Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 10

Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 AF 200 MÍLUM Á MBL.IS Borgarísjaka undan Vestfjörðum rekur enn að landi innan um hafís, frosinn sjó. Samkvæmt athugunum jarðvísindamanna við Háskóla Ís- lands síðdegis í gær var ísjakinn um 28 sjómílur norðvestur af Horni á Hornströndum. Hafísinn sem umkringir jakann rekur nú austur. Í samtali við 200 mílur segir Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við jarð- vísindadeild Háskóla Íslands, að viðbúið sé að brotnað geti upp úr ís- jakanum og slíkt geti verið varasamt. Eitthvað sé um skipaferðir á svæðinu, fiskiskip sem séu flest hver vön slíkri hættu, og skemmti- ferðaskip, sem frekar þurfi að hafa áhyggjur af enda áhafnir þar síð- ur vanar. „Það er helst þegar ísjakinn fer að bráðna sem hann getur verið hættulegur,“ segir Ingibjörg. Jafnvægi geti breyst og litlir jakar brotnað frá, sem erfiðara sé að greina á ratsjám skipa. Hafísinn sem umkringir borgarísjakann rekur nú í austurátt. Ísjakinn ógn við skemmtiferðaskip Sérfræðingar spá því að innan nokkurra áratuga verði meirihluti kjöts sem selt verður í búðum ekki af slátruðum dýrum, heldur ræktað í tækjum eða gert úr plöntublöndum sem hafa svipaða áferð og bragð og kjöt. Framfarirnar eru örar í fram- leiðslu gervikjöts og -fisks og á dög- unum kynnti t.d. bandarískt fyrir- tæki laxaþynnur sem ræktaðar voru á tilraunastofu. „Bandarísk fyrirtæki hafa tekið forystuna á þessu sviði, tekist að afla margra tuga milljóna dala frá fjárfestum, og njóta stuðnings manna á borð við Bill Gates. Þótt kvartað sé yfir því að vanti upp á bragð og áferð gervikjöts og -fisks þá fleygir gæðum þessarar vöru fram og framleiðslukostnaðurinn lækkar hratt. Ekki er hægt að spá fyrir um það með mikilli vissu en sumir telja aðeins fimm til tíu ár í það að frumuræktað kjöt og fiskur komi á markað,“ segir Valdimar Sigurðsson, prófessor í við- skiptafræði við Háskólann í Reykja- vík. Neytendur forvitnir Hann segir framleiðslu á kjöti og fiski með þessum aðferðum kunna að hljóma eins og vísindaskáldskap en tæknin er þegar orðin að veru- leika og líklegast aðeins tímaspurs- mál hvenær þessar vörur fara t.d. að keppa við íslenskan fisk í verði og gæðum. „Kannanir sýna að neytendur eru þegar orðnir nokkuð meðvitaðir um þróunina og í einni könnun sögðust 29% svarenda myndu vilja borða kjöt framleitt með frumuræktun. Í annarri könnun fór hlutfallið upp í 41%,“ útskýrir Valdimar. „Og þegar þessi geiri vex þá eru allar líkur á að hann muni ráðast beint á hefðbund- inn sjávarútveg og landbúnað, og fara þá leið við markaðssetningu að undirstrika veikleika hefðbundinnar kjöt- og fiskframleiðslu.“ Hvort sem rannsóknarstofu- fiskur mun birtast fjöldafram- leiddur í hillum verslana árið 2025 eða 2050 segir Valdimar að sjávar- útvegurinn verði að gefa þessari þróun gaum: „Frumuræktaður fisk- ur er alls ekkert kjaftæði heldur hugsanlega framtíðarkeppinautur sem þarf að taka alvarlega.