Morgunblaðið - 26.06.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 26.06.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019FRÉTTIR Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir Greina má mikinn áhuga á starfsemi Kolviðar og undanfarið hafa samningar náðst við fjölda fyrirtækja um að kol- efnisjafna starfsemi þeirra að hluta eða að öllu leyti. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Af því sem ég er að fást við þessi misserin er Kolviður mest áberandi en þar hef ég verið stjórnarformaður frá því 2008. Kolviðarsjóðurinn átti erfitt upp- dráttar í kjölfar bankahrunsins og al- veg fram yfir 2015 en í kjölfar umræð- unnar í kringum Parísarfundinn um loftslagsmál haustið 2015 fóru fyrirtæki að sýna þessum málum áhuga. Hefur sá áhugi breiðst út meðal stjórnenda fyrirtækja og á þessu ári hefur eft- irspurn fyrirtækja meira en tvöfaldast frá síðasta ári. Eftir þættina góðu „Hvað höfum við gert“ hafa líka óskir einstaklinga um kolefnisjöfnun marg- faldast og síðan kom umræðan um „flugviskubitið“ sem hefur enn aukið á vitund almennings um möguleikann á að kolefnisjafna óhjákvæmilega losun vegna reksturs heimilisbíla og flug- ferða. Vísitala samfélagslegrar ábyrgð- ar hefði því hækkað verulega væri hún til. Áskoranir okkar í dag eru því að halda vel utan um starfsemina með skipulögðum hætti og skýrum samn- ingum við þá sem kjósa að kolefnisjafna í samstarfi við Kolvið. Einnig þurfum við að tryggja okkur plöntur og lönd til gróðursetningar sem og mannskap til að annast gróðursetningu. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Ég hafði mjög gaman af ævisögu Steve Jobs. Hún sýnir ákveðinn stjórn- unarstíl sem hvatti menn áfram, en ég er ekki viss um að hann myndi ganga að öllu leyti upp í dag þó margt megi af honum læra. Einnig fannst mér bókin Factfulness eftir Rosling mjög áhugaverð en hún bendir manni réttilega á margar mýtur sem ekki standast raunveruleikann. Hvernig heldur þú þekkingu þinni við? Ég les mikið um hluti sem tengjast stjórnun og fylgist vel með á þeim vett- vangi en með stjórnarsetunni í Kolviði reyni ég að lesa allt sem ég kemst yfir sem varðar kolefnisbindingu með skóg- rækt og sæki fagráðstefnur á því sviði. Hugsarðu vel um líkamann? Ég hef mjög gaman af allt of mörgu og fæ því mikla alhliða hreyfingu. Ég er með hesta, fer á skíði, í gönguferðir og sund auk þess að planta trjám. Í vetur fór ég í leikfimi og það var betra en ég hélt. Mun taka það upp að nýju í haust. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Mér hefur alltaf fundist ráð- gjafastörf skemmtileg og í raun draumastarf af því að maður hittir svo margt ólíkt fólk, og í dag er vinnan með Kolviði sannkallað draumastarf. Pólitík gæti blundað undir niðri af því að þar er af svo mörgu að taka sem bæta þarf úr. Hvað myndurðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Líklega væri það á sviði auðlinda- fræði, til að fá betri yfirsýn yfir mögu- legar auðlindir og nýtingu þeirra fyrir þá 11 milljarða manna sem verða á plánetunni innan tiltölulega skamms tíma. Hvað kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Frá sjónarhóli Kolviðar þá þarf nú að stórefla framleiðslu skógarplantna og þar þarf ríkið að koma inn með meiri stöðugleika í eftirspurn en verið hefur. Kolviður getur tekið að sér kolefn- isjöfnun fyrir erlend fyrirtæki og ein- staklinga en það gæti strandað á framleiðslu skógarplantna til skamms tíma litið en síðan munu menn vænt- anlega sjá tækifærin þarna og þá ætti þetta að lagast. Hvað gerirðu til að fá orku og inn- blástur í starfi? Ég hef verið svo heppinn að finnast það sem ég er að starfa að hverju sinni ótrúlega skemmtilegt. Þetta á einnig við í störfum fyrir Kolvið þar sem ég fæ að sjá hlutina byggjast upp og skila árangri. Það gefur mér orku og innblástur til að halda áfram. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Þetta er erfið spurning því lagaum- hverfið er orðið allt of flókið og óskil- virkt, og gegnumgangandi ákvörð- unarfælni hjá opinberum aðilum. Nefni þó hér allt lagaumhverfið um skipulags- og byggingarmál, um- hverfismál, skattamál tengd sölu sumarhúsa og skattlagningu lífeyr- isgreiðslna sem eru að mestu fjár- magnstekjur. SVIPMYND Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðar Vísitala samfélagslegrar ábyrgðar á uppleið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon NÁM: BSc í tæknifræði frá Odense Teknikum 1972; við- skiptagráða frá Tietgenskolen í Odense; MBA frá Háskól- anum í Reykjavík 2005; hæfnismat Fjármálaeftirlits til að sitja í stjórn fjármálafyrirtækis 2010. STÖRF: Framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Hagvangi 1981-1998; dósent og deildarstjóri viðskiptadeildar Há- skólans á Bifröst 2006-2009; ýmis störf við einstök verk- efni, ráðgjöf, stefnumótun og kennslu frá 1972 til dagsins í dag. Stjórnarseta s.s. hjá CCP, ParX, PwC o.fl. Stjórn- arformaður Kolviðar frá 2008; í stjórn ISB Holding frá 2008. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Lilju Guðmundsdóttir. Við eigum fjögur börn en þau eru Pétur Vignir, læknir í Sví- þjóð, Lísa Björk, sálfræðingur í Danmörku, Eva Margrét, skipulagsarkitekt í Danmörku, og Kristinn Már, lögfræð- ingur í Reykjavík. HIN HLIÐIN ÖKUTÆKIÐ Eins sniðugir og rafmagnsbílar eru, þá má deila um hvort þeir séu sér- staklega falleg ökutæki. Er leitun að rafmagnsbíl sem fær hjartað til að slá örar með útlitinu einu sam- an, og jafnvel reffileg Tesla getur horfið í fjöldann á götum úti, ólíkt t.d. ítölsku bensínfákunum frá Mar- anello og Sant‘Agata. En nú kann þetta að breytast, þökk sé breska sprotafyrirtækinu Charge Car. Þar á bæ fara menn reyndar allra stystu leið í hönnun- inni, og fá útlitið að láni frá Ford. Er ytra byrðið nánast alveg eins og á Mustang-sportbílum 7. áratug- arins en að innan blandast saman sígildir tónar og rafmögnuð naum- hyggja, með skjá í stað mælaborðs og stóran lóðréttan snertiskjá þar sem nálgast má leiðsögukerfi og stillingar bílsins. Í stað bensínvélar er komin raf- magns-aflrás, sem beinir allt að 536 hestöflum út til hjólanna. Raf- magns-Mustanginn frá Charge á því að geta náð frá kyrrstöðu upp í hundraðið á um það bil 4 sek- úndum. Áætluð drægni er rúmlega 320 km. Fegurðin og tæknin kostar sitt og er grunnverð bílsins 300.000 pund, eða jafnvirði um 47,5 millj- óna króna. ai@mbl.is Falleg fortíð og framtíð mætast Hver gæti staðist annan eins bræðing tækni og sígildra útlína? Reynir segir eina af áskor- unum fyrirtækisins í dag að tryggja sér nægilegt magn af plöntum til gróðursetningar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.