Morgunblaðið - 12.06.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
COMPONIBILI hirslur
3ja hæða – fleiri litir
Verð frá 18.900,-
RITZENHOFF
Bjórglös og krúsir
Verð frá 2.150,-
IITTALA AALTO
Vasi 160mm sea blue
Verð 18.950,-
KARTELL BOURGIE
Lampi – fleiri litir
Verð frá 39.900,-
KARTELL TAKE
Borðlampi – margir litir
Verð 12.900,-
SPECTRUM
Kertastjaki - fleiri litir
Verð frá 7.490,- stk.
glæsilegar
ÚTSKRIFTARGJAFIR
KARTELL CINDY
Borðlampi fleiri litir
Verð 32.900,-
KAY BOJESEN
Söngfugl– fleiri litir
Verð frá 10.990,-
ARCHITECTMADE
Mörgæs
Verð frá 8.490,- stk
11.9. 1864, d. 6.6. 1917, bóndi í Þver-
dal í Saurbæ í Dalasýslu og Guðrún
Pálsdóttir, f. 4.10. 1873, d. 14.5. 1937,
húsfreyja í Þverdal.
Börn: 1) Gréta Viðars Jónsdóttir,
f. 30.1. 1943, fyrrverandi verslunar-
kona í Reykjavík. Maki: Guðjón
Jónsson, f. 24.1. 1941, leigubílstjóri.
Barnabörn: Jón Arnar Magnússon,
f. 1964, Íris Hrönn Guðjónsdóttir, f.
1973, Óttar Orri Guðjónsson, f. 1977,
Björn Ingi Guðjónsson, f. 1979; 2)
Guðrún Rögn Jónsdóttir, f. 5.12.
1947, fyrrverandi félagsfræðingur í
Reykjavík. Barnabörn: Anna Helga
Bjarnadóttir, f. 1968, Inga Sif Krist-
jánsdóttir, f. 1972, Sindri Aron Vikt-
orsson, f. 1988; 3) Sólbjörg Alda
Jónsdóttir, f. 19.3. 1949, fyrrverandi
móttökuritari í Reykjavík. Barna-
börn: Ingirafn Steinarsson, f. 1973,
Anna Dúna Steinarsdóttir, f. 1977; 4)
Sigfús Kristinn Jónsson, f. 8.5. 1952,
garðyrkjubóndi í Skrúði. Maki:
Ragnhildur Guðnadóttir, f. 22.4.
1952, garðyrkjubóndi. Barnabörn:
Ásdís Gunnarsdóttir, f. 1974, Anna
Helga Sigfúsdóttir, f. 1979, Sigríður
Hulda Sigfúsdóttir, f. 1982.
Systkini: Guðmundur, f. 1912, d.
2004, Hans Hallgrímur, f. 1913, d.
2008, Lárus, f. 1915, elstur núlifandi
íslenskra karla, Steingrímur Matt-
hías, f. 1919, d. 1976, Salóme Sigfúsa,
f. 1920, d. 1920, Guðrún Sigríður, f.
1921, d. 1998, Eiríkur, f. 1923, d.
2008, Garðar, f. 1924, d. 1988, Har-
aldur Gísli, f. 1925, d. 2018, Sólbjörg,
f. 1927, d. 1947, Guðbjörg María, f.
1929, d. 2004, Salóme Sigfríður, f.
1932, d. 2010, Þorbjörn Sigmundur,
f. 1934, d. 2002.
Foreldrar Önnu voru hjónin Sig-
fús Sigfússon, f. 7.8. 1887, d. 29.1.
1958, bóndi á Stóru-Hvalsá í Hrúta-
firði, og Kristín Gróa Guðmunds-
dóttir, f. 8.10. 1888, d. 15.2. 1963,
húsfreyja á Stóru-Hvalsá.
