Morgunblaðið - 12.06.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Nýr stór humar
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa
Úrslitakeppni NBA
Fimmti úrslitaleikur:
Toronto – Golden State.................... 105:106
Staðan er 3:2 fyrir Toronto og sjötti leik-
ur verður í Oakland aðfaranótt föstudags.
KÖRFUBOLTI
6. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ef svo heldur fram sem horfir verð-
ur botnbaráttan í úrvalsdeild kvenna
í fótbolta, sem kennd er við Pepsi
Max, ekki síður spennandi en einvígi
Breiðabliks og Vals um Íslands-
meistaratitilinn.
Deildin virðist vera að skiptast í
þrennt þar sem Þór/KA gæti fengið
keppni frá ÍBV og mögulega Stjörn-
unni um þriðja sætið, en hin fimm
liðin, Selfoss, HK/Víkingur, Fylkir,
Keflavík og KR, virðast geta unnið
hvert annað hvenær sem er.
Eins merkilegt og það er, þegar
deildin er svona jöfn, hefur ekki einn
einasti leikur í fyrstu sex umferð-
unum endað með jafntefli.
Keflavík er tvímælalaust lið sjöttu
umferðar. Nýliðarnir höfðu tapað
fyrstu fimm leikjum sínum, á fyrsta
ári Keflavíkur í deildinni í heilan
áratug, og lánið hafði satt best að
segja ekki leikið við Suðurnesja-
stúlkurnar. Þær hefðu hæglega get-
að krækt í stig í þremur af fyrstu
fimm leikjunum. En í Vesturbænum
sprungu þær hreinlega út og gjör-
sigruðu KR 4:0. Keflavík er með í
sínum röðum hina öflugu Natöshu
Anasi, og KR réð ekkert við hana í
vítateig sínum þar sem Natasha
skoraði tvö skallamörk. Farið er að
ræða um hana sem besta leikmann
deildarinnar í ár, a.m.k. úr hópi
varnarmanna.
Keflavíkurliðið sýndi í leiknum að
það er til alls líklegt og getur lagt
hvaða lið sem er á góðum degi.
Staða KR er hinsvegar orðin
slæm. Vesturbæjarliðið er með
mikla reynslu í sínum hópi en er
þegar búið að tapa fyrir þremur af
keppinautunum í neðri hluta deild-
arinnar og virðist eiga erfiða baráttu
framundan.
Valur sigldi fram úr Breiðabliki
hvað markatölu varðar með því að
gjörsigra Fylki 6:0 á Hlíðarenda á
meðan Breiðablik vann Stjörnuna
naumlega, 1:0, í Garðabæ. Liðin eru
bæði með fullt hús stiga en Valur er
kominn sex mörkum á undan í mar-
kamismun. Ef svo heldur fram sem
horfið gæti markatalan ráðið úrslit-
um í einvígi liðanna. Fyrra uppgjör
þeirra verður á Hlíðarenda í 8. um-
ferðinni, miðvikudaginn 3. júlí.
Elín upp um þrjú sæti
Landsliðskonan Elín Metta Jen-
sen úr Val var besti leikmaður 6.
umferðar að mati Morgunblaðsins.
Elín átti nánast fullkominn leik þeg-
ar Valur burstaði Fylki en hún skor-
aði fjögur markanna og átti þátt í
hinum tveimur í 6:0 sigrinum. Betra
gerist það varla og Elín varð fyrir
vikið fyrst leikmanna í deildinni til
að fá 3 M á þessu keppnistímabili.
Þó Elín sé aðeins 24 ára gömul er
þetta hennar tíunda keppnistímabil
með meistaraflokki Vals. Hún skor-
aði sitt fyrsta mark 15 ára gömul, í
fyrsta leiknum, 7:2 sigri á Haukum,
árið 2010, og hefur nú skorað 94
mörk í 123 leikjum í úrvalsdeildinni.
Hún varð með fernunni gegn Fylki
þriðji markahæsti leikmaður Vals í
deildinni frá upphafi, fór uppfyrir
bæði Rakel Logadóttur (92) og
Dóru Maríu Lárusdóttur (91). Að-
eins Margrét Lára Viðarsdóttir
(148) og Kristín Ýr Bjarnadóttir
(104) hafa skorað fleiri mörk fyrir
Val.
Elín er nú orðin 15. markahæsti
leikmaður deildarinnar frá upphafi
en hún fór upp um þrjú sæti á þeim
lista með mörkunum fjórum.
Hún hefur skorað tvö mörk fyrir
landslið Íslands á þessu ári og er þar
komin með 10 mörk í 40 lands-
leikjum.
Hélt upp á 18 ára afmælið
Sveindís Jane Jónsdóttir, fram-
herjinn efnilegi í Keflavík, var besti
ungi leikmaður 6. umferðar að mati
Morgunblaðsins. Sveindís hélt upp á
18 ára afmælið, sem var deginum áð-
ur, þegar Keflavík fékk sín fyrstu
stig með stórsigrinum á KR, 4:0, þar
sem hún skoraði eitt markanna og
lék mjög vel, þannig að hún fékk 2 M
fyrir frammistöðuna.
Þótt Sveindís sé ekki eldri hefur
hún þegar skorað 44 mörk fyrir
Keflavík í deildakeppninni en þetta
er hennar fimmta ár í meistaraflokki
félagsins. Þar lék hún fyrst 14 ára
gömul árið 2015. Árið 2016 skoraði
Sveindís 27 mörk fyrir Keflavík í 1.
deild, 15 ára að aldri, og varð lang-
markahæst í deildinni, tólf mörkum
á undan þeirri næstu. Hún hefur
gert tvö mörk í fimm fyrstu leikjum
sínum með liðinu í efstu deild.
