrjá, höfum verið samheldin og dugleg að vera saman og þakklát fyrir hverja mínútu. Ferðirnar okkar núna síðustu ár, Malta, London, siglingin um Karíbahafið, New York, EM í París, Rostov í Rússlandi og Þjóðhátíð í Eyj- um, eru svo dýrmætar í minn- ingabankanum okkar. Takk Baldvin fyrir að vera þú, ákveðinn, ljúfur, skemmti- legur, hvatvís, kurteis, hug- rakkur, æðrulaus, hreinskilinn og svona getum við endalaust talið upp. Takk fyrir komuna, elsku besti Baldvin okkar. Mamma og pabbi. Það er sárt að horfa á eftir stóra bróður og mínum besta vini. Baldvin kenndi mér gríðar- lega mikið á þessari stuttu lífs- leið okkar saman. Hann kenndi mér allra helst hvernig ég ætti að haga mér, koma fram og spila fótbolta. Að minni eigin sögn tókst honum ágætlega til með að kenna mér þessa hluti. Baldvin nefndi það nefnilega oft að mamma og pabbi hefðu ekki al- ið mig upp, heldur hann sjálfur. Að hugsa til þess að ég muni aldrei sjá Baldvin aftur er óend- anlega sárt. Glottið þegar hann var að atast í mér, hláturinn hans, skilaboðin frá honum eftir hvern einasta leik hjá mér og pirringssvipurinn hans þegar ég loksins náði að vinna hann, er nokkuð sem ég mun sakna og hugsa til á hverjum degi. Takk fyrir allt Baldvin, ég sakna þín. Þú ert fyrirmyndin mín. Hermann Helgi. Elsku Baldvin okkar kvaddi þennan heim 31. maí síðastlið- inn eftir erfiða baráttu við krabbamein í faðmi fjölskyld- unnar. Minningarnar hafa farið í gegnum huga okkar síðustu daga og við höfum hlegið og grátið þegar við hugsum til Baldvins og samverustunda okkar. Baldvin hefur kennt okkur margt þrátt fyrir ungan aldur sem við munum aldrei gleyma. Jákvæðni var eitt að því sem einkenndi Baldvin og þegar hann var spurður „hvernig hef- ur þú það?“, fengum við alltaf svarið „ ég hef það fínt, en þú?“ þó við vissum það var ekki allt- af þannig. Baldvin lét veikindin aldrei einkenna sig og mætti hann þeim með æðruleysi og já- kvæðni. Baldvin lifði lífinu til fulls og gerði það sem veitti honum hamingju. Baldvin var ófeiminn að fara óhefðbundnar leiðir í lífinu sem leiddu hann í ýmis ævintýri, ferðalög og upp- lifanir. Fjölskylda okkar er mjög samheldin og fjölskyldu- boðin verða aldrei eins og áður án hans. Það er Baldvini að þakka að við fjölskyldan fórum saman í hans síðustu utanlands ferð til Tenerife núna á þessu ári. Baldvin bar mikla umhyggju fyrir öðrum og var alltaf þakk- látur fram á síðasta dag. Þakk- lætið lýsti sér vel því hann þakkaði alltaf öllum fyrir kom- una. Það var alltaf mikil gleði og húmor í kringum hann sem smitaði út frá sér til fjölskyldu og vina. Frá unga aldri hafði hann mikinn áhuga á fótbolta og lagði sig allan fram fyrir fé- lagið sitt Þór, bæði innan sem og utan vallar. Hann lagði mikið upp úr fótboltanum sem varð til þess að fótboltaáhuginn varð mikill innan fjölskyldunnar. Baldvin var góð fyrirmynd fyrir frændsystkin sín og voru það forréttindi og heiður að hann gat þjálfað hluta af þeim í fót- boltanum. Við erum þakklát fyrir að Baldvin og fjölskyldan hans kynntu okkur félagið Þór og við skiljum núna slagorðið D.F.K. (Deyja fyrir klúbbinn) sem hann gerði alla leið til síð- asta dags. Baldvin var vinamargur og var góður við fjölskyldu og vini en oft var stutt í góðlátlega stríðni. Baldvin og Steinunn, tvö elstu systkinabörnin, voru oft saman í sumarbústaðnum okkar í Hrísey þegar þau voru lítil. Eitt skipti þegar þau voru ein hjá ömmu og afa í Hrísey stendur þetta í dagbókinni 21. júlí árið 2000 : „Steinunn (4 ára) og Baldvin (6 ára) voru góð að leika sér saman, hann stríddi henni lítið og Baldvin svaf einn í herbergi í neðri kojunni. Ég (amma) fór með Baldvini og Steinunni í sund, Baldvin var mjög kaldur í sundi, einum of svo ég hafði nóg að gera með þau bæði.