“ Valdimar leggur til að ráðist verði í ítarlegar rannsóknir til að skilja ógnina betur, og um leið greina hvar veikleikar og styrkleikar íslensks sjávarfangs gætu legið á öld frumu- ræktaðs fisks. Hann bendir á að gervikjöt og -fiskur muni m.a. geta státað af meiri sjálfbærni, hrein- leika og minni umhverfisáhrifum. „Við ættum að kortleggja hvaða veikleika þessi keppinautur gæti nýtt sér, og eins hverju hann gæti haldið fram til að móta almennings- álitið, jafnvel þótt það reynist ekki alveg sannleikanum samkvæmt,“ segir Valdimar og minnir á að allt geti orðið fyrirtækjum að vopni í harðvítugu markaðssetningarstríði svo það skipti máli að undirbúa sig tímanlega. Borgarar sem seljast upp Frá aldamótum hafa frumkvöðlar náð undraverðum árangri við fram- leiðslu gervikjöts og er nú svo kom- ið að í prófunum eiga neytendur ekki alltaf auðvelt með að greina á milli kjötborgara og háþróaðs gervi- borgara. Burger King setti fyrr á árinu á markað nýjan kjötlausan „Imp- ossible Whooper“ og kjötlausi kjúk- lingaborgarinn „Imposter Burger“ seldist upp á fjórum dögum þegar hann fór í sölu á veitingastöðum KFC í Bretlandi fyrr í mánuðinum. „Annað fyrirtæki, Finless Foods, hyggst bjóða upp á frumuræktaðan bláuggatúnfisk og sér það m.a. sem leið til að hjálpa stofni í hættu. Sum- arið 2017 sögðust þau ætla að vera komin með vöru á markað árið 2019 en eitthvað virðist það hafa dregist,“ segir Hörður G. Kristinsson, rann- sókna- og nýsköpunarstjóri hjá Matís. Fara má tvær leiðir við fram- leiðslu gervikjöts og -fisks: annars vegar að taka vöðvafrumur úr dýri og síðan láta frumurnar fjölga sér svo að úr verður kjötbiti, eða að nota matvælavísindi til að finna hár- rétta blöndu plöntuefna til að herma eftir bragði, útliti og áferð kjöts. Bendir Hörður á að þau fyrirtæki sem fara seinni leiðina hafi einkum einblínt á að gera sannfærandi gervihamborgara, því einfaldara sé að herma eftir útliti hakkabuffs en t.d. nautalundar þar sem skiptast á vöðva- og fituvefir. Bara tímaspursmál Frumuræktunin hefur reynst öllu flóknari og kostnaðarsamari: „Hol- lenskur vísindamaður komst í fréttir árið 2013 með fyrsta ræktaða ham- borgarann sem kostaði 325.000 dali að framleiða og tók 3-4 mánuði að rækta. Síðan þá hefur kostnaðurinn lækkað hratt og mörg fyrirtæki keppast við að koma frumuræktuðu kjöti á markað. Það er aðeins tíma- spursmál hvenær frumuræktað kjöt getur farið að keppa við hefðbundið kjöt í verði og gæðum.“ Frumkvöðlar þurfa samt fyrsta að yfirstíga nokkrar stórar hindr- anir, s.s. hvernig má stýra vexti dýrafrumanna. „Ein lausn gæti ver- ið að hreinlega þrívíddarprenta vöðva og hafa þannig algjöra stjórn á hlutföllum og legu fitu- og kjöt- fruma í bitanum,“ útskýrir Hörður. „Önnur áskorun snýr að leyfum og markaðssetningu og t.d. eru fyrir- tækin að glíma við bandaríska mat- vælaeftirlitið um hvernig eigi að merkja þessar vörur og hvort megi kalla þær kjöt eða fisk.“ Þegar tæknin er orðin nægilega þróuð ætti að vera tiltölulega einfalt að rækta fallegan bita úr frumum nánast hvaða landdýrs og fiskteg- undar sem er, og það með minni umhverfisáhrifum og lægri kostnaði en fylgir búskap, veiðum eða eldi. „Það yrði ekki stórt stökk að fara frá því að rækta frumur úr túnfiski yfir í að búa til þorskstykki á til- raunastofu. Fræðilega séð ætti að vera hægt að taka 10 kjötfrumur, rækta undir fullkomnum aðstæðum í tvo mánuði, og uppskera þá 50.000 tonn af kjöti.“ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Hvað ef hægt væri að ýta á takka á vél og hreinlega prenta út vænt hnakka- stykki eða flak? Tækni sem sumir segja að sé rétt handan við hornið gæti kippt fótunum undan ís- lenskum sjávarútvegi. Á þessari kynningarmynd frá bandaríska fyrirtækinu The Wild Type má sjá frumuræktaðan lax á flögusnittu. Tæknin gæti hrist upp í matvælamarkaði. Valdimar Sigurðsson Hörður Kristinsson „Samkeppni sem þarf að taka alvarlega“ Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.