Morgunblaðið - 26.06.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 26.06.2019, Síða 1
EFTIRSPURNINMEIRA ENTVÖFALDAST afmagnsbíll sem fær hjartað til þess að slá hratt 4 Framfarir í framleiðslu gervikjöts og -fisks eru örar. Sérfræðingar segja miklar breytingar í vændum. 10 VIÐSKIPTA Í kjölfar Parísarfundarins um loftslagsmál árið 2015 hafa fyrirtæki sýnt Kolviði aukinn áhuga að sögn Reynis Kristinssonar stjórnarformanns. KJÖTFRAMLEIÐSLUÓGNAÐ 4 R MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík ey.is Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta Þurrkar minnka tekjur veiðihúsa Eins og fjallað hefur verið um í Morgun- blaðinu hefur hálfgert hamfaraástand staðið yfir í mörgum veiðiám landsins, þar sem þurr- katíðin í maí og júní hefur orðið til þess að fiskur nær ekki að komast upp í árnar, og veiðin verið dræm eftir því. Hefur þetta ástand haft áhrif á rekstur veiðihúsa. Þráinn Freyr Vigfússon, matreiðslumaður og rekstraraðili veiðihússins við Þverá í Borgarfirði, segir í samtali við Viðskipta- Moggann að „þetta hafi sloppið ágætlega hingað til“, eins og hann orðar það. Hann seg- ir að ástandið hafi m.a. þau áhrif að harðir veiðimenn, sem komi einkum vegna fisksins, sitji þá frekar heima, en hinir, sem koma í veiðihúsin til að njóta góðs félagsskapar og slíks, mæti á staðinn, og láti þetta ekki hafa eins mikil áhrif á sig. Hann segir aðspurður að þurrkatíðin komi sér vissulega illa fyrir veiðihúsin. Höggið komi strax, en mögulega gætu áhrifin á sölu veiðileyfa komið síðar. Hann sé þó bjartsýnn á restina af sumrinu. Spurður að því hvort daggjöld í veiðihús séu greidd fyrir fram eins og veiðileyfi, segir Þráinn að eitthvað sé um slíkt, en vafalítið verði horft til slíks fyrirkomulags í meira mæli í framtíðinni. „Þetta hefur aldrei verið svona. Menn muna ekki svona þurrkatíð í byrjun sumars eins og nú hefur verið,“ segir Þráinn. Haukur Már Örvarsson, matreiðslumaður og rekstraraðili veiðihússins við Norðurá í Borgarfirði, segir að miðað við aðstæður hafi gengið mjög vel. Veiðin hafi augljóslega ekki verið mikil, og einhver forföll orðið í hópi við- skiptavina. Sumir hafi stytt dvöl sína, en aðrir hafi komið og notið þess að vera á staðnum. „Í góðu ári þegar fiskur er nægur, þá bara gerist þetta ekki. Við bindum vonir við að nú byrji að rigna. Þetta hefur verið mjög skrýtið ástand.“ Daggjald, án veiðileyfa, í veiðihúsi Norður- ár með öllu inniföldu er frá 22.900 – 29.900 að sögn Hauks. 12 stangir hafa verið í ánni frá 15. júní, en þar á undan voru þær átta. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Þurrkatímabilið sem staðið hefur hér á landi í maí og júní hefur haft slæm áhrif á veiði í helstu veiðiám landsins, og veiðihúsin verða af tekjum vegna þessa. Morgunblaðið/Einar Falur Hagfræðistofnun segir um 9 milljarða megi rekja til lax- og silungsveiða í landsframleiðslunni. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 2.100 2.000 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 27.12.‘18 26.12.‘18 25.6.‘19 25.6.‘19 1.611,03 2.071,23 145 140 135 130 125 133,05 141,4 Icelandair stefnir að því að koma framtíðaráformum sínum um flota- mál félagsins í ákveðið horf fyrir lok septembermánaðar og þar standa ýmsir kostir til boða. Meðal þess sem félagið skoðar er að skipta alfarið yfir í flota frá evrópska flugvélaframleið- andanum Airbus. Það myndi sæta miklum tíðindum enda rekur við- skiptasamband félagsins svið Boeing sig marga áratugi aftur í tímann. Í fréttaskýringu á miðopnu í dag er fjallað um þá stöðu sem er að teiknast upp í viðræðum Icelandair við flug- vélaframleiðendurna tvo. Tvö vanda- mál á vettvangi Boeing hafa þar mikil áhrif. Annars vegar hneykslið í kring- um MAX-vélarnar sem hafa staðið kyrrsettar um heim allan frá því í mars og hins vegar sú staðreynd að æ fleiri eru nú orðnir vantrúaðir á að fyrirtækið muni geta kynnt til leiks nýja vél sem leyst geti af hólmi hina rómuðu 757-vél sem nú er komin til ára sinna. Floti Icelandair byggir að langstærstum hluta á slíkum vélum og félagið þarf í raun á vél að halda sem búin er flestum kostum 757- vélarinnar. Geti Boeing ekki kynnt hina nýju vél til sögunnar fyrr en í kringum árið 2030 aukast líkurnar á því að Ice- landair muni veðja á A321XLR-vél úr smiðju Airbus en líkur eru taldar á að slíkar vélar verði afhentar fyrstu kaupendum á árinu 2023. Svo gæti farið að félagið pantaði allt að 50 slík- ar vélar þótt slík niðurstaða sé talin fremur langsótt sem stendur.Þangað til mun Icelandair notast við Boeing MAX-vélarnar, þegar þær taka aftur á loft, og mögulega vélar á borð við A321LR sem nú njóta mikilla vin- sælda meðal flugfélaga víða um heim. Gætu pantað 50 Airbus-þotur á einu bretti Morgunblaðið/RAX Senn skýrist hvort Icelandair leiti í smiðju fleiri en aðeins Boeing. Icelandair hyggst ganga frá samningum við Boeing eða Airbus fyrir lok septembermánaðar. 8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.