“ Baldvin var einn sterkasti einstaklingur sem við þekkjum en kvaddi þennan heim allt of snemma. Þrátt fyrir illvígan sjúkdóm barðist hann eins og hetja fram á síðasta dag. Sökn- uðurinn er endalaus og enginn kemur í hans stað en við trúum því að ömmur hans og afar hafi tekið vel á móti brosandi stráknum sínum á nýjum stað. Við munum halda minningu þinni á lofti og þökkum þér fyr- ir allar dýrmætu stundirnar saman. Guð geymi þig elsku Baldvin okkar. Jóhanna, Steinunn, Lilja, Anna, Kristinn og fjölskyldur. Elsku Baldvin okkar. Það er erfitt að kveðja. En nú þurfum við að halda áfram án þín. Við erum búnar að þekkja þig síðan þú fæddist, það var eins og að eignast lítinn bróður. Við bjuggum öll á Eyrinni, þú í Sólvöllunum og við í Norðurgöt- unni. Við vorum mjög samrýnd. Við erum þakklátar fyrir allar minningarnar sem við eigum, öll jólin, afmælin, spilakvöldin, gistikvöldin, ferðirnar í sum- arbústaðinn hans afa og ferð- irnar í Hrísey, svo fátt eitt sé nefnt. Oftar en ekki vorum við búin að velja einhverja góða spólu, kaupa nammi eða snakk fyrir gott gistikvöld og það klikkaði ekki að þú varst sofnaður í aug- lýsingunum. Þú varst nú ekki stressaður yfir því. Við fluttum meira að segja sama ár af Eyrinni, þú í Þorpið og við á Brekkuna. Þú varst reyndar svo mikill Þórsari að þú keyrðir ekki á Brekkunni nema með lokaða glugga og skrúfað fyrir miðstöðina. En það breytti engu, tengslin voru alltaf til staðar, sama hversu margar heimsálfur skildu okkur að. Eitt af því sem gerði þig svo einstakan er hversu ákveðinn þú varst. Þú tókst alltaf allt alla leið. Þegar við vorum lítil voru til dæmis alls konar kóktappa- safnanir og við rembdumst við að safna töppum fyrir frisbíd- isk, en á meðan varst þú búinn að leita uppi alla tappa í hverf- inu eða fá Rúnar og Ragnheiði til að kaupa kókbirgðir til næstu ára svo þú gætir fengið fyrsta vinning, hoppuprik! Það var ekta þú, meðalmennska var ekki til í þinni orðabók, aldrei. Það er heldur engin tilviljun hversu margir vildu alltaf vera í kringum þig. Þú varst í mörg- um vinahópum, sannur vinur vina þinna sem treystu á þig og þú á þá. Þegar þú veiktist mátti ekki vorkenna þér, þú hafðir það bara alls ekki slæmt. Þú komst og hjálpaðir til við flutninga í miðri geislameðferð. Þú fórst einn hinum megin á hnöttinn í mánuð til að losna við áhyggjufulla fjölskyldu eftir eina af stóru aðgerðunum. Þú hljópst maraþon. Engin áskor- un var of stór. Við erum búnar að fylgjast með hverju einasta skrefi í bar- áttunni þinni við veikindin síð- ustu ár en aldrei upplifað þig veikan, ekki fyrr en mjög ný- lega. Síðustu mánuðir hafa þar af leiðandi verið mjög erfiðir, en að sama skapi ómetanlegir. Við nýttum tímann vel við að rifja upp góða tíma, skoða gamlar myndir, spjalla og hlæja. Fyrst og fremst vera saman. Það er óendanlega sárt að samverustundirnar verði ekki fleiri, en við trúum því að þér líði vel, hvar sem þú ert og að amma Helga og afi Kobbi taki vel á móti þér. Nú skulum við passa Hermann Helga fyrir þig. Andrea og Helga. Elsku besti vinur. Ég velti því aðeins fyrir mér hvort ég ætti að skrifa þessa minningargrein. Einhvern tím- ann höfum við rætt um til- gangsleysi minningargreina enda varst þú alltaf harður á því að fólk segði hlutina við hvert annað umbúðalaust og augliti til auglitis. Sem betur fer gátum við alltaf átt svoleiðis samskipti um bæði mikilvæg og léttvæg mál. Það var alltaf hægt að leita til þín; þínar ráð- leggingar hjálpuðu mikið og hafa haft mikil áhrif í mínu lífi. Ég veit að þetta gildir um marga fleiri í kringum þig. Það eru ekki til nein orð sem fá því lýst hversu mikið ég sakna