Úr frændgarði Önnu Sigfúsdóttur
Anna
Sigfúsdóttir
Bjarni Sigfússon
b. í Skarði í Strandasýslu og vinnum. í Eyjum
María Bjarnadóttir
vinnuk. í Eyjum
Sigfús Bjarnason
b. á Eyjum í Bjarnarfi rði á Ströndum
Salóme Þorbergsdóttir
húsfr. á Eyjum
Sigfús Sigfússon
b. á Stóru-Hvalsá
Þorbergur Björnsson
b. í Reykjarvík á Ströndum
Agata Bjarnadóttir
húsfr. í Reykjarvík
Steingrímur Matthías Sigfússon
tónskáld og rithöfundur (Valur Vestan)
Haraldur Gísli Sigfússon
leigubílstjóri í Rvík
Lárus Sigfússon fv. bóndi
og ráðherrabílstjóri
Loftur Sigfús-
son sjóm. í
Hafnarfi rði
Garðar Sigfússon
lengi lögreglumaður í Kópavogi
Hreinn
Haraldsson
fv. vega-
málastjóri
Eiríkur Sigfússon
b. á Stóru-Hvalsá
Finnur Eiríksson
forstj. Frum
Steinunn
Loftsdóttir
húsfr. í
Hafnarfi rði
Reynir Pétur
Steinunnar-
son göngu-
garpur
Nikulás Bárðarson
b. á Pjötlu í Staðarsókn
á Snæfellsnesi
Sigríður Loftsdóttir
húsfr. á Pjötlu
Guðmundur Nikulásson
b. á Kollsá
Sólbjörg Jórunn Vigfúsdóttir
húsfr. á Kollsá í Hrútafi rði
Kristín Gróa Guðmundsdóttir
húsfr. að Stóru-Hvalsá í Hrútafi rði
Vigfús Vigfússon
b. á Kollsá
Helga Jónsdóttir
húsfr. á Kollsá
„GEFÐU MÉR TÍU MÍNÚTNA FORSKOT
OG FARÐU SVO AÐ MOKA Í HOLUNA. ÉG
VINN BEST UNDIR PRESSU.”
„HÉRNA, TAKTU ÞENNAN. ÉG VAR
EKKI MEÐ NÓG FYRIR TVEIMUR
JARÐARBERJADRAUMUM!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera eftirsóttur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VAKNAÐU,
GRETTIR!
ÞESSI BÓK INNIHELDUR
1001 RÁÐ TIL AÐ LÁTA SÉR
EKKI LEIÐAST!
GREY
JÓN … HANN
MEINAR VEL
MAMMA, MIG LANGAR AÐ SPYRJA
ÞIG NOKKURRA SPURNINGA UM
HJÓNABÖND!
RÁÐ NÚMER EITT … „BÚÐU TIL
DÚKKUHÚS ÚR SKÓKÖSSUM”?
ÞÚ ÆTTIR FREKAR AÐ SPYRJA FÖÐUR
ÞINN! HANN VALDI BETRI LÍFSFÖRUNAUT
EN ÉG!
Davíð Hjálmar í Davíðshaga yrk-ir um „Skólaforðun“:
Skrópið í skóla var forðun,
skömmin mun fylgja mér æ.
Það kallar menntafólk morðun
marhnút þá dró ég úr sæ
en nú lýkur bið eftir borðun;
bjúgu í kvöldmat ég fæ.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir á
Boðnarmiði:
Séra Fúsi á Felli
á freistinga hálu svelli
oft syndugur féll
og sínum þann skell
kenndi brotlegum belli.
Helgi R. Einarsson yrkir „eina úr
sveitinni“:
Aumingja Gutti’ er nú geldur,
því greddu var ofurseldur.
Staðfasta stoltið
af stallinum oltið.
Hitt vildi’ ann miklu heldur.
Ingólfur Ómar skrifaði í Leirinn í
tilefni af sjómannadeginum:
Fyrir hreysti, dug og dáð
drengjum hampa góðum,
í stormi og byljum hildi háð
þeir hafa á ránarslóðum.
Hræðast ekki hættu og nauð
hetjur sóknardjarfar,
út á sjóinn sækja auð,
sannir landsins arfar.
Fía á Sandi var á öðrum nótum:
„Við notuðum sjómannadaginn til
að skreppa eina ferð á sandinn með
kerru. Aflinn var sæmilegur, lítið
um bændaplast í dag en þess meira
frá sjómönnum svo sem litríkar kúl-
ur og blá plastrifrildi. Það stefnir í
ferð í gáminn.“
Þeir er sjóinn sækja fast
í sól og líka í hretum
færa okkur fagurt plast
og fullt af rifnum netum.
Gústi Mar svaraði:
Þó strákar mígi í saltan sjó,
á sænum oft þó busli,
hélt þeir væru hættir þó
að henda í sjóinn rusli.
Fía sagði, að sumt væri reyndar
hætt að sjást:
Ekki munu úti á sjó
allir vera að gæta sín.
En eitthvað breytist alltaf þó,
aldrei rekur brennivín,
– lengur, né flöskur undan því.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skólaforðun og
gengið á reka