Morgunblaðið - 12.06.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
„Þetta var bara pot af línunni í mörkunum, en tvö mörk
eru nóg. Þetta var alls ekki af æfingasvæðinu. Ég fer
bara alltaf á fjær og þar er ég alltaf frír og ég var mætt-
ur á réttan stað,“ sagði Ragnar Sigurðsson eftir að hafa
skorað bæði mörk Íslands í 2:1-sigrinum á Tyrkjum í
undankeppni EM í gærkvöldi. „Það er mjög ljúft að
vinna Tyrkina aftur. Við urðum að vinna þessa leiki við
Tyrkland og Albaníu í baráttunni um að komast áfram.
Þetta er sami neisti og hefur alltaf verið,“ sagði Ragnar.
„Sumir voru búnir að afskrifa okkur en það er nóg eft-
ir í þessum hópi og við sönnuðum það í þessum leikjum.
Við kunnum að takast á við þessi stóru verkefni, vitum
nákvæmlega hvað þarf til þess að vinna og af hverju að breyta því?“ sagði
Aron Einar Gunnarsson fyrirliði.
„Ég er hrikalega þakklátur öllum þeim sem komu á völlinn til þess að
styðja við bakið á okkur og ég tel að það hafi gert gæfumuninn á örlagarík-
um augnablikum í leiknum,“ sagði Emil Hallfreðsson.
Frekari viðbrögð landsliðsmanna og þjálfara eru á mbl.is/sport.
Sumir búnir að afskrifa okkur
Emil
Hallfreðsson
þeir áttu og sá liðsandi sem við
sáum í síðustu tveimur und-
ankeppnum hefur verið endurvak-
inn. Þessir strákar ætla sér að kom-
ast á þriðja stórmótið í röð og með
sigrinum í gærkvöld er það vel
raunhæft.
Íslensku landsliðsmennirnir eru
nú komnir í kærkomið frí en þráð-
urinn verður tekin upp í und-
ankeppni EM 7. september þegar
Moldóvar mæta á Laugardalsvöll-
inn. Ég set kröfu á okkar menn að
landa þremur stigum í þeim leik og
taka þar með eitt skref til viðbótar í
átt að úrslitakeppni EM.
d er mætt aftur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigurstemmning Aron Ein-
ar Gunnarsson fer fyrir
fögnuði íslensku leikmann-
anna í leikslok á Laug-
ardalsvellinum í gærkvöld.
Frakkar eru komnir í efsta sæti H-riðils undankeppni
EM í knattspyrnu eftir sigur á Andorra, 4:0, á gervi-
grasvellinum í Pyrena-fjöllum í gærkvöld, á meðan Ís-
lendingar afgreiddu Tyrki á Laugardalsvellinum.
Frakkar, Tyrkir og Íslendingar eru þar með allir
með 9 stig eftir fjóra leiki, hafa unnið heimaleikina
hverjir gegn öðrum, en innbyrðis er markatala Frakk-
anna best og lökust hjá Íslendingum.
Frakkar gerðu út um leikinn í Andorra fyrir hlé.
Kylian Mbappé skoraði á 11. mínútu, Wissam Ben Yed-
der á 30. mínútu og Florian Thauvin á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Kurt Zouma átti síðan lokaorðið með marki á
60. mínútu.
Albanar eru komnir með 6 stig eftir sigur á Moldóvum á heimavelli í El-
basan, 2:0. Sokol Cikalleshi skoraði um miðjan síðari hálfleik og Ylber Ra-
madani, leikmaður Vejle í Danmörku, tryggði sigurinn með marki í upp-
bótartíma. vs@mbl.is
Frakkar unnu og þrjú jöfn
Kylian
Mbappé
Hefðbundin meðganga tekur
níu mánuði og það var nákvæm-
lega sá tími sem sænski fót-
boltaþjálfarinn Erik Hamrén
þurfti til að geta byrjað að brosa
fyrir alvöru eftir að hann tók við
íslenska karlalandsliðinu.
Hamrén lenti í miklum
hremmingum með liðið í haust, í
Þjóðadeildinni og vináttuleikj-
unum, og íslenskir fótbolta-
áhugamenn hafa verið lengi að
taka hann í sátt.
En eftir sex stig í „tví-
höfðanum“ gegn Albaníu og
Tyrklandi síðustu daga getur Sví-
inn borið höfuðið hátt. Hann er
kominn með betri stöðu en landi
hans, hinn vinsæli Lars Lag-
erbäck, var með eftir fjóra fyrstu
leiki sína í undankeppni stór-
móts haustið 2012. Níu stig gegn
sex.
En það er magnað að sex af
þeim leikmönnum sem hófu
fyrsta leikinn hjá Lalla í sept-
ember 2012, gegn Noregi, voru í
byrjunarliðinu gegn Tyrklandi í
gærkvöld.
Ísland er orðið eitt reyndasta
landslið heims. Níu af þeim ell-
efu sem hófu leik í gærkvöld hafa
spilað 60 landsleiki eða meira.
Leikjahæsti Tyrkinn lék sinn 56.
landsleik og sex í byrjunarliði
Tyrkja eiga færri landsleiki en
Hjörtur Hermannsson sem spil-
aði sinn tólfta landsleik og var
lang reynsluminnstur íslenskra.
Til viðbótar kom Kolbeinn
Sigþórsson inn á og spilaði sinn
50. landsleik.
Þessi gríðarlega reynsla
skilaði sér inni á vellinum í gær-
kvöld gegn ungum Tyrkjum.
Ásamt því hungri sem er enn til
staðar í íslensku landsliðsmönn-
unum sem eru greinilega tilbúnir
til að fórna öllu fyrir málstaðinn
og eitt stórmót í viðbót.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
1:0 Ragnar Sigurðsson 21. með
skalla úr markteignum vinstra
megin eftir aukaspyrnu Jóhanns
Bergs frá hægri.
2:0 Ragnar Sigurðsson 32. með
skalla hægra megin úr markteign-
um eftir horn Gylfa frá vinstri og
skalla Birkis Bjarnasonar.
2:1 Dorukhan Toköz 40. með skalla
eftir hornspyrnu frá hægri.
I Gul spjöldEmil og Birkir (Íslandi), To-
köz, Yilmaz, Ayhan og Celik (Tyrk-
landi).
Ísland: (4-5-1) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Hjörtur Her-
mannsson, Kári Árnason, Ragnar
ÍSLAND – TYRKLAND 2:1
Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason
(Hörður B. Magnússon 69). Miðja:
Jóhann Berg Guðmundsson (Arnór
Ingvi Traustason 80), Aron Einar
Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson,
Emil Hallfreðsson, Birkir Bjarnason.
Sókn: Jón Daði Böðvarsson
(Kolbeinn Sigþórsson 64).
Tyrkland: (4-5-1) Mark: Mert Gü-
nok. Vörn: Zeki Celik, Merih Dem-
iral, Kaan Ayhan, Hasan Ali Kaldirim.
Miðja: Hakan Calhanoglu, Dorukhan
Toköz (Güven Yalcin 85), Irfan Ka-
hveci (Abdülkadir Ömür 63), Ozan
Tufan, Kenan Karaman (Yusuf Yazici
46). Sókn: Burak Yilmaz.
Dómari: Szymon Marciniak, Pól-
landi.
Áhorfendur: 9.680 (uppselt).