þín en samt ætla ég að skrifa þessa grein. Þú varst besti vinur sem hægt er að hugsa sér. Enda varstu vinamargur með ein- dæmum; lagðir alla tíð mikla áherslu á að rækta öll þessi fjöl- mörgu vinatengsl og gerðir það fáranlega vel. Þú gafst þér samt alltaf tíma fyrir fjölskylduna þína og duldist engum hversu stoltur þú varst af þeim Röggu og Rúnna. Svo ekki sé nú minnst á Hermann Helga. Þú varst ekki síður stoltur af hon- um og vildir þú reyndar meina að hann væri bróðurbetrungur í flestöllu. Mína fyrstu minningu af þér tengi ég við 7D. Við áttum það sameiginlegt að 7D var okkar annað heimili á uppvaxtarárun- um. Mig minnir reyndar að ég hafi ekki alveg verið að kaupa snilli þína í fyrstu og um tíma varstu bara pirrandi vinur Orra, litla bróður Atla. Það breyttist fljótt enda kom það snemma í ljós að við ættum ým- islegt sameiginlegt. Badda og Siggi sáu alltaf til þess að okkur vanhagaði ekki um neitt og við nutum góðs af því hve mat- grannir þeir bræður hafa alltaf verið þegar við tæmdum hvern baukinn á fætur öðrum sem jafnan voru fullir af Böddukök- um og öðrum gersemum. Við deildum ástríðu á fót- bolta og öllum málum tengdum Þór. Þú hafðir miklar hugmynd- ir og sterkar skoðanir á öllu starfi félagsins og varst tilbúinn að gera allt til þess að hjálpa Þór að vaxa og dafna. Það er ómetanlegt að við skyldum taka að okkur þjálfun 5. flokks karla haustið 2018. Þar naust þú þín í botn og lést veikindin ekki stöðva þig í að búa til grjót- harða Þórsara framtíðarinnar. Tilveran á hliðarlínunni er tóm- legri án þín. Þú varst þrjóskari en gengur og gerist og við gátum enda- laust deilt um ýmis menn og málefni en gátum jafnan sæst á að vera sammála um að vera ósammála. Við vorum samt sammála um hvar væri langbest að vera sem sést á okkar fyrstu fasteignakaupum þar sem rétt rúmir 100 metrar voru á milli íbúðanna okkar í hjarta Þorps- ins. Við ætluðum að eiga miklu miklu fleiri ár saman í Þorpinu og við ræddum líka oft hvað við ætluðum að hafa það gott í ell- inni. Ég er þakklátur fyrir fjöldann allan af stórkostlegum Baldvin Rúnarsson Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI ÞÓRARINSSON húsasmíðameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 7. júní. Sigríður Þorláksdóttir Ólafur Helgason Linda Sunnanväder Salína Helgadóttir Einar Long Guðmundur Helgason Hildur Jósefsdóttir Þröstur Helgason Gerður Jónsdóttir Hermann Brynjólfsson Eygló Lilja Ásmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, STEFÁN J. RICHTER, Delray Beach, Florida, lést sunnudaginn 9. júní. Fyrir hönd fjölskyldu, Börn hins látna Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma, HERDÍS TEGEDER, Hrauntúni 13, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Vestmannaeyjum, laugardaginn 8. júní. Útförin fer fram frá Landakirkju, Vestmannaeyjum laugardaginn 15. júní klukkan 13. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á líknarfélög í Vestmannaeyjum. Hermann Kristján Jónsson Sigurjón Hinrik Adólfsson Kristín Elfa Elíasdóttir Gunnar Darri Adólfsson Svava Bjarnadóttir Jón Steinar Adólfsson Júlía Elsa Friðriksdóttir Edda Tegeder María Tegeder barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýlismaður minn, bróðir okkar og mágur, ÞORSTEINN GUÐNASON, Eyjabakka 3, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 2. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. júní klukkan 15. Ósk S. Árnadóttir Magnús Guðnason Birte Nielsen Bjarni Guðnason Elínbjörg Kristjánsdóttir Kristín Guðnadóttir Þórný Guðnadóttir Lúðvík I. Helgason Ágúst Guðnason Drífa Dröfn Geirsdóttir Gísli Guðnason Halla Guðnadóttir Borgþór Hjörvarsson Þórdís Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.