Þá hefur Sveindís skorað 16 mörk
í 31 leik með yngri landsliðum Ís-
lands.
Cloé Lacasse skoraði sitt 50.
mark fyrir ÍBV í deildinni þegar hún
skoraði tvívegis í 3:1 sigrinum á HK/
Víkingi. Hún er komin með sex mörk
í síðustu þremur leikjum og orðin
næstmarkahæst hjá ÍBV í deildinni
frá upphafi. Aðeins Bryndís Jóhann-
esdóttir (64) hefur gert fleiri mörk.
Ásta Eir Árnadóttir landsliðs-
kona úr Breiðabliki lék sinn 100. leik
í efstu deild í sigrinum á Stjörnunni.
Anita Lind Daníelsdóttir úr
Keflavík og Guðrún Gyða Haralz úr
HK/Víkingi skoruðu báðar sitt
fyrsta mark í efstu deild í 6. umferð.
Anna Young, 24 ára enskur
framherji, lék sinn fyrsta leik með
ÍBV en hún kom í vor frá Sunder-
land. Þá lék Keflvíkingurinn Arndís
Snjólaug Ingvarsdóttir sinn fyrsta
leik í efstu deild.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Cloé Lacasse, ÍBV 10
Elín Metta Jensen, Val 10
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 8
Natasha Moraa Anasi, Kefl avík 7
Sveindís Jane Jónsdóttir, Kefl avík 6
Birta Guðlaugsdóttir, Stjörnunni 5
Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 5
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 5
Stephany Mayor, Þór/KA 5
Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 4
Ásdís Karen Halldórsdóttir, KR 4
Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 4
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, Þór/KA 4
Clara Sigurðardóttir, ÍBV 4
Dóra María Lárusdóttir, Val 4
Emma Kelly, ÍBV 4
Hlín Eiríksdóttir, Val 4
Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 4
Elín Metta Jensen, Val 9
Cloé Lacasse, ÍBV 7
Stephany Mayor, Þór/KA 7
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 6
Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 4
Hlín Eiríksdóttir, Val 4
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 4
Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 3
Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 3
Natasha Moraa Anasi, Kefl avík 3
Markahæstar
Breiðablik 34
ÍBV 31
Valur 30
Kefl avík 27
Þór/KA 23
Stjarnan 23
HK/Víkingur 23
Selfoss 19
Fylkir 18
KR 17
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Þór/KA
Anita Lind
Daníelsdóttir
Kefl avík
Sveindís Jane Jónsdóttir
Kefl avík
Selma Sól
Magnúsdóttir
Breiðabliki
Cloé Lacasse
ÍBV
Margrét Lára
Viðarsdóttir
Val
Elín Metta Jensen
Val
Sesselja Líf
Valgeirsdóttir
ÍBV
Natasha Moraa Anasi
Kefl avík
Agla María Albertsdóttir
Breiðabliki
Hallbera Guðný
Gísladóttir
Val
6. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019
Lið:
5
4
3
3
3
2
2
Er sú besta með Keflavík?
Natasha Anasi skoraði tvö mörk gegn KR Elín Metta besti leikmaður 6.
umferðar með fullkominn leik og 3 M Sveindís Jane besti ungi leikmaðurinn
Morgunblaðið/Hari
Ferna Elín Metta Jensen fagnar
einu markanna gegn Fylki.
Morgunblaðið/Hari
Keflavík Sveindís Jane Jónsdóttir
er fremsti leikmaður nýliðanna.
HM kvenna í Frakklandi
E-RIÐILL:
Nýja-Sjáland – Holland........................... 0:1
Jill Roord 90.
Staðan:
Holland 1 1 0 0 1:0 3
Kanada 1 1 0 0 1:0 3
Kamerún 1 0 0 1 0:1 0
Nýja-Sjáland 1 0 0 1 0:1 0
F-RIÐILL:
Síle – Svíþjóð ............................................ 0:2
Kosovare Asllani 83., Madelen Janogy 90.
Bandaríkin – Taíland............................ 13:0
Alex Morgan 12., 53., 74., 81., 87., Rose La-
velli 20., 56., Lindsey Horan 32., Sam Mew-
is 50., 54., Megan Rapinoe 79., Mallory
Pugh 85., Carli Lloyd 90.
Staðan:
Bandaríkin 1 1 0 0 13:0 3
Svíþjóð 1 1 0 0 2:0 3
Síle 1 0 0 1 0:2 0
Taíland 1 0 0 1 0:13 0
Svíþjóð
B-deild:
Brage – Örgryte ...................................... 0:1
Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn
með Brage sem er í fjórða sæti.
Valþór Ingi
Karlsson hefur
verið ráðinn aðal-
þjálfari karlaliðs
Elite Volley Aar-
hus en liðið leikur
í dönsku úrvals-
deildinni í blaki.
Valþór Ingi var
aðstoðarþjálfari
liðsins á síðasta
tímabili og stýrði
liðinu í nokkrum leikjum undir lok
keppnistímabilsins.
Það er svo sannarlega ekki dag-
legt brauð að Íslendingar taki að sér
þjálfun liða í úrvalsdeildum í blaki
utan Íslands.
Valþór Ingi lék með KA hér heima
áður en hann söðlaði um og flutti til
Danmerkur fyrir tveimur árum.
iben@mbl.is
Ráðinn þjálf-
ari í Árósum
Valþór Ingi
Karlsson