Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 7FRÉTTIR
FREKARI UPPLÝSINGAR
ISAVIA . IS/RAFTAEK JAVERSLUN
Staðsetningar: 1. og 2. hæð í norðurbyggingu
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Samningstími: Þrjú ármeðmöguleika
á tveggja ára framlengingu (3+1+1)
Isavia leitar að reynslumiklum aðila til að reka
raftækjaverslanir í flugstöðinni.
Umer að ræða tvær verslanir; annars vegar
á verslunarsvæði á 2. hæð í brottfararsal og
hins vegar komuverslun á 1. hæð í töskusalmeð
mögulegumbreytingum á samningstíma.
Nánari upplýsingarmá nálgast í útboðslýsingu
semer aðgengileg á útboðsvef Isavia.
V I Ð S K I P TATÆ K I FÆ R I Á K E F L AV Í K U R F L U G V E L L I :
Ú T B O Ð Á AÐ S T Ö Ð U
F Y R I R R A F TÆK J AV E R S L U N
„Þetta er í raun enn eitt skrefið sem við er-
um að taka í átt að auknum loftgæðum og
betra umhverfi,“ segir Úlfar Steindórsson,
forstjóri Toyota á Íslandi, um samning
fyrirtækisins við kolefnissjóðinn Kolvið. Í
samningnum er kveðið á um kolefnisjöfnun
allra nýrra tvinnbifreiða Toyota og Lexus
frá og með 1. janúar sl. Að sögn Úlfars eru
það um 40% allra seldra bifreiða hjá Toyota
og því um umtalsverða aðgerð að ræða.
Undirritun samningsins fór fram á dög-
unum, en Kolviður sérhæfir sig í kolefn-
isjöfnun fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
„Þetta verkefni gengur út á það að við kaup
á tvinnbíl frá okkur þá tryggjum við að
gróðursettur verði fjöldi trjáa í samræmi
við útblástur bifreiðarinnar. Þetta munum
við gera út líftíma allra nýrra hybridbíla og
þannig gera akstur þeirra kolefnishlut-
lausan,“ segir Úlfar.
Umhverfismál í forgangi
Miðað er við 15 þúsund km akstur á
hverja bifreið á ári og greiðir Toyota fyrir
gróðursetningu trjáa í samræmi við það.
Spurður hvers vegna Toyota hafi ákveðið að
taka þátt í verkefninu segir Úlfar að fyrir-
tækið hafi ávallt lagt mikla áherslu á um-
hverfismál. Þá eigi stefna Toyota rætur að
rekja til áhuga stofnanda fyrirtækisins, Páls
Samúelssonar, á skógrækt.
„Við höfum aðstoðað við endurheimt vot-
lendis ásamt því að styðja við skógrækt á
Íslandi í tæp 30 ár. Við vorum síðan valin
Umhverfisfyrirtæki ársins 2018 hjá Sam-
tökum atvinnulífsins. Okkur ber ekki skylda
til að láta að okkur kveða á þeim vettvangi,
en auðvitað gerum við okkur grein fyrir því
að við erum að selja vöru sem mengar og
því viljum við leggja okkar af mörkum,“
segir Úlfar og bætir við að með samn-
ingnum við Kolvið sé Toyota að ganga enn
lengra en áður. „Við viljum vera framarlega
þegar kemur að umhverfismálum og okkur
hefur tekist það síðustu ár. Með því að kol-
efnisjafna allar hybridbifreiðar erum við að
fara enn frekar í þá átt að vera leiðandi í
umhverfismálum hér á landi,“ segir Úlfar.
Háleit markmið næstu ár
Markmið Toyota á alþjóðavísu er að losun
koldíoxíðs vegna framleiðslu, notkunar eða
förgunar bifreiða verði engin fyrir árið
2050. Markmiðið er háleitt, en fyrirtækið er
nú þegar sá bifreiðaframleiðandi sem meng-
ar minnst í Evrópu.
Að því er fram kemur í gögnum frá
JATO, gagnavinnslu- og rannsóknarfyrir-
tæki sem sérhæfir sig m.a. í vinnu fyrir
bílaiðnaðinn, kemur fram að á árinu 2018
hafi koldíoxíðútblástur bifreiða Toyota í
Evrópu verið rétt undir 100 g/km. Til að
standast nýja löggjöf ESB verða bifreiða-
framleiðendur að vera komnir undir 95 g/
km fyrir árið 2021. Að öðrum kosti eiga
þeir á hættu að þurfa að greiða háar sektir.
Það myndi til að mynda þýða, sé miðað við
óbreytt ástand, að Volkswagen yrði skylt að
greiða 76% alls hagnaðar í sekt. Úlfar segir
að framangreindar reglur breyti stefnu
Toyota lítið enda séu umhverfismál fyrir-
tækisins í góðu horfi. Þá muni fyrirtækið
halda áfram að vinna ötullega að því að
minnka útblástur bifreiða.
Rafmagn ekki endilega lausnin
Spurður hvort hann sjái fyrir sér að við-
skiptavinum muni einungis standa raf-
magnsbifreiðar til boða innan fárra ára
kveður Úlfar nei við. Í fyrirsjáanlegri fram-
tíð verði áfram markaður fyrir bifreiðar
knúnar með hefðbundnu eldsneyti. Tvinn-
bifreiðum haldi hins vegar áfram að fjölga
auk þess sem samsetning bílaflotans mun
færast meira í átt að rafmagni. „Þessir bílar
eyða minna og eru hagkvæmari í rekstri en
hefðbundnar bifreiðar,“ segir Úlfar, en tek-
ur þó fram að þrátt fyrir að bifreiðar séu
knúnar með rafmagni sé björninn ekki þar
með unninn.
„Rafmagn er auðfáanlegt hér á landi en
það á auðvitað ekki við alls staðar í heim-
inum. Víðsvegar er notast við kol eða jafn-
vel kjarnorkuver til að knýja fram raforku.
Slíkt mengar á endanum líklega miklu
meira en notkun á hefðbundnum bifreiðum.
Útblástur bifreiða er því einungis ein
breyta sem þarf að skoða þegar að lofts-
lagsmálum kemur. Eins og sjá má er að
mörgu að huga,“ segir Úlfar.
Kolefnisjöfnun allra tvinnbíla Toyota
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Toyota á Íslandi skrifaði nýverið
undir samning þar sem kveðið er á
um kolefnisjöfnun allra nýrra tvinn-
bifreiða fyrirtækisins. Með þessu
vilja forsvarsmenn þess halda
áfram að vera leiðandi í umhverfis-
málum hér á landi.
Úlfar Steindórsson ásamt Reyni Kristinssyni við undirritun samnings Toyota á Íslandi og kolefn-
issjóðsins Kolviðar. Toyota skuldbindur sig til að kolefnisjafna allar tvinnbifreiðar fyrirtækisins.